Morgunblaðið - 24.05.1985, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 24.05.1985, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 24. MAÍ 1985 33 Höfuðskilyrði afyopnunar. Gagnkvæm og undir eftirliti — Þingræða Eyjólfs Konráðs Jónssonar, formanns utanríkismálanefndar Eyjólfur Konráð Jónsson, formað- ur utanríkismálanefndar, mslti í gær fyrir tillögu nefndarinnar til þingsályktunar um afvopnunar- og kjarnorkumál. Ræða hans fer hér á eftir: Ekkert þjóðþing fullvalda lýð- ræðisríkis sem undir því nafni vill rísa getur hliðrað sér hjá að ræða og taka afstöðu til heimsmálanna og þeirrar ógnar sem að mannkyni steðjar meðal annars af eigin völdum, athöfnum og ákvörðun- um. íslendingar eru þar engin undantekning enda hafa utanrík- ismálin í margvíslegum myndum verið afdrifaríkastur þáttur ís- lenskrar stjórnmálaumræðu og ákvarðana allt frá því að ljóst varð að hlutleysi veitti okkur enga vernd og við urðum að taka fullt tillit til hrikalegra heimsátaka. Vart verður lengur um það deilt að við völdum rétta kostinn þegar við skipuðum okkur í sveit frjálsra þjóða til verndar lýðræði, þótt átök yrðu um þá ákvörðun þegar hún var tekin. Allt orkar tvímælis þá gert er, ekki síst með þjóð sem er að móta nýtt ríki við nýjar að- stæður — í gjörbreyttu umhverfi. Mestu varðar að við metum ríkj- andi aðstæður á hverjum tíma frá eigin sjónarhóli og hlífumst ekki við að reyna að hafa áhrif á þróun mála. Það megum við auðvitað aldrei gera enda höfum við ekki gert það. Eða hvar værum við á vegi stödd ef við ekki hefðum fylgt eftir rétti okkar á sviði hafréttar- ins, svo að dæmi sé nefnt? Ekki var í lítið ráðist þegar allir stjórnmálaflokkar sem fulltrúa eiga á Alþingi íslendinga ákváðu í fyrravetur að freista þess að nefna til fulltrúa sem könnuðu hvort þess kynni að vera kostur að ná sameiginlegri niðurstöðu um eina ályktunartillögu er varðaði af- vopnunar- og kjarnorkumál í stað þess að bitist yrði um þær margar. Þingi lauk þó án þess að þessar tilraunir bæru fullan árangur. Nú á þessu þingi var talið rétt að skipuð yrði undirnefnd til að fjalla um afvopnunarmálin og skilaði hún áliti í tillöguformi til háttvirtrar utanríkismálanefndar 6. þ.m. Þar hefur tillaga þessi ver- ið samþykkt óbreytt eftir nokkrar umræður, en þó með skýringum sem mér er falið að greina hér frá, svo að forðast megi allan hugsan- legan misskilning. Allmiklar umræður urðu í utan- ríkismálanefnd um fyrri málslið sjöttu málsgreinar ályktunartil- lögunnar og skilning á honum. Ýmsum hugmyndum var varpað fram um orðalagsbreytingar en á það var fallist að halda orðalagi undirnefndarinnar óbreyttu en formanni falið að koma á fram- færi fyrir hönd nefndarinnar eft- irfarandi skýringum er hann mælti fyrir tillögunni: 1. Sá landfræðilegi skilningur væri réttur að Norður-Evrópa næði a.m.k. yfir Norðurlönd, eyjar á norðanverðu Atlants- hafi og Norður-Þýskaland, þ.e. Norður-Evrópusléttuna, og allt frá Grænlandi til Úralfjalla. 2. Sá skilningur sem fram komi í eftirfarandi hugmynd um breytingu á upphafi 6. máls- greinar væri réttur: ,Um leið og Alþingi áréttar þá stefnu Islendinga að á Islandi verði ekki staðsett kjarnorku- vopn, hvetur það til þess að könnuð verði samstaða um og grundvöllur fyrir samningum um kjamorkuvopnalaust svæði í Norður-Evrópu, sem nái til aðildarríkja Atlantshafsbanda- lagsins, Varsjárbandalagsins og hlutlausra ríkja jafnt á landi, í lofti sem á hafinu eða í því. Samningur þessi verði liður { samkomulagi til að draga úr vígbúnaði og minnka spennu." Samkomulag er um það í utan- ríkismálanefnd að með tillögunni sem hér er lögð fram sé lokið af- greiðslu fjögurra tillagna um af- vopnunar- og kjarnorkumál, sem fyrir nefndinni hafa legið. Mat mitt er það að ályktunartil- laga þessi sem hér er lögð fyrir sameinað Alþingi muni er tímar líða verða talin allmerk fyrir margra hluta sakir ef Alþingi sameinast um samþykkt hennar. En algóð er hún auðvitað ekki fremur en önnur mannanna verk enda hefur víst enginn vænst þess að hún leysti lífsgátuna. Raunar er hvarvetna glímt við þessi við- fangsefni og munu tillögur um af- vopnunarmál sem liggja fyrir hjá Sameinuðu þjóðunum t.d. vera á annað hundrað. Undirnefndinni sem tillögu- greinina samdi ber að þakka þrot- laust starf unnið í vitund um ábyrgð þá sem á Alþingi hvílir, er um mikilvægustu utanríkismál er fjallað. En nefndina skipuðu hátt- virtir þingmenn: Birgir ísl. Gunn- arsson, Guðrún Agnarsdóttir, Haraldur Ólafsson, Hjörleifur Guttormsson, Kjartan Jóhanns- son Kristín S. Kvaran. Ég mun nú víkja nokkuð að ein- stökum þáttum tillögunnar en meginstefnuna er að sjálfsögðu að finna í fyrstu málsgrein þar sem áhersla er lögð á gagnkvæma af- vopnun sem tryggð verði með al- þjóðlegu eftirliti. í ljósi þessa raunsæja mats á hugsanlegum árangri verður að skoða tillögu- greinina í heild, enda er þetta áréttað síðar i tillögunni m.a. í 4. málsgrein. Þar er fjallað um kjarnavopn, bann við framleiðslu þeirra og áskorun um eyðingu, sem framfylgt verði „á gagn- kvæman hátt þannig að málsaðil- ar uni því og treysti, enda verði það gert í samvinnu við alþjóðlega eftirlitsstofnun". I 2. málsgrein er fjallað um að beina verulegum fjármunum sem nú renna til hernaðar að hjálp við hungraða og þjáða. Á dagskrá þessa fundar er þróunaraðstoð þar sem mál þessi verða rædd og af- staða íslendinga. Skal ég því ekki fara um það fleiri orðum. 3. og 5. málsgrein eru stefnuyfirlýsingar sem ekki þarfnast skýringa. Um fyrri málslið 6. málsgreinar hefur þegar verið fjallað. Síðari málsliðinn ber auðvitað að skilja í samhengi við hinn fyrri. Enginn ágreiningur hygg ég að geti verið um könnun á „hugsanlegri þátt- töku íslendinga í frekari umræðu um kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum" enda hljóta slíkar umræður meðal þjóða Norður- landanna að beinast að því hvaða árangri mætti ná bæði í austri og vestri í samræmi við fyrri málslið- inn. Því miður kemst ég ekki hjá að harma það að einn nefndarmanna í utanríkismálanefnd, háttvirtur þingmaður Hjörleifur Guttorms- son, skyldi í útvarpsviðtali jafnvel áður en umræða fer fram hér í sameinuðu þingi taka sér fyrir hendur að túlka upphafsorð 6. málsgreinar. Mismunandi skiln- ingur á orðunum „Alþingi áréttar þá stefnu Islendinga að á íslandi verði ekki staðsett kjarnorku- vopn“ kom aldrei fram í utanrík- ismálanefnd enda alveg ljóst að orðið „áréttar" getur ekki þýtt neitt annað en undirstrikar — eða eins og segir um orðið „árétta" í Orðabók Menningarsjóðs: ítreka, endurtaka. Ekkert fer því á milli mála að í ályktunartillögunni er sú stefna sem íslensk stjórnvöld hafa fylgt í áratugi að því er varðar staðsetn- ingu kjarnavopna á íslandi stað- fest og ítrekuð. Þessa stefnu hafa íslensk stjórnvöld túlkað fyrr og síðar og má þar t.d. nefna ummæli Hermanns Jónassonar 1957 er hann svaraði Bulganin, forsætis- ráðherra Sovétríkjanna, og um- mæli Guðmundar í. Guðmunds- Eyjólfur Konráð Jónsson sonar 15. október 1962 á Alþingi. Enginn æðstu manna Islands hefur nokkru sinni frá því er full- veldisbaráttan hófst léð máls á því að gefa út yfirlýsingu eða láta nokkur þau orð falla á opinberum vettvangi er skert gætu fullveld- isrétt landsins. Þess fyrirvara hef- ur ætíð verið gætt og verður ætíð að gæta. Þar má t.d. benda á stjórnvisku íslenskra forustu- manna í samskiptum við Hitlers- Þýskaland og svör við ásókn af þess hálfu. Heiður þeirra manna sem þar stóðu að verki hefur um síðir orðið lýðum ljós við lestur bókar Þórs Whitehead, Ófriður í aðsigi. En gæfa okkar er sú að þar sem endranær stóðu helstu for- ingjar þjóðarinnar sameinaðir í festu og raunsæi. Um tillögu þá sem hér er lögð fram langar mig að segja almennt að hún felur annars vegar í sér viljayfirlýsingu um almenn mark- mið sem stefnt skuli að á sviði afvopnunarmála og hins vegar skref í átt til frekara samstarfs þeirra stjórnmálaflokka sem full- trúa eiga á Alþingi um mótun sameiginlegrar stefnu í afvopnun- armálum. Því verður tæplega á móti mælt að ástand alþjóðamála um þessar mundir og undanfarin ár hefur einkennst af versnandi sambúð austurs og vesturs og harðnandi vígbúnaðarkapphlaupi. Orsakir þessarar þróunar má rekja allt aftur til miðbiks áttunda áratug- arins en fram að þeim tíma höfðu menn a.m.k. um nokkurra ára skeið gert sér vonir um að takast mætti að koma á samkomulagi um ákveðin grundvallaratriði í sam- skiptum austurs og vesturs sem mundu stuðla að samdrætti í víg- búnaði og bættri sambúð meðal ríkja. Það felst viss kaldhæðni ör- laganna í því að allt frá þeirri stundu er Helsinki-sáttmálinn var undirritaður fór sambúðin versn- andi. óhætt er að fullyrða að end- anlega hafi það tímabil sem kennt er við slökun liðið undir iok með innrás Sovétríkjanna í Afganistan 1952. í kjölfar versnandi sambúð- ar hefur fylgt harðnandi vígbún- aðarkapphlaup og hvers konar viðleitni til samkomulags til að draga úr því hefur reynst árang- urslaus. íslendingar hafa engu minni hagsmuna að gæta en aðrar þjóðir að sporna við þessari þróun. Sam- hliða því sem þeir verða að tryggja varnir síns lands þá ber þeim einnig skylda til að treysta alþjóðlegt öryggi með því að stuðla að minnkun spennu í sam- skiptum austurs og vesturs og gagnkvæmum samdrætti í vígbún- aði. Um leið og vígbúnaður endur- speglar pólitískan og hugmynda- fræðilegan ágreining og árekstra getur hann einnig aukið á spennu og tortryggni meðal ríkja og á þann veg haft neikvæð áhrif á að friður haldist. Við hljótum að taka þá afstöðu að koma í veg fyrir að í stað þess að halda vörð um friðinn verði vopnin til að grafa undan honum. Afvopnun sem er bæði gagn- kvæm og þannig að staðið að hægt er að hafa eftirlit með samningum getur stuðlað að þessu markmiði og hefur það verið haft að leiðar- ljósi í þeim samningum sem gerðir hafa verið á alþjóðavettvangi fram til þessa. Samningar um af- vopnun og takmörkun vígbúnaðar eru jafnframt nauðsynlegir til að draga úr hinum gífurlegu fjárút- látum þjóða heims til vígbúnaðar sem áætlað er að hafi numið allt að 800.000 milljónum Bandaríkja- dala á síðasta ári. í tillögunni er lögð áhersla á þau tvö höfuðskilyrði milliríkja- samninga um afvopnun að hún sé gagnkvæm og undir eftirliti. Um leið og hún hvetur til alhliða af- vopnunar er jafnframt lögð á það áhersla að samningar náist um kjarnorkuvopn enda er það tæpast umdeilanlegt að árangur á því sviði mundi stuðla hvað mest að auknum stöðugleika í alþjóðamál- um. En afvopnun eins og sér tryggir ekki friðinn. Lausn á pólitískum ágreiningsmálum er ekki síður nauðsynleg og án þess er raunar lítil von til að árangur náist í af- vopnunarviðræðum. Því er lagt til að leitað verði „allra leiða til að draga úr spennu og tortryggni milli þjóða heims, einkum stór- veldanna. Er það og i fullu sam- ræmi við þá afstöðu, sem íslend- ingar hafa tekið á alþjóðavett- vangi um árabil hvort sem er í samstarfi innan Atlantshafs- bandalagsins eða á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Undanfarin ár hafa nokkrar umræður farið fram hér á landi sem og á öðrum Norðurlöndum um kjarnorkuvopnalaust svæði í Norður-Evrópu. Hafa verið skipt- ar skoðanir um gildi þeirrar hugmyndar m.a. í ljósi þess að á Norðurlöndum eru engin kjarn- orkuvopn staðsett. Afstaða stjórn- valda á Norðurlöndum hefur jafn- framt verið ólík að ýmsu leyti. Ég mun þó ekki útlista það hér i ein- stökum atriðum en þó nefna að það hefur verið sameiginlegt ís- lenskum, norskum og dönskum stjórnvöldum að þau hafa talið ófært að ganga til samninga um kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum nema sem hluta af víðtækara samkomulagi milli austurs og vesturs um afvopnun. I upphafi var að því vikið að fullvalda ríki hlyti að láta þau mál sem hér er fjallað um til sín taka, ræða þau innanlands og utan og taka afstöðu. Við getum ekki á það horft að aðrir ráði til lykta mál- efnum sem varðað geta örlög ís- lensku þjóðarinnar ekki síður en annarra þjóða. Þótt við séum fá- mennir höfum við sama rétt og hinar fjölmennari og öflugri þjóð- ir til að ráða eigin Iífi og reyna að hafa einhver áhrif á afdrif alls mannkyns. Þetta er mönnum nú að verða ljósara en áður. Um það má nefna nokkur dæmi. Örygg- ismálanefnd var komið á laggirn- ar og þar er safnað upplýsingum sem að gagni koma þegar íslend- ingar þurfa að huga að eigin af- stöðu og hlutlægt mat á þær lagt meðal annars með útgáfustarf- . semi. Það lá því í augum uppi „að fela öryggismálanefnd í samráði við utanríkisráðherra að taka saman skýrslu um þær hugmyndir sem nú eru uppi um afvopnun og tak- mörkun vígbúnaðar, einkum þær sem hafa þýðingu fyrir tsland með tilliti til legu landsins og aðildar þjóðarinnar að alþjóðlegu sam- starfi. Á grundvelli slíkrar skýrslu verði síðan leitað samstöðu meðal stjórnmálaflokkanna um frekari sameiginlega stefnumörkun í þessum málum." En þannig lýkur einmitt tillögu þessari til þingsályktunar. Utanríkisráðherra hefur ákveð- *• . ið að setja upp sérstaka varnar- málaskrifstofu og bæta mjög að- stöðu til að fylgjast með fram- vindu mikilvægustu mála sem ör- yggi íslendinga varða þannig að við getum litið til þeirrá með eigin augum en þurfum ekki að sætta okkur gagnrýnilaust við álit ann- arra manna, þjóða eða bandalaga, jafnvel ekki að sætta okkur við sjónarmið bandamanna okkar án þess að leggja á þau sjálfstætt mat, en það er einmitt forsenda ^ þess að gætt verði með reisn og hyggindum sjálfs fullveldisréttar- ins í öryggismálum. Þá er óumdeilt að undirbúning- ur að endurnýjun ratsjárkerfisins var mjög vandaður og allt unnið fyrir opnum tjöldum. Alþingi hafði því í höndum haldgóðar upp- lýsingar þegar ákvörðunin var tekin. Hitt er annað mál að hver og einn hafði rétt til að meta þær upplýsingar og taka afstöðu eftir því mati eins og lýðræðisreglur bjóða. Umræðan um þessi mál er því orðin opnari en áður var, mál- efnalegri og byggð á meira raunsæi en oft áður. Því ber að fagna. ér" En ánægjulegast er — og með því lýk ég máli mínu — að ekkert íslenskt stjórnmáiaafl sem því nafni er hægt að nefna mælir með einhliða afvopnun lýðræðisríkja — en allir íslenskir stjórnmála- flokkar vilja leggja sig fram um gagnkvæma afvopnun undir ör- uggu alþjóðlegu eftirliti. » Þinglausnir ódagsettar: Rúmlega áttatíu mál enn í þingnefndum 95 mál lögð fram eftir 10. apríl sl. Engin leið er að segja fyrir um eða dagsetja þinglausnir. Líklegt er talið að þing standi eitthvað fram í næsta mánuð, en skiptar skoðanir eru um, hve langan tíma taki að afgreiða for- gangsmál, er Ijúka þarf fyrir þing- lausnir. Mikill fjöldi mála er til um- fjöllunar og bíður endanlegrar af- greiðslu í þingnefndum og fjöldi nýrra mála hefur verið lagður fram á síðustu dögum og vikum. Frá 10. fyrra mánaðar talið hafa verið lögð fram 26 ný stjórnarfrumvörp, 15 ný þingmannafrumvörp, 19 tillögur til þingsályktunar og 34 fyrirspurnir þingmanna til einstakra ráðherra. Tæplega 40 mál munu nú til meðferðar í þingnefndum hjá efri deild: 6 hjá allsherjarnefnd, 11 hjá fjárhags- og viðskiptanefnd, 3 hjá landbúnaðarnefnd, 2 hjá sam- göngunefnd, 7 hjá iðnaðarnefnd, 1 hjá sjávarútvegsnefnd, 5 hjá heil- brigðis og tryggingarnefnd, 2 hjá félagsmálanefnd og 4 hjá mennta-1 málanefnd. 46 mál eru í þingnefndum neðri deildar: 12 hjá allsherjarnefnd, 17 hjá fjárhags- og viðskiptanefnd, 1 hjá landbúnaðarnefnd, 3 hjá sam- göngunefnd, 8 hjá iðnaðarnefnd, 2 hjá sjávarútvegsnefnd og 3 hjá heilbrigðis- og trygginganefnd. '

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.