Morgunblaðið - 11.05.1985, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1985
Stjóm Alþýðusambands Austurlands:
Skorar á ríkisstjórn að
hefja byggingu kísil-
verksmiðju á
MORGUNBLAÐINU hafa borist
eftirfarandi samþykktir sem gerðar
voru á fundi stjórnar Alþýðusam-
bands Austurlands, 5. maí sl., og
sendar hafa verið Steingrími Her-
mannssyni forsætisráðherra, þing-
mönnum Austurlands, Alþýðusam-
bandi íslands og Verkamannasam-
bandi íslands.
„Fundur haldinn í stjórn Al-
þýðusambands Austurlands 5. maí
1985 lýsir stuðningi við niðurstöðu
meirihluta sambandsstjórnar
Verkamannasambands íslands frá
4. maí 1985, með fyrirvara um að
samningarnir verði ekki gerðir til
lengri tíma en til 1. september nk.
Jafnframt skorar fundurinn á
félagsmenn Alþýðusambands
Austurlands að sýna órofa sam-
Reyðarfirði
stöðu og vera reiðubúna til að-
gerða, verði það nauðsynlegt til að
viðunandi samningar náist.
Stjórn Alþýðusambands Aust-
urlands telur að í væntanlegum
samningum verði að leggja megin-
áherslu á kjör fiskvinnslufólks og
bætt kjör þess hafi forgang ann-
arra mála.“
„Fundur haldinn í stjórn Al-
þýðusambands Austurlands á
Höfn í Hornafirði 5. maí 1985
skorar á Alþingi og stjórn lands-
ins að hefja nú þegar framkvæmd-
ir við byggingu kísilverksmiðju
við Reyðarfjörð samkvæmt fyrri
samþykktum þingsins.
Stjórn Alþýðusambands Aust-
urlands telur mál þetta mjög þýð-
ingarmikið fyrir Austurland, at-
vinnulega og fjárhagslega."
Álafosskórinn.
Álafosskórinn heimsæk-
ir Norðurland vestra
Hjúkrunarfélag íslands:
Mótmælir kjaraskerð-
ingu sem orðið hefur
HINN árlegi fulltrúafundur Hjúkrunarfélags íslands fór fram 2. og 3. maí sl.
Fundinn sátu 56 kjörnir fulltrúar af öllu landinu sem samþykktu ályktanir
varðandi það ástand sem ríkir vegna skorts á hjúkrunarfræðingum til starfa við
heilbrigðisstofnanir. Þá sendi fundurinn frá sér mótmæli gegn kjaraskerðingu
þeirri er átt hefur sér stað.
Ályktanir voru svohljóðandi:
Fundurinn mótmælir þeirri miklu
kjaraskerðingu sem orðið hefur og
leggur áherslu á að launakjör verði
bætt og að kaupmáttur launa verði
tryggður.
Skortur er á hjúkrunarfræðingum
til starfa við heilbrigðisstofnanir.
Lág laun, núverandi vakta-
fyrirkomulag og mikið vinnuálag eru
meginorsakir fyrir þvi hve illa geng-
ur að fá hjúkrunarfræðinga tii
starfa. Fundurinn skorar á stjórn-
völd, í samvinnu við hjúkrunar-
stjórnir, að gera ráðstafanir til að
ráða bót á því ástandi er nú ríkir.
Einnig leggur fundurinn áherslu á
það að fulltrúar hjúkrunarséttarinn-
ar verði með í ákvarðanatöku um
máiefni stéttarinnar.
Fjöldi annarra málefna var til
umfjöllunar á fundinum og mikil
samstaða ríkti. Stjórn félagsins
skipa: Sigþrúður Ingimundardóttir,
formaður, Páiina Sigurjónsdóttir,
varaformaður, Hólmfríður J. Geird-
al, ritari, og Guðrún Karlsdóttir,
gjaldkeri. Varamenn í stjórn eru
Oddný Ragnarsdóttir og Maria
Gísladóttir. Auk þeirra skipa félags-
stjórn formenn allra svæðisdeilda
félagsins á landinu.
ÁLAFOSSKÓRINN heimsækir
Norðurland vestra dagana 16. og 17.
maí nk. Á uppstigningardag, 16. maí,
heldur kórinn söngskemmtun í fé-
lagsheimilinu á Hvammstanga og
hefst hún kl. 15.00. Önnur skemmt-
un verður um kvöldið, kl. 20.00, í
félagsheimilinu á Blönduósi. Föstu-
daginn 17. maí verður kvöldskemmt-
un í Miðgarði í Skagafirði kl. 21.00.
Á öllum skemmtunum sýnir tísku-
sýningarflokkur kórsins nýjustu
fatalínuna frá Álafossi hf.
í frétt frá kórnum segir að á
efniskránni verði tónlist sem vin-
sæl var í kringum síðari heims-
styrjöldina, svo sem lög eins og
Chanson d’amor, Red Roses, Cali-
fornia Dreaming og We’ll Meet
Again. Einnig verða flutt yngri
lög eins og Moon River, Over the
Rainbow og bítlalagið If I Fell.
Undirleikarar eru Páll Helga-
son sem leikur á píanó, Gunnar
Gíslason leikur á bassa, Hans
Jensson á tenórsaxófón og Guðjófi
I. Sigurðsson á trommur. Stjórn-
andi er Páll Helgason. Formaður
Álafosskórsins er Úlfhildur
Geirsdóttir.
Þjóðleikhúsið:
Dafnis og Klói í síðasta sinn
Aðalfundur
Húnvetninga-
félagsins í
Reykjavík
AÐALFUNDUR Húnvetningafé-
lagsins í Reykjavík verður haldinn
á morgun, sunnudag, í húsi félags-
ins að Skeifunni 17, 3. hæð og
hefst hann kl. 15. Á fundinum
munu fara fram venjuleg aðal-
fundarstörf og lagabreytingar.
Nýir félagar eru sérstaklega boðn-
ir velkomnir.
(Fréttatilkynning)
Leiðrétting
í myndatexta með frétt um sam-
einingu tveggja jarðboranafyrir-
tækja stóð að Karl Ragnars væri
forstjóri Orkustofnunar. Það er
ekki rétt, hann er forstjóri Jarð-
borana ríkisins.
INNLENT
BALLETTINN Dafnis og Klói verð-
ur sýndur í Þjóðleikhúsinu í síðasta
sinn á morgun, sunnudaginn 12.
maí.
Höfundur verksins og stjórn-
andi uppfærslunnar er Nanna
Ólafsdóttir. Tónlistin er eftir
Maurice Ravel. Leiksagan er eftir
Nönnu og Sigurjón Jóhannsson og
er hún byggð á samnefndri ástar-
sögu eftir Longus. Sigurjón gerði
ennfremur leikmynd og búninga.
Með helstu hlutverk fara Einar
Sveinn Þórðarson, Helena Jó-
hannsdóttir, Katrín Hall, Auður
Bjarnadóttir, Ásdís Magnúsdóttir,
Birgitte Heide, Guðrún Pálsdóttir
og Guðmunda Jóhannesdóttir.
Dafnis og Klói er fyrsti heils-
kvöldsballettinn sem islenskur
danshöfundur semur.
(ílr MtUtilkyuiiigv)
jtnmaEsnnE
GERIR GÓÐAN BÍL BETRI!
Þaö er ótrúlegt hvað góðir hjólbarðar eins og
BRIDGESTONE gera fyrir bílinn.
Með BRIDGESTONE fæst frábært veggrip,
rásfesta og mikið slitþol. Tryggðu öryggi þitt og
þinna settu BRIDGESTONE undir bílinn — þeir
fást hjá hjólbarðasölum um land allt.
BÍLABORG HF.
Smiðshöfða 23, Sími 81299