Morgunblaðið - 02.06.1985, Page 7
‘M0RGUKBLAPIÐ,‘SUlfflUDAQUR 2. JÚNl 1985
Ofanleitishamar þar sem Jón kleif „ókleifan" hamarinn.
Hann stendur beint fyrir ofan þar sem hann kleif upp.
Jón í Holti i bjargbrún Ofanleitiahamars þar sem hann
kom upp forðum. Morgunblaðið/RAX
reyndum að vekja á okkur athygli.
í birtingu sáum við loks hvar við
vorum staddir og þá fór Eiður að
tala við mig og spyrja mig hvort
ég treysti mér til þess að fara
þarna upp bergið. Eg féllst á að
reyna það og áður en ég lagði í
bergið reyndi ég að berja mér til
hita, því mér var ansi kalt og var á
sokkaleistunum.
Áður en ég lagði af stað fékk ég
lánaðan sjóvettling hjá einum há-
setanum og hafði hann á annarri
hendi til þess að róta snjó úr berg-
inu og reyna að finna handfestu,
en það var mikill snjór í berginu á
örðunum. Svo hélt ég sjóvettlingn-
um á milli tannanna, á meðan ég
fikraði mig upp. Þetta gekk allvel
þangað til ég var kominn upp i
mitt bergið, þá ætlaði mér að
ganga illa að finna handfestu. En
ég hafði samt að vega mig upp og
siðan gekk ágætlega upp undir
brún. Þá biasir það við að brúnin
slútir fram yfir sig. Það leit illa út
í þessari stöðu og það var líka inn-
byggt, að við vorum hræddir peyj-
arnir í Eyjum við hamarinn, hann
var svo laus í sér. En einhvern
veginn hafði ég að teygja fingur-
gómana í festu á brúninni og hún
hélt, en ég varð hreinlega að vega
mig upp á fingurgómunum.
Mér ætlaði að ganga illa að
komast síðasta spölinn, en það
hafðist. Ég varð ógurlega kátur
þegar ég var kominn upp, en lík-
lega hef ég verið um 15 mínútur á
leiðinni. Eg leit aldrei við. Það var
engin von til þess að komast aftur
niður þá leið sem ég fór upp. Þegar
ég var kominn á brún ákvað ég að
ganga að Norðurgarði, sá að það
var styst og ég var kunnugur
þarna. Ég fór allhratt fyrst. Það
var kafaldssnjór, en ég sá fljótt að
ég mátti ekki fara svona hratt því
að ég þreyttist svo og hægði þess
vegna ferðina.
Þegar ég var nýlagður af stað
gerði svartaél, en þegar stytti upp
var ég kominn heim undir Brim-
hóla um það bil einum kílómetra
norðan við Norðurgarð. Ég vissi
að það var enginn sími þar og
ákvað því að fara alla leið heim til
mín heim i bæ og fór það, sagði
hvernig komið væri, hvar menn-
irnir væru. Síðan var farið í leið-
angur og skipsfélögum mínum
náð, en Sigurður heitinn Hró-
bjartsson á Litlalandi seig niður,
góður fjallamaður og nágranni
minn, og það gekk mjög vel. En
einn skipsfélaga minna var orðinn
allþjakaður.
Þegar ég lagði í bjargið var það
ekki alveg árennilegt, eins og ég
sagði, og ég bjóst við því að það
yrði erfitt, sérstaklega ef maður
þyrfti að snúa við eins og þú þekk-
ir. Ég vissi líka að Hamarinn er
mjög laus. Maður er vanur príli
eins og strákar á þessum árum en
ég stundaði aldrei fjallamennsku.
En það var ekki frost og það hefði
verið enn erfiðara við slíkar að-
stæður. En ég átti í raun enga
möguleika á að snúa aftur niður
þegar ég hafði lagt í bergið, upp
undir 20 metra hátt þverhnípt
bjarg.
Jú, mér er sagt að þarna hafi
verið ókleift en ég hélt nú alveg ró
minni og einbeitti mér að þessu og
þakkaði Guði fyrir þegar ég var
kominn á brún. Áður en ég lagði af
stað upp bergið tók ég það loforð
af skipsfélögum mínum að þeir
reyndu ekki að koma á eftir mér.
Yfirnáttúrulegt, jú, víst er það og
það er fleira, sem hér kemur til,
eins og það, að báturinn kemur
tvisvar á sama stað að berginu í
brimgarðinum, skerjagarðinum.
Það er eins og það séu einhver
æðri völd að verki þegar svona
gerist. Þetta var eina nibban á
mörg hundruð metra löngu svæði
sem hægt var að komast á. Um
morguninn var báturinn allur
kominn í smáspæni, allur brotinn
í spón eins og tilbúinn í upp-
kveikju. Hann var talinn 17 tonn,
hafði verið lengdur upphaflega úr
12 tonna stærð. Ég fór stuttu
seinna að skoða aðstæður á hamr-
inum, þá voru Ofanbyggjarar að
hirða brak úr bátnum i eldinn. En
ég veit ekki hvað segja skal um
það þegar ég skoðaði svæðið. Mig
langaði allavega ekki að reyna aft-
ur við þetta berg.“
«Ba7
Heba heldur
vióheilsunni
HEBA „PÚL-KÚR“
Konur!
Nú er að hrökkva eða stökkva. eí
koma á sér í form fyrir sumarið og
sólina. Látið okkur í Hebu aðstoða
ykkur með sjö daga sumar-.púlkúr”.
Púlkúr I 7.-14. júní.
Púlkúr II 10.-19. júní.
Leiðbeinandi: Elísabet Hannesdóttir
íþróttakennari.
Upplýsingar og innritun í símum
41309 og 42360.
Pinotex
VERNDAR VÐINN OG GÓÐA SKAPIÐ
PINOTEX SUPERDEC
þekjandi viðarvörn
þegar breyta á um lit.
Þekjandi viðarvörn úr acryl olíuefnum.
Olían síast í viðinn og acrylefnið myndar
yfirborðshimnu. Hámarksveðrunarþol,
lyktarlaust og
slettist ekki.
/Í9*0úni 3oikt&
Fínar ferðir í þrjár vikur á eina vinsælustu strönd Spánar:
Hvítu ströndina.
Beint leiguflug og góð gisting á hótelum (með eða án fæðis)
eða í íbuðagistingu. Islenskir fararstjórar.
Benidorm býður upp á fjölbreytta afþreyingu af öllu tagi: Verðdæmi: (búðagisting frá kr. 23.910.- pr. m.
Næturklúbba, diskotek, alpjóðleqa veitingastaði, kaffihus, Hjón i íbúö með tvö börn frá kr. 17.932.-pr
skemmtigarða tívolí, golfvelli, sjóskíði, dýragarð ... miðalda-
veislu. Btthvað fyrir alía.
Brottfarardagar: 29/5, 19/6, 10/7, 31/7, 21/8, 11/9, og 2/10
BJAHM OAGUR'AUGl. TiKNBTOf A
FERÐAMIÐSTODIIM
AÐALSTRÆTI 9
SÍMI28133