Morgunblaðið - 24.05.1985, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 24.05.1985, Qupperneq 2
2 MORGUNBLADIÐ, PÖSTUDAOUR 24. MAÍ 1985 Hagkaup selji bækur á sama verði og aðrir Hæstiréttur dæmdi, að undanþága samkeppnis- nefndar um lágmarksverð á bókum sé lögmæt HÆSTIRÉTTUR hefur demt, að samkeppnisnefnd hafi farið að lögum þegar hún þann 11. nóvember 1981 veitti Félagi íslenzkra bókaútgefenda undanþágu til að ákveða fast útsöluverð á bókum. f Hagkaup voru bækur seldar á lægra verði en hjá handhöfum bóksöluleyfis. Forráðamenn Hag- kaups töldu undanþáguna lögleysu og höfðuðu mál til þess að fá henni hnekkt. Með dómi þessum verður Hagkaup að selja bækur á sama verði og bóksalar. Lögin, sem samkeppnisnefnd veitti undanþágu frá, eru um verð- lag, samkeppnishömlur og órétt- mæta viðskiptahætti. Undanþág- an var veitt frá 21. og 23. grein laganna, sem banna að sammælst sé um ófrávíkjanlegt lágmarks- verð. í 24. grein laganna eru ákvæði um heimild til að veita undanþágur. Þar segir meðal ann- ars: „Undanþágur má veita, ef samningar, samþykktir eða ákvarðanir, sem um ræðir i 21.—23. gr. eru talin nauðsynleg: ... c. vegna sérstakra ástæðna, er samræmast þjóðarhagsmunum." Á grundvelli ákvæða um „þjóðar- hagsmuni“ var undanþágan veitt. A sínum tíma sótti Hagkaup ítrekað um bóksöluleyfi til Félags íslenzkra bókaútgefenda, en var jafnan synjað. Hagkaup hóf bók- sölu án leyfis og spruttu upp harð- vítugar deilur, sem fyrst og fremst áttu rætur að rekja til þess að bækur voru ódýrari í Hagkaup en í bókaverzlunum, sem seldu bækur í samræmi við samkomulag bóka- útgefenda og eigenda bókaversl- ana. Verðlagsstofnun hóf afskipti af málinu og i desember 1980 var gert bráðabirgðasamkomulag milli Hagkaups og bókaútgefenda um bóksölu. í nóvember 1981 fengu bókaútgefendur svo undan- þáguna um lágmarksverð. Þar með var Hagkaup skylt að selja bækur á sama verði og aðrir og hóf málssókn. Með dómi sínum staðfesti Hæstiréttur dóm undirréttar. Magnús Þ. Torfason, Guðmundur Jónsson, Halldór Þorbjörnsson, Sigurgeir Jónsson og Þór Vil- hjálmsson kváðu upp dóminn. Hagkaup er gert að greiða Verð- lagsráði og Félagi islenzkra bóka- útgefenda 25 þúsund krónur i málsvarnarlaun. Sigurgeir og Þór skiluðu sératkvæði og töldu, aö samkeppnisnefnd hefði vanrækt að leita eftir sjónarmiðum for- ráðamanna Hagkaups þegar und- anþágan var veitt og þannig brotið gegn almennri andmælareglu stjórnarfarsréttar. . Lögmaður Hagkaups var Helgi V. Jónsson, hrl., lögmaður Verð- lagsráðs Gísli Isleifsson, hrl., og Guðmundur Ingvi Sigurðsson, hrl., var lögmaður bókaútgefenda. MorKunblaöið/Ólafur K. MaKnúason Húsráðendur í Tjarnarhólmanum flugu að heiman þegar þessi óboðni gestur birtist í eftirlitsferð. Varpið hafið í Tjarnarhólmanum FUGLALÍFIÐ á Tjörninni í Reykjavík er nú orðið mjög fjölskrúðugt og Tjarnarhólminn þéttsetinn, enda varptíminn haflnn. Ekki er annað að sjá en þar fari allt friðsamlega fram, þó að stundum slái í brýnu með fuglunum þegar einhver þeirra álpast í heimildarleysi inn á yflrráöasvæði annars. Að sögn Hafliða Jónssonar, umsjónarmanns Tjarnarinnar, hafa gæsir, kríur, hettumávar, æðarfuglar og stokkendur nú hreiðrað um sig í hólmanum. Enn eru engir ungar komnir úr eggjum en búast má við að verulega fjölgi i hólmanum á næstu vikum. Sagði Hafliði að trúlega færu ungar hettumávsins að skríða úr eggjunum þegar um næstu mánaðamót Formenn stjórnarflokkanna fylgjandi langtímasamningi — tillaga VSI skynsamleg, segir Þorsteinn Pálsson FORMENN stjórnarflokkanna, Steingrímur Hermannsson forsæt- isráðherra og Þorsteinn Pálsson, lýsa báðir áhuga sínum á að hægt verði að gera kjarasamninga til lengri tíma svo takast megi að Aðalfundur Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna: Framleiðsla frystihúsa SH dróst saman um 10% HEILDARFRAMLEIÐSLA frysti- húsa innan Sölumiðstöðvar hrað- frystihúsanna var 81.176 tonn á ár- inu 1984 eða 10% minni en árið áð- ur. Framleiðslan var mest hjá Út- gerðarfélagi Akureyringa hf., 6.109 tonn að verðmæti 358 milljónir Godard kemur ekki og mynd hans verður því ekki sýnd EKKERT verður af komu franska kvikmyndaleikstjórans Jean-Luc Godard til íslands að þessu sinni. Godard var boðið að koma hingað til að vera viðstaddur sýningu á kvikmynd sinni Je vous salue Marie (Ég heilsa yður, María). í gær gaf hann endanlegt afsvar og kvaðst eiga of annríkt til að þekkjast boðið. Godard ætlaði sjálfur að koma með fyrrnefnda kvikmynd sína hingað til lands og verður því ekki af sýningu myndarinnar á kvikmyndahátíð. króna. Heildarútflutningur frystra sjávarafurða á árinu 1984 nam 142 þúsund tonnum. Þar af nam útflutn- ingur SH 82,8 þúsund tonnum eða 58% að verðmæti 5.003,5 milljónir króna. í tonnum talið var um tæp- lega 10%samdrátt að ræða frá árinu áður. Þessar upplýsingar komu fram í ræðu stjórnarformanns Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna, Jóns Ingvarssonar, á aðalfundi hennar, sem haldinn var í gær. Af heildar- útflutningi fóru um 80 þúsund tonn til sex ianda; 40.200 tonn til Bandaríkjanna, 14.600 tonn til Sovétríkjanna, 8.500 tonn til Eng- lands, 7.000 tonn til Vestur-Þýzka- lands, 5.500 tonn til Frakklands og 3.200 tonn til Japans. Einkennandi fyrir útflutninginn á árinu 1984 var að hann dróst saman til Sov- étríkjanna, Englands og Banda- ríkjanna, en hins vegar var um nokkra aukningu að ræða til Vestur-Þýzkalands og Frakklands og veruleg varð hún til Japans eða um 2.100 tonn. 1 ræðu Jóns Ingvarssonar kom fram að sterk staða dollarans á síðastliðnu ári hafi valdið þvi að framleiðendur hafi ekki séð sér fært að framleiða fyrir markaði í Vestur-Evrópu, nema um hafi ver- ið að ræða erfiðleika á sölu ákveð- inna tegunda á markaði i Banda- ríkjunum eða Sovétríkjunum. Fyrstu fjóra mánuði þessa árs hefur framleiðsla frystihús SH dregizt saman um 5.900 tonn eða um 20% miðað við sama tima í fyrra. Útflutningur hefur hins vegar aukizt um 6.000 tonn eða rúmlega 20% og hafa birgðir af- urða ekki verið jafnlitlar i mörg ár hinn 30. april síðastliðinn eða 10.300 tonn. 1 ræðu sinni sagði formaður SH að mikil bjartsýni ríkti um fisk- sölu á Bandaríkjamarkaði. Á Bretlandsmarkaöi hafi hins vegar sölufyrirtæki SH ekki farið var- hluta af þeim erfiðleikum, sem steðjuðu að brezkum iðnfyrirtækj- um. Um sjávarútveg á íslandi sagði Jón Ingvarsson: „Nauðsyn- legt er, þegar mikilvægi sjávarút- vegs fyrir íslenzkt þjóðfélag er metið, að hafa eftirfarandi stað- reyndir í huga: Áf 140 þúsund vinnandi manns á íslandi starfa um 13 þúsund við veiðar og vinnslu, og afla um 70% gjaldeyr- istekna vöruútflutnings lands- manna, og um 90% ef frá er talið ál, jámblendi og kísilgúr, sem er að mestu leyti í höndum erlendra aðila. Áf öllum erlendum skuldum landsmanna eru skuldir vegna sjávarútvegs aðeins 17%.“ tryggja vinnufrið, eins og þeir sögðu í samtölum við blm. Morgunblaðsins í gær. Steingrímur sagöist því miður ekki hafa haft tækifæri til að kynna sér tillögu Vinnuveitenda- sambandið nema mjög lauslega svo hann ætti erfitt með að tjá sig um hana að svo stöddu. „Ég get þó sagt að ég er hlynntur þvi, að hægt verði að gera samninga, sem gilda út næsta ár, þannig að vinnufriður verði f landinu," sagði forsætisráðherra. „Það þarf hæg- fara en örugga kaupmáttaraukn- ingu. Efnahagsráðgjafar stjórnar- innar eru að kanna þessa tillögu og meta hana, þannig að málið ætti að liggja skýrar fyrir öðru hvoru megin við helgina." Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagðist telja tillögu Vinnuveitendasambands- ins skynsamlega. „Ég vil taka skýrt fram, að ég tel fulla ástæðu til að reynt verði að skapa vinnu- frið í landinu með langtima- samningum," sagði Þorsteinn. „Ég tel einnig skynsamlegt, að reynt verði að koma í veg fyrir fyrir- sjáanlegt kaupmáttarhrap á næstu mánuðum — kaupmátt- arhrap, sem er afleiðing óskyn- samlegra kjarasamninga í fyrra- haust." Formaður Sjálfstæðisflokksins lagði áherslu á „að vinnufriður og kaupmáttarsamningar eru for- senda þess, að við getum hafið nýtt hagvaxtarskeið. Að því leyti líst mér vel á að menn ræði málin á þessum grundvelli," sagði hann. „Það leiðir svo af sjálfu sér, að stjórnvöld verða að ræða efna- hagslegar forsendur slíkra samn- inga og ég fyrir mitt leyti er fús til að taka þátt í slíkum viðræðum með aðilum vinnumarkaðarins nú þegar. Ég er hlynntur því að slíkar viðræður hefjist strax og það mun ekki standa á okkur að taka þátt I þeim.“ Brazilíska stúlkan og ítalinn: Segjast hafa ætlað að neyta kókaínsins hér — en ekki haft í hyggju að selja það BRAZILÍSKA stúlkan og ÍUlinn, sem hafa játeð tilraun til þess að smygla 20 grömmum af kókaíni til landsins, hafa borið við yfirheyrslur að hafa sjálf ætlað að neyta fíkniefnanna. Þau komu hingað til lands síðastliðinn Töstudag og böfðu í hyggju að dvelja hér í Vi mánuð. Tveir íslendingar voru yfirheyrðir vegna gruns um aðild að smyglinu, en hefur verið sleppt úr haldi. ítalinn befur verið búsettur í Brazilíu um skeið. Hann kom hingað til lands á síðastliðnu ári, en varð ekki uppvís að neinu misjöfnu. Að sögn Arnar Jenssonar, full- trúa í fíkniefnadeild lögreglunnar, er ekki ástæða til að ætla að al- þjóðlegur smyglhringur standi á bak við komu fólksins hingað til lands. Kókaínið, sem tollverðir fundu í ábyrgðarbréfunum, er hreint. Efnið er iðulega blandað þrúgu- sykri, einum á móti fjórum. Hér á landi er blandað kókaín selt á um sex þúsund krónur á svörtum markaði, þannig að verðmæti efn- isins er yfir 'h milljón króna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.