Morgunblaðið - 02.06.1985, Side 51

Morgunblaðið - 02.06.1985, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 1985 B 51 Mamma Mia Umtalaöasta par bandarískra kvikmynda um þessar mundir eru án vafa Mia Farrow og Woody All- en, umkomuleysinginn og dvergur- inn, eins og einn gagnrýnandi kall- aöi þau. Woody Allen, sennilega frjóasta og frumlegasta kvik- myndaskáldiö í vesturheimi, gerir u.þ.b. eina mynd á ári og í hverri einustu finnur hann pláss handa Mlu. Dvergurinn knái stóð á kross- götum í lífi sínu þegar Diane Keat- on sagöi skiliö viö hann áriö 1980. Þau höföu leikið saman í nokkrum listaverkum, svo sem Ást og dauöi, Annie Hall og Manhattan. Þá fannst Diane kominn tími tll að breyta til, og sneri sér aö Warren Beatty. En Woody var ekki lengi aö koma auga á nýjan lífsförunaut. Hann hitti Miu Farrow í fyrsta skipti í nýársfagnaöi 1980, skömmu eftir að hún haföi skiliö viö André Prev- in. Mia lék þá í þekktu verki á Broadway, og Woody sótti sýn- ingarnar stíft. Woody var þá aö byrja á „A Midsummer Night’s Sex Comedy“ og hann bauö Miu hlut- verk sem hún þáöi. Þar með hófst nýr ferill sem hef- ur boriö ríkulegan ávðxt, og er undarlegt til þess aö vita aö ekkert kvikmyndahús hér á landi skuli sýna þessum mikla listamanni áhuga. Ef undirritaðan misminnir ekki hefur engin kvikmynd eftir Woody Allen veriö sýnd hérlendis síöan 1979 (Manhattan). Vonandi sjá reykvískir kvikmyndahúsaeig- endur sig um hönd og leyfa okkur aö berja augum verk Woody All- ens. Mynd númer tvö hjá Woody og Miu nefndist Stardust Memories og fékk hún œöl misjafna krftík, en annaö var uppi á teningnum þegar Woody sendi frá sér Zelig (1983) sem er eínhver óvenjulegasta mynd hans. Því næst kom Broad- way Danny Rose, en í þeirri leikur Mia stórt hlutverk sem Woody skrifaöi fyrir hana aö hennar ósk. Þau höföu snætt á ítölskum veit- ingastaö og séö undarlega konu viö næsta borö: þessa konu vildi Mia leika og Woody var langt frá því aö vera ósammála. Snemma á þessu ári byrjaöi Woody á enn einni myndinni, en í þeirri ætlar hann ekki aö leika, eingöngu aö leikstýra, en Mia leikur aöalhlut- verkiö: The Purple Rose of Cairo. (Lfstinn lengist meöan kvikmynda- húsaeigendur sitja aögeröarlausir.) Mia Farrow slysaöist inn á leik- listarbrautina þegar systkinahóp- urinn stóö uppi fööurlaus. Tvítug sló hún í gegn i sjóvarpssápum, en fyrsta stórmynd hennar var Rose- mary’s Baby (1968). Hún þvældist á milli leikstjóra, leikenda og eíg- inmanna (Frank Sinatra, André Previn og Sven Nykvist). Hún virt- ist hvergi geta fótaö sig og þar af leiöandi uppnefnd flækingurinn, eöa umkomuleysinginn. Hún lék meö Dustin Hoffman í „John og Mary“ (1969) og Robert Redford í „Great Gatsby" (1974). Mia foröast sviösljósiö og líkist Robert De Niro og Woody Allen í þeim efnum. Hún veitir aldrel viötöl og m.a. þess vegna á slúðrið greiöa leiö til fjölmiölanna, en fáir hafa orðiö eins illa fyrir baröinu á slúöri og einmitt Mia Farrow. Hún er sögö kvíöa hverri einustu mynd, yfirnáttúrulega feimin, en þaö hlýt- ur aö hafa breyst eftir aö hún kynntist Woody Allen, því hann vinnur alltaf meö sama fólkinu. HJÓ Woody Allen og Mia Farrow f „Broadway Danny Roaa“. . j ... • - - - . x V i / . :./:; . . ■ ■ ^HHHHHHHHHH Dýpkunarskipið Vestmannaey að störfum f Vestmannaeyjahöfn. MorgunbladiA/Sigurgeir Dýpkimarskipið Vestmannaey: Hefur unnið við dýpkun hafnarinnar í hálfa öld Björgvin Jónsson er elsti starfsmaðurinn um borð f dýpkunarskipinu Vest- mannaey. Hann hefur starfað þar í meira en 20 ár. V efltmannaeyjum, 29. maf. I DAG eru liðin nákvæmlega 50 ir fri því dýpkunarskipið Vestmannaey kom hingað til Vestmannaeyja og f alla þessa hálfa öld hefur skipið unnið við dýpkun og hreinsun hafn- arinnar. Skipið hefur verið fastur punktur í tilverunni við höfnina og á skipinu hafa starfað margir menn svo áratugum skiptir. Nokkur aðdragandi var að kaupum skipsins en lengi höfðu menn gert sér grein fyrir þeirri ríkjandi þðrf sem var á því að dýpka höfnina og þá sérstaklega Leiðina svokölluðu sem á voru nokkrir hættulegir trafalar. Árið 1928 spurðist Finnbogi R. Þor- valdsson fyrir um það hjá ráða- mönnum í Vestmannaeyjum hvort áhugi væri fyrir því að hann kann- aði möguleika á þvi að kaupa sanddæluskip hingað til Eyja. Var það samþykkt og árið eftir var leitað leyfis Alþingis til kaupanna. Ekki var málið lagt fyrir Álþingi fyrr en 1930 og fékk það þá frekar dræmar undirtektir og það var ekki fyrr en 1933 sem skriður komst á málið, en þá fór Finnbogi R. Þorvaldsson utan og aflaði hann tilboða í mörgum löndum. 15. maí það ár var ákveðið að taka tilboði frá fyrirtæki í Fredriks- havn á Jótlandi i Danmörku. Árið 1934 fékkst styrkur frá hinu opinbera til skipakaupanna og þá var endanlega gengið frá kaupun- um. Skipið kom síðan til Eyja 29. mai árið 1935 og mun hafa kostað 162.020,25 krónur. Alla tíð siðan hefur skipið þjón- að dyggilega i viðhaldi og endur- nýjun hafnarinnar og i tilefni hálfrar aldar afmælisins var flaggað á skipinu og hafnarsvæð- inu og rjómatertur voru snæddar um borð. - hkj. Sumarferð Varðar Hin árlega sumarferð Varðar verður farin laugardaginn 29. júni nk. og að þessu sinni verður ekið um Borgarfjörð með viðkomu á ýmsum stöðum. Leiðarval verður nánar auglýst síðar en upplýsingar eru veittar á skrifstofu Varðar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.