Morgunblaðið - 02.06.1985, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. JtJNÍ 1985
B 49
Fermingarheitið er orð-
að á umburðarlegan hátt
Þorleifur Kr. Guðlaugsson,
Langholtsvegi 122, Rvík, skrifar:
Heiðraði Velvakandi!
Mig langar í tilefni af þættin-
um „Hvískur" í útvarpinu að
segja nokkur orð um þá undar-
legu hugsun, sem betur fer fárra
barna, að vilja ekki gangast
undir fermingarheitið og ekki
láta ferma sig.
Ekki er gott að segja hvað
þarna liggur að baki, en þó virð-
ist þetta í mörgum tilfellum
vera ákvörðun barnanna sjálfra,
en þó er það alveg órannsakað.
Á þetta að vera einhverskonar
hreinskilni við sjálfa sig? Þetta
er vanhugsun að mínu áliti. Ef
einstaklingurinn er svona
hreinskilinn, er fermingin alveg
sjálfsögð, þá hefur hann það í
vitund sinni að ekki er sama
hvað aðhafst er í lífinu.
Að gefa ekki þetta heit, getur
leitt til virðingarleysis við rétt-
lætið og er þá ekki langt í það að
Fyrirmynd-
ar framkoma
. Helgi Vigfússon skrifar:
Þjónusta við ferðamenn.
Benzínstöðin við Ægisíðu í
nágrenni Hellu er einstök. Inn-
andyra er allt hreint og fágað.
Háttvís framkoma afgreiðslu-
fólks er til fyrirmyndar. Aldrei
verður nógsamlega bent á nauð-
syn fyrirmyndarframkomu
þeirra er þjónusta ferðamenn.
Ættu sem flestir að kynnast
þessari benzínstöð af eigin raun;
umhverfi Ægisíðu er stórbrotið.
Velvakandi hvetur lesendur til að
skrifa þættinum um hvaðeina, sem
hugur þeirra stendur til — eða
hringja milli kl. 14 og 15, mánudaga
til föstudaga, ef þeir koma þvi ekki
við að skrifa. Meðal efnis, sem vel
er þegið, eru ábendingar og orða-
skipti, fyrirspurnir og frásagnir,
auk pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn,
nafnnúmer og heimilisföng verða
að fylgja öllu efni til þáttarins, þó
að höfundar óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina þvf til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti
sinn hlut ekki eftir liggja hér f
dálkunum.
telja sig mega aðhafast hvað
sem er og vera laus við samvisk-
una og Guð.
Þetta er ekki svona einfalt.
Enginn getur flúið Guð og heil-
agan anda og allir verða krafðir
yfirbóta í lífi og dauða.
Fermingarheitið er orðað á
mjög umburðarlegan hátt:
„Viltu leitast við að hafa Jesú
Krist að leiðtoga lífs þíns?"
Hver einstaklingur er bundinn
Guði hvort sem hann gefur heit
því viðvíkjandi eða ekki og er
því samband við Guð rofið um
ófyrirsjáanlegan tíma ef þetta
heit er ekki staðfest. Þetta er
Tvær nýklipptar skrifa:
Við vorum áðan að hlusta á
vinsældalista rásar 2. Hvernig
stendur á því að þessir Duran
Duran-aðdáendur geta ekki
hlustað á þessi eldgömlu hund-
leiðinlegu lög sín eins og „Save a
Prayer" og „Some like it hot“
heima hjá sér í staðinn fyrir að
vera að troða þessu rusli inn á
vinsældalistann? Þetta er öllum
öðrum en þessum vissa hópi til
mikillar skapraunar.
Að lokum ætlum við að biðja
um að hljómsveitin „Frankie
goes to Hollywood" komi á lista-
hátíð. Við hvetjum alla
því flótti frá veruleikanum, frá
Guði, frá kirkjunni og sínum
innra manni sem Guð býr í.
Þetta kom greinilega fram hjá
einum viðmælenda þáttarins
„Hvískur".
Trúin er engin spurning um
heill og hamingju mannkynsins.
Ekkert getur komið í staðinn, en
hún þarf að vera ómenguð eins
og frelsarinn boðaði hana og
boðorðin tíu hljóða upp á.
Einhvern tíma á lífsleiðinni
kemur sú staða að ekki er kom-
ist framhjá Guði. Hann krefur
til íhugunar um andlegt líf eftir
dauðann.
Frankie-aðdáendur til að taka
undir það.
Ég veit um marga sem biðja
um „Some like it hot“. Samt fell-
ur lagið og fellur og þeir væla
áfram. Við vitum líka um marga
sem hringja og biðja um al-
mennileg lög án þess að lögin
hækki sig neitt. Og af hverju er
það? Vegna þessar einföldu
ástæðu að þessir svindlarar gera
hvað sem þeir geta til að hækka
lagið sitt. Jafnvel vitum við þess
dæmi að heilaþveginn Duran
Duran-aðdáandi hafi hringt
þrisvar sinnum til að biðja um
sama lagið. Við bara spyrjum:
Hvað græðið þið á þessu?
Að pólitískum banabeði
berst nú Svavar jafnt ogþétt.
Þetta er engin Þórðargleði,
Þetta er bara satt og rétt.
Hákur
Nú er nóg komið
Innilegar þakkir til ættingja minna og vina,
sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum og
skeytum á 70 ára afmæli mínu.
Guö blessi ykkur öll.
Stefanía Gudmundsdóttir,
Gautlandi 1.
HÖFUM OPNAD
NÝJA
BÓN- OG ÞVOTTASTÖÐ
O Gufuþvoum vélar
og felgur
Q Ðjúphreinsum
sætin og teppin
O Notum
eingöngu hid
nídsterka
Mjallarvaxbón
BÓN- OG ÞVOTTASTÖDIN
V/UMFERÐARMIÐSTÖÐINA - Simi 21*46
Einstaklingar, fyrirtæki
á sviöi heilsuræktar
BIOPULSE
— nuddtæki til sölu
sjálfstæða, létta atvinnu; eða sem viöbót viö rekst-
ur Ijósastofu eða heilsuræktarstöð.
Mælt er með meðferð í tækinu við gigt, vöðva-
bólgu, astma, beinkölkun, taugabólgu og fl.
Tækið er mjög einfalt í notkun.
Nánari upplýsingar á skrifstofu vorrí.
Fasteignasalan Bústaðir, s. 28911.
VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS
STOFNAÐUR1905
Innritun
1985—1986
Verslunardeild:
Inntökuskilyröi; Grunnskólapróf.
Nemendur skulu skila umsóknum ásamt afritum
(ekki Ijósritum) af grunnskólaprófi sínu á skrif-
stofu skólans, Grundarstíg 24, eigi síöar en 6. júní
nk. kl. 4 e.h.
Skólinn tekur inn nemendur án tillits til búsetu
þeirra.
Lærdómsdeild:
Inntökuskilyrði: Verslunarpróf með þýsku og
tölvufræði og 6,50 í aðaleinkunn.
Umsóknarfrestur er til 7. júní. Umsóknareyöublöö
fást á skrifstofu skólans.