Morgunblaðið - 11.05.1985, Page 45
Aðalfundur KEA:
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. MAÍ1985
45
20 millj. kr. hagnaður
- öllu föstu starfsfólki greidd 3 þús. kr. aukalaun
AÐALFUNDUR Kauplélags Eyfirðinga var haldinn í Samkomuhúsinu á
Akureyri dagana 3. og 4. maí sl. Mæting var mjög góð á fundmum, en alls
komu 247 fulltrúar af 262. Það kom fram á fundinum að árið 1984 telst til
hagfelldra rckstrarára í sögu félagsins. Afkoma þess var tiltölulega góð og
efnahagur traustur. Mikil aukning veröbólgu síðari hluta ársins, þvert ofan í
gerðar áætlanir, setti þó strik í reikninginn og ruglaði áætlanir. Fjárbinding
í félaginu varð því meiri en ætlað hafði verið, greiðslustaða ýmissa viðskipta-
vina varð erfiðari en ella og skuldir þeirra við félagið jukust. Allt þetta olli
nokkrum erfiðleikum.
Hjörtur E. Þórarinsson, stjórn-
arformaður félagsins, setti fund-
inn og flutti skýrslu stjórnar. Sið-
an fjallaði Valur Arnþórsson
kaupfélagsstjóri ýtarlega um
rekstur og stöðu félagsins. Sagði
hann að nú ríkti að ýmsu leyti erf-
itt ástand í atvinnurekstri á ís-
landi. Kaupfélag Eyfirðinga yrði
vissulega vart við þessa erfiðleika,
en þrátt fyrir það væri reiknisleg
afkoma þess viðunandi miðað við
aðstæður. Kaupfélagsstjóri sagði
að gott tíðarfar á síðasta ári hefði
vissulega haft sitt að segja. Þann-
ig jókst mjólkurframleiðslan lítil-
lega þrátt fyrir minni notkun
kjarnfóðurs. Eftir að hafa rætt
um vöruskiptajöfnuð landsmanna
sagði kaupfélagsstjóri að það væri
vissulega áhyggjuefni að halli á
viðskiptum við útlönd leiddi til
áframhaldandi skuldasöfnunar
landsmanna. Greiðslubyrði af er-
lendum lánum er megniorsök
versnandi lífskjara á íslandi,
sagði kaupfélagsstjóri.
Heildarvelta félagsins að af-
urðareikningum meðtöldum var
2.723 mkr. á árinu 1984 og hafði
aukist um 27% í krónutölu frá
1983. Er veltuaukningin því nokk-
urn veginn í samræmi við verð-
bólguþróun. Að samstarfsfyrir-
tækjum meðtöldum var veltan
1984, 3.427,4 mkr. Laun og launa-
tengd gjöld í aðalrekstri og af-
urðareikningum hækkuðu að með-
altali um 26% milli ára. Beinar
launagreiðslur hjá KEA námu
rösklega 289 mkr. á síðasta ári og
að samstarfsfyrirtækjum með-
töldum tæpum 400 mkr. Fjöldi
ársstarfa hjá KEA miðað við
slysatryggðar vinnuvikur var
1.018, en 1.277 að samstarfsfyrir-
tækjum meðtöldum. Þess má geta
að nýtt fyrirtæki, Sðltunarfélag
Dalvíkur hf., bættist í hóp sam-
starfsfyrirtækja á árinu 1984.
KEA er áfram iangstærsti launa-
greiðandi á Eyjafjarðarsvæðinu
og einn stærsti launagreiðandi
landsins. Á árinu 1984 innheimti
félagið söluskatt fyrir hið opin-
bera að fjárhæð 80,4 mkr.
fullu reiknuð gengisálög og verð-
bætur á aðfengið lánsfé, en einnig
færð tekjufærsla að fjárhæð 33,5
mkr. Aukaafskrift vörubirgða hef-
ur verið hækkuð um 11,5 mkr., all-
ar venjulegar fyrningar reiknaðar
að fullu eftir ákvæðum skattalaga
og ófrádráttarbær opinber gjöld
að fjárhæð 4,1 mkr. skulduð á
reksturinn. Fjármunamyndun í
heildarrekstrinum, án samstarfs-
fyrirtækja, var 124,0 mkr, en var
110,9 mkr. á árinu 1983. Efnahag-
ur félagsins í árslok 1984 er
traustur eins og áður. Eigið fé og
stofnsjóðir voru í árslok 887,3
mkr. og hafði aukist um 31% frá
árslokum 1983. Hlutfall eigið fjár
og stofnsjóða í árslok 1984 var
44,1% af niðurstöðu efnahags-
reiknings, en var 44,9% í árslok
1983. Veltufjárhlutfall í árslok
1984 var 1,27 en var 1,31 í árslok
1983. Greiðslustaðan er því ívið
þrengri en áður.
Fjárfestingar á árinu 1984 urðu
samtals 62,5 mkr. og má því segja
að fjárfestingar hafi orðið all-
miklar. Fjárfrekustu framkvæmd-
irnar voru vegna nýs verslunar-
húss á Dalvík tæpar 7 mkr., vegna
Mjólkursamlags KEA 8,7 mkr.,
vegna Kornhlöðu á Akureyri 7,2
mkr. og vegna þvottahúss 5,3 mkr.
Þess má geta að auk eigin fjár-
festinga félagsins voru fjárfest-
ingar Efnaverksmiðjunnar Sjafn-
ar um það bil 30 mkr. og til upp-
byggingar Hótel KEA á vegum
Hafnarstrætis 87—89 hf. var varið
22 mkr. á árinu. Til fjárfestinga
félagsins fengust ný langtímalán
að fjárhæð 52 mkr. en afborganir
af eldri lánum voru 38 mkr. Nettó
aukning langtímalána var því að-
eins um það bil 14 mkr. Stofnsjóð-
ir félagsmanna og samlagsmanna
í Mjólkursamlaginu hækkuðu hins
vegar samtals um rúmlega 15
mkr., og Innlánsdeild félagsins
hækkaði um rúmlega 12 mkr. Þeg-
ar á heildina er litið fékkst því
verulegt fjármagn til fjárfestinga
og framkvæmda þannig að þær
lögðust ekki með óeðlilegum
þunga á greiðslustöðu félagsins.
stofnsjóð og reikninga félags-
manna þannig að i reikninga
þeirra færast 4% af úttekt þeirra
í Stjörnu-Apóteki 1984 og mis-
munur leggst í stofnsjóð félags-
manna í hlutfalli við ágóðaskyld
viðskipti þeirra á árinu 1984.
Reiknaðir verði viðbótarvextir af
innistæðum í almennum stofn-
sjóði á árinu 1984 kr. 1.250.000.
Framlag til eflingar lífeyrissjóðs
KEA verður 2 mkr. og til Menn-
ingarsjóðs KEA 1 mkr.
Á fundingum var greint frá því
að á stjórnarfundi fyrir skömmu
hefði kaupfélagsstjóri lagt til að
öllu starfsfólki, sem hefur verið í
föstu og samfelldu starfi frá síð-
asta aðalfundi og er það enn, verði
greidd aukalaun að fjárhæð 3 þús-
und krónur. Stjórnin samþykkti
tillöguna.
í skýrslu stjórnar Menningar-
sjóðs KEA kom fram að nýlega
var ákveðið að úthluta styrkjum
að fjárhæð samtals 375 þús. kr. til
ýmiss konar menningar- og fé-
lagsstarfsemi á félagssvæði KEA.
Á aðalfundir KEA flutti Val-
gerður Sverrisdóttir húsfreyja
framsögu um sérmál fundarins,
þátttöku kvenna í samvinnuhreyf-
ingunni. Þá voru samþykktar
nokkrar breytingar á samþykkt-
um félagsins.
Að kvöldi fyrri fundardags og í
tilefni af ári æskunnar bauð félag-
ið fulltrúum og gestum þeirra á
hljómleika í íþróttahöllinni.
Hljómsveit Jakobs Magnússonar
auk Valgeirs Guðjónssonar lék
fyrir um það bil 1500 áheyrendur,
aðallega æskufólk.
Úr stjórn KEA áttu að ganga
Gísli Konráðsson framkvæmda-
stjóri og Sigurður Jósepsson
bóndi. Gísli gaf ekki kost á sér til
endurkjörs. í stjóm voru kosin
Sigurður Jósepsson og Guðríður
Eiríksdóttir kennari. Ragnar
Steinbergsson lögfræðingur var
endurkjörinn aðalendurskoðandi
og Steingrímur Bemharðsson
fyrrverandi bankastjóri var end-
urkjörinn aðalendurskoðandi Báð-
ir til tveggja ára. Jóhannes Sig-
valdason tilraunastjóri var endur-
kjörinn í stjórn Menningarsjóðs
KEA til þriggja ára. Þá voru
kjörnir tuttugu fulltrúar á aðal-
fund Sambandsins, sem haldinn
verður á Bifröst í Borgarfirði í
byrjun júni.
(FrétUtilkynning fri KEA)
Jónas Ingimundarson leiðbeinir nemanda. Morgunbl»fti»/ólmfur
Egilsstaðir:
Jónas Ingimundar-
son leiðbeinir verð-
andi píanóleikurum
FfihntiWlwm S. mai.
TÓNSKÓLl Fljótsdaishéraðs gekkst
fyrir námskeiði í píanóleik nú um
helgina undir handleiðslu Jónasar
Ingimundarsonar, píanóleikara.
Þátttakendur voru um 20 bæði af
Héraði og úr fjörðum, Seyðisfirði,
Eskifirði, Reyðarfirði, og frá Nes-
kaupstað.
Að sögn Magnúsar Magnússon-
ar, skólastjóra Tónskóla Fljóts-
dalshéraðs, er námskeið sem þetta
nýmæli í starfsemi skólans — en
svipuð námskeið eru tíðum haldin
í skólum á Stór-Reykjavíkursvæð-
inu og Akureyri. Fyrir skömmu
Ieiðbeindi Jónas einmitt á einu
slíku námskeiði við Tónlistarskóla
Akureyrar.
Að sögn Magnúsar er það afar
mikilvægt fyrir tónskóla úti á
landsbyggðinni að efna til slíkra
námskeiða svo að nýir straumar
megi berast inn í skólastarfið og
ný viðhorf og þannig hamla gegn
hugsanlegri stöðnun í starfi skól-
anna.
Þeir þátttakendur sem tíðinda-
maður Mbl. náði tali af virtust á
einu máli um mikilvægi sliks
námskeiðahalds og létu í ljós von
um að slík námskeið verði fram-
vegis fastur liður í starfi tónskól-
anna hér eystra.
í lok námskeiðsins hélt Jónas
Ingimundarson stutta einleikstón-
leika fyrir þátttakendur. Þar lék
hann m.a. af fingrum fram sjald-
heyrð píanóverk eftir Haydn og
Hessler auk þekktra verka eftir
Beethoven og Bach.
— Ólafur
Norræna húsið:
Fundur um friðarmál
FUNDUR verður haldinn á morgun,
12. maí, í Norræna húsinu og verður
fundurinn helgaður minningu Henry
Dunant og Alþjóðadegi Rauða kross-
ins sem var 8. maí.
Fundurinn ber yfirskriftina
„Friður — Stund milli striða eða
varanlegt ástand", og hefst hann
klukkan 13.30. Verða þar flutt er-
indi um friðarmál. Meðal þeirra
sem flytja erindi eru Hildigunnur
Ólafsdóttir, Björn Björnsson,
Magnús T. ólafsson, Guðrún Agn-
arsdóttir og Björn Friðfinnsson.'
Þá verður sýnd kvikmynd sem Al-
þjóðaráð Rauða krossins hefur
látið gera um ógnir styrjalda. Auk
þess verða umræður. Gert er ráð
fyrir að fundinum ljúki kl. 17.30
en hann er öllum opinn.
Rekstrarreikningur ársins 1984
sýnir hagnað að fjárhæð 20,9 mkr.
og hafa þá verið færð til gjalda að
Samþykkt var tillaga stjórnar
um tekjuafgang, en hún felur m.a.
í sér að 4 mkr. endurgreiðast í
Samband felenskra sveitarfélaga:
Námskeiðum um meðferð
barnaverndarmála nýlokið
SAMBAND íslenskra sveitarfélaga hefur á undanfornum mánuðum haldið
námskeið um meðferð barnaverndarmála fyrir fólk sem starfar í barna-
verndarnefndum og félagsmálastofnunum. AIIs hafa verið haldin fjögur
námskeið og voru þátttakendur samtals 94.
Á námskeiðinu voru flutt fjöl-
mörg erindi um ýmis mál tengd
barnavernd. Björn Líndal formaður
Barnaverndarráðs íslands fjallaði
um yfirlit um lögboðin verkefni
barnaverndaryfirvalda, Helga
Hannesdóttir barnageðlæknir á
Geðdeild Barnaspítala Hringsins
greindi frá athugun á tengslum
barna við foreldra, Drífa Pálsdóttir
deildarstjóri í dómsmálaráðuneyt-
inu fjallaði um forsjá barna við
skilnað foreldra ásamt könnun á
helstu þáttum er taka ber tillit til
við ákvörðun forsjár, Dögg Páls-
dóttir formaður Barnaverndar-
nefndar Reykjavíkur fjallaði um
gerð umsagnar í forsjármáli og var
með verkefni, Guðrún Erlendsdótt-
ir dósent við Lagadeild Háskóla ís-
lands fjallaði um meðferð úrskurð-
armála hjá barnaverndarnefndum
og Svandís Skúladóttir deildar-
stjóri f menntamálaráðuneytinu
flutti erindi um skipulag dagvist-
armála — hlutverk barnaverndar-
yfirvalda.
Þá var starfsemi Geðdeildar
Barnaspítala Hringsins, Unglinga-
heimilis ríkisins og Kvikmyndaeft-
irlits ríkisins kynnt.
Samband íslenskra sveitarfélaga
hefur ákveðið að gangast fyrir
ráðstefnu um varnir gegn áfengis-
og ffkniefnum dagana 20,—21. maf
nk.
Fyrirliggjandi í birgðastöð
SVARTAR OG
GALVANISERAÐAR
PÍPUR
SamKv.:Din 2440-B.S.1387
oOO°o°o o O OOo
Sverleikar: svart, 3/8 - 5“
galv., 3/8 - 4“
Lengdir: 6 metrar
SINDRA^ rM .STÁLHF
Borgartúni 31 sími 27222