Morgunblaðið - 14.05.1985, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 14.05.1985, Blaðsíða 60
f 60 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR14. MAÍ 1985 fclk í fréttum Glæta hjá Julio?? Við greindum frá því nýlega að spænski söngvarinn Julio Igl- esias væri kominn út á hálan ís í ástamálum sínum, sem lengi hafa verið hin flóknustu. Fokríkur Vestur-Þjóðverji að nafni Urs Zondler hefur stefnt honum fyrir að hafa komið upp á milli sín og konu sinnar, Zoru Zondler, sem við sjáum hér á meðfylgjandi mynd- um. Það er helst að frétta af erfið- leikum Iglesias, að Urs ætlar ekk- ert að gefa eftir, lögsóknin er í full- um gangi, einnig skilnaðarmálið. Það síðarnefnda er reyndar á loka- sprettinum, Zora hreppti 20 millj- ónir marka af manni sínum sem á fjölda veitingahúsa í Vestur- Þýskalandi og víðar. Þrátt fyrir skilnað Urs og Zoru hafa þau sést saman nýlega meðal annars í næturklúbbi í Múnchen eigi alls fyrir löngu og var önnur myndin hér tekin við það tækifæri. Það fór vel á með þeim og dönsuðu þau fram eftir allri nóttu. Zora sagðist elska mann sinn jafn heitt og nokkru sinni fyrr og án þess að minnast einu orði á aumingja Julio, sagði hún að „feilspor" og „mistök" breyttu því ekki að hún elskaði Urs og engan annan. Nú er fylgst með, einkum í Vestur-Þýskalandi, þar sem Urs og Zora eru þekkt andlit. Það er líka fylgst með úr herbúðum Julio Iglesias, sem er heldur lítið spenntur fyrir lögsókninni sem haldið er fram gegn honum. ÓLAFUR KETILSSON Að kinna þorskhausa í Hafnarnesi Það er venja frá ómunatíð að uppsveitarmenn á Fróni bregða sér í verstöðvarnar á Suðurlandi til að ná sér í tros. Það þekkja víst flestir ólaf Ketilsson fyrrum rútubílstjóra á Laugarvatni. Blm. rakst á þessa mynd af ólafi í Fréttamolanum frá Þorlákshöfn en ólafur var tekinn stuttlega tali, þar sem hann var að vinna við að kinna þorskhausa í Hafnarnesi. Sagði hann að kinnar væru besti matur af fiskinum þeg- ar þær væru búnar að liggja í salti. Þá segir í greininni að Ólafur hafi löngum verið lands- mönnum kunnur fyrir tilsvör sín og brandari sagður sem margir kunna þar sem ólafur stöðvaði eitt sinn rútu sína og sagði öllum að fara út að pissa, konum vinstra megin en herr- um hægra megin. Hann beið síðan átekta meðan fólk var að gera sig klárt og ók þá skyndi- lega á brott. TORFI ÓLAFSSON LYFTINGAMAÐUR Tók þrjár vikur að finna nógu stóra nautshúð í klæðnaðinn Hann Torfi Ólafsson lyftingamaður keypti sér leðurklæðnað í Hænco á Suðurgötunni sem ekki er kannski i frásögur færandi nema hvað það tók verzlunina þrjár vikur að finna nógu stóra nautshúð til þess að geta útvegað efni f klæðnaðinn og þurfti að sérpanta efnið utanlands frá. Á myndinni má svo sjá Torfa kominn í skrúðann. „Vildi heldur vera hjá Gere en að vera að tala við þig“ --- a o «eode' i Xooíf^^te^81* Leikarinn Richard Gere er talinn kyntákn nr. eitt af kvenþjóðinni í Bandaríkjunum. Hann er 34 ára gamall og þrautreyndur í mörg- um kvikmyndufn. Með nokkrum heiðarlegum undantekningum hefur hann þó túlkað slíka rusta og furðufugla í hlutverkum sínum að hann hefur áhyggjur af því að fólk fari smám saman að álíta að hann sé ekki minni kauði en þeir menn sem hann speglar í hlutverkum sín- um. Litum fyrst á stöðu þá sem hann skipar f hugum margra kvenna fyrir vestan haf (og trú- lega fyrir austan haf einnig, því kvikmyndir hans hafa ekki síður vakið athygli þar en í Bandaríkjunum). Jackie Collins, systir Joan og frægur rithöfundur (hún myndi vilja hafa fyrri titilinn borinn fram á eftir þeim síðari), sagði eitt sinn í viðtali við blaðamann: „Ég er stödd hérna núna. En ég vildi gefa ansi mikið til að vera með Richard Gere í staðinn fyrir að vera að tala við þig.“ Svo vinsæll er Gere meðal kvenna, að þær líkja honum margar við kvennagullið fræga Rudolf Valentino, en þó Gere segi yfirleitt ekki mikið, þá næstum því skellir hann upp úr þegar hann heyrir samlik- inguna. Það er nefnilega einn af þeim þáttum sem talinn er gera Gere jafn ómótstæðilegan og raun ber vitni. Hann segir ekkert. H^nn vill aldrei fara í viðtal við fréttamenn, varar sig alltaf þegar þeir eru í nánd. Það ergir frétta- mennina og þó þeir vildu finna þeir ekki. höggstað á honum. Svo notar hann þá, því leik- arar verða að fá umtal, þannig segir einn kunn- ingi hans: „Stundum bíður hann langtimum saman eftir þvi að ljósmyndari mæti á staðinn, einungis til þess að spretta á fætur svo maður- inn nái ekki af honum myndum. Þetta er leik- sýning hjá honum, leikin til þess að fá umtal. „Vinir" sem óska nafnleyndar, samstarfsfólk og skyldmenni eru það fólk sem hinir forvitnu leita til, en varla geta slíkar upplýsingar orðið nákvæmar eða fullkomlega sannleikanum sam- kvæmar. Meðan Gere sjálfur kýs að ræða ekki um sjálfan sig er víst að ákveðinn huliðshjálm- ur mun hvíla á honum og það er það sem hann vill, þ.e.a.s. hann vill vera óútreiknanlegur. Honum líkar hlutverk sitt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.