Morgunblaðið - 11.05.1985, Page 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. MAl 1985
H lk í
fréttum
Hópurinn sem útskrifadist UiiA frá vinstri: Kolbrún Erna Péturadóttir, Alda Arnardóttir, Rósa Þéradóttir, Jakob
Þór Einarason, Einar Jón Briem, Þér H. Tulinius, Barði Guðmundsson og Þröstur Leó Gunnarsson.
Meðgurnar Alda Arnardóttir og Anna Kristín Þórarinsdóttir leikarar.
Alda sem útskrifaðist núna frá Leiklistarakólanum er dóttir önnu Krist-
ínar, en hún er dóttir öldu Möller fyrrum leikkonu. Þetta er því þriðji
ettliðurinn sem leggur leiklistina fyrir sig.
Að lokinni
frumsýningu
Atta leikarar útskrifaðir
að var stór stund í lífi
þessara átta ungmenna
þegar þau stolt á svip tóku
við skírteinum sínum eftir
velheppnaða frumsýningu á
þriðjudagskvöldið síðasta.
Leikstykkið „Fugl sem flaug
á snúru“ eftir Nínu Björk
Arnadóttur var samið sér-
staklega fyrir útskriftarhóp-
inn og er það lokaverkefni
hans við Leiklistarskóla Is-
lands.
Nína Björg Árnadóttir og Sveinn Eg-
ilsson reðast við að lokinni frumsýn-
ingu á verki Nínu „Fugl sem flaug á
snúru“.
Meðal frumsýningargesta voru foraeti íslands frú Vigdís Finnbogadóttir, skólastjóri Leildistarakólans Helga
Hjörvar og Margrét Pálsdóttir kennari. Morgunblaðið/Bjarni
Kvennamálin
koma Julio enn
á ótraustan ís
að á ekki af kvennabósanum
og söngstjörnunni Julio Iglesi-
as að ganga. Maðurinn með silki-
röddina og væmnu textana er jafn-
an að syngja um eða útlista fyrir
hverjum sem er, að hann geti aldr-
ei elskað eina konu og aðrar ekki,
því standi hann ævinlega i harm-
þrungnum skilnaðarmálum þar eð
hann elskar þær allar jafn heitt.
Slúðurblöðin elta hann á röndum,
hann er gott efni fyrir þau. Sér-
staklega hefur hið spænska „Sem-
ana“ tekið hann undir væng sinn,
en í hverri viku að heita má eru
nokkrar síður skrýddar Julio og
nýjustu vinkonunum, sem jafnan
eru miklu yngri og stuttklæddar
kynbombur.
En nú er Julio í klípu. Margmillj-
ónamæringur einn frægur, Urs
Zondler að nafni og vestur-þýskur,
hefur höfðað mál á hendur Júlíusi.
* Urs heldur því fram, að Julio hafi
komið upp á milli sfn og konu sinn-
ar Zorah, sem mun farin frá bónda
sínum. Einhver samskipti áttu þau
Julio og Sorah og Julio vill sem
minnst láta hafa eftir sér í þessu
sambandi. Ef dómstóll tekur mál-
stað Urs, þá mun það kosta söngv-
arann spænska um 250 milljónir í
1 skaðabótafé til handa Urs.
Nýja Dallas-stjarnan
rólegur heimilisfaðir
í öllu er sett
heimsmet...
w
Alslandi setja menn met i pönnuköku-
bakstri. í Danmörku er tekið öðru vísi á
hlutunum til þess að komast á metaskrá.
Hinn 32 ára gamli bakari, Jan Smedengaard,
ákvað fyrir skömmu að setja heimsmet í
brauðhleifabakstri. Honum tókst að bora sér
leið inn á síður heimsmetabókarinnar sem
kennd er við ágæta bjórtegund með þvf að
baka 12.016 brauðhleifa á nákvæmlega 24
klukkustundum. Hér má sjá Jan með hluta af
„uppskerunni"...
Nýjasta stjarnan í Dallas heitir
John Becic. Þessir þættir eru nú
komnir svo langt hér á landi, að John
er ef til vill löngu kominn til sögunnar,
en ef svo er ekki, þá uplýsist það hér
með, að hánn leikur kappa þann sem
tekur saman við Pamelu Ewing, eftir
að þau Pam og Bobby skilja. John þessi
þykir nokkuð líkur Nick Nolte, nema
bara enn myndarlegri, stærri og loðn-
ari á bringunni. Dallas-nafn Johns er
Mark Graison. John er ekki þessi
hefðbundna Hollywood-ntýpa“, alltaf á
kafi í skemmtanalífinu og oftar á for-
síðum slúðurblaða en heima hjá sér.
Þvert á móti, hann er fjölskyldumaður
og kann hvergi betur við sig en heima
hjá konu sinni, barni og hundi. „Það er
ekkert æsispennandi við mig, ég er
bara rólyndur heimilisfaðir í góðri
vinnu,“ segir John.