Morgunblaðið - 24.05.1985, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 24.05.1985, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 24. MAÍ 1985 25 Söguleg yfirlýsing í Peking: Macao verður af- hent Kínverjum Peking, 23. mií. AP. PORTÚGALIR og Kínverjar hyggj- ast taka upp viðræður um framtíð Macao, sem er portúgölsk nýlenda á suðurströnd Kína, og eiga þær að miða að því, að Macao komist undir kínversk ynrráð. Það voru Antonio Ramalho Eanes, forseti Portúgals, og Li Xi- annian, forseti Kína, sem greindu fréttamönnum frá þessu í dag, en Eanes hefur undanfarna daga ver- ið í opinberri heimsókn í Kína. Eanes sagði, að ekki hefði verið tekin nein ákvörðun um það hve- nær þessar viðræður hefjast og ekki heldur hvenær Macao verður afhent Kínverjum. Hálft ár er liðið frá því Bretar og Kínverjar gerðu með sér sam- komulag um framtíð Hong Kong, sem leiðir til þess að Kínverjar fá yfirráð borgarinnar árið 1997. Samkomulagið felur m.a. í sér, að hið frjálsa markaðshagkerfi í Hong Kong verður óbreytt í hálfa öld. Hafa kínverskir embættis- menn látið hafa eftir sér, að lík- lega verði samningurinn um Macao svipaðs eðlis. (búar Macao eru 450 þúsund og eru 98 prósent þeirra af kínversku bergi brotnir. Meirihluti borg- arbúa hefur flúið frá Kína með ólögmætum hætti frá því komm- únistar komust þar til valda árið 1949. Hafa ýmsir leiðtogar þeirra látið í ljós ugg um að kínversk yf- irráð í Macao leiði til þess að íbú- arnir missi frelsi sitt og lífskjör þeirra versni. Macao hefur haft fjórðung skattatekna sinn af fjárhættu- spili, sem stundað er í borginni og laðar árlega þaugað fjórar millj- ónir ferðamanna. Helstu útflutn- ingstekjur borgarinnar eru af vefnaðarvörum og skoteldum. Veður víða um heim Laagst Hsest Akureyri 2 snjóél Amsterdam 10 16 rigning Aþena 19 29 heiöskirt Barcelona 17 alskýjaö Bertin 10 18 rigning Brtlseel 5 18 skýjaó Chicago 5 18 heióskírt Dublin 7 15 skýjaó Feneyjar 21 þokum. Frankfurt 9 13 rigning Qenf 8 17 skýjaó Hetsinki 4 9 skýjaó Hong Kong 25 30 heióskirt Jerúsalem 20 30 •kýjaö Kaupm.höfn 9 22 skýjaó Lissabon 10 19 heiöskírt London 11 18 skýjaó Los Angeles 16 28 heióskírt Malaga 20 skýjaó Mallorca 20 mistur Miami 27 34 skýjaó Montreal 6 20 heióskírt Moskva 2 11 heíóskírt New York 14 24 skýjaó Osló 7 alskýjaó París 11 18 skýjaó Peking 17 30 heiöskirt Reykjavík 6 skýjaó Rio de Janeiro 18 29 skýjað Rómaborg 10 25 heíðskírt Stokkhólmur 4 20 skýjaö Sydney 10 19 rigning Tókýó 16 25 skýjaó Vínarborg 13 22 heióskírt Þórshöfn 6 skýjaó Þegar stjórnarskipti urðu í Portúgal árið 1974 buðust stjórn- völd þar til að afhenda Kínverjum Macao, en því boði var hafnað án þess að nokkur skýring væri gefin. Er talið að Kínverjar hafi verið ánægðir með stjórn Portúgala á nýiendunni og að auki uppteknir af valdabaráttu innanlands. Portúgalir stigu fyrst á land þar sem nú er Macao árið 1557, og árið 1887 veitti Ching-keisararaættin þeim yfirráð yfir borginni. Boris Gulko Skákmeistarinn Gulko farinn í hungurverkfall SOVÉSKI skákmeistarinii Boris Gulko er farinn f hungurverkfall til að mótmæla því að nafn hans og nafn Önnu konu hans hafa verið tekin út af lista yfir þá 48 gyðinga í Moskvu, sem fengið hafa leyfí til að flytjast til IsraeL Þetta er í annað sinn á þremur árum, sem Gutko neytir ekki fæðu til að mótmæla því, að hann fær ekki að flytjast úr landi. Gulko, sem er 38 ára að aldri, sótti fyrir átta árum um leyfi til flytjast til (srael og fyrir það var honum refsað af stjórnvöldum með því að svipta hann rétti til að tefla erlendis og á stórmótum innanlands. Victor Korchnoi, stórmeistari, sem yfirgaf Sovétríkin árið 1976, sendi í gær svohljóðandi símskeyti til Gulko í Moskvu: „Skákmenn heimsins styðja þig. Við krefjumst þess að farið verði að óskum þín- um.“ Brazilía: Mótmælt með manndrápum Kío de Janeiro, Bruilfu, 23. mai. AP. FANGAR í yfírfullu fangelsi í Brazilíu myrtu í dag enn einn samfanga sinna í mótmælaskyni við þær ömurlegu að- stæður, sem þeir búa við. Kyrktu þeir manninn og hafa þá alls fyrirkomið 13 mönnum með þeim hætti. Fangarnir hafa farið þannig að, að þeir hafa efnt til nokkurs konar „happadrættis" með dauðann sjálfan í vinning og á þremur mánuðum eru „vinningshafarnir" orðnir 13 að tölu. Er þetta aðferð fanganna við að mótmæla gífurlegum þrengslum i fangelsinu og óviðunandi aöbúnaði. Fangelsið, sem er í borginni Belo Horizonte, er allt of lítið fyrir þann fangafjölda, sem þar er, og eru þeir hafðir margir saman í pínulitlum, gluggalausum klefum. í sumum klef- anna er ekki pláss fyrir rúm handa þeim öllum og verða þeir því að skiptast á um að sofa. AP/Slmamynd Gandhi kvaddur í Kreml Rajiv Gandhi, forsætisráðherra Indlands, og kona hans, Sonia, skoðuðu sig í gær um í Minsk, höfuðborg Hvíta-Rússlands, en áður hafði hann gengið frá samn- ingum við Sovétmenn um mikla samvinnu í efna- hagsmálum. Fyrr um daginn hafði Gorbachev kvatt hann í Kreml og var þá þessi mynd tekin. Eru þeir leiðtogarnir fyrir miðju en Rajiv til hægri handar er Sonia, kona hans. Svíþjóð: Flutti 100 millj. s. kr. ólöglega úr landi Stokkhólmi. 23. maf. Frá fréllariura Moreunhlaóxinx I Stokkhólmi. FIMMITÍU og eins árs gamall fyrr- verandi bílasali er talinn hafa sett sænskt met í gjaldeyrissvindli. Sést þetta af ákæru, sem birt var í saka- dómi í Södertælje, en samkvæmt hcnni á hann að hafa komið 99,1 millj. s. kr. (um 465 millj. ísl. kr.) úr landi. Líklegt þykir, að maðurinn hafi komið peningunum fyrir í Sviss í hendur sænskum mönnum, sem áður höfðu setzt þar að. Er talið, að hlutverk hans hafi fyrst og fremst verið fólgið í því að koma fénu á milli landa. Þar beitti hann ekki þessum venjulegu aðferðum, svo sem að geyma peninga í vös- unum eða í veskinu, heldur fékk hann viðskiptabanka einn í Sví- þjóð með blekkingum til þess að annast þetta fyrir sig. Þetta var gert með því, að mað- urinn lagði inn ávísanir í sænsk- um krónum og lét síðan í það skína á margvíslegan hátt, að hann stæði í heiðarlegum við- skiptatengslum við erlend fyrir- tæki. Yfirmenn bankans létu sannfærast og yfirfærðu til út- landa þær fjárhæðir í bandarísk- um dollurum, sem maðurinn fór fram á. Af ákæru saksóknarans má ráða að umfangsmikil sala á hlutabréfum liggi að baki gjald- eyrissvindlinu og að það sé and- virði þeirra, sem sé horfið úr landi og það án þess að greiddur hafi verið af því skattur. Því er talið, að þetta mál eigi einnig eftir að verða mikið skattamál. óvíst er, hvort sænska réttvísin eigi eftir að hafa hendur í hári þeirra, sem standa þarna að baki. Er jafnvel talið, að þeir séu farnir frá Sví- þjóð fyrir fullt og allt og muni aldrei snúa heim aftur. Sagt er, að einn maður í þessum hópi eigi hvorki meira né minna en 51 af þeim 100 milljónum s. kr., sem komið var undan frá Svíþjóð. Útvarp Marti nýtur vinsælda á Kúbu Miami, 23. maí. AP. FERÐAMENN, sem i dag komu til Miami í Bandaríkjunum frá Kúbu, segja að Útvarp Marti á Flórída, sem Bandaríkjastjórn rekur og ætlað er íhúum á Kúbu, heyrist mjög vel á eynni og njóti mikilla vinsælda. Stjórnvöld á Kúbu eru ævareið vegna útsendinganna, sem hófust á mánudag, og hafa í mótmæla- skyni rift samningi, sem þau gerðu við Bandaríkjastjórn í des- ember, um skipti á föngum op flóttafólki. Jafnframt hófu þau að trufla útsendingarnar. Útvarp Marti, sem dregur nafr, sitt af Jose Marti, frelsishetju Kúbumanna, sendir út dagskrár- efni, einkum fréttir og tónlist, í fjórtán klukkustundir á sólar- hring. JLAWN-BOV Hún slær allt l . og rakar líka Þú slærð betur með LAWN BOY Rafeindakveikja tryggir örugga gangsetningu 3.5 HP sjálfsmurð tvígengisvél. Hún er hljóðlát. Hún slær út fyrir kanta og upp að vegg. Auðveldar hæðarstillingar Fyrirferðalítil, létt og meðfærileg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.