Morgunblaðið - 11.05.1985, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. MAÍ1985
Hjálpræðisherssamkoma á Lækjar-
torgi 1930.
sögur. En einnig hafði það borið
við, að hann hafði séð vikið að
þeim einhverju góðu. Lék honum
nú forvitni á að sjá sjálfur og
heyra, hvað gerðist á samkomum
þeirra, úr þvi að hann hafði leitað
gistingar 1 vigi þeirra." (4).
Fór svo að lokum, að Matthías,
sem hafði komið til Reykjavíkur
vegna deilumála við sveitunga
sína, sneri heim frelsaður og leit-
aði strax sátta við alla þá, sem
hann hafði átt í deilum við. Brátt
gerðist hann ötull liðsmaður í
Hjálpræðishernum og er jafnan
talað um hann sem postulann
mikla á Fellsströnd.
Sveitungar Matthíasar tóku
honum í fyrstu heldur fálega, þeg-
ar hann boðaði þeim trúna, en
þegar fram liðu stundir og fólkið
sá, að Matthís hafði raunverulega
breyst, tóku fleiri að fylgja for-
dæmi hans. Brátt varð mikil vakn-
ing í sveitinni og liðsmönnum
Hjálpræðishersins fjölgaði um
nokkra tugi á mjög skömmum
tíma.
Þannig fjölgaði smátt og smátt í
Hjálpræðishernum og var þá hægt
að hefja starfsemi víðar á landinu.
Á ísafirði var hafin starfsemi í
október 1896. Einn af heimamönn-
um var Magnús Hj. Magnússon og
ritaði hann oft bænir og ljóð i blað
Hjálpræðishersins.
„Þann 31.1. fór ég út í Skutils-
fjörð, gisti hjá Sigurbirni á Fagra-
hvammi, en fór svo daginn eftir út
á ísafjörð og fékk þá hjá Hjálp-
ræðishernum 2 kr. og 50 aura fyrir
sálm og bænir eftir mig, er ég
hafði sent í Herópið." (5).
Herópið er aðalmálgagn Hjálp-
ræðishersins, kom það fyrst út á
Islandi í október 1895. ísland var
þar með 28. staðurinn, sem Heróp-
ið var gefið út á.
„Herópið, hið nýja mánaðarblað
Hjálpræðishersins hér, er snoturt
útlits, með myndum „Ef Kristur
kæmi í drykkjuskálann” og af rit-
stjóranum adjudant Erichsen og
að efni mikið líklegt til að efla
trúrækni og siðgæði. Það er í
sama broti og ísafold. Það er 28.
Herópið er Hjálpræðisherinn gef-
ur út; eru þau á 18 tungumálum
alls, og upplag meira en hálf millj-
ón.“ (2).
Af þessu má sjá, að blaðið hefur
strax vakið athygli.
Herópið er, eins og áður sagði,
aðalmálgagn Hjálpræðishersins
og þar er trúarboðskapurinn aðal-
atriðið, en einnig eru þar alltaf
fréttir af starfinu og hermenn
skrifa um trúarreynslu sína.
Starfsemi Hjálpræðishersins
var að vísu smá í byrjun, en eftir
því sem fjölgaði í hernum var
hægt að hefja störf víðar og efla
allt starfið mjög. Um langt árabil
var starfandi Dorkassamband, en
það var kvennaflokkur, sem kom
saman til að vinna að einhverjum
ákveðnum verkefnum, t.d. var þar
saumað mikið af fatnaði upp úr
gömlum fötum og honum dreift til
bágstaddra. Einnig hefur heimila-
samband kvenna í Hjálpræðis-
hernum verið starfrækt næstum
frá upphafi og er það starfandi
ennþá. Þar koma konurnar reglu-
lega saman, eiga saman helgi-
stund og geta síðan miðlað hver
annari af trúarreynslu sinni. Þótt
Frí útisamkomu Hjálpræðishersins á Lækjartorgi um aldamótin.
allar aðstæður hafi breyst mjög í
þjóðfélaginu frá fyrstu árunum er
samt ennþá mikil þörf fyrir slíkt
félag.
Eftir því sem starfsemi Hjálp-
ræðishersins jókst voru þeir líka
fleiri, sem kynntust hernum á ein-
hvern hátt og brátt kom að því, að
þeir, sem mest höfðu haft á móti
honum í upphafi, fóru að hafa
hægar um sig og hvers konar ólæti
og uppþot á samkomunum hættu
smám saman.
Eins og áður er sagt frá, hófst
starfsemi á ísafirði haustið 1896,
en á Akureyri hófst regluleg starf-
semi vorið 1904. Áður höfðu þó fá-
einir hermenn heimsótt Akureyri
og dvalið þar skamman tíma. Að-
alstöðvar Hjálpræðishersins hafa
alltaf verið í Reykjavík. Á þessum
þremur stöðum er ennþá rekið
starf, en auk þess var um tíma
rekið starf á Seyðisfirði, Siglufirði
og á Fellsströnd var mjög öflug
starfsemi í nokkra áratugi. Af
ýmsum ástæðum hefur starf á
þessum stöðum lagst niður, en
Hjálpræðisherinn á ennþá ágætt
hús á Siglufirði og hefur deildin á
Akureyri farið þangað eftir því,
sem aðstæður hafa leyft, og haldið
þar samkomur. Á öllum stöðum,
sem Hjálpræðisherinn starfar á,
eru haldnar útisamkomur af og
til. Þessar samkomur eru alltaf
fjölmennar og hér í Reykjavík eru
áreiðanlega mjög margir, sem
eiga ljúfar minningar frá slíkum
samkomum.
í dag er Hjálpræðisherinn orð-
inn rótgróinn á Islandi og á nú,
eins og alltaf áður, sína tryggu
vini og fylgismenn um allt land. í
Reykjavík er ennþá rekið gisti-
heimili, en auk þess á Hjálpræð-
isherinn húseignina Bjarg á Sel-
tjarnarnesi og hefur rekið þar
heimili í u.þ.b. 20 ár, í samvinnu
og tengslum við heilbrigðisþjón-
ustuna í Reykjavík. Þetta heimili
nýtur mikilla vinsælda og þeir,
sem þar búa, eru ákaflega þakk-
látir fyrir alla hlýjuna og kærleik-
ann, sem þeir njóta þar. Vegna
þeirrar þagnarskyldu, sem Hjálp-
ræðisherinn hefur við þessa
skjólstæðinga, get ég ekki fjallað
nánar um þetta starf.
í öllum herbúðum Hjálpræðis-
hersins er trúboð aðalatriðið. Á
öllum samkomustöðunum er
bænabekkurinn á sínum stað og
þar er öllum boðið að krjúpa og
biðja til Guðs.
Ennþá má sjá fólk úr Hjálpræð-
ishernum vitja sjúkra og bág-
staddra og margir eiga eina skjól-
ið sitt hjá fólkinu í Hjálpræðis-
hernum.
Allt þetta starf er unnið í þeirri
fullvissu, að frelsarinn Jesús
Kristur dó á krossi til að leysa
okkur mennina undan bðli syndar-
innar og sérhver sál, sem frelsast,
eignast eilíft líf fyrir hann. Þessi
fullvissa er bjargið, sem Hjálp-
ræðisherinn er byggður á, og orð
Jesú sjálfs:
„Hver sá, sem vill bjarga lífi
sínu, mun týna því, en hver sá,
sem týnir lífi sínu mín vegna,
hann mun finna það.“ (Matt. 16.
25)
eru orð, sem allir hermenn Hjálp-
ræðishersins taka bókstaflega og
lifa eftir.
Heimildaskrá:
1. „Hvað er Hjálpræðisherinn?",
„Hjálpræðisherinn — Stofn-
endur hans" og „Guði sé lof“,
Herópið, 50. árg., maí — júlí,
Reykjavík, 1945, bls. 3, 5 og 27.
2. Björn Jónsson: „Hjálpræðisher-
inn“, „Hjálpræðisherinn" og
„Herópið", ísafold, 22. árg. 42.
blað, 83. blað og 94. blað,
Reykjavík, 1895, bls. 167,331 og
375.
3. „Frásögn um byrjun Hjálpræð-
ishersins í Lundúnum og störf
hans á íslandi í 25 ár“, 25 ár,
Reykjavík, 1920 bls. 50.
4. Jón Helgason: íslenskt mannlíf
IV, Reykjavík, 1962, bls. 8.
5. Magnús Hj. Magnússon: Dag-
bók Magnúsar Hj. Magnússonar
31.1.1904 (handskrifuð).
6. Þórhallur Bjarnason: „Hjálp-
ræðisherinn”, Kirkjublaðið, 11.
árg. 4. tbl. (B), Reykjavík, 1886,
bls. 57 og 59-60.
Greiniii er prófritgerð höfundar í
Öldungadeild Menntaskólans rið
Hamrahlíð.
25.
HARVEY
SKJALASKÁPAR
er vönduð ensk framleiðsla á
hagstæðu verði...
2 — 3 — 4 — 5 skúffu skápar.
Einnig skjalabúnaður í fjöl-
breyttu úrvali.
Síðumúla 32. Simi 38000
ATVINNUREKSTUR
OG SKATTLAGNING
— Hver er reynslan af lögum um
tekju- og eignarskatt?
Verzlunarráö islands boöar til fræöslufundar um
gildandi lög um tekju- og eignarskatt, í hliöarsal
Hótel Sögu 2. 16.00. Dagskrá: hæö, þriöjudaginn 14. maí nk., kl.
16.00—16.15 Mæting
16.15—16.20 Fundarsetning
16.20—16.50 Hver er reynslan af gildandi lög- um um tekju- og eignarskatt? — Samanburður á gildandi og eldri lögum — Hverra endurbóta er þörf? Stefán Svavarsson löggiltur endurskoðandi.
16.50—17.30 Umræöur, fyrirspurnir
17.30 A Fundarlok
4 VERZLUNARRÁÐ ÍSLANDS Hús verslunarinnar 108 Reykjavík, sími 83088
Metsölablad á hverjum degi!