Morgunblaðið - 14.05.1985, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 14.05.1985, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1985 55 Stefánsson á Jukku frá Meðalfelli, þá Eysteinn Steingrímsson á Lithi-Flugu frá Sauðárkróki, Jón M. Jónsson á Stefni frá Reykjum og lengst til vinstri er Elín Sigurjónsdóttir á Stjörnu frá Laufhóli. Skeifudagar bændaskólanna: Vel hirt og tamin hross Morgunbladid/Valdimar Sigurður Sigmundsson afhendir hér Benedikt Benediktssyni frá Stóra-Vatnsskarði Eiðfaxabikarinn fyrir bestu hirðinguna. _________Hestar_____________ Valdimar Kristinsson Síðasta vetrardag og sumardag- inn fyrsta fóru fram á bændaskól- unum Skeifukeppnin sem segja má að sé hápunktur á hesta- mennsku bændskælingja. Það voru Hólasveinar og stúlkur sem héldu keppnina fyrri daginn og var veður hið besta þvert ofan í spár veðurfræðinga sem höfðu spáð þriggja daga éljagangi. Alls voru þátttakendur fimmtán í skeifukeppninni á Hólum og voru þrír þeirra með hesta frá Kynbótabúi staðarins. Er keppni þessi einnig hluti af prófi í hesta- mennsku og hrossarækt sem er valgrein í búfræðináminu á Hól- um. Sigurvegari I keppninni um Morgunblaðsskeifuna að þessu sinni varð Guðjón Sigurgeirsson frá Heydalsá í Strandasýslu en auk þess hlaut hann viðurkenn- ingu Félags tamningamanna fyrir góða ásetu. Guðjón keppti á fjög- urra vetra fola heiman frá sér og heitir sá Reykur og mun vera und- an ófeigi 818 frá Hvannevri og Tátu 4937 frá Heydalsá. I öðru sæti varð Benedikt Benediktsson sem keppti á Alheimsþrá frá Syðra-Sköðugili og í þriðja sæti var Anna Dóra Markúsdóttir sem keppti á Skuggabaldri frá Vestur- holti. Tímaritið Eiðfaxi veitir verðlaun fyrir bestu hirðingu á tamningatrippunum og er sigur- vegarinn í þeirri keppni kosinn í leynilegri kosningu þeirra sem hestamennsku stunda auk starfs- manna hesthússins. Hlut- skarpastur nú varð áðurnefndur Benedikt Benediktsson. Ekki var annað að sjá en hirðing trippanna væri almennt til fyrirmyndar bæði hvað varðar umhirðu og fóðrun. Virðist sem vel gefist að fóðra hross á votheyi eins og þarna er gert. Auk skeifukeppninnar var haldin gæðingakeppni með þátttöku starfsfólks og með nokkuð frjáls- legu sniði, var ekki ósvipað form á keppninni og tíðkast með firma- keppnir hestamannafélaganna. Sigurvegari varð Glæta frá Stóra-Hofi sem Benedikt Bene- diktsson sat og í öðru sæti varð Gusa frá Keldulandi en hana sat Ingimar Ingimarsson tamninga- maður Hólabúsins. Síðast á dagskránni var svo boö- sund tveggja liða sem fram fór í tjörn sem eitthvað tengist fiskeld- isstöðinni sem þarna er rekin. Var þar mikill buslugangur og læti og skiptust liðin á um aö hafa foryst- una og var síðasti sundspretturinn æsispennandi. Þegar hér var kom- ið hafði kólnað verulega og vatnið ískalt svo það voru blánefjaðar, hríðskjálfandi mannverur sem skriðu upp úr pollinum í lokin. Að síðustu voru verðlaun afhent framan við kirkjuna sem segja má að sé andlit Hólastaðar. Skeifukeppnin nú var gott dæmi um fjölgun stúlkna á bændaskól- unum því af þeim fimmtán kepp- endum voru átta stúlkur og árang- ur þeirra með miklum ágætum. Ekki voru Hvanneyringar eins heppnir með veðrið á sínum skeifudegi þó ekki væri beint hægt að kvarta undan slæmu veðri, smá skúraleiðingar en frekar lygnt. Sá einstæði viðburður átti sér nú stað að öll verðlaun Skeifu- keppninnar á Hvanneyri féllu í skaut einum og sama keppandan- um Þór Guðnasyni frá Selfossi. Sigur hans í skeifukeppninni kom nokkuð á óvart hjá þeim sem fylgst höfðu með tamningu tripp- anna í vetur, því hryssa sú sem hann keppti á, Snælda frá Sel- fossi, sprakk út eins og rós á sumardegi síðustu dagana fyrir keppnina og kom hún sérlega vel fyrir á skeifudeginum. Þór fékk einnig viðurkenningu Félags tamningamanna fyrir góða ásetu og Eiðfaxa bikarinn fyrir bestu hirðingu á hrossi sínu yfir vetur- inn. Er þetta í fyrsta skipti síðan farið var að veita þessi þrenn verðlaun að sami maðurinn hirði þau öll. Er þetta óneitanlega góð- ur árangur hjá Þór og gott vega- nesti hyggist hann stunda tamn- ingar að loknu búfræðinámi sem hann væntanlega lýkur í maí nk. í þessu sambandi má geta þess að yfirleitt vekja úrslit í skeifu- keppninni mikla athygli meðal hestamanna víða um land og gott gengi manna í þessari keppni hjálpar til í vinnuleit þegar róið er á þessi mið. Þess er og að geta að margir af bestu hestamönnum landsins eru skeifuhafar frá öðr- um hvorum bændaskólanum. { öðru sæti í skeifukeppninni urðu jafnir þeir Ómar Stefánsson sem keppti á Jukku frá Meðalfelli og Eysteinn Steingrímsson sem keppti á Litlu-Flugu frá Sauðár- króki. Úrslit í gæðingakeppni sem haldin var á Skeifudaginn urðu þau að í A-flokki sigraði Skrúður frá Mið-Fossum, eigandi og knapi Jón Gíslason, önnur varð Gerpla frá Báreksstöðum eigandi Guð- mundur Ólafsson en knapi Sigurð- ur Haukur Jónsson og í þriðja til fjórða sæti urðu Jörð frá Reykj- um, eigandi Jón Guðmundsson en knapi Jón Magnús Jónsson og Vending frá Báreksstöðum, eig- andi Sigurborg Jónsdóttir, knapi Sigurður Haukur Jónsson. í B-flokki sigraði Blakkur frá Jaðri, eigandi Ásmundur Þórisson, knapi Jón Finnur Hansson, í öðru sæti Nasi frá Hofsstöðum eigandi Jón Sigurðsson, knapi Stefán G. Ár- mannsson og í þriðja sæti Fótur frá Innri-Skeljabrekku. Einnig var keppt í gæðingaskeiði og sigr- aði þar Gróa Jóhannesdóttir á Loga frá Höfn, annar varð Sigurð- ur Haukur Jónsson á Gerplu frá Báreksstöðum og í þriðja sæti Jón Finnur Hansson á Blakk frá Jaðri. Hér er allt eins og það á að vera, áaeta og taumhald, góður höfuð- og taglburður, reiðtygi og hestur vel hirt, klæðnaður knapans, Jóhönnu F. Kristjánsdóttur, til fvrirmyndar og hesturinn er Losti frá Dalsmynni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.