Morgunblaðið - 24.05.1985, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 24. MAl 1985
3
Helgarveðrið:
Kalt um
hvítasunnuna
EKKI er búist við aö veöriö breytist
um hvítasunnuhelgina frá því sem
verið hefur undanfarna daga. Afram
verður noröaustanátt. Hitastig verö-
ur 7—8° á daginn og um frostmark
á nóttunni sunnanlands en skýjað
fyrir norðan og þar kemst hitinn
varla mikið yfir frostmark.
Þeir sem ætla að ferðast um
hvítasunnuhelgina ættu að hafa
það hugfast að líklega verður
besta útivistarveðrið á svæðinu
frá Kirkjubæjarklaustri og vestur
í Breiðafjörð.
í gær mynduðust svokölluð
odda- eða bylgjuský (lenticularis)
víða á Suður- og Vesturlandi. Ský-
in eru merki um að fjallabylgjur
séu í loftinu og notfæra svifflug-
menn sér gjarnan uppstreymið
vindmegin við slík ský til að koma
svifflugum sínum upp í mikla
hæð.
Bylgjuský yfir Reykjavík í gær.
Morgunblaðið/Ól.K.Mag.
Nýtt líf tekur kvikmynd f sumar:
Þór og Danni
ganga í lögregluna
Kvikmyndafélagiö Nýtt líf
hefur ákveðiö aö taka upp í
sumar þriöju myndina meö
þeim félögum Þór og Danna,
sem leiknir verða af þeim
Eggert Þorleifssyni og Karli
Ágúst Úlfssyni eins og í fyrri
myndunum tveimur.
Þráinn Bertelsson eigandi
kvikmyndafélagsins og leikstjóri
myndarinnar tjáði Mbl. að þeir
félagar Þór og Danni yrðu að
þessu sinni í hlutverkum afleys-
ingamanna í lögreglunni. Tökur
hefjast um 20. júní nk. og á þeim
að ljúka í ágúst ef allt gengur að
óskum.
Þráinn tjáði Mbl. að honum
hefði fundizt ófært að hafa ekki
a.m.k. eina íslenzka jólamynd í
bíóunum um næstu jól. „Eg vil
ekki taka þátt í þeirri útför
kvikmyndagerðarinnar “ íslenzku
sem ýmsir vilja láta fara fram,“
bætti Þráinn við.
I tveimur fyrri myndunum með
Þór og Danna hafa þeir verið
vertíðarkarlar í eyjum og afleys-
ingamenn í sveit. Fyrri myndin
hét „Nýtt líf“ en sú seinni „Dala-
líf“. Báðar myndirnar hlutu
mikla aðsókn. Þráinn sagði að
nýja myndin hefði hlotið vinnu-
heitið „Nýtt líf 111“ en endanlegt
nafn yrði valið síðar.
ÞAD
VERÐUR PILSAWTUR
f LAUGARDALNUM 28. MAÍ
NÆSTKOMANDI
Leið isienskra fótboítaáhugamanna iiggur Laug-
ardalinn 28, maí n.k, Þar mætasi bráðhress landslið
isiendinga og Skota æsispennantíí B-riðii forkeppni
heimsmeistarakeppninnar f knattspyrnu, en tvö
eístu liðin riðlinum fá miðana úrslitakeppnina í
Mexíkó 1986 Fiugieiðir veita 30% afsiátt af flugfar-
gjöidum þeirra sem ætla é leikinn.
isiendinoar oo Skotar berjast um farmiðana
tiE Mexíkó 1986
þér FLUG & FÖTBOLTA hjá
umbbdsmönnum Flugieiða eða á terðsskrífstofum.
ISLAND-SKOTIAND