Morgunblaðið - 14.05.1985, Síða 62
t
62
MORGUNBLADID, ÞRIDJUDAGUR 14. MAÍ1985
TELEXFOR THE FUTLJRE
Tölvutelex
tengir einkatölvur viö telextæki hvar sem er í
heiminum. Ekki þarf aö hafa eigið telexnúmer hjá
Pósti og síma.
Sendihraöi 18 sinnum meiri en meö telex (1200
Baud). Kostnaöur ótrúlega lítill. Stofngjald: GBP
30,-. Ársfjóröungsgjald GBP 36,-.
Símtækni sf.
Ármúla 5,108 Reykjavík. Tel.
686077.
Easylink (UK): 19005265.
Telex: 946240 Cweasy G.
Quoting 19005265.
Heildsölubirgöir
Agnar Ludvigsson hf.
Nýlendugötu 21,
sími 12134.
MÖTUNEYTI - SÖLUSKÁLAR
VEITINGASTAÐIR!
Ódýrar servíettur í boxin
Sláið á þráðinn!
— Við sendum servíetturnar um hæl.
Box og servíettur - alltaf til á lager.
Ath! Tvær stæröir af boxum
- sama stærð af servíettum!
STANDBERG HF.
Sogavegi 108
símar 35240 og 35242
MATSEÐILL
//,/ .
/////,
'*///
///// y
///
Tryggvagötu 22, sími 11556
Löggur
og bófar
jr e e X
i ooru
ljósi
Myndbönd
Árni Þórarinsson
í öllum þeim aragrúa af form-
úlumyndum, þrillerum, vestrum
karatemyndum, hrollvekjum og
svo framvegis, sem völ er á hér á
myndbandamarkaðnum er alltaf
gleðilegt þegar slíkar spólur
koma á óvart, — þegar formúlu-
mynd snýr sig út úr formúlunni
með einhverjum hætti. Lög-
regluþrillerar eru oft býsna
skemmtileg bíómyndahefð en
æði margir eru samt byggðir lið
fyrir lið eftir ákveðinni forskrift.
Svo eru aðrir sem koma með
krók á móti bragði; þeir veita
innsýn í líf og störf lögreglu-
mannanna og glæpamannanna,
breyta kannski formerkjum og
stýra samúð og andúð í óvænta
átt, jafnframt því sem þeir
standa við skuldbindingar sínar
gagnvart hefðinni, hvað varðar
spennu og hasar. Ég ætla að
nefna tvo slíka lögregluþrillera
að þessu sinni.
Sá eldri heitir Deadly Hero,
gerður 1976 af Ivan Nagy sem
gert hefur nokkrar óvenju frísk-
legar B-myndir, bæði fyrir bíó
og sjónvarp í Bandaríkjunum.
Þessi mynd segir frá lögreglu-
þjóni (Don Murray) sem telur
sig vera réttvísina holdi klædda
en reynist öllu flóknari og svart-
ari manngerð. Hann bjargar lífi
konu nokkurrar (Diahn Willi-
ams) með því að drepa all sér-
kennilegan árásarmann (James
Earl Jones). Atburðarásin sem
fylgir í kjölfarið þegar konan
lætur ekki sannfærast um rétt-
læti verknaðarins skilar skolli
óvenjulegum þriller með úrvals
leik, litríku stórborgarbaksviði
og þéttingsföstu leikstjórnar-
handbragði.
Yngri þrillerinn er Eddie Mac-
on’s Run, gerður 1983 af efni-
legum leikstjóra og handritshöf-
undi, Jeff Kanew, sem reyndar
klippir myndina líka. Eddie
Macon er ungur fjölskyldufaðir
sem fyrir engar sakir er dæmdur
í steininn. Flótta hans úr fang-
elsinu til fundar við eiginkonu
og barn suður til Mexíkó lýsir
svo myndin, en á hælum hans er
sérstæður og heiftúðugur lög-
regluforingi, leikinn með bravör
af gömlu kempunni Kirk Dougl-
as. Þetta er viðburðaríkur og
geðugur þriller með fjölskrúðug-
um hópi aukapersóna sem verða
á vegi Macons á flóttanum, ann-
að hvort honum til hjálpar eða
trafala. Það er yfir þessari mynd
einhver sjarmerandi einfaldleiki
sem reyndar verður stundum að
klárri einfeldni í persónusköpun.
En hún er til marks um ákveðna
viðleitni til að nýta formúlu
frekar en nota hana eins og
páfagaukur þylur utanaðbókar-
lærdóminn.
Deadly Hero og Eddie Macon’s
Run — dæmi um ódýra fram-
leiðslu sem snýr vörn í sókn.
Stjörnugjöf: Deadly Hero -trtr
Eddie Macon’s Run irtr