Morgunblaðið - 24.05.1985, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐID, FÖSTUDAGUR 24. MAt 1985
Helga Asgeirs-
dóttir - minning
Helga Ásgeirsdóttir fæddist 23.
september 1934 í ólafsfirði. For-
eldrar hennar voru Ásgeir Frí-
mannsson skipstjóri og kona hans,
Gunnlaug Gunnlaugsdóttir. Þau
hjónin Ásgeir og Gunnlaug, sem
dáin eru fyrir nokkrum árum,
voru mikil sæmdarhjón og vel séð
af öllum. Þau voru mjög samhent
um gott uppeldi barna sinna og
ástriki þeirra og umhyggja fyrir
velferð þeirra brást aldrei. Helga
var sjöunda barn þeirra hjóna og
ólst upp í foreldrahúsum og var
mikið uppáhald allra.
Það var samdóma álit allra að
Helga væri með myndarlegri
stúlkubörnum og snemma komu í
ljós góðir eiginleikar hennar. Hún
var góður nemandi og hafði mikla
og góða handavinnuhæfileika, sem
vel komu í ljós við nám hennar í
Kvennaskólanum á Blönduósi.
Helga var myndarleg kona,
skapstillt og dagfarsprúð og elsku-
leg í allri framkomu, hjálpsöm og
mikill vinur vina sinna. Árið 1957
giftist Helga eftirlifandi manni
sínum, Bjarna Sigmarssyni verk-
stjóra, hinum ágætasta manni.
Eftir nokkurra ára sambúð
* ^ byggðu þau hjónin sér gott og
veglegt íbúðarhús við Túngötu 5 í
Ólafsfirði, sem þau bjuggu í æ síð-
an.
Þau hjónin voru mjög samhent
um að fegra og prýða heimili sitt
og umhverfi og gestrisni þeirra og
myndarskapur í allri búsýslu var
til fyrirmyndar.
Við hjónin nutum margra
ánægjulegra stunda á hinu fallega
heimili þeirra hjóna, þar sem vinir
og vandamenn voru oft margir
saman komnir. Þar komu vel í ljós
góðir hæfileikar þeirra hjóna til
að gleðja og veita öðrum af mikilli
rausn og frábærum myndarskap.
Frá þeim heimsóknum eigum við
margar ógleymanlegar minningar,
sem nú er gott að minnast.
Helga ólst upp við öll venjuleg
störf í Ólafsfirði, þar sem fisk-
vinnslustörf voru mest ríkjandi og
var hún eftirsótt til allra starfa
sökum dugnaðar og samviskusemi.
Fyrstu búskaparár sín leigðu
þau hjónin Bjarni og Helga hjá
foreldrum hennar og mun Helga
hafa notið þess síðar að vera
fyrstu búskaparárin í nálægð
móður sinnar, sem var orðlögð
dugnaðarkona og mikil húsmóðir.
Það voru bæði meðskapaðir
t
Konan mín og móðir okkar,
SALBJÖRG (SALLÝ) AVENARIU8,
165 Sawyar Ave.,
W. Babylon. Long laland,
andaöist aöfaranótt 23. mai.
Bill Avenarius
BAra Avenarius, Ragnar Avenarius,
Emily Avenarius. Bill Avenarius
Neddy Avenarius, Carol Avenarius
t
Útför móöur okkar,
ÞURÍDAP ÁRNADÓTTUR
fr* Huröarbaki
fer fran frá Selfosskirkju laugardaginn 25. mai nk kl. 13.30.
Bðrnin
Birting afmœlis- og
minningargreina
:i ATHYGLI skal vakin á því, aÖ afmælis- og minn- :
| ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum |
í! fyrirvara, Þanníg verður greín, sem birtast á í mið- í
ij vikudagsblaði, að berast í síðasta lag fyrir hádegl á
mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga minri-
\ ingargreinum skaí hinn látni ekk ávarpaður. Þess
ska einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort
Iljóð um hinn látna eru ekki bírt á minníngarorðasíð-
um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrítuð :
og með góðu línubili.
I I
hæfileikar Helgu og hagstætt upp-
eldi til lærdóms og þroska til
heimilishalds, sem studdu hana í
því að verða mikil og góð húsmóð-
ir, vel studd af eiginmanni sínum,
sem fyrr segir.
Áður en Helga giftist eignaðist
hún son með fv. unnusta sínum,
Ásgeir Arngrímsson framleiðslu-
stjóri, búsettur á Akureyri,
kvæntur Örnu Hrafnsdóttur og
eiga þau þrjá syni. Börn þeirra
Helgu og Bjarna eru þessi: Guð-
rún, fóstra, gift Ingólfi Hannes-
syni íþróttafréttamanni, búsett í
Reykjavík og eiga þau eina dóttur.
Margrét, kennari, gift Markúsi
Einarssyni kennara, búsett í
Kópavogi. Sigurbjörg, stúdent, og
Sigurður, nemandi í Gagnfræða-
skóla Ólafsfjarðar. Öll eru þessi
börn vel gefin og myndarleg.
Eftirlifandi systkini Helgu, sem
eru öll búsett í Ólafsfirði, eru
þessi: Hildigunnur, gift Ingólfi
Baldvinssyni verkstjóra. Jón
Steindór, vélstjóri, kvæntur Gígju
Kristinsdóttur. Ásgeir, bæjarrit-
ari, kvæntur Sæunni Axelsdóttur.
Dáin eru þessi: Stúlkubarn, sem
dó við fæðingu. Frímann, dó árið
1940. Sigríður Soffía, gift Pétri
Eyfjörð fv. verslunarmanni, dó ár-
ið 1966. Kristján, skipstjóri,
kvæntur Evu Williamsdóttur,
drukknaði er bátur hans fórst árið
1975.
Andlát þessara systkina Helgu
var henni mikið áfall, ekki síst
sviplegt fráfall Kristjáns bróður
hennar, sem var henni sérstaklega
kær.
Fyrir þrem til fjórum árum
veiktist Helga af þeim alvarlega
sjúkdómi, sem læknar ráða oft lít-
ið við, og þrátt fyrir að allt virtist
gert, sem hægt, var af læknum og
sérstæðri umönnun eiginmanns
hennar og barna og systkina,
auðnaðist ekki að ráða niðurlögum
þessa skelfilega sjúkdóms Helgu,
er leiddi til dauða hennar 22.
febrúar síðastliðinn.
Þess má geta að sérstakur kær-
leikur var á milli þeirra systra,
Hildigunnar og Helgu, og reyndist
Hildigunnur henni afburða vel í
veikindum hennar alla tíð. Þá var
til þess tekið hvað tengdamóðir
Helgu var henni ætíð ástrík og
góð.
Við hjónin minnumst Helgu
sem eins okkar besta vinar, tryggð
hennar og vinátta við okkur var
órofa frá fyrstu kynnum og við
vottum okkar dýpstu samúð
Bjarna eiginmanni hennar, börn-
um hennar, tengdabörnum og
barnabörnum, tengdamóður,
systkinum og öðrum ættingjum og
vinum.
Guð blessi minningu Helgu
Ásgeirsdóttur.
Helga Sigurðardóttir
Ásgrímur Hartmannsson
Móöurbróöir okkar, t
MAGNÚS DAVÍÐSSON.
Reynimel 44,
andaöist 14. mai sl. Utförin hefur fariö fram.
Helgs Williamson.
Daviö Cook
Chrístopher Cook,
Ragnhildur Hjaltested.
t
Eiginmaöur minn og taöir,
MAGNÚS SIGURDSSOK
garöyrkjubóndi
Grafarbakka 2.
Hrunamannahreppi
er lést: Borgarspítaianurr' 18. maí sl. veröur jarösunginn frá Hruna-
kirkju laugardaginr, 25. maí kl. 14.00.
Sigrúr Tómasdöttir
Siguröur Tómar Magnússon
t
Þökkurr. innilege. auösýnda samúö og vinarhug vi6 andlót og útför
sonar okkar, bróðu:' og mágs
GUNNARS GUNNARSSONAR
Sléttahraun 28
Hadda Hélfdanardóttir, Gunnar Jóhannasson,
Jóhannet Gunnarsson, Guórún Björg Sverrisdóttii
Þegar æfi röðull rennur
rökkvar fyrir sjónum þér,
hræðstu eigi, hel er fortjald
hinum megin birtan er.
Höndin sem þig hingað leiddi,
himins til þig aftur ber.
Drottinn elskar, Drottinn vakir
daga og nætur yfir þér. (S.Kr.P.)
Þennan alkunna sálm vildi ég
gjarna mega gjöra að orðum mín-
um, er ég minnist Helgu.
Fyrir fáum kvöldum var ég að
blaða í gömlum dagbókum sem ég
hef um margra ára skeið hripað í
svona eitt og annað persónulegt.
Þar má víða sjá setningar á þessa
leið: „Frænkurnar komu í heim-
sókn í dag.“ Frænkurnar voru þær
Gurra, Magga, Gulla og Jónína. Þá
sjást víða línur eins og: „Helga
bauð mér í mat í dag,“ eða: „Eg
borðaði upp í Túngötu í dag.“
Svo þegar frænkurnar uxu úr
grasi og hættu að leika feluleiki og
þ.h. þá sést skrifað um búdæturn-
ar. Þær komu og gistu og þær fóru
í grímubúninga. En búdæturnar
voru Sibba og þrjár vinkonur
hennar.
Og enn líða árin og enn er ég
boðin í Túngötuna. Svo fer Siggi
að koma í dagbókunum, hann kom
og gisti, fór í göngur og hjálpaði
til við hitt og þetta.
Þetta gefur nokkra hugmynd
um þau samskipti sem um árabil
hafa verið á milli heimila okkar,
því þessi upptalning er ekki nema
lítið brot, valið af handahófi.
Atvikin hafa líka hagað því svo
til að öll Árnahússystkinin hafa
verið og eru í okkar nánasta kunn-
ingjahópi. Hefur það þróast bæði í
gegnum okkar vinnu og einnig fé-
lagsmál, og síðast en ekki síst
músikina og sönginn, sem svo
sterkan þátt á í öllum þessum
hópi. Já, það hefir oft verið spilað
og sungið á góðum stundum og þá
ekkert verið að eltast við klukk-
una
En svo hafa líka komið dimmir
dagar og eru mér þá í huga sér-
staklega tvö hörmuleg slys í þess-
ari fjölskyldu, sem urðu með til-
tölulega stuttu millibili. Þar á ég
við iát Sigmars litla Kárasonar og
drukknun Kristjáns heitins Ás-
geirssonar. E.t.v. var þar að stór-
um hluta að leita upphafs þeirra
veikinda er síðustu árin þjáðu
Helgu svo mjög. Helga var fædd
23. september 1934, næstyngst af 8
börnum hjónanna Gunnlaugar
Gunnlaugsdóttur og Ásgeirs
Frímannssonar skipstjóra. Hún
giftist 27. desember 1957 Bjarna
Sigmarssyn. vélstjóra en hann
var einnig um 15 ára skeið verk-
stjórí Hraðfrystihúsi Ólafsfjarð-
ar hf.
Bfirn þeirra eru talirs í aldurs-
röð Guðrúr. fóstra gift Ingólfi
Hannessyni. Margrét Inga, býr
meö Markúsi Einarssyni Sigur-
björg stúdent, býr með Þórð: Arn-
aldssyn og Sigurður, sem aðeins
er 15 ára og er við nárr. hér heima.
Þá hafði Helg; eignast son áður
en hún giftist og það er Ásgeir
Arngrímsson útgerðartæknir, en
kon; hans er Arna Hrafnsdóttir.
Þessum línum mínum vildi ég
svo Ijúka meö þeirr' einlægr bæn
til Guðs að hann veiti vinkonu
minn. sinn eilífa frift og öllum
syrgjenciun; styrk á erfiðum
stundum.
Við hjónin sendum ykkur öllum
okkar dýpstu samúðarkveðjur og
huggum okkur við aö tíminn lækn-
ar sárin að lokum.
Ingibjörg a Syðri-Á
V
raðauglýsingar — radauglýsingar — raöauglýsingar
Ehúsnæöi óskast
Laugavegur —
næsta nágrenni
1. hæft — 2. hæö
Óska eftir aö taka á leigu ca. 60-100 fm hus-
næö serr fyrst.
Uppl. ísíma 12274. A kvöldin s. 667124.
Vesturbær — leíga
— íbúð óskast —
Ung kona meö S ára dóttur óskar eftir aö taka
á leigu snyrtilegs og tailega 3ja-4ra herbergja
íbúö
Regiusemi og mjög góö umgengni. Meömæli
et óskaö er.
Vinsamlegast hringiö í síma 39713, 671873
eða 83593 - skilaboð.
Hjáiparstofnun kirkjunnar óskar aö taka á
leigu sem fyrst litla íbuö í Reykjavík eða ná-
grenni, til a.m.k. eins árs.
Nánari upplýsingar í síma 26440.