Morgunblaðið - 14.05.1985, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐID, ÞRIÐJUDAGUR 14. MAl 1985
33
Jonathan Motzfeldt
Grænland:
Motzfeldt
heiðursdoktor
(■rænlandi, 13. maí. Frá Nils Jörgen Bruun,
frétUritara Mbl.
JONATHAN Motzfeldt, formaður
landsstjórnarinnar, var í gær gerður
að heiðursdoktor við háskólann í
Fairbanks í Alaska. Er Motzfeldt
annar Grænlendingurinn, sem feng-
ið hefur heiðursdoktorstitil.
Athöfnin í háskólanum í Fair-
banks stóð i hálfan annan tíma og
voru 3000 nemendur, kennarar og
gestir viðstaddir hana. Var Motz-
feldt gerður að doktor í lögum og
lagði rektor skólans, O’Rourke,
skikkjuna á herðar honum. Sú
ákvörðun að gera Motzfeldt að
heiðursdoktor var rökstudd þann-
ig, að hann væri óumdeilanlegur
leiðtogi meðal þjóðar sinnar, sem
barist hefði fyrir heimastjórninni
og væri auk þess riddari af Danne-
brog og félagi í Heimskautsráð-
inu.
Sá Grænlendingur annar sem
fengið hefur heiðursdoktorstitil er
heimskautafarinn Knud Rasmus-
sen, sem var fæddur i Jakobshöfn.
Hann var fyrst gerður heiðurs-
doktor við Kaupmannahafnarhá-
skóla árið 1924 og árið 1927 við
háskólann í Edinborg.
Grikkland:
Leidtogi stjórnarandstöðunnar
sakaður um samstarf við nasista
Aþenu, 13. m&í. AP.
LJOSMYND frá árum síðari
heimsstyrjaldarinnar, sem sýnir
Constantine Mitsotakis, leiðtoa
stjórnarandstöðunnar á Grikk-
landi, ásamt tveimur þýskum her-
mönnum, sem sagt er hafi verið
liðsmenn SS-sveita nasista, hefur
orðið tilefni mikilla deilna í upp-
hafi kosningabaráttunnar í land-
inu.
Það var dagblaðið Avrúuii,
sem birti myndina á forsíðu á
föstudaginn. í grein í blaðinu
var fullyrt að Mitsotakis, sem er
65 ára að aldri og þingmaður
fyrir Krít, hefði starfað með
nasistum á árunum 1941—1945,
þegar þeir höfðu hernámslið á
eynni.
Stjórnmálaskýrendur segja,
að enginn vafi leiki á því, að til-
gangur blaðsins með myndbirt-
ingunni, sé að draga úr áliti
kjósenda á Mitsotakis og flokki
hans, sem stefnir að því að fella
sósíalistastjórn Andreasar Pap-
andreou.
Á kosningafundi sósíalista í
vesturhluta Grikklands á laug-
ardag veifaði hópur manna blað-
inu með myndinni af Mitsotakis
og hrópaði: „Vinur SS mun
deyja.“
Mitsotakis, sem er fyrrum
utanríkisráðherra Grikklands og
nú formaður hins hægri sinnaða
Nýja lýðræðisflokks, hefur vísað
ásökunum um samstarf við nas-
ista algerlega á bug. Hefur hann
hótað að stefna dagblaðinu, sem
myndina birti, fyrir meiðyrði.
„Ég man ekki hvenær þessi
mynd var tekin,“ sagði Mitsotak-
is í yfirlýsingu, sem hann sendi
frá sér. „Það vita hins vegar all-
ir, sem þátt tóku í andspyrnu-
hreyfingunni á Krít, að ásakan-
irnar, sem birtar eru í grein með
myndinni, eru í senn auvirði-
legar og ærumeiðandi."
Mitsotakis bendir á það, að
hann hafi tvívegis verið hand-
tekinn af Þjóðverjum og dæmd-
ur til dauða og orðið að dúsa í
fangelsi í marga mánuði.
John Stanley, fyrrum majór í
breska herliðinu, sem barðist við
hlið grískra andspyrnumanna á
Krít, segir í bréfi, sem birt hefur
verið i dagblaðinu Akropolis í
Aþenu, að hann hafi haft náin
kynni af Mitsotakis á þessum
tíma. Hann hafi sýnt mikið
hugrekki í baráttu sinni fyrir
andspyrnuhreyfinguna og gegnt
þar veigamiklu hlutverki.
Svíþjóð:
Dregur úr hörkunni
f vinnudeilunum
Kennarar í grunnskólum hefja kennslu á ný
Lundi, 13. nuL Frá frétUriUra MorpiDblaðflins,
„ÞAÐ hefur aöeins dregið úr hörk-
unni. Það byrjaöi meö því að opinber-
ir starfsmenn veittu undanþágu varö-
Nýtt sovézkt ógnarvopn
Mynd þessi sýnir nýja sovézka eidflaug af gerðinni SS-21, en mörgum slíkum
eldflaugum hefur þegar veriö komiö fyrir í Tékkóslóvakíu og Austur-Þýzka-
landi. Mynd þessi var tekin á sovézkri hersýningu á dögunum og var þaö í
fyrsta sinn sem eldflaugar af þessari tegund voru sýndar opinberlega.
Pólland:
Krafist endurreisnar
Samstöðu bændafólks
Varaji. 13. maf. AP. /"
MÖRG hundruð bænda hvaöanæva aö úr Póllandi voru í gær viö messu í
kirkju heilags Stanislaw Kostka f Varsjá en þar var þess minnst, aö fjögur ár
eru liðin frá því aö pólskir bændur stofnuðu sín eigin verkalýössamtök, sína
eigin Samstööu, sem eins og samtök verkamanna var bönnuð meö herlögun-
um.
Alls voru rúmlega 7.000 manns
við messu og fagnaði fólkið ákaf-
lega þegar hvatt var til, að Sam-
staða bænda yrði endurreist og
skorað á stjórnvöld að leysa úr
haldi pólitíska fanga.
„Fósturjörðin krefst fulls lýð-
ræðis, sjálfstjórnar og sjálfstæðis
á öllum sviðum þjóðlífsins, þar á
meðal réttarins til að stofna óháð
verkalýðsfélög," sagði séra Bogusl-
aw Bijak, sem oft varð að gera hlé
á máli sínu vegna fagnaðarláta
fólksins. „Þessi þjóð fyrirlitur ein-
ræði og opinberar fyrirskipanir,
sérstaklega þær, sem bruggaðar
hafa verið utan landamæranna."
Bændurnir komu með fólks-
flutningabifreiðum frá öllum hér-
uðum Póllands til að vera við
messuna en að sögn presta voru
margar bifreiðir stöðvaðar fyrir
utan Varsjá og farþegunum ekki
leyft að fara inn í borgina.
Eftir messu gengu bændurnir
kringum kirkjuna með borða og
fána, gerðu sigurmerkið með
fingrunum og sungu sálma og
þjóðsöngva. Lögðu þeir síðan
blómsveig á gröf Popieluszkos,
prestsins, sem pólsku öryggislög-
reglumennirnir myrtu. Nokkrir
tugir lögreglubíla voru i nálægum
götum en ekki kom til neinna
átaka.
Josef Glemp, kardináli, sagði við
messu í gær, sem 60.000 manns
hlýddu á, að í Póllandi ættu sér nú
stað „mjög flókin þjóðfélagsátök“.
Sagði hann þetta I borginni Krak-
ów þar sem voru hátíðahöld til
minningar um heilagan Stanislaw,
verndardýrling Pólverja. „Ekki er
víst, að friður ríki þótt ekki sé bar-
ist,“ sagði Glemp. „Annars konar
barátta getur átt sér stað, barátta
gegn óréttlætinu og þeim óhæfu-
verkum, sem unnin eru, morðinu á
Romero, erkibiskupi I E1 Salvador
og séra Jerzy Popieluszko í Pól-
landi svo dæmi séu nefnd.“
Við hátíðahöldin til minningar
um verndardýrling Pólverja var
James W. Malone, biskup og for-
seti þjóðarráðs kaþólskra biskupa i
Bandaríkjunum, og var honum
fagnað mjög innilega þegar hann
var kynntur.
Veður
víða um heim
Lægtt Hnmt
Akureyri 15 skýjaö
Amsterdam 16 22 mkýjaö
Aþena 15 25 mkýjaó
Barcetona 17 léttmk.
Berlín 12 23 mkýjaó
BrOmsel 8 19 heiómkirt
Chicago 17 27 rigning
Dublín 6 18 mkýjaó
Feneyjar 22 akýjaó
Frankfurt 11 25 skýjaó
Genf 4 17 skýjaó
Helsinki 6 12 heióskirt
Hong Kong Jerúmalem 26 31 heióskírt
Kaupm.höfn 7 15 mkýjaó
Lam Palmam 21mkýjaó
Limmabon 11 18 heiðskírt
London 9 14 skýjaó
Lom Angelem 13 22 heióskfrt
Luxemborg 17 mkýjaó
Mnltga 22 léttsk.
Mallorca 19 léttsk.
Miami 22 29 heiómkírt
Montreal 14 24 heiómkírt
Momkva 8 26 heiðskýrt
IWW TOTK 20 27 mkýjaó
Omló 6 21 heióskirt
Parím 7 19 heióskirt
Peking 16 21 skýjaó
Reykjavík 9 skýjaó
Rio de Janeiro 15 25 skýjaó
Rómaborg Slokkhólmur 9 27 skýjaó
Sydney 13 19 mkýjaö
Tókýó 17 22 mkýjaó
Ví.iarborg 10 25 skýjaó
Þórshöfn 7 þoka f. gr.
Pétri Péturesjni.
andi póstdreifingu, sem var mjög
mikilvægt, þar sem pósturinn sendir
út greiöslur til ellilífeyrisþega og
barnabætur. Þá var einnig opnað
fyrir starfsemi tollsins á ný. Á móti
þessu kemur, aö hiö opinbera hefur
aflétt verkbanninu í vissum greinum,
svo sem hjá kennurum í grunnskól-
um.“
Þetta kom m.a. fram hjá Pétri
Péturssyni, fréttaritara Morgun-
blaðsins í Svíþjóð, i dag, þar sem
hann lýsti ástandinu og síðustu at-
burðum í vinnudeilunum þar.
„Stemmningin hefur mildast við
þetta,“ sagði Pétur ennfremur.
„Menn beggja deiluaðila komu
fram í sjónvarpi í dag og sögðu, að
þetta væri fyrsta skrefið í átt til
samkomulags, en skrefin væru
mörg og því gæti það dregizt
eitthvað á langinn, að vinnudeil-
urnar leystust.
Eftir sem áður hélt stjórnin því
hins vegar fram, að ekki gæti orðið
um neina launahækkun að ræða á
þessu ári umfram það, sem lofað
hafði verið. Sænska stjórnin vildi
sem sagt ekki fara feti lengra en
hún hafði áður heitið."
Grænland:
Þorskveið-
in bregst
K aupmannabörn. 13. mii.
Bruun fréUariUni Mbl.
Frá Nite Jbrgrn
Þorskveiöi Grænlendinga hefur geng-
iö hrapallega þaö sem af er ári og
fyrstu þrjá mánuöi ársins var aflinn
80% minni en á sama tímabili í fyrra.
Rækjuveiðarnar ganga hins veg-
ar mjög vel og var aflinn á fyrsta
ársfjórðungi 4.760 tonn eða tvöfalt
meiri en á sama tíma í fyrra.
Kúplíngsdískur
í MAZDA 323 kostar
895 krónur.
Hvað kostar kúplíngsdískur
í bílínn þinn? BÍLABORG
HF Smiðshöfða 23. S. 81265