Morgunblaðið - 02.06.1985, Side 9

Morgunblaðið - 02.06.1985, Side 9
MORGUNBtAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. JÚNl 1985 B >f 9* Útileikhús og leik- aðstaða fyrir börn Verðlaunatillagan í hugmyndasamkeppni um hlutverk og mótun Arnarhóls BIRNA Björnsdóttir, innanhússarkitekt hlaut fyrstu verðlaun fyrir tillögu sína í hugmyndasamkeppni um hlutverk og mótun Arnarhóls. Samstarfsmenn hennar við mótun tillögunnar voru Hilmar Þór Björnsson, arkitekt, og Einar Sæmundsen, landslagsarkitekt. Davíð Oddsson, borgarstjóri og formaður dómnefndar, kunngerði niðurstöður nefndarinnar á Kjarvalsstöðum á föstu- dag. Hugmyndasamkeppnin var hald- in i tveimur hlutum. Alls bárust um fjörutíu tillögur og valdi dóm- nefndin sex af þeim fyrir síðari hluta keppninnar. Verðlaunatil- lagan verður lögð til grundvallar við mótun Arnarhóls en einnig verður hugsanlega stuðst að ein- hverju leyti við hinar tillögurnar fimm, að sögn Þorvaldar S. Þor- valdssonar, forstöðumanns Borgar- skipulags. 1 tveimur tillagnanna er gert ráð fyrir nýbyggingu meðfram Kalkofnsvegi, tvær sýna byggingu undir stöpli Ingólfsstyttu og tvær eru nánast án bygginga. f öllum tillögunum er gert ráð fyrir sviði sem nýtist ýmist til minni eða stærri hátíðarhalda. f tillögu sinni gerir Birna ráð fyrir útileikhúsi á hólnum við Kalkofnsveg, sem hægt verður að notast við allt árið um kring og áhorfendasvæði sem rúmar 4.000 til 6.000. manns. f tengslum við úti- leikhúsið gerir hún ráð fyrir bif- reiðastæðum við Kalkofnsveg. Með skírskotun til sögu Reykja- víkur, landnáms og öndvegissúlna Ingólfs Arnarsonar, leggur höfund- ur til að komið verði upp súlnaröð frá Hæstarétti, vestur Lindargötu, fram á Arnarhól þar sem súlnaröð- in tekur beygju framhjá Stjórnar- ráðinu og stefnir beint á Alþingis- húsið og Dómkirkjuna. Níu metrar yrðu á milli súlnanna, sem eru úr hvítri steinsteypu og hæð þeirra er alltaf sú sama, um 13 metrar yfir sjávarmáli. Höfundur gerir ráð fyrir sleða- brekku á hólnum eins og verið hef- Davíð Oddsson borgarstjóri afhendir verélau fyrir samkeppnina, en þau hlutu Birna Björnsdóttir, Hilmar Þór Björnsson og Einar Sæmundsen. ur, söluskála með kaffi- og pylsu- sölu, leiksvæði fyrir smábörn og sléttri flöt til leikja fyrir framan Seðlabankann. Þá gerir hann ráð fyrir göngustígum um hólinn og flóðlýsingu á súlurnar og styttu Ingólfs. Þá gerir höfundur ráð fyrir trjágróðri meðfram Ingólfsstræti og Kalkofnsvegi að baki útileik- hússins. Ýmislegt fleira er að finna í tillögunni s.s. áningarstað með bekkjum, fánastengur og stall fyrir myndastyttu, á homi Hverfisgötu og Kalkofnsvegar. Dómnefndina í hugmyndasam- keppninni skipuðu Davíð Oddsson, borgarstjóri, formaður, Jóhannes Nordal, Seðlabankastjóri, Gunnar Friðbjörnsson, arkitekt, Guðmund- ur Kr. Guðmundsson, arkitekt, og Þórarinn Þórarinsson, arkitekt. Að sögn borgarstjóra er stefnt að því að hefja framkvæmdir á Arnar- hólnum þegar næsta haust. Þótt þú eigir ekki SUMARBÚSTAÐ skaltu samt lesa þetta HANDVERKFÆRI, RAFMAGNS- VERKFÆRI TIL ALLRA MÖGU- LEGRA OG ÓMÖGULEGRA NOTA. OLÍULAMPAR OG LUKTIR, GAS- LUKTIR, GAS OG OLÍUPRÍMUSAR, HREINSUÐ STEINOLÍA, OLÍUOFN- AR ARINSETT, ÚTIGRILL, GRILL- KOL OG VÖKVI, RAFHLÖÐUR, VASALJOS FÚAVARNAREFNI, LÖKK, MÁLN- ING — ÚTI- INNI- — MÁLN- INGARÁHÖLD — HREINLÆTIS- VÖRUR, KÚSTAR OG BURSTAR. FANAR, FLAGGST ANGARHUNAR OG FLAGGSTENGUR, 6—8 METR- AR. fa VATNS- OG OLIUDÆLUR. KEÐJUR, MARGAR GERÐIR, TÓG OG VÍRAR, GRANNIR OG SVERIR. HITAMÆLAR, KLUKKUR LOFT- VOGIR, SJÓNAUKAR. HLÍFDARFATNAÐUR, REGNFATN- AÐUR, GÚMMÍSTÍGVÉL HÁ OG LÁ, PEYSUR, BUXUR, SKYRTUR, NORSKU ULLARNÆRFÖTIN. Ananaustum, Grandagarði. Sími 28855. SLÖKKVITÆKI OG REYKSKYNJ- ARI, VATNSBRÚSAR OG FÖTUR. SILUNGANET, NÆLONLÍNUR, SIG- URNAGLAR, ÖNGLAR, SÖKKUR. GARÐYRKJUVERKFÆRI í ÖLL STÖRF, HJÓLBÖRUR, SLÖNGUR, SLÖNGUKLEMMUR OG TENGI, ÚÐ- ARAR, SLÁTTUVÉLAR, ORF OG LJÁIR. OG í BÁTINN EÐA SKÚTUNA BJÖRGUNARVESTI FYRIR BÖRN OG FULLORÐNA. ÁRAR, ÁRAKEF- AR, DREKAR, KEÐJUR, AKKERI, VIÐLEGUBAUJUR, KJÖLSOGDÆL- UR. ALLUR ÖRYGGISBÚNADUR. ÖLL SMÁVARA FYRIR SKÚTUNA, BLAKKIR O.M.FL. BLÁTALÍNUR.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.