Morgunblaðið - 02.06.1985, Side 42

Morgunblaðið - 02.06.1985, Side 42
42 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. JÚNl 1985 GunnhUdur, Henrique og strákmrnir. Gunnhildur fiutt úr „kuldanum á íslandi“ Allur þorri Portúgala þekkir vel andlitið á Henrique Garcia. Hann er einn aðalfrétta- * ihulur portúgalska sjónvarpsins og einn fárra fréttastjóra þess, auk þess sem hann er með vinsælan útvarpsþátt um stjómmál sem skemmtiefni í útvarpi einu sinni í viku, þriggja stunda þætti. Hann ritstýrir fréttaskrifum, aflar frétta og les þær og það er mikið að gera. En á bak við svo marga drífandi karlmenn standa styrkar stoðir, konur þeirra, og á heimili Henr- iques er eiginkonan íslensk í húð og hár, Gunnhildur Gunnlaugs- dóttir. Saman eiga þau tvö börn, Pedro Gunnlaug, sem er á öðru aldursári og Henrique Geir, sem fæddist í lok janúar á þessu ári. Henrique litli kom dálítið á undan áætlun og þurfti að dvelja fyrstu dægrin í súrefniskassa. Það varð einungis til þess að hann fór heim hressari og er ásamt eldri bróður sínum augasteinn foreldranna. Þó Henrique eldri sé sá sem athygli allra auga og eyru beinist að í ríkisfjölmiðlunum, fellur hann úr sviðsljósinu er heim kemur. Þau hjónin búa í Parede á hinni frægu Estoril-strönd, 20 kílómetra frá Lissabon og Henrique hefur aldrei þótt jafn langt að keyra heim úr vinnunni og vinnudagurinn aldrei jafn lengi að líða. En þegar heim kemur eru það strákarnir sem ráða ríkjum og eiga athygli for- eldranna óskipta, enda greindir, hraustir og líflegir piltar. Henrique og Gunnhildur giftu sig í Háteigskirkju árið 1980 og hafði Gunnhildur þá ákveðið að „flytja frá kuldanum á fslandi," eins og segir nýlega í viðtali og grein um þau í „Gente Nova“. vinsælu portúgölsku vikuriti. í blaðinu er opnugrein með mynd- um og má sjá hluta af efninu hér með. Gunnhildur á móður hér á landi, Halldóru Hartmanns, og tvær systur, Hörpu og Bryndísi. Faðir hennar er látinn. COSPER Síminn hringir, ég verð aö fara og svara. ffclk í fréttum Morminbladid/Ól.K. Magnúsaon Flugvélin „Eddan“ i fyrsta flugið til Lu*. Halldór Sigur- jónsson yfir- flugvirki og flugvélstjóri Loftleiða er flog- ið var í fyrsta skipti til Lux- emborgar. Cockpit »nn - 43, 84 Patton * 1 í tilefni 30 ára afmælisins buðu þeir á Cokpit Inn gestum upp á íslenskan snafs... Hlutiáhafnaj sUötnmu.Hei geirsdóttu.S' Heigason. Alfreð Elíasson, Krístjáa Guðlaugsson, Sigurður Magnússon, Sigurður Helgason, Agnar Kofoed-Hansen, Kristinn Olsen og Ingólfur Jónsson. Frægðin þruma úr fc koski knattspyrnumaðurinn Pat Nevin, sem ! kom eins heiðskíru og lofti knattspyrnumaðurinn Pat Nevin, sem leikur með Lundúnaliðinu Chelsea og lék einnig með skoska ungmennalandsliðinu gegn fslandi í Kópavogi um síðustu helgi, ætlaði sér aldrei að verða atvinnumaður í knattspyrnu. Miðað við það er frægð hans og frami með ólíkindum. Pat er afar smávaxinn, en jafnframt geysilega leikinn knatt- spyrnumaður. Hann stóð sig með mikilli prýði á því keppnis- tímabili sem nú er nýlokið, fékk þá sína eldskírn í 1. deildar keppninni. Veturinn áður var Chelsea í 2. deild og Nevin fór á kostum, skoraði 14 mörk og var kjörinn vinsælasti leikmaður liðsins af áhangendum þess. Hann er að auki fastamaður í landsliði Skota skipuðu leikmönnum 21 árs og yngri. En Pat ætlaði aldrei að vera atvinnumaður í knattspyrnu. „Ég var að læra hagfræði og það var farið að líða að prófum. Ég lék knattspyrnu sem áhugamaður með skólaliðinu og útsendari frá Chelsea hafði greinilega séð til mín í leik með skólaliðinu. Félagið bauð mér samning og það kom eins og þruma úr heið- skíru lofti. En ég ákvað að slá til, aðallega vegna þess að ég var ekkert of bjartsýnn á að ná prófunum. Síðan hefur allt gengið eins og í sögu og ég sé ekki eftir einu eða neinu í sambandi við námið. Það eina sem ég á erfitt með að þola er hvernig ákveðinn minnihluti áhangenda liðsins hagar sér á leikjum, er með ólæti og kynþáttahatur. Það sem annars veitir mér mestu ánægjuna í sambandi við knattspyrnuferilinn er þó ekki mín eigin vel- gengni í venjulegum skilningi, heldur sú gleði sem hún veitir föður minum sem lét sig alltaf dreyma um að ég yrði knatt- spyrnumaður. Honum virtist hins vegar að það myndi ekki verða að neinu ...“ sagði Pat Nevin.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.