Morgunblaðið - 14.05.1985, Side 22
22
MORGUNBLAÐID, ÞRIÐJUDAGUR 14. MAl 1985
„Stórt skref sem Borgar-
spítalinn stígur með ráðn-
ingu sjúkrahúsprests“
— segir séra Ólafur Skúlason, dómprófastur
AUGLÝST hefur verið staða sjúkra-
húsprests við Borgarspítalann en í
14 ir hefur ekki verið starfandi
sjúkrahúsprestur i Reykjavík, enda
þótt gert sé ráð fyrir því embætti í
lögum.
Skriður komst á málið þegar að
tillaga séra ólafs Skúlasonar
vígslubiskups um ráðningu
sjúkrahúspresta var samþykkt á
Kirkjuþingi síðasta haust. Blm.
tók séra Olaf tali á dögunum og
innti hann fyrst eftir því í hverju
tillaga hans hafi verið fólgin.
„Samvæmt lögum er gert ráð
fyrir sjúkrahúspresti í Reykjavík
en árið 1971, er séra Magnús Guð-
mundsson lét af störfum, var fjár-
veitingin færð til fangaprests,*
sagði séra Ólafur. „í 14 ár hefur
verið talað um að ráða sjúkra-
húsprest á ný en ekkert verið gert
i málinu fyrr en síðasta haust.
í tillögu minni lagði ég til að i
stað þess að leita enn á ný ein-
göngu eftir fjárframlagi frá Al-
þingi væri rætt beint við stjórnir
sjúkrahúsanna um ráðningu
sjúkrahúsprests til hvers einstaks
spítala. Með samþykkt Kirkju-
þings var ákveðið að kirkjuráð og
samstarfsnefnd Reykjavíkurborg-
Borgarspftalinn
7-18 MA/ 1985
*
HAGKAUP
Skeifunni
DAG5KRÁ:
ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ
h7 15.00 [/ÖRUKYm/nOAR:
ís/ensH matvæ/i: 5í/darréttir
H5Þ: Fransmann Hartöfiur
MjóiHursamiag h5Þ: FiúsavíHur jógúrt
ViiHó: 5úpur
Kl 17.50 5MFMMT/A TF/Ði:
Ó/í priH
MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ
Ki 15.00 VÖRUK Yf/fl/MOAR:
OfíA: Murtusa/at, sí/d o.fi
5[/epparæHtin: 5úpa og sveppir
M5-brauðgerðin: Brauð og meistaraHöHur
Oóa: 5æ/gæti
Kl 16.00 5KEMMTÍA TBiÐi:
Magnús Þór
Kí 17.00: 5KEMMTIA TBiÐi:
F/ötuHynning: FiauHur fleiðar, Ómar Bagnarsson
og Björgvin Flalldórsson
Kl 17.50: 5KEMMT/A TBiÐi:
Kardimommubærinn
HAGKAUP GE/IGUR í LIÐ MEÐ Í5LEM5KUM IÐHAÐI
ar og prófastsdæmisins tækju
málið upp og könnuðu um fram-
gang þess. I samstarfsnefndinni
eiga sæti tveir borgarfulltrúar,
Ragnar Júlíusson og Sigurður E.
Guðmundsson, og tveir kosnir af
prófastsdæminu, séra Ólafur
Jónsson og Baldur Jónsson.
Páll Gíslason, formaður stjórn-
ar Borgarspítalans, og Jóhannes
Pálmason, framkvæmdastjóri
spítalans, komu á fund samstarfs-
nefndarinnar og tóku strax vel í
þetta mál. Kvað Páll það slíka
nauösyn að ekki mætti draga það
lengi að ganga frá ráðningu. Og nú
hefur heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytið heimilað að
sjúkrahúsprestur verði ráðinn við
Borgarspítalann frá og með 1. júli
nk., en til reynslu i eitt og hálft
ár“.
— Ertu ánægður með þessi
málalok?
„Já, það er ég svo sannarlega.
Þetta er stórt og merkilegt skref
sem Borgarspítalinn stígur með
þessu. Það hefur lengi verið Ijóst
að full þörf er fyrir þennan
starfsmann og það er ánægjuleg
þróun að starfsfólk spítalanna er
alltaf að sjá betur og betur nauð-
syn þess að hafa prest innan sinna
vébanda. Ég hef alltaf haft mínar
efasemdir um að ráða einn sjúkra-
húsprest, sem bæri ábyrgð á öllum
slíkum stofnunum hér i borginni
og vonandi fylgja fleiri spitalar
fordæmi Borgarspítalans. Erlend-
is þykir það alveg sjálfsagt að
prestur sé í starfsliði hvers spit-
ala, og þá fleiri en einn á hinum
stærri."
— Hafa þá engir prestar þjónað
á spítulum fram að þessu?
„Jú, vissulega. Allir prestar eru
reiðubúnir til að vitja sjúklinga
þegar þeir eru beðnir um það. Auk
þess hafa margir prestar sem
þjóna söfnuðum, þar sem eru
sjúkrahús eða aðrar slíkar stofn-
anir, messað reglulega og verið til
viðtals í það minnsta eina klukku-
stund á viku hverri til viðbótar
messunum. Þannig hafa sex prest-
ar skipt með sér þjónustunni við
Borgarspítalann og hinar ýmsu
stofnanir hans.
Ég vona þó að sú þjónusta falli
ekki niður með tilkomu sjúkra-
húsprests. Bæði er nauðsynlegt að
sjúkrahúsin séu í sambandi við
sóknarprestana og auk þess kemst
sjúkrahúspresturinn ekki einn yf-
ir alla þjónustuna þar sem hann
mun ganga til margra annarra
verka en þeirra, sem prestar hafa
sinnt fram að þessu."
— I hverju verður starf sjúkra-
húsprests þá aðallega fólgið?
„Hann mun fyrst og fremst ann-
ast sálgæslu sjúkra og aðstand-
enda þeirra. Þá mun hann jafn-
framt veita starfsfólki spftalanna
alhliða aðstoð. Starfið sem það
innir af hendi er gífurlega erfitt
og hefur það ekki síður þörf fyrir
skilning og reynslu prests en hinir
sjúku og aðstandendur þeirra."
— Hafa margir sótt um starf-
ið?
Síðast þegar ég vissi hafði að-
eins einn prestur sótt um. Rétt er
að taka fram að til þess er ætlast
að viðkomandi prestur hafi sér-
staklega kynnt sér starf súkra-
húspresta erlendis og hafi stað-
góða reynslu á því sviði," sagði
séra Ólaifur Skúlason, dómprófast-
ur.