Morgunblaðið - 14.05.1985, Side 19
MORGÚNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1985
19
starfsmenn Sambandsins, einkum í
höfuðstöðvum Sambandsins við
Sölvhólsgötu. Þeir hinir sömu
leggja þó áherslu á það i máli sínu,
að báðir mennirnir séu hæfir til
starfans, og að hvorum sem er
verði tekið vel af starfsmönnum.
Þeir segja jafnframt að það sé
borðleggjandi að verulegar skipu-
lagsbreytingar þurfi að gera á
Sambandinu, með tilkomu nýs for-
stjóra. Hafa þeir meiri trú á að
raunverulegar breytingar geti átt
sér stað með tilkomu þess sem þeir
nefna „nýtt blóð“ en það segjast
þeir sjá i Guðjóni. Guðjón mun
einnig hafa ákveðnar hugmyndir
um skipulagsbreytingar Sam-
bandsins, sem hann myndi hrinda í
framkvæmd, ef hann yrði forstjóri.
Ekki liggur alveg ljóst fyrir
hvern topparnir hjá Sambandinu
vildu helst sjá í forstjórastólnum.
Hafa þeir flestir verið afar varkár-
ir og ekki gefið upp afstöðu sfna. Þó
ber á það að líta að þeir sem starf-
að hafa hvað nánast með Erlendi
og unnið sig upp f áhrifastöður hjá
Sambandinu að undanförnu, hljóta
að vera uggandi um framtfð sfna,
ef Valur verður forstjóri. Fáum
dylst að lítið hefur verið um kær-
leika á milli þeirra Erlendar og
Vals. Því er talið lfklegt að Valur
myndi ráðast f ákveðnar „hreinsan-
ir“ ef hann yrði forstjóri.
Nú má ekki skilja það sem svo,
að þeir f stjórn Sambandsins sem
hér eru sagðir fylgja Vali að máli,
séu þar með andstæðingar Guð-
jóns. Ef Valur kýs að óska eftir því
að Guðjón verði ráðinn sem for-
stjóri, þá munu þessir fimm menn
styðja Guðjón í forstjórastól. Þar
með fengi Guðjón öll nfu atkvæðin
sem greidd verða. Þar með hefði
náðst „breið samstaða um nýjan
forstjóra“, eins og Valur Arnþórs-
son orðaði það f samtali við Morg-
unblaðið snemma i aprflmánuði, en
þá sagði hann að allt stefndi i það
að breið samstaða næðist innan
stjórnarinnar um ráðningu nýs
forstjóra. En slfkt getur aðeins orð-
ið að því tilskyldu að Valur lýsi því
yfir að hann vilji ekki stólinn. Geri
hann það ákveður hann jafnframt
hver verður forstjóri, og sýnir enn
og sannar hversu sterkur hann er
sem formaður Sambandsins. Telja
heimildarmenn Morgunblaðsins að
útilokað sé að „breið samstaða" ná-
ist um Val f forstjórastól, þar sem
hann eigi sér ákveðna andstæðinga
f áhrifastöðum innan Sambands-
ins, en það eigi Guðjón hins vegar
ekki.
Finnur hefur ekki
fyrirgefíð Val
Stuðningsmenn Guðjóns f stjórn-
inni eru aftur á móti andstæðingar
Vals, a.m.k. þeir Finnur Kristjáns-
son og Ingólfur ólafsson. Finnur
hefur ekki fyrirgefið Val að hann
hrifsaði til sfn formennskuna á sfn-
um tfma, og enn síður það að Valur
hefur verið stjórnarformaður með
glæsibrag f formennskutfð sinni.
Guðjónsmenn segja þetta ekki
rétt og benda á að Finnur sé einn
fárra stjórnarmanna Sambandsins
sem geti litið til sögu Sambandsins
sl. 17 ár eða svo, og metið hvers
konar lyftistöng Guðjón hafi verið
Sambandinu. Þeir benda í þvf sam-
bandi á að Guðjón tók við Sjávar-
afurðadeild Sambandsins f algjör-
um molum árið 1968 og byggði upp
á mjög skömmum tfma og að sagan
hafi endurtekið sig þegar hann fór
vestur um haf árið 1975. Þeir segja
þvf aö Guðjón hafi sýnt fram á, svo
ekki verði um villst, að hann sé f
raun hæfasti starfskraftur sem
Sambandið hefur á að skipa, þegar
nýr forstjóri verður valinn. Litið til
annarra fylgismanna Guðjóns f
stjórninni, þá má álykta að Ingólf-
ur f KRON sé einfaldlega andvígur
Val, vegna þess að Erlendur Ein-
VALUR
ARNÞÓRSSON
stjórnarformaður Sambands-
ins. Velur hann „hina breiðu
samstöðu" og mælir með því
að Guðjón B. Ólafsson verði
ráðinn forstjóri SlS?
arsson er það. Þórarinn Sigur-
jónsson er ekki andstæðingur Vals,
en hann styður Guðjón og sömu
sögu er að segja af Herði Zóphanf-
assyni. Hjá tveimur af fjórum fylg-
ismönnum Guðjóns f stjórninni,
þeim Finni og Ingólfi er það þvi
ekki endilega sjónarmiðið, að ágæti
Guðjóns ráði þvf að þeir vilja hann
fremur en Val í forstjórastólinn,
heldur miklu fremur það að þeir
vilja hvern sem er frekar en Val
Arnþórsson. Þó er rétt að árétta
sjónarmið Finns og Ingólfs, sem
líklega ræðst af þvf tvennu að þeir
telja Guðjón hæfasta manninn inn-
an Sambandsins til þess að setjast
f forstjórastólinn og að Finnur hef-
ur af persónulegum ástæðum tals-
vert megna andúð á Val.
Guðjón á sér aðdáendur i röðum
beggja fylkinga. Til að mynda sagði
einn stuðningsmanna Vals f sam-
tali við blm. Mbl.: „Guðjón hefur i
raun og veru aldrei sóst eftir neinu
starfi. Hann hefur verið beðinn um
að taka að sér þetta og hitt og hann
hefur gert það og gert það vel. Ég
hygg að sömu sögu sé að segja nú.
Hann hefur ekki sóst eftir þvf að
verða forstjóri Sambandsins, held-
ur hefur verið leitað eftir því við
hann, hvort hann væri reiðubúinn
til slfks starfs þegar og ef hann
væri beðinn um það.“
Valur sækir stuðning
í kaupfélögin
Stuðningsmenn Vals segja aftur
að mikill áhugi sé á þvi viða f Sam-
bandinu, og þá sérstaklega úti f
kaupfélögunum að Valur taki
starfið að sér. Þeir segja að Valur
sé heilshugar f starfi kaupfélags-
stjóra KEA, hvað sjáist best af
góðri afkomu liðins árs sem hljóti
jú að vera afrakstur góðrar stjórn-
unar og skynsamlegrar. Valur sé
ekki að leita eftir öðru starfi, en
hann geti vart skorast undan að
taka starfið að sér, ef niðurstaðan
verður sú að meirihluti stjórnar-
innar fer þess á leit við hann. Hann
hafi þvi hugleitt að taka að sér
starfið, f ljósi þess að svo margir
vildu að hann tæki það að sér. Telja
þessir menn að Valur væri sam-
vinnuhreyfingunni ómetanleg
lyftistöng, og að honum tækist að
glæða hana nýju lffi. Hann sé og
verði fyrst og fremst fulltrúi hins
almenna félagsmanns, og muni
halda á lofti merkjum samvinnu og
félagshyggju. Þeir hafa þvf lagt
talsvert hart að Vali að taka að sér
starfið, en enn sem komið er hefur
hann ekki viljað kveða upp úr með
það hvort hann vilji starfið. Telja
stuðningsmenn hans að það sé vfs-
bending um að hann hafi tak-
markaðan áhuga á forstjórastóln-
um, en vilji þó ekki gefa hugmynd-
ina með öllu ffa sér. Guðjónsmenn
GUÐJÓN B.
ÓLAFSSON
forstjóri Iceland Seafood
Ck)rporation hefur sannað
hæfni sína í starfi, svo ekki
verður um villst. Hann er því
talinn verðugur arftaki Er-
lendar á forstjórastóli.
lfta hinsvegar talsvert öðrum aug-
um það háttalag Vals að liggja
svona lengi undir feld. Þeir segja
að hann sé að kanna hvort ein-
hverjum fjögurra stuðningsmanna
Guðjóns í stjórninni verði ekki snú-
ið. Hann sé afskaplega stoltur
maður og lfti stórt á sig, og geti
vart hugsað sér að taka við for-
stjórastarfinu með aðeins eins at-
kvæðis forskoti, raunar eigin at-
kvæði. Hann vilji hljóta einróma
stuðningsyfirlýsingu stjórnarinn-
ar, svo hann geti sagt að hann hafi
aldrei sóst eftir starfinu, en hins
vegar geti hann sem samvinnu-
maður ekki skorast undan þeirri
ábyrgð sem hann sé beðinn að axla.
Valur og hans stuðningsmenn
eru sagðir hafa reynt að koma
þeirri hugmynd inn hjá fólki að
Guðjón, sem allir vita að hefur
staðið sig frábærlega sem forstjóri
Iceland Seafood, hafi rekið fyrir-
tækið sem gallharður „bfsnessmað-
ur“ sem Valsmenn segja að sam-
ræmist ekki beinlinis samvinnu-
hugsjóninni. Segja þeir að það geti
orðið skaðlegt imynd samvinnu-
hreyfingarinnar, ef svo harður
viðskiptalffsmaður sem Guðjón
taki við stjórnvölnum. Hann hafi
einfaldlega ekki nógu félagslegt
samvinnuyfirbragð. Segja þeir að
um leið og menn beri mikla virð-
ingu fyrir dugnaði Guðjóns, þá
óttist þeir þann „harðsvfraða bfsn-
issblæ sem muni koma á hreyfing-
una með hann sem forstjóra".
Guðjón mikill
samvinnumaður
Guðjónsmenn eru hins vegar
ekki sáttir við þessa mynd af þeirra
manni. Þeir segja það satt og rétt
að Guðjón sé mjög harður og dug-
andi kaupsýslumaður, en hann sé
engu að siður mikill samvinnumað-
ur, sem muni á forstjórastóli gagn-
ast samvinnuhreyfingunni mjög.
Auk þess sé hann frábær skipu-
leggjandi, sem sjáist hvað best af
þvf orði sem fer af honum í Banda-
ríkjunum á viðskiptasviðinu. Þar
fullyrði stórbísnessmenn í röðum
að Guðjón sé sá færasti f sinni
grein. Guðjón hafi fjórfaldað við-
skipti Iceland Seafood á þeim 10
árum sem hann hefur stýrt fyrir-
tækinu og aukið við höfuðstól
fyrirtækisins og enn sé fy rirtækið f
sókn.
Valsmenn segjast aftur horfa til
þess að fá mann eins og Val f for-
stjórastól, sem geti sameinað
rekstur og félagslegan þátt sam-
vinnuhreyfingarinnar. Hann hafi
sýnt og sannað, svo ekki verði um
villst að hann sé hæfur á báðum
þessum sviðum. Auk þess hafi Val-
ur stýrt kaupfélagi, KEA, sem í
raun spanni mjög marga rekstrar-
þætti Sambandsins, og það sé ekki
lítið dýrmætt, þegar horft sé til
reynslu.
Guðjónsmenn spyrja aftur
óbangnir með öllu: „Hvers vegna
hefur fjarað svona undan Sam-
bandinu f stjórnarformannstfð
Vals? Ef hann er sá félagslegi sam-
vinnuleiðtogi, sem Valsmenn vilja
meina að hann sé, ætti það ekki
einmitt að sýna sig f starfi sam-
vinnuhreyfingarinnar f dag?“
Báðir eru mennirnir svipaðir að
aldri, Guðjón er 49 ára gamall, en
Valur 50 ára. Þeir eru skólabræður
og þekkjast mætavel. Er þeim að
sögn ágætlega til kunningja, þó að
of djúpt f árinni væri tekið að segja
þá vini. Kunnugir segja þó að þeir
muni ugglaust geta starfað vel
saman, og eru hinir sömu þá að
hugsa um Guðjón sem forstjóra og
Val sem stjórnarformann Sam-
bandsins. Valur hefur sjálfur sagt
um Guðjón að hann sé afbragðs-
maður, heiðarlegur, duglegur og
einarður, sem eigi ekki nema allt
gott skilið bæði af Sambandinu og
samvinnuhreyfingunni f heild. Að
visu telja stuðningsmenn Vals að
Guðjón muni ekki sætta sig við að
Valur ráði jafnmiklu sem stjórn-
arformaður og hann gerir í dag, ef
Guðjón verður forstjóri. Segjast
þeir hafa nokkra vissu fyrir því að
Guðjón vilji ráða meiru en Erlend-
ur gerir í dag, og Guðjónsmenn
hafa í sjálfu sér ekki mótmælt þvf.
Valur vildi ekki
stólinn í upphafi
Það er ekki svo ýkja langt sfðan
að Valur sýndi forstjórastólnum
lftinn sem engan áhuga. Hann tók
sér ferð á hendur vestur til Banda-
ríkjanna snemma á sl. ári, þar sem
hann ræddi við Guðjón og greindi
honum frá þvf að Guðjón væri sá
maður sem hann vildi helst sjá sem
arftaka Erlendar.
Eftir að Valur gerði það, tóku
hans menn hinsvegar rækilega við
sér, og hófu markvissar fortölur,
sem allar miðuðu að þvf að gera
Val grein fyrir því að hann einn
gæti tekið við forstjórastólnum.
Fortölurnar gengu út á það að Val-
ur væri samvinnuímynd Sam-
bandsins, hann hefði sýnt það og
sannað með rekstri KEA að hann
væri fær um rekstur stórfyrirtæk-
is, þannig að það skilaði hagnaði.
Auk þess væri hann félagshyggju-
ímynd Sambandsins, sem ekki
mætti fórna á altari gróðahyggju
og viðskiptasjónarmiða. Þessar
fortölur eru enn i gangi, og þær
lffiegar.
í dag er talið að Valur muni ekki
sækjast eftir forstjórastólnum.
Hann hafi ákveðið að starfa áfram
um hrið sem stjórnarformaður
Sambandsins og mæla með þvi að
Guðjón B. ólafsson verði ráðinn
forstjóri Sambandsins. Það þýðir,
ef rétt er, að Valur hefur valið
„hina breiðu samstöðu” hver svo
sem ástæðan er fyrir þvf vali hans.
Hér skal enginn dómur lagður á
það hverjar ástæður Valur hafði
fyrir ákvörðun sinni, en hitt liggur
ljóst fyrir að Sambandið mun á
næstunni fá nýjan forstjóra. Eins
og málin standa þegar þetta er
skrifað, mánudaginn 13. maí, bend-
ir fiest til þess að sá maður verði
Guðjón B. ólafsson, sem menn
telja að muni hleypa nýjum krafti í
þetta geysilega stóra fyrirtæki.
Rétt er þó að árétta að heil vika er
þar til stjórnarfundurinn verður
haldinn, og ýmislegt gæti breyst á
þeim tfma, svo sem það að stjórnin
frestaði afgreiðslu málsins fram
yfir aðalfund Sambandsins sem
haldinn verður f júnf. Gerist það
hins vegar ekki, þá eiga þeir Guð-
jón og Valur eftir að starfa mjög
náið saman, en tfminn einn mun
leiða í ljós hvernig tekst til um það
samstarf.
Laugameskirkja:
Tónskóli
Þjóðkirkj-
unnar með
tónleika
í kvöld, 14. maí, fara fram 3. vor-
tónleikar Tónskóla Þjóðkirkjunn-
ar, orgeltónleikar í Laugarnes-
kirkju.
Flutt verða orgelverk eftir
Tunder, Buxtehude, Bach og
Mendelssohn þ.á m. „Faðir vor“
sónatan eftir Mendelssohn.
Flytjendur eru Gunnar Gunn-
arsson, Friðrik Stefánsson, Sig-
ríður Jónsdóttir og allir nem-
endur Harðar Áskelssonar
organista í Hallgrímskirkju.
Tónleikarnir hefjast klukkan
20.30.
Hafnarfjarðarkirkja:
Öldruð-
um boðið
til guðs-
þjónustu
Á FIMMTUDAGINN (uppstign-
ingardag) bjóða safnaðarstjórn og
sóknarprestur Hafnarfjarðar-
kirkju öldruðum í guðsþjónustu
klukkan 14.00.
Við athöfnina mun Guðmund-
ur Sigurðsson tenór syngja ein-
söng og einnig í kirkjukaffinu
sem verður á eftir í Fjarðarseli,
félagsheimilisálmu íþróttahúss-
ins við Strandgötu. Undirleikari
hans verður organisti kirkjunn-
ar, Helgi Bragason. Þá mun
Árni Grétar Finnsson forseti
bæjarstjórnar lesa frumsamin
ljóð.
Rúta verður til að flytja fólk
til og frá kirkju. Þeir sem óska
eftir slíkri þjónustu vinsamlega
hafi samband við Bjarna Linnet
varaformann sóknarnefndar eða
við sóknarprest.
(Úr fréttatilkynningu)
Leiðrétting
VEGNA fréttar frá aðalfundi
Sambands ísl. hitaveitna skal tek-
ið fram að hitaveitustjórinn á Ak-
ureyri og formaður sambandsins,
Wilhelm V. Steindórsson, er
raforkuverkfræðingur.