Morgunblaðið - 14.05.1985, Blaðsíða 1
88SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
Lögreglumaður hleypur yfír leikvöll Bradford og reynir að skýla andlitinu með hjálmi sínum.
Vallarbnmiim í Bradford:
Talið að reyksprengja
hafi kveikt eldinn mikla
107. tbl. 72. árg.
Samsæri
shika var
afhjúpað
Washington, 13. mnf. AP.
TALSMENN bandarísku
alríkislögreglunnar FBI greindu
frá því í dag, að þeir hefðu kom-
ist á snoðir um samsæri nokk-
urra shika um að myrða Rajiv
Gandhi, forsætisráðherra Ind-
lands, er hann kæmi til Banda-
ríkjanna í opinbera heimsókn í
næsta mánuði. Sjö shikar sitja á
bak við lás og slá í yfirheyrslum
vegna þessa máls.
William H. Webster, yfir-
maður FBI, sagði að fylgst
hefði verið með umræddum
shikum um nokkurt skeið og
látið til skarar skríða er sann-
anir þóttu nægar. „Þeir höfðu
í hyggju ýmis hryðjuverk önn-
ur í garð indverskra stjórn-
valda, meðal annars að ráða
af dögum Bhajan Lal, ríkis-
stjóra í Haryana, er hann
heimsækti Bandaríkin," sagði
Webster.
Enn dauðs-
föll vegna her-
mannaveiki
liUndúnum. 13. mai. AP.
TVEIR 84 ára gamlir menn létust
á sjúkrahúsi í Mid-Englandi í dag
og leikur grunur á því að her-
mannaveikin illræmda hafí dregið
þá til dauða.
Talið er að 35 manns hafi nú
dáið úr veikinni í hrinunni sem
nú stendur yfir á þessum slóð-
um. Staðfest hefur verið að 13
hafi látist úr hermannaveiki og
telja kunnugir að einungis sé
formsatriði að greina veikina í
hinum. Árið 1976, er hermanna-
veikin varð fyrst greind, dóu 34.
Þetta er því versta hrina þessa
sjúkdóms til þessa.
Læknar berjast nú hatramm-
lega gegn pestinni í Mið-Eng-
landi, 68 manns liggja veikir og
tvísýnt er um suma þeirra.
Bndford, 13. maí. AP.
LJÓST ER, að óknyttaunglingar sem
ekki hafa verið borin kennsl á vörp-
uðu reyksprengjum f stúkunni á
knattspyrnuvelli Bradford City á
laugardaginn. Talið er trúlegt í meira
lagi, að sprengjur þessar hafí valdið
eldhafínu sem drap að minnsta kosti
53 manns, en það hefur þó ekki verið
staðfest formlega. Héraðsstjórn West
ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1985
Yorkshire og slökkviliðsstjóri bnina-
liðsins í Bradford segjast hafa varað
stjóm knattspyrnufélagsins við því að
eldhætta v«ri mikil á velli þess fyrir
6 og 10 mánuðum síðan, en hvatning-
um um úrbætur hafí ekki vcrið sinnt.
Forráðamenn félagsins neita því stað-
fastlega að hafa fengið slíkar ábend-
ingar.
Málið kom til umræðu á breska
þinginu í dag og innanríkisráðherr-
ann, Leon Brittan, skipaði nefnd til
að rannsaka málið frá öllum hlið-
um. Skal rannsaka m.a. eldvarnir
allra atvinnuknattspyrnufélaganna
92 sem leika í deildunum fjórum,
svo og hvaða aðbúnað þau bjóða
áhorfendum sínum upp á. í Vest-
ur-Þýskalandi var tilkynnt að slikt
yrði og gert. Þá verður reynt að
finna út hvers vegna eldurinn
breiddist út jafn hratt og raun bar
vitni, en eldtungurnar gleyptu allt
þak stúkunnar, 91 metra langt, á
innan við 4 minútum að sögn sjón-
arvotta. Sjónarvottur segist hafa
séð unglinga varpa reyksprengjum
i stúkunni í þann mund sem eldur-
inn gaus upp og einnig kvaðst hann
hafa heyrt menn hrópa er þeir
reyndu að bjarga sér allt hvað af
tók: „Hver kastaði helv ... reyk-
sprengjunni?“ Lögreglan hefur
meðtekið vitnisburðinn, en segir
ekki allar tegundir reyksprengja
færar um að valda eldsvoða, þvi sé
ekki útilokað að jafnvel logandi
sfgaretta hafi komið öllu af stað.
Til þessa hafa 3. og 4. deildar
félög verið undan þvi leyst að
fylgja ákveðnum eldvarnarreglum
vegna þess að áhorfendafjöldi hjá
þeim er ekki jafn mikill og hjá fé-
lögum sem leika í 1. og 2. deild. Nú
verður gerð sú tillaga á þinginu að
litlu félögin verði ekki undan skil-
in.
Þetta var dimmur dagur í enskri
Prentsmiðja Morgunblaðsins
knattspyrnu, þvi á sama tima og
eldur brann i Bradford kom til
mikilla óeirða í Birmingham þar
sem Birmingham City og Leeds
United áttust við i 2. deild. 15 ára
drengur lést og 176 særðust, marg-
ir eftir að veggur hrundi er slags-
málin stóðu sem hæst.
Sjá nánar fréttir á blaðsíðu 34.
Shulz ræðir
við Gromyko
VínarborK, 13. nuí. AP.
GEORGE SHULZ, utanríkiæ
ráðherra Bandaríkjanna, kom til
Vínarborgar í dag og á morgun,
þriðjudag, mun hann hitta að máli
Andrei Gromyko, starfsbróður
sinn sovéska. Báðir eru þeir
þarna, og fleiri til, til þess að vera
viðstaddir er Austurríkismenn
halda upp á 30 ára afmæli rfkis-
ins.
Búist er við að þeir Shulz og
Gromyko muni ræða möguleik-
ann á fundi þeirra Gorbachevs
og Reagans, en stjórnarerind-
rekar beggja aðila vildu ekki tjá
sig um það í dag hvort dagsetn-
ing umrædds fundar yrði til-
kynnt að fundinum loknum.
Sögðu aðeins að fundurinn yrði
í haust.
Sveitarstjómarkosningar á Ítalíu:
Stjórnarflokkarn-
ir bættu við sig fylgi
Römarborg, 13. maí. AP.
FYRSTU kosningaspár í kjölfarið á sveitarstjórnarkosningum á ftalíu um helg-
ina, benda til þess að stjórnarfíokkarnir hafi bætt við sig fylgi og það á kostnað
kommúnista sem eru næst stærsta stjórnmálaaflið í landinu. Talningu atkvæða
lýkur ekki fyrr en á morgun, þriðjudag. Þessi úrslit styrkja mjög stöðu stjórnar
Bettinos Craxi en til greina þótti koma að hún segði af sér ef hún hefði beðið
ósigur í þessum kosningum.
Samkvæmt tölvuspám sem
byggðar voru á fyrstu tölum, höfðu
stjórnarflokkarnir fimm náð sam-
eiginlega 58,3 prósentum, en komm-
únistar 30,1 prósenti. Kristilegum
demókrötum var spáð 34,8 prósent-
um. Spáin gerði ráð fyrir að stjórn-
in fengi alls 58,4 prósent atkvæða,
sem er mikil uppsveifla frá kosn-
ingunum til Evrópuþingsins, er þeir
fengu aðeins 53,9 prósent. Til sam-
anburðar fengu flokkarnir 56,2 pró-
sent í þingkosningum 1983, en f sfð-
ustu sveitastjórnarkosningum árið
1980 fengu þeir hins vegar 60,2 pró-
sent. Sósfalistaflokkur Craxis var
talinn eiga um 13,5 prósent at-
kvæða .
Arnaldo Forlani, leiðtogi kristi-
legra demókrata og aðstoðarforsæt-
isráðherra, sagði að þessi úrslit
væru góð fyrir samsteypustjórnina,
styrktu hana til muna, en væru
ósigur fyrir kommúnista. Craxi
hafði sagt fyrir kosningarnar, að ef
kommúnistar næðu umtalsverðum
sigri, myndi það hafa stjórnar-
kreppu f för með sér. Talsmenn
kommúnista voru óhressir með út-
komuna og sökuðu stjórnarflokk-
ana um undirróður og „hræðslu-
áróður“.