Morgunblaðið - 14.05.1985, Page 71

Morgunblaðið - 14.05.1985, Page 71
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1985 71 Málaferli vegna gallaðs einingahúss: Krefst 2,6 milljóna króna í skaðabætur NÝLEGA var þingfest í Hafnarfírði skaðabótamál, sem hús- eigandi í Mosfellssveit hefur höfðað gegn umboðsfyrirtæki danskra einingahúsa, vegna meintra stórfelldra galla í hús- inu, sem keypt var og sett upp sumarið 1982. Gerir húseigand- inn, Sigurður Gíslason ökukennari, kröfu um að eigendur og umboðsmenn Hosbyhúsa, Pálsson sf. á Akureyri, greiði sér tæplega 2,6 milljónir króna í skaðabætur vegna galla og afleidds tjóns auk hæstu vaxta eins og þeir hafa verið á hverjum tíma síðan í ágúst 1982. Pálsson sf. hefur krafíst nauöungaruppboðs á húsinu. Af hálfu fyrirtækisins hefur verið viðurkennt, að húsið sé gall- að og að ekki sé rétt frá því geng- ið. Samningar milli aðila hafa ekki tekist, að því er fram kemur í málsskjölum, og telur Sigurður sig því eiga nauðugan einn kost að höfða málið. f stefnunni kemur m.a. fram, að húsið var sett upp af starfs- mönnum Pálsson sf. og starfs- manni Hosbyhuse A/S. í Dan- mörku. Fljótlega hafi komið í ljós gallar á húsinu, „sem aðallega hafi lýst sé í því að húsið var óþétt og auk þess sem hreyfing virtist vera á því“, eins og segir orðrétt. Gall- amir fóru svo vaxandi í takt við versnandi haust- og vetrarveður. Athuganir sérfræðinga Rann- sóknastofnunar byggingariðn- aðarins leiddu í ljós að húsið var óþétt og þakið á hreyfingu og at- hugun fulltrúa framleiðanda og umboðsmanna hússins leiddu hið sama í ljós. Segir í stefnunni að fyrirtækið hafi sagt gallana vera „vegna ófyrirsjánlegra orsaka eða ófullnægjandi vinnubragða við uppsetningu hússins“. Tilboði um lagfæringar hafnaði Sigurður Gíslason hinsvegar, taldi því veru- lega ábótavant og tillögurnar óraunhæfar. Haustið 1983 fékk Sigurður svo dómkvadda matsmenn til að gera úttekt á húsinu. Samkvæmt henni voru gallar á húsinu jafnvel enn fleiri en áður var talið. Segir þar m.a. að verulega skorti á að upp- setning og frágangur hússins hafi verið með fullnægjandi hætti: stíf- leika hússins sé verulega ábóta- vant, gluggar óþéttir, hurðir skakkar og óþéttar og fleira. Matsmennirnir töldu í febrúar 1984 að viðgerðarkostnaður væri um 700 þúsund krónur. Pálsson sf. hefur boðist til að kaupa húsið til baka fyrir liðlega 3,5 milljónir en Sigurður hafði áð- ur boðið fyrirtækinu að leysa til sín húsið fyrir 4,2 milljónir. Samningar þar um hafa ekki tek- ist, eins og fyrr segir. Kostnaður af málarekstrinum, athugunum og vinnutapi Sigurðar vegna þessa er orðinn mikill, skv. því sem fram kemur í skjölum málsins, og hefur hann því lent í verulegum vanskilum með eftir- stöðvar af kaupverði hússins. Af hálfu Pálsson sf. hafa eftirstöðv- arnar verið gjaldfelldar og krafist nauðungaruppboðs á húsinu. Upp- boð fór fram í nóvember sl. en því var áfrýjað til Hæstaréttar. ALLT TIL MÚRFESTINGA B.B. BYGGINGAVÖRUR HF Nethyl 2, Ártúnsholti, Sími 687447 og Suðurleindsbraut 4, Sími 33331 KSSKU SUMARHUSIN Oberallgau býður upp á matsölu- $tað, bar, ölstofu, spilastofur (keilu- spil), saunabað, sólbaðslampa, heilsunudd tvisvar í viku, tennisvöll, innisundlaug, barnaleikvöll, reið- hjólaleigu, hljómleika, grillveislur, skoðunarferðir, kvikmyndasýningar, barnagæslu, dans og margt fleira. Á svæðinu er verslun, sem selur allar nauðsynjar. Mjólk, rúnnstykki og morgunblöðin fær maður á dyra- pallinum alla morgna. örstutt er í smáborgina Missen-Wilhams, en þar er banki, fjölbreyttar verslanir, pósthús, hestaleiga og margt fleira. Kynnist Oberallgau og Suöur- Þýskalandi. Njótið þess að „rúnta“ um sveitirnar eða yfir til Sviss, Liech- tenstein og Austurríkis. Flug, bílaleigubíll og gisting fyrir fjóra i íbúð: Verð í viku kr. 16.636 pr. mann í tvær vikur kr. 20.310 pr. mann Hringið í síma 28133 og fáið enn nánari upplýsingar. Herzlich willkommen in Bayern! - segja Gerlinde og Horzt Roth, þýsku hjónin í sumarhúsunum í Oberall- gau. Einstök gestrisni og hlýtt viðmót þýsku gestgjafanna skapar heimilis- legt andrúmsloft á þessum frábæra orlofsstað, og þeim til aðstoðar í sumar verður íslensk stúlka, Rut Gylfadóttir. Oberallgau er í bæjersku sveit- inni með skógi vöxnum hlíðum, gam- aldags þorpi, værðarlegum kúm á beit og sumarblíðu. í boði eru 131 íbúð, eins til fjögurra herbergja, þ.e.a.s. 2-6 manns í íbúð. í þeim eru öll heimilisþægindi fyrir kröfu- harðasta fólk, eldhús með eldavél, ísskáp og borðbúnaði, baðherbergi eða sturtubaði, rúmfatnaður og sími. Einnig er hægt að fá hálft eða heilt fæði og fullkomna hótelþjónustu. 1FERÐAMIDSTÖDIN S?8 I l

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.