Morgunblaðið - 14.05.1985, Qupperneq 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1985
Tuttugu þúsund
á klukkustund
— eftir Kristófer
Magnússon
Staða Bæjarútgerðar Hafnar-
fjarðar er nú þannig, að greiðslu-
þrot bæjarsjóðs blasir við, ef ekki
fást bráðlega framlög úr ríkis-
sjóði. Þetta er nákvæmlega sams
konar staða, er varð þess valdandi
að kratarnir hröktust frá völdum
upp úr 1960 og Sjálfstæðisflokkur-
inn tók forustu í bæjarstjórn
Hafnarfjarðar. Miðað við stöðuna
í dag geta svo kjósendur Sjálf-
stæðisflokksins velt fyrir sér,
hvaða erindi Sjálfstæðisflokkur-
inn á í meirihlutasamstarf í bæj-
arstjórn Hafnarfjarðar, þar sem
fylgt er fast eftir stefnu minni-
hlutans i veigamesta málaflokki
bæjarfélagsins, sem er hinn raun-
verulegi meirihluti, eins og nú er
komið málum.
Það hefur verið mín trú lengi,
að ef Sjálfstæðisflokkurinn hefði
neitað frá öndverðu að taka þátt í
meirihlutasamstarfi, með rekstur
BÚH yfir höfði sér, væri flokkur-
inn fyrir löngu kominn einn í
meirihlutaaðstöðu hér eins og í
flestum bæjarféiögum á höfuð-
borgarsvæðinu.
í nafni meirihlutaaðstöðu hefur
Sjálfstæðisflokkurinn látið bjóða
sér svo gott sem hvað sem er, og
tekið þátt í oft ótrúlegum skrípa-
leik. Þessu til áréttingar leyfi ég
mér að benda á, að í þau fáu skipti
sem flokkurinn hefur reynt að
vera stefnu sinni trúr, samanber
1982, hefur flokkurinn látið svín-
beygja sig, að mér virðist ein-
göngu til að halda ímyndaðri
meirihlutaaðstöðu sinni og titlum.
Ráðið hafa þeir ekki fengið í
veigamesta málefni bæjarins. T.d.
fékk Árni Gunnlaugsson, þá í
meirihlutasamstarfi við Sjálf-
stæðisflokkinn, samþykkta sér-
staka traustsyfirlýsingu á stjórn
BÚH þar sem lýst var yfir, að bæj-
arstjórnin væri mjög ánægð með
góða stöðu BÚH. En takið eftir, ég
endurtek, takið mjög vel eftir, og
kynnið ykkur málin sjálf ef þið
trúið mér ekki. Á sama fundi fékk
Árni Gunnlaugsson einnig sam-
þykkta tillögu sína um milljóna
framlag til BÚH, samkvæmt nú-
verandi verðlagi, vegna fyrirsjá-
anlegs greiðsluþrots Bæjarútgerð-
ar Hafnarfjarðar! Það hlýtur að
vera slæmt að missa slíkan af-
burðamann úr bæjarstjóm, og
hefðu fáir, nema Árni, haldið and-
litinu undir slíkum kringumstæð-
um, og um leið fengið aðra til að
dansa með i allri vitleysunni.
Ginkaframtakid og
SjálfstæÖisflokkurinn
Ef stefnir sem horfir, hverfa
allir skattpeningar bæjarbúa i
rekstur BÚH árið 1986. Það hlýtur
að verða gott kosningaár.
Er Sjálfstæðisflokkurinn búinn
að ganga svo frá einkaframtakinu
í landinu að fulltrúum flokksins
dettur ekki lengur í hug að ein-
staklingar gætu haft áhuga á að
kaupa eða reka BÚH. Hefur bæj-
arfulltrúum aldrei dottið i hug að
það sé ekkert skilyrði eða sjálf-
gert, að rekstur BÚH hætti, ef
bærinn hætti að skipta sér af
rekstrinum, samanber Lýsi og
mjöl. Hvað hafa núverandi eig-
endur Lýsis og mjöls farið fram á
háa styrki síðan þeir keyptu fyrir-
tækið og hvað voru fyrrverandi
stjórnendur búnir að fara fram á
háar upphæðir áður en fyrirtækið
var selt?
Ég man ekki að hafa heyrt að
rekin væri útgerð af opinberri
hálfu í Vestmannaeyjum, Grinda-
vík, ísafirði eða Bolungarvík og
allt gengur þetta án þess að seilst
sé i vasa bæjarbú?. Meira að segja
minnir mig a& það hefði veric
fyrir dug og hugrekki margra
ágætra einstaklinga sem fólks-
flótti var stöðvaður frá fsafirði,
eftir margra ára dauða hönd krat-
anna. Væri það ef til vill rann-
sóknarefni út af fyrir sig af hverju
útgerð er að leggjast niður í Hafn-
arfirði undir forsjá hins opinbera
og vernd Sjálfstæðisflokksins, á
sama tíma og einkaframtakið í út-
gerð hefur stuðlað að aukinni hag-
sæld í öllum ofangreindum byggð-
arlögum.
Tap Bæjarútgerðar-
innar í dag
Tap BÚH er nú á annan tug
milljóna á mánuði, og væri það í
sjálfu sér kraftaverk út af fyrir
sig ef bæjarsjóður slyppi við að
greiða á annað hundrað milljónir
úr bæjarkassanum, ef fyrirtækið
yrði selt í dag. Ég tala nú ekki um
ef flokkur verslunarfrelsisins léti
sér detta það í hug einhver næstu
árin að losa lítið eitt um hömlur á
innflutningi fiskiskipa og þar með
verða valdur að því að flestir tog-
arar landsmanna féllu i verði um
ca. 50%. Þetta eitt myndi þýða gíf-
urlega yfirtöku bæjarsjóðs á
veðskuldum BÚH. Hvernig verði á
mörgum úreltum togurum lands-
manna er haldið uppi af viðskipta-
hömlum, til þess að hægt sé að
veðsetja flotann langt yfir sann-
virði, væri eflaust efni í heilan
greinaflokk, en þetta atriði veldur
eflaust engum áhyggjum hjá út-
vegsmönnum, ríkisstjórn eða al-
menningi í dag. Það hefur ekki
einkennt fslendinga, eða ríkis-
stjórnir á íslandi, þegar það þarf
að redda málunum fyrir horn, að
hafa áhyggjur af afborgunum og
skuldum sem ekki eru fallnar í
gjalddaga.
HvaÖ er aðhafst í bæj-
arstjórn Hafnarfjarðar?
Ekki veit ég hvað lengi Árni
Grétar Finnsson og Einar Mathie-
sen sem lengst hafa staðið í bar-
áttunni endast lengi að láta óháða
og kratana draga sig út í skulda-
fenið. Það getur varla verið eftir-
sóknarverð staða fyrir Árna Grét-
ar og Einar og um leið Sjálfstæð-
isflokkinn, að þegar minnst verður
á afskipti þeirra og flokksins af
málefnum BÚH er nóg að benda á
Sögu Hafnarfjarðar 1. bindi neðst
á bls. 338 og bls. 339, þar sem tí-
undaður var rekstur kratanna á
BÚH, en þar segir t.d.: „Mikill
halli varð á rekstri fyrirtækisins
1960 og nam hann jafnhárri upp-
hæð og öll útsvör bæjarbúa." Seg-
ið svo að sagan endurtaki sig ekki.
Hafnarfjarðarbær er nú eitt
skuldugasta bæjarfélag landsins,
og er nú svo komið að ef ekkert
verður að gert, hefur bæjarfélagið
enga möguleika að rísa undir
skuldum. Því miður hefur þetta
gerst undir forustu Sjálfstæðis-
flokksins, og það sem mér finnst
raunverulega verst við þetta allt
er að það lítur út fyrir að það taki
marga mánuði ennþá fyrir bæj-
arfulltrúa að átta sig á staðreynd-
um, staðreyndum sem svo auð-
veldlega er hægt að lesa um i Sögu
Hafnarfjarðar. Eina ráðið til að
losa bæjarsjóð úr rekstri BÚH er
að selja fyrirtækið. Allar aðrar
lausnir eru gervilausnir. Ef ekki er
meirihluti í bæjarstjórninni til að
selja BÚH á að láta þá flokka, sem
vilja reka útgerðina út á bæjarkass-
ann, bera ábyrgð þar á. Það yrði
varla löng barátta, svo vonlaust er
dæmið.
Stofnun Útgerðarfélags
Hafnarfjaröar
Ein8 og ég spáði, stendur þaö
eitthvaö í bæjarstjórninni aö
stofna hlutafélag um rekstuc
Kristófer Magnússon
„Þessum rekstri hafa
borgararnir hvaö best
kynnst í mynd bæjarút-
gerðar. Hann hefur eig-
ið óafmáanlegt vöru-
merki: tapreksturinn,
skattpeningana, sí-
rennslið úr bæjarsjóði,
óháð öllum hagsveifl-
um. Þarna hefir allt
reynst óstöðvandi, nema
helst ræöuhöld forstjór-
anna: „Já, en á næsta
ári ... “
Dr. Benjamín Eiríksson
í bók sinni „Ég er“ bls.
96.
BÚH, enda breytir það raunveru-
lega engu í stöðunni, þar sem
haldbærar forsendur lágu aldrei
fyrir, fyrir utan að bærinn ætlaði
sér ennþá að eiga meirihluta, er
þýðir að bæjarsjóður ætti erfitt
með eða gæti alls ekki, sóma sins
vegna, hlaupið frá fjárhagslegum
skuldbindingum hlutafélags sem
það ætti meirihluta i, eins og
dæmin sýna með rekstur Júni, Stá
og jafnvel Lýsi og mjöl á sínum
tíma.
Stofnun hlutafélags um rekstur
BÚH var hálmstrá, er flestir bæj-
arfulltrúar gripu í, til að reyna að
fela hlutdeild sfna í tapi BÚH, og
um leið aö forðast að raunveruleg
staða BÚH kæmi upp á yfirborðið
og yrði lýðum ljós. Eins og ég hef
sagt áður get ég varla ímyndað
mér að Vilhjálmur Skúlason og
Hörður Zophaniasson eigi þá
töfrauppskrift eða búi yfir ein-
hverri þeirri snilligáfu að þeir geti
breytt hundruð milljóna króna
tapi í hagnað. Mikið hlýtur Har-
aldur Sigurðsson aö hafa veriö í
vondum og skilningslausum fé-
lagsskaj, í útgerðarráði, ef hann
býr nú yfir tillögum til að koma
rekstri BÚH á réttan kjöl.
Hvar á að
afla peninganna?
Samkvæmt þeim upplýsingum
er komu fram á síðasta bæjar-
stjórnarfundi er nú verið að leita
eftir frekari skuldbreytingum hjá
Seðlabankanum, fram yfir þær ca.
100 milljónir sem þegar er búið að
fá afgreitt. Mér kæmi ekki á óvart
að farið verði fram á aðrar 100
milljónir og að þingmaðurinn okk-
ar og núverandi bankamálaráð-
herra, Matthías Á. Mathiesen, að-
stoðaði ráðamenn bæjarfélagsins
til að ná fram slíkum skuldbreyt-
ingum, enda blasir ekki annað við
en greiðsluþrot bæjarfélagsins,
sem Sjálfstæðisflokkurinn veitir
forustu að nafninu til. Eftir skuld-
breytinguna, ef til kæmi, yrði
hlutur BÚH um 200 milljónir af
því ráðstöfunarfé sem ríkisstjórn-
in ætlar, til að bjarga útvegnum.
Svona til skýringar fyrir lesendur,
eru skuldbreytingar ekkert annað
en lán sem verður að borga og
setja veð fyrir, þó í mörgum til-
fellum þau séu vafasöm eru þau
það ekki hjá BÚH þar sem bærinn
stendur ábyrgur. Þá væri hér að
mati ráðamanna verið að leggja
að jöfnu gjaldþrot þúsunda heim-
ila vegna skulda einstaklinga á
íbúðarhúsnæði og framlag ríkis-
valdsins í botnlausa óráðsiu í von-
laust fyrirtæki eins bæjarfélags.
Sannast það hér eins og oft áður,
að heill hins pólitíska samtrygg-
ingarkerfis er ofar hagsmunum
fólksins, sem er ein höfuðástæða
fyrir að ekki er hægt að borga
hærri laun í þjóðfélaginu, eða
hvaðan halda pólitíkusarnir og al-
menningur að peningarnir komi,
sem notaðir eru í taprekstur BÚH.
Framlag ríkisins til að bjarga
fólki frá gjaldþroti vegna íbúðar-
kaupa er einmitt um 200 milljónir,
en um þá upphæð hefur verið var-
ið ómældum tima til skoðana-
skipta í fréttum útvarps, sjó-
nvarps og í blöðum að ég tali nú
ekki um alþingi.
Matthías, Sjálfstæöis-
flokkurinn og einka-
framtakiö
Ég efast um að það verði einfalt
fyrir Matthías og aðra þingmenn
Sjálfstæðisflokksins að þurfa að
skýra út fyrir rótgrónum alvöru
útgerðarmönnum á Suðurnesjum,
sem nú er verið að knésetja, þörf-
ina fyrir að úthlutað sé til Bæjar-
útgerðarinnar um 200 milljónum.
Á Suðurnesjum hafa verið dygg-
ustu stuðningsmenn einkafram-
taksins í landinu og fjölmennasti
kjósendahópur Sjálfstæðisflokks-
ins utan Reykjavíkur. Þetta fólk
vill eflaust fá að vita og skýringar
þar á, af hverju er verið að hætta
rekstri útgerðar á Suðurnesjum, á
sama tima og þeir eru skattlagðir
til að halda uppi opinberum
rekstri í útgerð í Hafnarfirði, er
kostar þjóðfélagið hundruð millj-
óna.
Yfirveösetningin
Undirmaður Útvegsbanka ís-
lands varð fyrir þeirri óheppni að
kalla yfirveðsetninguna hjá Bæj-
arútgerð Hafnarfjarðar réttu
nafni á kvittun frá bankanum og
samkvæmt þeirri íslensku hefð að
öll mistök í opinberum rekstri sé
sendisveininum að kenna verður
hann eflaust látinn bera sína
ábyrgð.
Auðvitað áttu veðsvik sér stað
hjá BÚH. Hvaða ástæðu höfðu
stjórnendur BÚH að vísa endur-
skoðanda bæjarins frá, er hann
kom til að telja vörubirgðirnar,
samkvæmt skipun bæjarstjórnar,
aðra en þá, að eitthvað var að fela.
Að ætlast til að orðið birgðarýrn-
un sé notað af starfsmanni um tug
milljóna króna umframveðsetn-
ingu birgða (veðsvik) finnst mér
með ólíkindum og lítt samboðið
virðulegri bankastofnun sem fólk
á að bera fullt traust til. Mér hef-
ur t.d. veriö sagt að sá fiskur, sem
væri uppgefinn í skýrslum sem
eign í geymslunr, BÚH, komist
ekki fyrir í geymslum fyrirtækis-
ins. Stjórn Útvegsbankans er hér
að mínu viti að reyna að hylma
yfir mistök, og um leið að reyna að
verja aðhalds- og eftirlitsleysi
sitt, er hafa orðiö þess valdandi að
Útvegsbankinn hefur, eflaust
ómeðvitað í upphafi, útvegað BÚH
ólöglega rekstrarfé gegnum af-
urðalánakerfi Seðlabankans, sem
hefur nú þegar kostað bæjarfélag-
ið tug eða jafnvel hundruð millj-
óna.
Einnig væri fróðlegt fyrir bæj-
arstjórnina að fá upplýst af Seðla-
bankanum i hvað peningar þeir,
sem Seðlabankinn móttók sam-
kvæmt meðfylgjandi kvittun upp
á 8,2 milljónir, hafa verið notaðir.
Það skyldu þó ekki fleiri samsvar-
andi kvittanir finnast i vörslu
BÚH og bankanna?
Þrátt fyrir að mér hafi ítrekað
verið neitað um upplýsingar hjá
Útvegsbankanum og borið við
bankaleynd, og Útvegsbankinn
svarað fyrirspurn bæjarstjórnar-
innar, sem er æðsta stjórn BÚH,
með útúrsnúningi, er spurt var um
viðskipti bankans við BÚH, stóð
ekki á bankastjórum Útvegsbank-
ans þann 21. mars sl. að gefa
fyrrverandi útgerðarráðsmönnum
BÚH upplýsingar um ákveðinn
þátt viðskipta Útvegsbankans og
BÚH. Ég spyr, hvaða rétt hafa
fyrrverandi útgerðarráðsmenn,
sem leystir höfðu verið frá störf-
um fyrir mörgum vikum, á að fá
að vita afurðalánastöðu Útvegs-
bankans við BÚH 21. mars sl. og
gera hana opinbera án alls sam-
ráðs við stjórn BÚH? Hér eru all-
ar reglur um bankaleynd þver-
brotnar sem hlýtur að vekja at-
hygli bankamálaráðherrans. Hér
er verið að gera fyrrverandi
starfsmönnum BÚH hærra undir
höfði en sjálfum alþingismönnum
landsins, eða var ekki alþingis-
mönnum í vetur neitað um
ákveðnar upplýsingar I nafni
bankaleyndar, sem síðan ráðherr-
ann hafði ekkert við að athuga. Ég
get ekki séð hvernig bæjarstjórnin
kemst hjá að krefjast skýringa af
hendi bankaráðs Útvegsbankans,
ef bankaleynd er einhvers virði og
jafn mikilvæg og bankastjórar Út-
vegsbankans hafa verið að skýra
út fyrir mér að undanförnu. Er
önnur afsökun á röngu orðavali á
leiðinni frá bankanum?
Til að losa sig frá frekari óþæg-
indum væri bankaráði Útvegs-
bankans í lófa lagið að verða að
ósk bæjarstjórnar Hafnarfjarðar
og senda henni t.d. skýrslu og
álitsgerð þess manns sem bankinn
sendi til að annast birgöatalningu
hjá BÚH. Ekki mundi saka að álit
Seðlabankans um niðurstöður
skýrslunnar fylgdi með og jafnvel
skýrslur frá Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna til samanburðar á
uppgefinni afurðaeign BÚH til SH
annars vegar og bankans hins veg-
ar.
Endurskoðendur Bæjar-
útgerðar Hafnarfjarðar
Svo að síðustu, til að fullnægja
hinni pólitísku samtryggingu
flokkanna og bankanna, gæti bæj-
arstjórn Hafnarfjarðar fengið
fjórða endurskoðandann til að
fara yfir rekstur BÚH og komast
að enn einni niðurstöðunni varð-
andi hinn fáránlega rekstur. Það
gæfi flokkunum tækifæri til að
rífast um niðurstöðurnar framyfir
næstu kosningar, sem mundi
kosta bæjarfélagið hundruð millj-
óna. En hvaða pólitíkus varðar um
svoleiðis smámuni. Er ekki sagt að
það komi tfmar og komi ráð?
Að sjálfsögðu kemst bæjar-
stjórnin ekki hjá, undir slíkum
kringumstæðum, að losa sig við
eða taka „til greina" afsögn endur-
skoðandans hjá bænum, sem hefur
verið svo ósvífinn, in alls pólitísks
samráðs, að leyfa sér að benda á
hundruð milljóna kr. tap, misferli,
meint veðsvik og sukk í rekstri
BÚH. Slíkur maður þjónar varla
hagsmunum fólksins og bæjar-
stjórnar, og getur varla verið
„traustsins" verður, sem kemur
eflaust best fram í að meirihluti
bæjarstjórnar hefur tvisvar séð
ástæðu til að leita til endurskoð-
enda fró höfuðborginni, til aö
reyna í\ sannleiksgildi bæjarend-'
urskoðandans. Ab sjálfsögðu vai*