Morgunblaðið - 14.05.1985, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 14. MAÍ1985
AP/Slm»mynd
Ahorfendur að leik Bradford og Lincoln horfa agndofa á vítiseldinn í einni stúku leikvangs Bradford. Áhorfendastúkan stendur í björtu báli og upp
liðast kolgrár reykjarmökkurinn.
Sá reyksprengju kastað
og eldinn síðan gjósa upp
Sorg
ríkir í
Brad-
ford
Bradford, 13. maí. AP.
MIKII. sorg ríkir í Bradford
á England, þar sem a.m.k. 53
létust og 210 slösuðust þegar
eldur kom upp í áhorfenda-
stúku á knattspyrnuvelli þar
á laugardaginn. Samúðar-
kveðjur hafa borist víða að,
frá Elísabetu drottningu, Jó-
hannesi Páli páfa, Margaret
Thatcher forsstisráðherra og
fleiri stjórnmálaleiðtogum.
Um eitt þúsund manns
sóttu messu í dómkirkjunni
í borginni í gær, þar sem
Robert Williamson biskup
bað fyrir sálum hinna látnu
og bata hinna slösuðu.
„Ég hef aldrei orðið vitni
að öðrum eins hörmung-
um,“ var haft eftir David
Sharpe, skurðlækni í Brad-
ford, sem annast hefur
marga hinna slösuðu. Hann
segir, að margir hinna slös-
uðu séu svo illa brenndir að
þeir muni bera minjar þess
ævilangt. Aðeins hefur tek-
ist að bera kennsl á eitt lík-
anna. Það er Samuel Firt,
86 ára gamall maður, sem
stofnaði á sínum tíma félag
stuðningsmanna knatt-
spyrnufélagsins í Bradford.
Fyrir það var hann heiðrað-
ur með ókeypis aðgangi að
áhorfendastúkunni, sem
brann.
Tíðindin frá Bradford
hafa slegið óhug á fólk í
Bretlandi og aðstæður á
vellinum hafa sætt mikilli
gagnrýni. Jafnframt er
bent á, að ástandið sé ekki
betra á mörgum öðrum
knattspyrnuvöllum í land-
inu. James Tye, sem er for-
stöðumaður óháðrar eld-
varnastofnunar, segir: „Ef
reynt hefði verið að búa til
hina fullkomnu eldgildru,
hefði hún varla getað orðið
fullkomnari, en sú í Brad-
ford.“
LoDdon, 13. maí. AP.
BLAÐAMAÐUR skýrði frá því I
dag, að hann hefði séð eldinn
gjósa upp á leikvanginum í Brad-
ford eftir að pörupiltar og óeirða-
seggir köstuðu reyksprengju úr
tröppum við hlið stúkunnar.
„Eg veit, að sá, sem kastaði
sprengjunni, hefur komist lífs af
úr eldinum," sagði Ian Trueman,
blaðamaður við dagblaðið Star í
Manchester, en hann sat í stúk-
unni þegar eldurinn kom upp.
Gat hann bjargað lifi sínu með
því að klifra yfir vegginn, sem
aðskildi stúkuna og völlinn, en á
aðeins fjórum mínútum fórust í
eldinum yfir 50 manns.
Að sögn lögreglunnar í Brad-
ford er nú verið að kanna ýmsar
vísbendingar um eldsupptökin
en auk þess, sem komið hefur
fram um reyksprengjuna, hefur
einnig verið sagt frá börnum að
leik með eldspýtur.
„Ég sá reykslóðina þegar
sprengjunni var kastað og sá
þess vegna hvar hún lenti, ná-
kvæmlega þar sem eldurinn kom
upp. Ég heyrði, að fólk hrópaði
„hver kastaði þessari helv...
reyksprengju" um leið og það
reyndi að forða sér,“ segir True-
man í blaði sínu. Sagði hann, að
þeir, sem hefðu kastað sprengj-
unni, hefðu klappað og fagnað
þegar þeim hefði tekist að vekja
á sér athygli lögreglunnar en
síðan sjálfir orðið að forða sér
þegar eldurinn gaus upp af mikl-
um krafti.
Margir áhorfenda í stúkunni
biðu bana þegar þeir reyndu að
komast út um dyrnar og út á
götuna en þær voru lokaðar til
að hindra fólk í að komast inn án
þess að borga.
Krefjast öflugri öryggis-
ráðstafana í framtíðinni
Loiidon, 13. mai. AP.
FJÖLMARGIR brezkir þing-
menn hafa nú krafizt rannsóknar
á öryggisaðstæðum við fþrótta-
velli víðs vegar um Bretland. Er
nú Ijóst, að miklu fleiri kynnu að
hafa beðið bana í Bradford, ef
Bradford-knattspyrnufélagið
befði farið að kröfu stjórnvalda
til allra knattspyrnufélaga um að
koma upp öflugri girðingu um-
hverfis sjálfan völlinn. Kom þessi
krafa fram í síðasta mánuði í
kjölfar mikilla slagsmála, sem
urðu á meðal áhorfenda á knatt-
spyrnuleikjum.
Mörg þúsund þeirra áhorf-
enda, sem horfðu leikinn í
Bradford, sáu sér þann kost
vænstan til þess að bjarga lífi
sínu að klifra yfir girðinguna,
sem aðskildi völlinn frá áhorf-
endasvæðinu umhverfis. Staff-
ord Heginbotham, formaður
knattspyrnufélagsins í Brad-
ford, sagði í dag, að allt að 1000
manns kynnu að hafa misst líf-
ið, ef þegar hefði verið farið að
kröfu stjórnvalda um að setja
upp öflugri girðingu milli leik-
vallar og áhorfendasvæðisins.
Robert Maxwell, formaður
Oxford United, sem nú er ný-
AP/Símamynd
TVeir lögregluroenn standa innan um brunarústirn-
ar af leikvanginum í Bradford. Þegar eldurinn kom
upp stóð leikur Bradford City og Lincoln.
AP/Símamynd
Áhorfendur, sem tókst að komast út úr stúkunni og
yfir á völlinn, hvflast í markinu. Á fjórum eða fimm
mínútum varð öll stúkan alelda.
komið upp í 1. deildina á ný,
skoraði í dag á stjórnvöld, að
grípa þegar til afdráttarlausra
ráðstafana til þess að koma í
veg fyrir, að atburðirnir í Brad-
ford endurtækju sig. Það yrði
ekki gert nema með róttækum
fyrirbyggjandi aðgerðum, sem
yrðu samtímis að gegna því
hlutverki að koma í veg fyrir
ólæti og skrílslæti á knatt-
spyrnuvöllum landsins.
Ýmsir þingmenn Verka-
mannaflokksins, sem er i
stjórnarandstöðu, héldu því
fram í dag, að harmleikurinn í
Bradford sýndi glöggt þá
annmarka, sem væri á þeirri
löggjöf, sem sett hefði verið
1975 um öryggisráðstafanir á
íþróttavöllum. Samkvæmt
þessari löggjöf væri öllum fé-
lögum í 1. og 2. deild brezku
knattspyrnunnar gert að full-
nægja ströngum varúðarkröf-
um gagnvart eldhættu. Þessar
ströngu reglur næðu hins vegar
ekki til liða í 3. deild eins og
Bradford né heldur til liða í 4.
deild.
Graham Karren, yfirmaður
brunavarna í Vestur-Yorkshire
sagði í dag, að aðalknatt-
spyrnuvöllurinn í Bradford
væri „eldgildra" og að stjórn fé-
lagsins hefði verið vöruð við og
henni bent á þessa hættu fyrir
sex mánuðum. Hann kvaðst
hins vegar sem embættismaður
ekki hafa ráðið yfir neinum
þvingunarúrræðum gagnvart
Bradford, þar sem lögin frá
1975 næðu ekki til Bradford, 3.
deildar liðs.