Morgunblaðið - 24.05.1985, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1985
Bretland:
Verður hernum beitt
gegn eiturlyfjasölum?
„Eiturlyfin eru skelfilegasta hætta, sem steðjar að þjóðinni,“ segir í skýrslu þingnefndar
London, 23. maí. AP.
EF BRESK yfirvöld vilja koma í veg
fyrir, ad eiturlyfjavandamálið vaxi
stórlega frá því, sem nú er, verða
þau að beita heraflanum gegn eitur-
lyfjasmyglurum og eiturlyfjasölum.
Er þetta niðurstaða breskrar þing-
nefndar, sem skipuð var fulltrúum
allra flokka, og birt var í dag.
I skýrslu nefndarinnar, sem
unnin var að ósk stjórnarinnar, er
því spáð, að undir lok þessa ára-
tugar muni bandaríski eiturlyfja-
markaðurinn verða orðinn mett-
aður og að þá muni bandarískir
eiturlyfjasalar snúa sér af aukn-
um krafti að evrópska markaðn-
um.
„Við óttumst, að ef ekki verður
tafarlaust gripið til þeirra ráða,
sem duga, muni ástandið hér eftir
fimm ár verða svipað og það er í
Bandaríkjunum nú,“ segir í
skýrslunni. „Hér er um að ræða
skelfilegustu hættu, sem steðjað
hefur að þjóðinni á friðartímum."
Nefndin leggur til, að eftirlit
lögreglu og tollvarða með höfnum
Sovétmenn hjá SÞ:
Endursendu tuttugu
þúsund mótmælabréf
New York, 23. mai. AP.
ífTARFSMENN sovésku sendinefndarinnar hjá Sameinuðu þjóðunum báru
á föstudag sjö póstpoka með tuttugu þúsund bréfum, þar sem hvatt er til
þess að sovéski vísindamaðurinn Andrei Sakharov verði látinn laus, yfir í
skrifstofur bandarísku sendinefndarinnar þar.
Það var Jose Sorzano, aðstoðar- Moskvu.
framkvæmdastjóri bandarísku
sendinefndarinnar, sem skýrði frá
þessu í dag. Kvað hann Sovétmenn
hafa látið orðsendingu fylgja bréf-
unum, þar sem þeir segjast ekki
telja bréfin þess virði að koma
þeim á framfæri við stjórnvöld í
Bréf þessi voru rituð fyrir
hvatningu tímaritsins Readers
Digest og komu starfsmenn
bandarísku sendinefndarinnar hjá
SÞ þeim á framfæri við Sovét-
menn á miðvikudag í fyrri viku.
og flugstöðvum verði stóraukið og
herinn, einkum flugherinn, verði
notaður til að koma í veg fyrir
smygl til landsins. Nefndarmenn
voru allir sammála um, að ekki
dugi að taka eiturlyfjasalana
neinum vettlingatökum og að eina
raunverulega ráðið sé að stór-
herða refsingarnar.
„Eiturlyfjasalarnir eru glæpa-
menn og þeim ber að refsa án
nokkurrar miskunnar," sagði í
skýrslu nefndarinnar.
Heróín- og kókaínneytendum í
Bretlandi hefur stórfjölgað á síð-
ustu árum og er nú talið, að aðeins
heróínsjúklingarnir séu 60—
150.000 talsins. Á síðasta ári var
lagt hald á eiturlyf fyrir 100 millj-
ónir punda og þar af 306 kíló af
heróíni. David Mellor, aðstoðar-
innanríkisráðherra, sem m.a. fer
með lögreglumál hyggst leggja
fram á þingi í haust frumvarp um
stórhert viðurlög við eiturlyfja-
smygli til Iandsins en mest af
þeim kemur frá Suðaustur-Asíu
og Miðausturlöndum.
AP/Símamynd
Ufsagrýla í afmælisgjöf
Jóhannes Páll páfi II. varð hálfsjötugur þegar hann var á ferð um
Niöurlönd fyrir nokkrum dögum og af því tilefni færðu íbúar belgíska
bæjarins Mechelen honum að gjöf afsteypu af ufsagrýlu einni, sem prýðir
dómkirkju Heilags Rombouts þar í bæ. Bæjarbúar sungu svo auk þess
„Hann á afmæli í dag ... “ og ekki aðeins á móðurmálinu, flæmsku,
heldur einnig á ensku og pólsku.
Sexburarnir eiga lífsvon
Orange, Kaliforníu, 23. maí. AP.
LÆKNAR á barnasjúkrahúsinu í
Orange-héraði í Kaliforníu segjast
vongóðir um, að litlu systkinin sex,
sem þar fæddust fyrir tveimur dög-
um, eigi sér lífsvon. Sjöunda barnið
fæddist, sem kunnugt er, andvana.
Börnin, fjórir drengir og tvær
stúlkur, hafa verið í stöðugri
meðferð lækna síðan þau fædd-
ust.
Sjöburarnir komu i heiminn
tólf vikum fyrir tímann. Móðir
þeirra er Patricia Frustaci, þri-
tug kennslukona.
„Ottó er nashyrningur“ á Kvikmyndahátíð:
Drengur af íslenskum ætt-
um fer með aðalhlutverkið
Kristján Markensen sem Topper í
myndinni Ottó er nashyrningur.
myndarinnar, strákarnir Topp-
er, sem Kristján leikur, og
Viggó vinur hans. Þeir félagar
eru ólíkir í útliti, en eitt af því
sem sameinar þá er að báðir
bera von í brjósti um að eignast
venjulegan föður. Topper sakn-
ar pabba síns, sjómannsins sem
aldrei er heima, og Viggó reyn-
ir allt til að halda í föður sinn,
hinn þrætugjarna hr. Lowe.
En dag nokkurn finnur Topp-
er töfrablýant og þá fer margt
undarlegt að gerast. M.a. kem-
ur til sögunnar geysistór nas-
hymingur, sem skyndilega
birtist heima hjá Topper á ann-
arri hæð. Og nashyrningurinn
gerist umsvifamikill, þrammar
um allt húsið og gerir sér dælt
við íbúa þess. Ekki eru allir
jafn hrifnir af honum og á
tímabili lítur út fyrir að þetta
ætli að enda með skelfingu.
þarna siglir hann um höfnina f
við danska blaðið Politiken,
„en svo voru nokkrir valdir úr
fyrir próftökur. Við þurftum að
fara í gegn um fimm próftökur
áður en við fengum að vita að
við fengjum hlutverkin. Það er
alveg stórkostlegt að taka þátt
í þessu.“
Myndin gerist í litlum dönsk-
um hafnarbæ þar sem sólin
skín á bátana við bryggjurnar
og mannlífið er kátt og litríkt. í
sérkenniiegu húsi niðri við
höfnina búa aðalpersónur
Topper með föður sínum um borð í skipinu.
Nashyrningurinn
er ærið umsvifa-
mikill og um síð-
ir brotnar gólfið
undan honum og
hann fellur niður
í krána. Það er
ekki að undra
þótt mönnum
bregði í brún.
Topper verður ekki ráðafátt —
barnavagni.
DANSKA barnamyndin „Ottó
er nashyrningur“ sem nú er
sýnd á Kvikmyndahátíð hefur
vakið athygli. Aðalleikarinn í
myndinni, Kristján Markersen
11 ára er íslenskur í aðra ætt-
ina — móðir hans er íslensk
en búsett í Danmörku. Börnin
sem leika í myndinni voru val-
in úr 40 barnaskólum í Danm-
örku. „Allir drengirnir í
bekknum urðu að standa upp,
svo þeir gætu virt okkur fyrir
sér,“ sagði Kristján í samtali