Morgunblaðið - 14.05.1985, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 14.05.1985, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐÍÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1985 t Systir mín og fósturmóðir okkar, ÞÓRDÍS VALGERDUR PÉTURSDÓTTIR, Barðavogi 36, andaöist í Borgarspítalanum aðfaranótt 9. maí. SigriAur Péturadóttir, Heiga HJélmtýadóttir, Bjarni Hjélmtýason. t Systir okkar, ESTHER MAGNÚSDÓTTIR, Kaplaskjólsvagi 7, lést í Borgarspítalanum 1. maí si. Jaröarförin hefur farið fram í kyrrþey aö ósk hinnar látnu. Magnea Magnúsdóttir, Sigfús Magnússon. t Faöir minn, SVERRIR MATTHÍASSON, Birkitaigi 6, Kaflavfk, er látinn. Jaröarförin hefur farlö fram í kyrrþey. Fyrir hönd aöstandenda, Thor Sverrisson. t Faöir minn og tengdafaöir, GUÐMUNDUR GUÐLAUGSSON, BJargarstfg 2, fyrrvarandi bóndi é Árbakka, Skagaströnd, andaöist í Landspítalanum aö kvöldi miövlkudagsins 8. maí. Jaröaö veröur frá nýju Fossvogskapellunni 15. maí kl. 13.30. BJÖrn Guómundsson, Ragnhoiöur Þormóóadóttir. Svava Stefáns- dóttir - Minning Þann 28. apríl sl. andaðist að heimili sínu Svava Stefánsdóttir húsfreyja á Neðra-Núpi í Fremri- Torfustaðahreppi. Við andlátsfregn leita minn- ingar fram í hugann. Svðvu á Neðra-Núpi er gott að minnast. Krökkum í sveit var ljúf skylda að þurfa í sendiferð á næstu bæi einhverra erinda og fá að staldra við um stund. Þær höfðu líka ein- stakt lag á því, konurnar í minni sveit, að taka þannig á móti krakka í sendiferð, að honum fannst talsvert til sinnar persónu koma. Þetta var eiginlega dálítið svipað og móttaka sendiherra. Bornar voru fram margháttaðar kræsingar, gesturinn spurður frétta af sér og sínu fólki, jafnvel almæltra tíðinda úr dalnum. Reynt var að svara greiðlega, stundum með munninn hálfan af vínartertu eða ilmandi kanelsnúð. Svava á Neðra-Núpi var ein af þessum konum og henni eru tjáðar þakkir með þessum fátæklegu lín- um. Ráðist gegn tannskemmdum Kaupmannahörn, 13. maí. Frá Nils Jörgen Bruun frétUriUra Mbl. Tannskemmdir era átta sinnum al- gengari meöal grænlenzkra ung- menna en danskra. Hyggjast græn- lenzk yfirvöld sækja fram gegn tann- skemmdum með því að koma á reglu- legu eftirliti og tannviðgerðum ungl- inga 3ja til 20 ára. Verður sú þjónusta ókeypis, en þeir sem eldri eru verða sjálfir að greiða tannviðgerðir sínar. Almenn læknisþjónusta er hins vegar ókeypis í Grænlandi. Svava fæddist þann 15. mars 1918 í Péturskoti í Garðahverfi. Hún hafði vart slitið barnsskón- um er hún þurfti að sjá sér far- borða með eigin vinnu. Ung stúlka réðst hún til kaupavinnu norður að Aðhlbóli i Miðfirði ásamt Svanhvít, tvíburasystur sinni. Heimasætunum á næstu bæjum þótti þessar stúlkur bera með sér eilítið framandi svipmót að sunn- an, lífsglaðar, frjálsar í fasi. Þarna kynntist Svava eftirlifandi eiginmanni sínum, Þorbergi Jó- hannessyni á Neðra-Núpi, þangað fluttist hún, þar lifði hún og starf- aði til dauðadags. Svava ólst upp við kröpp kjör, eins og margur á þeirri tíð. Fyrstu búskaparár Svövu og Þorbergs voru einnig erfið í efnalegu tilliti. Hvorugt þeirra fæddist með silf- urskeið í munni. En Svava var bæði sterk og lífsglöð, eins og fyrr segir, enda bugaðist hún ekki við erfiðíeika, heldur hertist, eins og stálið í eldinum. Sjö börnum komu þau til manns, jörð sína húsuðu þau upp, ræktuðu, keyptu vélar og verkfæri. Smíð íbúðarhússins annaðist Þorbergur á eigin spýtur enda af- bragðs smiður sjálfmenntaður. í bernskuminningunni finnst mér að hann hafi stundum skotist austur yfir hálsinn að loknum vinnudegi til að bera einhver tæknileg atriði undir Magnús frá Hrafnadal sem á sama tíma byggði íbúðarhús hjá okkur í Hnausakoti. Augljóst er að vinnudagur Svövu var ekki bundinn við átta tíma, raunar engu bundinn nema daglegu þreki og þreytu að kveldi. Vinna varð ekki aðgreind frá öðr- um þáttum daglegs lífs. Lífið var vinna. Vinnan var lífið sjálft, og Svava hafði mikið að lifa fyrir. I því var hennar lífsgleði fólgin. Svava á Neðra-Núpi er um margt minnisstæð kona. Hún var skapsterk og skaprík, sagði skoð- un sína umbúðalaust, hverjum sem i hlut átti, með sinni hljóm- miklu og dálítið syngjandi rödd. Svava var gædd ríkri réttlætis- kennd, fátt held ég hún hafi þolað verr en undirferli og óhreinlyndi í einhverri mynd. Þau hjón voru höfðingjar heim að sækja enda oft þétt setinn gestabekkurinn, eink- um að sumarlagi. Svava var unnandi lífsins, hafði yndi af dýrum og þau hændust að henni ekki síður en börn. Fyrir gat komið að ársgamall heimagangur, ferfættur, heilsaði sem snöggvast upp á matmóður sína { eldhúsinu til að fá klapp á kollinn, þetta sem allir sækjast eftir; að finna að þei eru einhverjum hjartfólgnir. Nú er hérvistardögum Svövu lokið. Hún var jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju þann 9. maí sl. í fögru veðri, að viðstöddum mörgum þeim sem áttu henni þökk að gjalda. Þorbergi frænda mínum og fjöl- skyldu hans sendum við Margrét innilegar samúðarkveðjur með ósk um að hlýjar miningar megi verða huggun í harmi. Ólafur H. Jóhannsson t Útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur, afa og langafa, ADOLFS J.E. PETERSEN, fyrrverandi vegaverkstjóra, Hrauntungu 15, Kópavogi, er lést 5. mai sl., fer fram frá Kópavogskirkju miövikudaginn 15. maí kl. 13.30. Jarösett veröur aö Mosfelli i Mosfellssveit. Hólmfrióur B. Petereen, Emil Petersen, Guóbjörg S.H. Petersen, Gunnar AdoHsson, Ragnhildur Thorlecius, barnabörn og barnabarnabörn. t Maöurinn minn, HALLDÓR JÓNSSON, Grensésvegi 58, sem lést 8. maí í Borgarsjúkrahúsinu, veröur jarösunginn frá Foss- vogskirkju 17. maí kl. 13.30. Fyrlr hönd barna, tengdabarna, barnabarna og barnabarnabarna, Laufey Jónadóttir. t Faöir okkar og tengdafaöir, SIGURJÓN SVEINSSON fré Granda í Dýrafirói, verður jarösunginn frá Fossvogskirkju í dag, þriöjudaginn 14. maí, kl. 13.30. Börn og tengdabörn. Hinn 3. maí sl. útskrifaði Einkaritaraskólinn nemendur 10. áríð ( röð. Einkaritaraskólinn 10 ára: 39 nemendur útskrifuðust EINKARITARASKÓLINN útskrif- aði í tíunda sinn nemendur hinn 3. maí sl. Það voru 39 nemendur sem stunduðu nám við skólann veturinn 1984 til 1985 á íslenskubraut. Að þessu sinni fóru skólaslitin fram í nýjum húsakynnum að Ánanaustum 15 í Reykjavík. Við skólaslitin veitti Stjórnunarfélag íslands viðurkenningar fyrir góð- an námsárangur. Þau sem viður- kenningu hlutu í þetta sinn voru Kristín Helga Guðmundsdóttir með hæstu meðaleinkunn, 9,52, þá Laufey Eyjólfsdóttir og Kristín Gunnlaugsdóttir. ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn- ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn- ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort Ijóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. Málfundafélag Félagshyggjufólks: Fundur um borgarstjórnarkosningar MÁLFUNDAFÉLAG félagshyggju- fólks boóar til almenns fundar um „Borgarstjórnarkosningar 1986“ og hvað félagshyggjuflokkarnir hyggj- ast gera. Tilgangur fundarins er að ræða um hvað félagshyggjuflokkarnir í borgarstjórn Reykjavíkur eru sammála og ósammála um og hvaða möguleikar eru á samvinnu í næstu borgarstjórnarkosningum. Frummælandi verður Magnús ólafsson ritstjóri en auk hans taka m.a. til máls Adda Bára Sig- fúsdóttir borgarfulltrúi, Gerður Steinþórsdóttir borgarfulltrúi, Ingibjörg S. Gísladóttir borgar- fulltrúi og Snorri Guðmundsson vélstjóri. Fundurinn verður haldinn f Hótel Hofi í kvöld og hefst klukk- an 20.30.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.