Morgunblaðið - 14.05.1985, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. MAl 1985
AF INNLENDUM
VETTVANGI
eftir AGNESI BRAGADÓTTUR
Ákvörðun um hver verður næsti
forstjóri Sambandsins mun vænt-
anlega liggja fyrir 20. þessa mán-
aðar, eða næsta mánudag. Svo
kann að fara að Erlendur Einars-
son forstjóri Sambandsins hverfi
úr forstjórastólnum áður en árið er
allt. Erlendur gæti að vísu setið út
árið 1986, en margir telja að nauð-
syn sé að forstjóraskipti eigi sér
stað á árinu, þar sem Erlendur sé
farinn að lýjast í forstjórastarfinu
og sé ekki lengur það forystuafl 45
þúsund manna hreyfíngar, sem
samvinnuhreyfíngin þarf á að
halda. Jafnframt telja þeir að Er-
lendur geti vel hugsað sér að setj-
Stóllinn sem allt snýst um — forstjórastóll Sambandsins.
ast í helgan stein. Hugur Erlendar
mun þó standa til þess að sitja á
forstjórastól fram á mitt næsta ár,
og er höfuðástæða þess sögð sú að
hann vilji virkja Axel Gíslason að
fullu í starfí aðstoðarforstjóra
Sambandsins. Axel hefur ekki get-
að beitt sér sem skyldi sem aðstoð-
arforstjóri, þar sem framkvæmda-
stjórastarf hans í Skipadeild Sam-
bandsins hefur tekið tíma hans að
mestu. Hann hættir í því starfí nú
alveg á næstunni, og ef að líkum
lætur mun Ómar Jóhannsson, að-
stoðarframkvæmdastjóri Skipa-
deildarinnar taka við fram-
kvæmdastjórastarfinu.
Slagurinn um forstjórastól SÍS:
Verður Guðjón B.
Ólafsson næsti
forstjóri Sambandsins?
Valur vill ekki
forstjórastólinn
Fram til þessa hefur það verið
ríkjandi skoðun að Vaíur Arn-
þórsson stjórnarformaður Sam-
bandsins, verði næsti forstjóri
þess. Nú er hinsvegar talið líklegt
að Valur hafi þegar gert upp hug
sinn til forstjórastólsins og ákveðið
að hann vilji starfið ekki, þótt hann
gæti átt meirihlutafylgi í stjórn-
inni til starfsins, ef hann kærði sig
um. Sé þetta rétt mun Valur líklega
greina frá þessari afstöðu sinni á
stjórnarfundi nk. mánudag.
Margir telja að Guðjón B. ólafs-
son, forstjóri Iceland Seafood
Corporation, dótturfyrirtækis
Sambandsins I Bandaríkjunum,
hafi beðið lægri hlut fyrir stjórnar-
formanni Sambandsins, Val Arn-
þórssyni, kaupfélagsstjóra KEA,
án þess þó að hafa nokkurn tima
barist fyrir þessari vegtyllu. Þeir
sem vilja Guðjón í forstjórastólinn
segja að hann hafi hvorki sóst eftir
forstjórastarTinu né leitað eftir
stuðningi stjórnarmanna. Hann
hafi einungis iýst því yfir, þegar
stjórnin ræddi við hann, að hann
væri tilbúinn til þess að ræða við
stjórnina ef hún hefði áhuga á að
ræða við hann. Það hefur legið
fyrir nú um nokkra hríð að Guðjón
vill koma heim til íslands á ný, eft-
ir 10 ára úthald. Hann lýsti því
sjálfur yfir á aðalfundi Iceland
Seafood Corporation á Hótel Sögu í
síðustu viku og þeir sem þekkja
Guðjón segja að hann gefi ekki
slíka yfirlýsingu, nema hann sé
staðráðinn í að koma heim. Þeir
hinir sömu segja að skipist mál
þannig að stjórn Sambandsins
kjósi að setja Val á forstjórastól,
þá sé Guðjón þar með glataður
samvinnuhreyfingunni eftir 30 ára
starf hjá Sambandinu. Hann muni
hiklaust leita á önnur mið hér
heima, og er það hald manna að
Guðjóni reynist næsta létt að fá
ábyrgðarstöðu hvar sem er, svo
glæstur sé ferill hans. Meira að
segja hefur forstjórastóll Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna verið
nefndur í því sambandi.
Þó að nöfn manna eins og Axels
Gíslasonar, aðstoðarforstjóra Sam-
bandsins, Sigurðar Markússonar,
framkvæmdastjóra Sjávarafurða-
deildar, og Þorsteins ólafssonar,
fulltrúa forstjóra, hafi á stundum
verið orðuð við forstjórastólinn, þá
hefur það verið í svo litlum mæli að
möguleiki á ráðningu þeirra telst
nánast enginn vera. Umræðan hér
á eftir, mun því einkum snúast um
þá Val og Guðjón. Áður en áfram
er haldið er rétt að greina frá því
að Sigurður Markússon hefur aldr-
ei tekið þátt í slagnum um for-
stjórastólinn, þar sem hann greindi
áhrifamönnum innan Sambandsins
og í stórn þess frá því fyrir 3 til 4
árum að hann hefði engan hug á að
sækjast eftir forstjórastólnum, og
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur hann í einu og öllu
staðið við þann ásetning sinn.
Fimm stjórnarmenn
styðja Val
Ef fyrst er litið til 9 manna
Stjórnar Sambandsins, þá bendir
flest til þess að Valur hafi þar
nauman meirihluta, eins og staðan
er í dag, eða stuðning fimm stjórn-
armanna, en Guðjón fjögurra. Þeir
sem styðja Val eru ólafur Sverris-
son, Borgarnesi, Gunnar Sveinsson,
Keflavík, Jónas R. Jónsson, Melum,
Óskar Helgason, Höfn og Þorsteinn
Sveinsson, Egilsstöðum. Þorsteinn
kemur inn sem varamaður þegar
ákvörðun verður tekin, þar sem
málið verður Val að líkindum of
skylt, til þess að hann greiði um
það atkvæði. Þeir sem sagðir eru
stuðningsmenn Guðjóns eru aftur
Þórarinn Sigurjónsson, Laugar-
dælum, Ingólfur Ólafsson, KRON,
Finnur Kristjánsson, Húsavlk og
Hörður Zóphaníasson, Hafnarfirði.
Þótt ótrúlegt sé, þá kann dæmið
að líta öðru vísi út ef málin þróast
svo að allir varamenn í stjórn Sam-
bandsins verða kvaddir til, þegar
að afgreiðslu málsins kemur.
Þorsteinn Sveinsson á Egilsstöðum
er eins og áður segir fyrsti vara-
maður og tekur sæti Vals ef hann
situr ekki fundinn. Aðrir varamenn
eru þeir ólafur Jónsson hjá KRON,
en Ölafur er talinn munu styðja
Val, þrátt fyrir eindregna afstöðu
Ingólfs, sem styður Guðjón. Nafni
hans ólafsson , kaupfélagsstjóri á
Hvolsvelli er hins vegar sagður
fara eigin leiðir, og það ekki i
fyrsta sinn, og talinn munu styðja
Guðjón ef honum gefst kostur á að
greiða atkvæði. Er Ólafur sagður
dyggasti stuðningsmaður Guðjóns
úr röðum kaupfélagsstjóra. Nú
kann mönnum að þykja sem það sé
með miklum ólíkindum að allir
varamenn stjórnar Sambandsins
verði viðstaddir þegar svo veiga-
mikil ákvörðun verður tekin, sem
ákvörðun um nýjan forstjóra Sam-
bandsins. Það þarf þó ekki að vera
rétt, þar sem Jónas á Melum er
hugsanlega talinn munu afsaka
fjarveru sína með annríki við
sauðburð og Óskar stöðvarstjóri á
Höfn gæti átt það til að boða veik-
indaforföll, til þess að vera löglega
afsakaður frá óþægilegum fundi.
Þessir menn eru báðir sagðir í
nokkrum vanda, ef það þarf að
kjósa um nýjan forstjórakandídat,
þar sem þeir eru sagðir hafa heitið
Val stuðningi, en að þeir í hjarta
sínu vilji Guðjón í forstjórastólinn.
Þetta eru þó einungis vangavelt-
ur um það hvernig málin gætu
hugsanlega þróast. Það er engan
veginn líklegt að þessi verði þróun-
in, og allra líklegast er að stjórnin
semji fyrir fundinn um „einróma
afstöðu" og að sá sem hlýtur for-
stjórastólinn, hljóti hann með 9 at-
kvæðum stjórnarmanna.
Samvinnuhreyfíngm
skiptist í tvær fylkingar
Sé litið til hins almenna félaga í
samvinnuhreyfingunni, þá má að
líkindum skipta stuðningsmönnum
í tvær fylkingar, a.m.k. í grófum
dráttum. Annarsvegar eru það
mjög margir fulltrúar kaupfélag-
anna um land allt, sem vilja kaup-
félagsstjórann og félagsmálafrðm-
uðinn Val Arnþórsson í forstjóra-
stól, og hins vegar eru það fulltrúar
Sambandsfrystihúsanna, sem vilja
sjá Guðjón í sama stól. Auk þess
má leiða líkur að þvi að Guðjón
njóti meirihlutastuðnings starfs-
manna Sambandsins. Sú ályktun er
dregin af samtölum við allmarga