Morgunblaðið - 24.05.1985, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLADIÐ, FÖSTUDAGUR 24. MAÍ19§5
fClK í
fréttum
Sæmilegasti fakír
hún Geraldine
Geraldine Willi-
ams er ekkert
blávatn, það sannaði
hún áþreifanlega
fyrir skömmu er hún
setti heimsmet í sinni
grein. Að metinu
loknu bar Geraldine
sæmdarheitið „út-
haldsbesti fakírinn"
með sérstökum glans.
Það þykir eflaust lítt
árennilegt að slá met
stúlkunnar, því það er
í því fólgið, að hún lá
á fleti sínu, alsettum
flugbeittum fleygum í
alls 30 klukkustundir.
Það eitt og sér þætti
mörgum fakírum
ugglaust heldur létt
verk að vinna, en ekki
er víst að öllum þætti
viðbót Geraldine
kræsileg. Hún bauð
nefnilega þyngsta
manni Bretlandseyja,
George McAgree, að
komast í sviðsljósið
með sér, og sitja ofan
á sér umræddar 30
stundir. George þakk-
aði pent fyrir sig og
þraukaði eigi síður en
ungfrú Williams.
George karlinn er
„aðeins" 235 kg. Með-
fylgjandi mynd er af
metaslættinum. Ekki
fylgdi sögunni hver
átti eldra metið í
gaddadínulegu, enda
trúlega erfitt að meta
afrekin.
George situr
makindalega ofan á
maganum á Gerald-
ine og ef mvndin
prentast vel má sjá
sællegt bros á vör-
um hennar.
Joan vísaði
Pétri á dyr
— en samvistum hefur þó ekki verið slitið
að slettist upp á vinskapinn
hjá þeim Joan Collins og
Peter Holm fyrir skömmu, svo
heiftarlega var rifist, að Joan
bað Peter að flytja burt úr húsi
þeirra i Beverly Hills um stund-
ar sakir að minnsta kosti.
Fregnir herma að Peter hafi
pakkað saman og leigt sér íbúð í
Los Angeles. Þar vinnur hann nú
hörðum höndum að því að undir-
búa vikuiegan sjónvarpsþátt þar
sem Joan mun leika aðalhlut-
verkið. Þátturinn heitir „Synd-
ir“.
Annars segir Joan að rifrildi
þeirra hafi að vísu verið æsilegt,
en þó engin frágangssök og hjón-
abandsáform þeirra væru í fullu
gildi enn sem fyrr. „Ég vildi bara
vera ein og hugsa málið um
hríð,“ segir Joan. Það er loks frá-
gengið, að hún mun halda áfram
í Dynasty-ævintýrinu næstu tvö
árin að minnsta kosti, hún hefur
skrifað undir samning við fram-
leiðendurna. Hún hefur ekki ráð
á því að hætta og það náðist
málamiðlun um kaup og kjör.
Eftir að ljóst var að hún yrði
áfram Alexis Colby á öðrum
þræðinum, rabbaði hún við
fréttamenn um heima og geima.
Var hún afslöppuð og fór á kost-
um I ýmsum tilsvörum. Til dæm-
is spurði einn fréttamaður hana
hvort hún ætlaði ekki að gefa út
líkamsræktarbók eins og flestar
leikkonur virðast finna hjá sér
hvöt að gera í seinni tíð. „Élskan
mín, Alexis gerir aldrei iíkams-
æfingar. Ég reyni sjálf að
sprikía svolítið en hef ekki nennt
því nú um skeið. Ég keypti
myndbönd með æfingapró-
grömmum Jane Fonda en það
varð ekkert úr því að ég gerði
æfingarnar því ég varð uppgefin
á því einu að horfa á þær. Það
væri ósatt að segja að ég gerði
ekkert til að halda mér til, en
vaxtarrækt er ekki það sem ég
lít á sem lausnina. Eg þoli ekki
konur sem hlaða utan á sig vöðv-
um og líta svo út eins og karl-
menn,“ segir Joan.
Selvogsgata vörðuð
*
Auppstigningardag mætti
vaskur hópur á Bláfjallaveg,
þar sem Selvogsgata sker þennan
nýja veg. Þarna voru komnir
sjálfboðaíiðar á vegum Ferðafé-
lags fslands og stjórnar Reykja-
nesfólkvangs til að gera við og
’ hlaða upp vörður á þessari gömlu
leið úr Hafnarfirði austur í Sel-
vog. Þarna fóru allt fram á þessa
öld vermenn, bændur á Ieið í kaup-
stað og baggahestar með brenni-
stein úr brennisteinsnámunum
ofan Grindaskarða. Hafa spor
manna og hesta markað götuna,
jafnvel í harðar klappir.
Sextán manns mættu til leiks og
gerðu við þær vörður sem farnar
voru að láta sig og hlóðu nýjar þar
sem langt var á milli undir forystu
hins haga hleðslumanns Jóhann-
esar Arasonar.
í fyrra voru gerðar upp vörð-
urnar frá Bláfjallavegi upp fyrir
Grindaskörð, en nú haldið í hina
áttina og vörður endurnýjaðar frá
veginum vestur í Mygludali við
Helgafell, eða þar sem Selvogsgat-
an gamla liggur i gegnum hinn
nýja Reykjanesfólkvang. Göngu-
leiðir eru mjög skemmtilegar í
báðar áttir frá veginum, annars
vegar upp í Gönguskörðin þaðan
sem útsýni er fagurt og um marg-
ar leiðir að velja á heiðinni, og
hinsvegar í vestur hjá Helgafelli,
um Valaból og í Kaldársel. Þaðan
niður í Hafnarfjörð eða um Búr-
fell og Heiðavötn til Reykjavíkur.
Ættu vörðurnar nú að hjálpa
göngufólki að rekja sig áfram eftir
þessari skemmtilegu gönguleið.
Meðfylgjandi myndir voru tekn-
ar af sjálfboðaliðunum við vörðu-
hleðsluna.