Morgunblaðið - 11.05.1985, Side 53
MORGUNBLADIÐ, LAUGARDAGUR 11. MAf 1985
53
sjötta áratugnum tók Einar virk-
an þátt í félagslegu starfi fram-
sóknarfélaganna í Kópavogi og
tjáð hefur hann mér að áhugi fyrir
félagsmálum hafi vaknað hjá sér
strax á fyrstu skólaárunum og
hafi ekki yfirgefið sig síðan í þau
rúm 30 ár sem hann hefur varið til
félagslegra starfa.
Frá árinu 1955 hefur Einar ver-
ið opinber starfsmaður, í vínbúð
ÁVR sem staðsett var í Nýborg
við Skúlagötu. Man ég hann fyrst
innan við afgreiðsluborðið, þá var
þar verzlunarstjóri Ólafur
Sveinsson faðir Einars sem marg-
ir muna frá þeim tíma. Seinna var
búðin flutt á Lindargötu 46, þar
hefur Einar verið útsölustjóri síð-
an. Sú breyting hefur orðið á heiti
stofnunarinnar að nú er skamm-
stafað heiti hennar ÁTVR.
Snemma eftir að Einar gerðist
ríkisstarfsmaður hóf hann af-
skipti til hagsbóta fyrir opinbera
starfsmenn og þá innan SFR. Við
formannsstarfi í þvi félagi tók
hann 1969 en hefur setið í stjórn
frá 1960. Hann hefur einnig frá
svipuðum tíma verið í aðalstjórn
heildarsamtakanna. Starfs-
mannafélag rikisstofnana er fjöl-
mennasta félagið innan BSRB,
mikil fjölgun og stóraukin umsvif
hafa þar orðið í stjórnartið núver-
andi formanns. Ekki væri þó rétt-
látt að geta þess ekki að sam-
starfsfólk á skrifstofu hefur veitt
honum dyggan stuðning með fráb-
ærri þjónustu við félaga innan
SFR, við lausn margþættra verk-
efna. Hið sama má einnig segja
um samstarfsmenn i stjórn, þó
hann hafi verið við stjórnvölin þá
hafa ræðararnir fylgt vel á eftir.
Hér er notað líkingamál sem ég
vona að skiljist.
Ekki veit ég hvort það er rétt,
en mér hefur oft fundist tími sá
sem Einar hefur varið til félags-
legra starfa vera það mikill að
naumast gæti verið um afgang að
ræða til annarra viðfangsefna. Þvi
er þó á annan veg farið, því þau
eru að verulegu leyti unnin sem
aukastörf. Ef við athugum nánar
hvað hér er átt við og hyggjum að
þeim margþætta verkefnalista
sem oft bíður úrlausnar og ekki
má dragast að sé sinnt, er rétt að
gera sér grein fyrir hver störfin
eru. Einar hefur verið í samninga-
nefnd fyrir hönd síns félags og þá
sem slíkur í forystuhlutverki.
Komið hefur í hans hlut að eiga
mikinn þátt í mótun kröfugerðar
þegar samningar hafa verið
endurnýjaðir. Oft tel ég að á það
hafi reynt þegar sótt hafa verið
mál og varin til hagsbótar félög-
unum. Að lagni hans við að mæta
hinum ólíklegustu sjónarmiðum
hafi orðið til þess að sættir náð-
ust. í samninganefnd fyrir heild-
arsamtök opinberra starfsmanna
hefur Einar einnig átt sæti og átt
góðan hlut að stefnumótun þegar
samið hefur verið við ríkisvaldið.
Ferðir út á land til að kynna gerða
samninga og vinna þeim fylgi hafa
oft fallið í hans hlut. Vinnustaða-
fundir með þátttöku hans voru al-
gengir. Þátttaka í ráðstefnum,
seta á bandalagsþingum þar sem
þörfustu mál voru tekin til með-
ferðar til hagsbóta félögunum.
Viðtöl og greinar sem varða heill
félaganna bæði í dagblöðum og
Félagstíðindum, sem er fréttablað
og hann er ábyrgðarmaður fyrir,
hafa stuðlaö að því áliti sem félag-
ið nýtur. Allt þetta sem hér hefur
verið á minnst á að þoka okkur til
þeirrar áttar að búa börnum
okkar betra þjóðfélag og niðjum
okkar aðgengilegri lífskjör. Einar
er ágætlega ritfær og á mjög auð-
velt með að koma skoðunum sín-
um á framfæri. En fyrst og síðast
er hann góður félagi og leiðbein-
andi.
Við Einar eigum nálega jafn
langan starfstíma að baki hjá
þeirri stofnun sem við vinnum hjá,
allan þann tíma höfum við þekkst.
Þó hafa þau kynni aukist við sam-
starf að félagslegum áhugamál-
um. Ekki síst á meðan ég átti hlut
að félagsstarfi innan SFR. Frá
þeim árum á ég ljúfar minningar
og margar Einari tengdar. Þær
eru ennfremur hvati að því að
þessi örstutta afmæliskveðja er til
orðin.
Þess bið ég ykkur sem þessar
línur lesið að íhuga að í stuttri
afmælisgrein sem þessari verður
ekki gerð nein fullnaðarúttekt á
þeim verkefnum sem Einar ólafs-
son hefur fengist við á 60 ára lífs-
ferli enda aldrei ætlunin, svo
margþætt eru þau. Arður af unn-
um verkum skilar sér til þeirra
sem á eftir koma og þeir njóta
þess sem vel er gert og læra af.
Ekki er ég viss um að afmælis-
barnið kunni mér neinar þakkir
fyrir sumt af því sem hér er tíund-
að. Um það þýðir ekki að fást, mín
er sökin.
Helgasta vé húsbóndans er
heimilið, eiginkona, börn og
skyldulið. Þar er Einar hamingju-
samur, þar er stormahlé frá eril-
sömum störfum. í dag eiga áreið-
anlega margir eftir að heimsækja
Einar og með hlýju handtaki inn-
sigla heillaóskir sínar. Ég flyt þér,
Einar, á þessum merkis- og ham-
ingjudegi og fjölskyldunni allri
heilla- og árnaðaróskir í tilefni
dagsins. Lifðu heill.
Úlfar Þorsteinsson
Snyrtistofan Mandý
flutt í nýtt húsnæði
SNYRTISTOFAN Mandý sem var
til húsa í Þingholtsstræti 1, hefur
nú flutt sig um set á Laugaveg 15.
Eigandi stofunnar er Guðbjörg
Þorsteinsdóttir en hjá henni
starfa einnig Bára Benedikts
snyrtisérfræðingur og Þórhalla
Ágústsdóttir, sem er við nám í
snyrtifræði.
Á stofunni er veitt öll almenn
snyrting, andlitsböð, húðhreinsun,
handsnyrting, litanir, vaxmeðferð
á andlit og fætur, „make up“ og
einnig eru á stofunni ljósabekkir.
Morgunblaðið/Bjarni
Frá vinstri: Þórhalla Ágústsdóttir og Bára Benediktsdóttir en sitjandi er
eigandi stofunnar, Guðbjörg Þorsteinsdóttir.
AÐGÆSLA pJl 1
— VÖRN
GEGN VÁ LMJ LRS
UMSJÓN: LANDSSAMBAND
HJÁLPARSVEITA SKÁTA
Brunií
heima-
húsum
Húsgögn
Mestur hluti innbús er úr tré,
plasti og taui. Þetta eru efni sem
brenna vel. Slíkan bruna er vel
hægt að slökkva með vatni.
Gardínur eru rifnar niður, eldur-
inn troðinn niður og svo er slökkt
á eftir með vatni.
Hægt er að slökkva í hægindastól-
um og sófum með vatni. Gott getur
veríð að dempa eldinn með teppi
og slökkva svo í glóðunum með
vatni. Úðakanna/garðkanna getur
komið að góðum notum.
Best er að sjálfsögðu að hafa
vatnsslöngu til taks nálægt
krana. Hana er hægt að tengja
á nokkrum sekúndum og þá
verður hún gott slökkvitæki.
Rafmagns-
tæki
Ef kviknar í þvottavél, sjónvarpi
eða öðrum rafmagnstækjum á
fyrst að rjúfa rafstrauminn og taka
tækið úr sambandi, ef hægt er.
Kæfið eldinn með teppi eða yfir-
höfn.
Athugið, að myndlampi í sjónvarpi
getur sprungið, standið því aldrei
fyrir framan brennandi sjónvarp.
Best er að rjúfa straum með því að
taka öryggi úr sambandi.
Notið aldrei vatn við að
slökkva eld í rafmagnstækjum.
Það er lífshættulegt, þar sem
vatn leiðir straum.
Best væri að hafa til taks
brunateppi, duftslökkvitæki
eða kolsýrutæki.
Feiti á pönnu
eða í djúp-
steikingar-
potti
Fyrst er að slökkva á hitcnum.
Leggið lok yfir pottinn eða pönn-
una. Lokið þarf að ná út fyrir kant-
ana. Látið það liggja á, þar til olían
eða feitin er orðin köld. Rakt, sam-
anbrotið handklæði er einnig hægt
að nota. Færið aldrei brennandi
pott eða pönnu til, því mjög auð-
velt er að brenna sig á þeim og þá
eykst bættan á að missa þau.
Notið aldrei vatn til að slökkva
í brennandi feiti. Við það getur
orðið gufusprenging og eldur-
inn breiðist þá ÚL
Kvikmyndasýningar í veitingahúsi
f veitingahúsinu Ríó, Smiðjuvegi
1, Kópavogi, hefur verið opnuð
bjórkrá, sem er opin sunnudaga—
fimmtudaga kl. 18.00—1.00. Þar er
boðið upp á létta rétti ásamt víni
og bjórlíki.
Sömu kvöld geta gestir horft á
bió eftir kl. 21.00 í aðalsal húss-
ins og haft með sér veitingar {
sal. Nú er sýnd þar myndin
„Villt veisla" með Peter Sellers.
Jafnframt er bjórkráin opin
föstudaga og laugardaga kl.
18.00-3.00.
Föstudaga og laugardaga eru
dansleikir frá kl. 22.00—3.00.
Hljómsveitin Goðgá leikur fyrir
dansi. (Frétuuikynniiis)