Morgunblaðið - 14.05.1985, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 14.05.1985, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1985 Stefnumót við leikinn Myndlist Bragi Ásgeirsson — Öll list er í eðli sínu leikur. I myndlistinni er það leikur- inn við form, liti og skapandi kenndir, sem ræður ferðinni, og hér eru gerandanum settar strangar reglur, sem ekki má bregða útaf. Hver einasti leikur, hversu litilfjörlegur sem hann er, markast þannig af ákveðnum grunnhugmyndum og reglum. Þessa er hollt að minnast í huga- takaruglingi nútímans, þegar leikurinn er orðinn að tiigangs- lausu sprelli og frelsið að sjálfs- linku og agaleysi. Við getum ekki brugðið út af leikreglum skáktaflsins né knattleiksins, en hins vegar get- um við æst leikinn og fullkomn- að frelsið með því að auka við okkur kunnáttu og leikni. Hér gildir sem fyrr að fara að hlutunum undir réttum for- merkjum, og þó getur það tekið langan tíma að uppgötva þessi einföldu sannindi — meðtaka þau af lífi og sál. Leikreglurnar fylgja þannig hverjum leik eins og skugginn, hvert svo sem viðfangsefnið er og hvernig sem viðkomandi með- höndlar það. — Allt þetta kemur fram í myndverkum Tryggva Ólafssonar sem fram til 27. maí sýnir 41 málverk og klippimyndir í húsa- kynnum Listasafns ASÍ. Hann hefur ekki aðeins með- tekið þessi sannindi, heldur gert sjálfan leikinn að viðfangsefni sínu með samtvinnuðum hugs- anatenglsum milli manns og náttúru. Tryggvi tekur til hvers konar hluti úr umhverfinu til meðferð- ar og býr til úr þeim ýmis tákn, er rekast hvert inn í annað og hræra við hugarflugi skoðand- ans. Þessi einföldu tákn geta fyrir sumt minnt á fyrstu til- raunir manna til sjálfstjáningar, sem varðveittar eru, en þau eru heimfærð á nútímann, neyzlu- og tækniþjóðfélagið andspænis grómögnum náttúrunnar. Hraða þotualdar andspænis kyrrð og ró eilífðarinnar. Hér er þannig um að ræða túlkun Tryggva Ólafssonar á tímunum, sem hann lifir á og samsemd hans með þeim, og þó að hann sé ekki einn um að velja þessa leið, þá hefur hann smám saman þróað með sér myndmál, sem er hans eigið. Tryggvi er einn af þeim mynd- verkasmiðum, sem margvinnur úr hverri hugmynd, og nostrar við hana. Hugmyndirnar tylla með öðrum orðum ekki rétt tá á vinnustofu hans, svo sem margra nútímalistamanna, held- ur eru komnar til dvalar og gerj- unar. Slík vinnubrögð eru ekki endu- tekningar né afturhvarf, þótt ýmsum virðist svo, heldur rann- sókn á möguleikum myndflatar- ins innan afmarkaðs sviðs. Mörg myndtákna Tryggva á sýningunni í Listasafni ASÍ eru okkur því gamalkunn, en út- færslan um margt önnur, og á það einkum við nýjustu myndir hans, sem málaðar eru á þessu ári. Við sjáum þessa glögg merki í tveim ólíkum myndum eins og „Sumar“ (37), sem í raun er mál- uð á sl. ári, svo og í myndinni Þel (26), sem listamaðurinn lauk við í ár. Þessar myndir virðast í ein- faldleika sínum marka nokkur kaflaskil í myndhugsun Tryggva, því að nú þrengja sér fram stór og einföld form í nær óhlutlægri útfærslu. Ber hér að nefna myndirnar „Ból“ (14), „Nótt“ (17) og „Bölti“ (29). Þá ber einnig að vísa til ein- faldra mynda eins og „Svið“ (6), „Gálkn“ (20), „Fold“ (27 og „Vor“ (49). Allar þessar myndir benda til einföldunar í list Tryggva, sem er í senn áhugaverð og gefur fyrirheit. Skýr myndhugsun, stór form og þróaðir lithljómar virðast þannig vera þau viðfangsefni, er taka hug Tryggva Ólafssonar allan, er hér er komið. Gullastokkurinn hefur að nokkru leyti fengið að vera í friði um stund, en í stað þess er sviðið orðið að vettvangi ein- faldleikans og leiksins við hann. Leiksins við einfaldleikann í öllu sinu veldi. TERHI BÁTAR TERHI 440 sá stóri í Terhi-bátafjölskyldunni. Lengd 4,40 m. Breidd 1,75 m. TERHI 385 Lengd: 3,80 m. Breidd: 1,50 m. Þyngd 96 kg. TERHI 245 Lengd: 2,40 m. Breidd: 1,25 m. Þyngd: 40 kg. Viö bjóðum hina vinsælu Terhi báta í mörgum stærðum og gerö- um. Terhi bátarnir eru allir tvöfald- ir og fylltir á milli laga með Polyur- ethan, sem veitir aukið öryggi og meiri styrk. Terhi bátarnir eru við- urkenndir af Siglingamálastofnun ríkisins. _ Bátar til afgreiðslu strax. ínfjT Vélar & Tæki hf. Tryggvagat a 10. Símar 21286 og 21460. TERHI 405 Lengd: 4,00 m. Breidd 1,65 m. Þyngd: 136 kg- Viöskiptavinir athugiö! Viö erum fluttir á Fífuhvammsveg í Kópavogi Símar: 641199 641190 v/Fífuhvammsveg — Pósthólf 177 — 202 Kópavogur — Nnr. 8126—4546 VEL KLÆDD SÍMASKRÁ alltaf sem ný í kápunní frá Múlalundi Engri bók er flett jafnmikið og símaskránni. Hún þarf því að eiga góða yfirhöfn svo hún losni ekkí úr böndunum og verði illa til reika. í hlífðarkápunni frá Múlalundi, vinnustofu SÍBS, er símaskráin vel varin! Fæst í öllum helstu bóka- og ritfangaverslunum landsins Mulalundur, Hátúni 10 C, Símar: 38450 38401
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.