Morgunblaðið - 02.06.1985, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 1985
B *45
Sveinn Einarason, fyrrv. leikhúœtjóri, Vigdís Finnbogadóttir, foraeti íslands,
Þorateinn Gunnarsson leikari og arkitekt hússins, og Stefin Baldursson
brosmild í sviðsvæng aðalsalar Borgarleikhússins.
kaffihús, og möguleiki á því að
halda sýningar, tónleika eða
sýna litla einþáttunga. Þessi
hluti leikhússins getur verið
opinn utan sýningartíma og
tengst fyrirhuguðu „Lækjar-
torgi" nýja miðbæjarins. y
„Þessi bygging hefur að síákf-*
sögðu mikla breytingu og útvíkk-,
un á starfsemi leikfélagsins í tór
með sér,“ sagði Stefán Baldurs-
son leikhússtjóri. „Það miðar þó
allt að því að starfsliði þurfi ekki
að fjölga í þessu nýja húsi, enda
viljum við ekki að leikhúsið verði
neitt bákn. Sjálfsagt verður þó
reynt að fjölga fastráðnum leik-
urum, þeir eru 18 núna á móti 17
lausráðnum.“ Stefán benti á það
að í raun eykst sætaframboð
Leikfélagsins ekki frá því sem nú
er, miðað við það að sýnt hefur
verið 1 Iðnó sem tekur um 200
manns í sæti, og tvisvar í viku í
Austurbæjarbíó sem tekur 800
manns í sæti. „Við stefnum að
því að auka fjölbreytni, ekki fjöl-
mennið,“ sagði Stefán.
Á þessu ári verður varið 70
milljónum í Borgarleikhúsið.
Eins og áður sagði er stefnt að
því að halda afmælisveislu borg-
arinnar þar, og verður þá minna
svið hússins tilbúið auk anddyr-
isins og forsalarins. Það var von-
arglampi i augum leikaranna
sem gengu um sali í þessu glæsi-
lega leikhúsi í gær, en í þeirra
hópi voru tveir fyrrverandi
leikhússtjórar við Tjörnina,
Sveinn Einarsson og Vigdís
Finnbogadóttir forseti Islands.
„Uppreisnin
á Bounty“ í
Laugarásbíói
VeitingahúsiÖ NAUST
óskar SJÓMÖNNUM
til hamingju með daginn
Meöal girnilegra rétta sem viö
bjóöum upp á af nýjum sérréttaseðli:
Laugarásbíó hefur tekið til sýn-
ingar stórmyndina „Uppreisnin á
Bounty“ (The Bounty). Söguþráöinn
ættu fiestir að kannast við en mynd-
in fjallar um leiðangur skipsins
Bounty til Tahiti og uppreisn áhafn-
arinnar. Hér er um að ræða þriðju
kvikmyndaútgáfu sögunnar.
Aðalhlutverk í myndinni eru í
höndum Mel Gibson sem er þekkt-
astur fyrir frammistöðu sína í
áströlskum kvikmyndum, svo sem
„Mad Max I & 11“ og „Gallipolli“.
Anthony Hopkins og Edward Fox
ieika einnig stór hlutverk en þeir
eru báðir gamalreyndir leikarar
og síðast en ekki síst kemur Sir
Laurence Olivier fram sem Hood
aðmíráll. Leikstjóri er Roger Don-
aldson en sýningartimi myndar-
innar er 130 mínútur.
í kvöld skemmtir hin frá-
bæra söngkona
Carol
Nielsson
Boröapantanir í sima 17759.
Undur Naustsins
— 0 —
Sjávarréttasúpa
— 0 —
Eftirlæti stýrimannsins:
Skötuselur, hörpuskelfiskur
og rækjur
— 0 —
Nautabuffsteik aö hætti
skipstjórans:
Pönnusteikt nautabuff og hörpuskel
— 0 —
Lambavöövi aö hætti þernunnar:
Marineraöur lambavöövi á
rósmarinsósu
— 0 —
Ostatrló Menage á Trois:
ostur innbakaöur I deigi
Haukur Morthens
og félagar
leika í kvöld
SJÓMANNADAGSHÓF
í SÚLNASAL
íkvöld 2. júní
Hófið hefst með borðhaldi kl. 19.30
Matseðill
Rjómalöguð kjúklingasúpa
Nautahryggur m. villisveppasósu
Mokkaís með kalúha-sósu
* Magnús og Finnbogi spila létta tónlist meðan borðhald stendur yfir.
-K Hin frábæra Carol Nielsen syngur lög úr þekktum söngleikjum m.a. CATS
•K Hinn óborganlegi ómar Ragnarsson skemmtir af sinni alkunnu snilld.
-K Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur fyrir dansi.
Borðapantanir og miðasala í anddyri Súlnasalar frá kl. 17-19 fimmtudag, föstudag og laugardag, eða í síma 20221.
(Tilvalið fyrir sjómenn á hafi úti að notfæra sér símaþjónustuna). Dansað til kl. 2.
Miðaverð meö mat kr. 1200. Verð kr. 350 fyrir aðra en matargesti.