Morgunblaðið - 14.05.1985, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 14.05.1985, Blaðsíða 9
9 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ1985 Hvítasunnu- kappreiðar Fáks verða haldnar á skeiðvelli félagsins dagana 23., 24., 25. og 27. maí 1985. Keppnisgreinar verða: Gæðingakeppni barna A og B fl. gæðinga. og unglinga: 150 metra skeiö 250 metra skeiö 350 metra stökk 800 metra stökk 300 metra brokk 250 metra stökk unghrossa Þátttökuskráning verður í nýja félagsheimilinu á Víðivöllum 14. og 15. maí, milli kl. 14 og 18. Sími er 82355. Skráningagjald er kr. 300 í A og B flokki og kr. 400 fyrir kappreiðahross, er greiöist við skráningu. Frítt fyrir börn og unglinga. Hestamannafélagiö Fákur. SíÖumúla33 símar 81722 og 38125 Vandinn sem við er að glíma Höfuðvandamál íslenzks efnahagslífs eru þrjú: O 1) Verðbólga, sem er margföld miðað við verð- lagsþróun í helztu sam- keppnis- og viðskipta- löndum okkar. Verðbólga, sem getur hæglega snúizt upp f óðaverðbólgu eins og hér var 1978—1983, ef ekki er staðið á öllum bremsum. O 2) Mikill viðskiptahalli við útlönd, sem hefur verið nær stanzlaus sL mörg ár, sem þýðir einfaldlega að við eyðum langt um efni fram. e 3) Erlendar skuldir, sem hrannast hafa upp á sL átta árum og skerða verulega þjóðartekjur og kjör í land- inu. Davíð Sch. Thorsteins- son, formaður bankaráðs Iðnaðarbankans, sagði á aðalfundi hans f síðasta mánuði: „Astandið er orðið svo alvarlegt, að á síðasta ári, árinu sem lýðveldið varð 40 ára, vantaði meira en 2 milljarða króna tU þess að andvirði alls þorskafla fs- lendinga nægði tU að greiða umsamdar afborg- anir og vexti af erlendum skuldum okkar." Við státum okkur stund- um af atvinnuöryggi á sama tíma og aUt að 10% vinnufærra manna ganga atvinnulaus í mörgum ríkj- um Vesturlanda. Við skell- um hinsvegar skollaejrum við fullyrðingum, sem verða æ háværari, þess efn- is, að hér sé haldið uppi atvinnu nu. með erlendrí skuldasöfunun. Við lokuin og augum fyrir hættuboð- um verðbólgu, sem víða sjást, en ein verðbólguhrin- an enn gæti vel velt um atvinnugreinum, einkum f útflutningsframleiðshi, sem lengi hafa staðið á rekstrarlegum brauðfótum, vegna óstöðugleika í ís- lenzku efnahagslifl, og hleypt atvinnuleysinu inn í íslenzkt samfélag. HVER ER ÁRANGURINN? LAND VEROLAGSHÆKKUN S L 15 AR: 1965-1980 SAMKEPPNIS- REGLUR FYRIRKOMULAG VERÐMYNOUNAR V-ÞVZKALAND BANDARÍKIN 85% 160% BANNA SAMKEPPNIS- HÖMLUR FRJALS VERÐMYNDUN SVlÞJÖÐ 200% EFTIRLIT MEÐ SAMKEPPNt NOREGUR DANMÖRK 185% 255% VERÐLAGS- EFTIRLIT ISLAND 2.960% ENGAR REGLUR VÍOTÆK VERDMYNDUNAR- HÖFT Höfuömarkmiö efnahagsstjórnunar „Höfuömarkmið efnahagsstjórnunar veröi lækkun verö- bólgu, jafnvægi á vinnumarkaöi og stöövun skuldasöfnun- ar erlendis. Ekki veröi falliö frá áformum um 1.000 m.kr. lækkun á opinberum lántökum erlendis á þessu ári. Stjón peninga- og og lánsfjármála og gengiskráning íslenzku krónunnar miöizt viö aö ná hallalausum utanríkisviöskipt- um þegar á árinu 1986. Frjálsræðisþróun á fjármagns- markaöi veröi haldið áfram.“ Þessi stefnumörkun er tekin úr landsfundarsamþykkt Sjálfstæöisflokksins. Staksteinar staldra lítið eitt viö hana í dag. Verðbólgan eins og fal- inn eldur Á fyrsta ársfjórðungi 1983, fyrír aðeins tveimur árum, hafði íslenzk verð- bólga skrúfað sig upp í 130% vöxt, umreiknuð á tólf mánaða tímabili, og stefndi í alh að 180% vöxt fyrír árslok, ef ekki hefðu komið til mótaðgerðir. Fyrirsjáanlegt var að Qöldi fyrírtækja, einkum í út- flutningsgreinum, hefðu stöðvast, ef fram hefði haldið sem horfði, og fjöldaatvinnuleysi blasað við. Efnahagsaðgerðir, sem m.a. komu fram í því að höggva á hnút víxlhækk- ana verðlags og kaup- gjalds, færðu verðbólgu niður á fáum mánuðum, þann veg, að vöxturínn var ekki nema um 15%á miðju ári 1984, umreiknaður á tólf mánaða tímabilL Þetta var undraverður árangur, enda þótt að verðbólga í nágrannalöndum væri enn- þá minni, eða víða kringum 5% Þessi þróun leiddi til tímabundis stöðugleika { verðlagsþróun og efna- hagsh'fí. Merki samkeppni sáust á peningamarkaði og vaxandi bjartsýni sagði til sin í atvinnustarfsemi, einkum iðnaði, _ eftir margra ára stöðnun. Áhugi á fjárfestingu í atvinnulffi lét kræla á sér. En Adam var ekki lengi í Paradís. Við fengum einn kollhmsinn enn sfðla árs 1984. Verðbólgan, sem enn er eins og „falinn eldur" { þjóðarbúskap okkar, tók vaxtarkipp. Hvort þjóðin stígur hrunadansinn áfram á haustnóttum skal ósagt látið. Viðræður, sem vonir eru bundnar við Þríhliða viðræður, verk- lýðssamtaka, vinnuveit- enda og ríkisvalds standa yflr eða eru framundan. Þaö er mjög mikilvægt að þessar viðræður leiði til sáttar um að vinna þjóðar- búið út úr aðsteðjandi vanda. Enginn vafl er á þvf að skertar þjóðartekjur og efnahagsaðgerðir, sem grípið var til, hafa leikið ýmsa þjóðfélagshópa grátL Þar ber fyrst að nefna ekfra fólk, sem ekki hefur annan Iffeyrí en frá trygg- ingum, og ungt fólk sem stendur í húsbyggingura eða íbúðarkaupum. Sama máli gegnir raunar um lág- launaheimli sem hafa að- eins eina fyrirvinnu. Fram hjá þessum vanda er ekki hægt að horfa. Það er miltið talað um fríð þessa dagana. Hans er sannarlega þörf í ísienzk- um þjóðarbúskap, eins mál standa nú. Fríðarfræðsla á þeim vettvangi mætti gjarnan vera meiri en raun ber vitni. 13íllamaíka?utLnn Mitsubishi Pajero Diesel 1983 Blár, stuttur, ekinn 41 þús. km. Vökvastýrl, utvarp, segulband. breiö dekk, spoke felgur. Verö 650 þús. Toyota Torcel 4x4 1983 Gullsans. Ekinn 19 þús. km. 5 gíra. Útvarp. Verö 440 þús. Toyota Tercel 1981 Ekinn 58 þús. km. Verö 235 þús. Mazda 929 4 dyra 1983 Ekinn 27 þus. km. Verö 410 þús. Mazda 626 Coupé 1983 Ekinn 45 þús. km. Verö 390 þús. Daihatsu Rocky 1984 Eklnn 11 þús. km. VerO 590 þús. Citroén BX 16 TRS 1984 Svartur eklnn 15 þús. km. 5 gira. Vðkva- stýrí, útvarp, aegulband, litaö gler og o.fl. Verð 540 þús. Daihatsu Runabout 1980 Grásans. Ekinn 58 þús. km„ útvarp, segul- band. Verö 160 þús. Honda Accord EX 1981 Ekinn 45 þús. km. Verö 300 þús. Subaru Station 4x4 1982 Ekinn 63 þús. km. Verö 350 þús. BMW 320 1982 Ekinn 38 þús km. Verö 430 þús. BMW 728i 1980 Ekinn 8 þús km. m/öllu. Verö 750 þús. Suzuki Fox 1982 Blðsans., ekinn 33 þús. Verö 280 þús. Einnig Fox 1983. Verö 330 þús. Mazda 323 Saloon 1984 Rauöur, ekinn 27 þús. km. Bensin, vökva- Vinrauöur. eklnn 18 þús. km. Verö 325 þús. stýri, útvarp, segulband. RÖÐRECLA HILLUKERFI OG HENGJUR OTRULEGIR MÖGULEIKAR ELEMENT SYSTEM í BILSKÚRINN.SMÍÐAHERBERGID EÐA CEYMSLUNA ÞÝSK GÆDI Á GÓÐU VERÐI Útsölustaðir á Reykjavíkursvæði: BYKO Kópavogi, COS Nethyl 3, Húsiö Skeifunni, JL-Byggingavörur Hringbraut, Málmur Hafnarfiröi, Smiösbuö Caröabæ, VMJ Síöumula.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.