Morgunblaðið - 11.05.1985, Blaðsíða 21
MORGUNBLADIÐ, LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1985
21
Bænadagur Þjóðkirkjunnan
Beðið fyrir börnum
fæddum og ófæddum
Nú á sunnudag er hin árlegi
bænadagur kirkjunnar. Biskup
hefur valið sem sérstakt fyrir-
bænaefni dagsins: Bæn fyrir börn-
um, fæddum og ófæddum og fram-
tíð þeirra. Er það í samræmi við ár
æskunnar, en á vegum Sameinuðu
þjóðanna er nú gert átak til lið-
sinnis og líknar uppvaxandi kyn-
slóðum.
Biskup hefur skrifað prestum
landsins og óskað þess að á bæna-
daginn fari messugjörð fram í sem
flestum kirkjum landsins. Þar sem
prestar komast ekki yfir það vegna
fjölda kirkna i prestakallinu er
þess óskað að leikmenn stýri þar
guðsþjónustu og bænagjörð.
Herra Pétur Sigurgeirsson segir
ennfremur í bréfi sínu:
Þrátt fyrir stórstígar framfar-
ir tækni og vísinda til bættra
lifskjara og öryggis virðist
ábyrgð á velferð mannkyns og
lotning fyrir lífinu ekki hafa
vaxið að sama skapi. Hungurvof-
an kemur harðast niður á börn-
unum og miskunnarleysið i
heiminum bitnar mest á þeim.
Barn er ekki aðeins barn, þeg-
ar það er í heiminn borið, heldur
þegar konan verður barnshaf-
andi. Vernd barnsins byrjar því í
móðurkviði, þegar nýtt líf verður
til. Sú þróun á sér nú stað, að
réttur barnsins til lífs er eigi
virtur sem skyldi. Það er ugg-
vænlegt. Félags- og tilfinninga-
legar ástæður, sem oft taka
skjótum breytingum, mega ekki
koma í veg fyrir það, að barnið
fái að lifa. Þjóðfélaginu ber
skylda til að taka á sig ábyrgð
með móðurinni svo að hún
standi ekki ein í þeim vanda á
örlagastund, sem hún ræður ekki
við. Helgi mannlegs lífs, að
standa vörð um lífsrétt ófæddra
barna, er öllum mönnum sam-
eiginleg.
Börn og unglingar eru í mikilli
þorf fyrir, að njóta handleiðslu
hinna eldri, að þeim sé miðlað af
reynslu og visku genginna kyn-
slóða. Það þykir sjálfsagt að
fylgja barninu sínu i skólann er
það byrjar skólagönguna og
velja því bestu leiðina framhjá
hættum í umferðinni. Eins og
börnum er nauðsyn á að fá vegs-
ögu í villigjörnum og hættufull-
um heimi, mega þau síst vera
afskipt í þeirri grein er sálar-
heill þeirra varðar. Reynsla lífs-
ins og trúarinnar hefur kennt
okkur, það að á við hvert barn,
sem skrifað stendur: „Fræð þú
sveininn um veginn, sem hann á
að halda og á gamals aldri mun
hann ekki af honum víkja.“
(Orðskv. 22:6.)
Eins og brum trjánna og blóm
í varpa verða að fá birtu og yl til
að vaxa þurfa börn á kærleika og
umhyggju að halda til þess að
þroskast og gera þeim kleift að
standa af sér hret lífsins og mót-
læti, sem allir verða að mæta.
Leggjum ekki ofurþunga freist-
inganna á óharðnaðar herðar. í
þjóðfélagi allsnægta er hættan
mest að ofbjóða unglingum með
lystisemdum nautna og skemmt-
analífs. t leit að hamingju
verkar eftirsókn í þá hluti líkt og
hjóm eða sápubólur, sem springa
við minnstu snertingu og hjaðna
sem blekking. Æ koma mein
eftir munað. Leiðum ekki yfir
ungu kynslóðina böl áfengis og
eiturlyfja, freistingr, sem hún
getur ekki staðist. Biðjum, að
okkur takist að hlúa að dýrmæt-
asta gróðri landsins, svo hér
„verði gróandi þjóðlíf með þverr-
andi tár, sem þroskast á guðsrík-
isbraut".
Með bestu kveðjum og sumar-
óskum.
Bróðurlegast,
Pétur Sigurgeirsson.
TOLVUTÆKNI
ÁOKKARVALDI
Tölvudeild okkar er í daglegu sambandi viö öflugustu tölvufyrirtæki veraldar.
Við bjóðum aðeins það nýjasta og besta í tölvubúnaði, og þjónustuna annast
stór hópur snjallra fagmanna. Við veitum alhliða ráðgjöf, aðstoðum við val á
réttum búnaði, önnumst kennslu og leiðbeiningar, ásamt fullkominni
tækni- og viðhaldsþjónustu.
Við byggjum á bví besta sem tölvuheimurinn þekklr,
og fylgjum þér farsællega inn í framtíðina.
Auglysingaþjónustan