Morgunblaðið - 08.06.1985, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGAADAGUR 8. JÚNÍ 1985
5
Morgunbladid/Júlíus
Páll Samúelason og Bogi Pálsson vid nýja MR2-sportbflinn sem verður á bflasýningunni um helgina.
P. Samúelsson og Co. 15 ára:
Nýjustu Toyota-bflarnir sýndir um helgina
INNFLYTJANDI Toyota á íslandi, P. Samúelsson og Co. á 15 ára afmæli
um þessar mundir og af því tilefni verður efnt til sýningar á ýmsum nýjum
gerðum Toyota-bfla í húsakynnum fyrirtækisins á Nýbýlavegi 8, sem standa
mun þessa belgi.
Meðal bíla á þessari sýningu
verður Toyota MR2, sportlegur
bíll sem kjörinn hefur verið bíll
ársins bæði í Japan og Bandaríkj-
unum, en einnig ný og stytt gerð
af Land Cruiser-jeppanum, sem
þegar hefur selst mikið af hér á
landi á þeim stutta tíma sem liðin
er síðan þessi útgáfa var kynnt
hér. Einnig verða á sýningunni al-
gengustu fjölskyldubilarnir frá
Toyota — bæði Corolla, Camry,
Cressida og Tercel með fjórhjóla-
drifi sem nýtur mikilla vinsælda
hér á landi. Toyota-umboðið hér
hefur einnig á boðstólum sendi-
bíla, litla vörubíla og vörulyftara.
Toyota er nú annar stærsti
bílaframleiðandi veraldar á eftir
General Motors og stærsti bíla-
framleiðandinn I Japan. Fyrsti
Toyota-bíllinn var framleiddur
1935 en I mars 1983 höfðu verk-
smiðjurnar framleitt alls um 40
milljónir bíla. A síðasta ári voru
alls framleiddir 3.429.249 sem
voru um 30% af bílaframleiðslu
Japana það árið, þannig að þetta
ár voru framleiddir nær 9.400 bíl-
ar á dag að meðaltali. Toyota-
bílar eru í dag seldir til um 140
þjóölanda um allan heim, og gerð-
irnar eru oft mismunandi milli
landa þvi að leitast er við að sníða
bílana að kröfum og óskum kaup-
enda á hverjum stað, en jafn-
framt kom það fram á fundi með
forráðamönnum P. Samúelsson og
Co. að af hálfu Toyota hefur jafn-
an verið lögð mikil áhersla á vöru-
vöndun. Nýleg skoðanakönnun I
V-Þýskalandi sýndi t.d. að þar
voru það Toyota Tercel og Corolla
sem höfðu lægstu bilanatiðni
allra bifreiða.
Fyrstu 3 mánuði þessa árs er
markaðshlutdeild Toyota hér á
landi nær 12% en markaðshlut-
deild Toyota á Bandaríkjamark-
aði eru um 5,7% og í Evrópu um
3,1% sem Toyota í Japan hefur
mikinn áhuga á að auka. Hjá
Toyota-umboðinu hér á landi
starfa nú um 40 manns og i hús-
næði fyrirtækisins á Nýbýlavegi,
alls um 2600 m‘, fer fram sala á
nýjum og notuðum bilum, sala á
vörulyfturum, varahlutasala, og
þar er verkstæði og réttingaverk-
stæði. Á þessu ári er einnig verið
að ganga frá samningum við 18
þjónustuaðila viðs vegar um land-
ið til að annast viðgerðir, viðhald
og eftirlit með Toyota-bílum, og
er í tengslum við varahlutaversl-
unina rekin landsbyggðarþjón-
usta þar sem allar pantanir eru
afgreiddar samdægurs út á land,
en allt þetta á að tryggja Toyota-
eigendum að fá sömu gæðaþjón-
ustu án tillits til þess hvar þeir
búa á landinu.
Bilasýningin i Toyota-húsinu,
Nýbýlavegi 8, mun standa frá kl.
10—5 i dag, laugardag, og frá kl.
1—5 á morgun, sunnudag.
Sala ríkisskuldabréfa á alþjóðamarkaði:
Lánsfjárhæð hækkuð
í 125 milljónir Banda-
ríkjadala vegna mik-
illar eftirspurnar
FYRR í vikunni voru boöin út fyrir hönd ríkissjóðs, skuldabréf að
fjárhæð 125 milljónir Bandaríkjadala, tæplega 5,2 milljarða króna, á
alþjóðlegum markaði. Breska dagblaðið Financial Times, skýrði svo
frá að hér hafi verið um velheppnaða útgáfu að ræða, enda hafl
bréfln mætt mikilli eftirspurn. Hér var um að ræða fjáröflun vegna
lánsfjáráætlunar ársins 1985, en hluti fjárins verður notaður til að
greiða upp eldri lán. Útboðinu lauk í gær.
Upphaflega var fyrirhugað að
skuldabréfaútgáfa ríkissjóðs
næmi 100 milljónum Bandaríkja-
dala, en vegna mikillar eftir-
spurnar var lánsfjárhæðin aukin
í 125 milljónir dala. Bank of Am-
erica International hefur útgáfu
bréfanna með höndum, en nálega
30 bankar víðs vegar um heim,
taka þátt í að selja bréfin.
Kjör láns þessa eru þau, að
greitt er %% álag ofan á milli-
bankavexti í London en lántöku-
þóknun er W %. Bréfin eru til 15
ára en innleysanleg af hálfu
kaupanda í lok 10. og 12. árs.
Seðlabanki íslands hefur með
höndum undirbúning lánsfjáröfl-
unar á vegum ríkissjóðs. Að sögn
Sigurgeirs Jónssonar, aðstoðar-
bankastjóra, var með útgáfu
þessari stigið nýtt skref í lántök-
um erlendis enda er hér um að
ræða markað, sem getur boðið
hagkvæmari kjör, en beinar lán-
veitingar banka fela í sér.
Sigurjón sagði að lánsfénu yrði
varið til framkvæmda á vegum
ríkisins í samræmi við lánsfjár-
áætlun, en sá hluti fjárins, sem
er umfram lánsfjárþörf ríkisins í
ár, verður notaður til að greiða
upp eldri lán með óhagkvæmari
kjörum.
Hækkun á
dagpeningum
DAGPENINGAR ríkissUrfsmanna á
feróalögum innanlands og utan kækk-
uðu um því sem næst 12% fri 1. júnf
sl. Ákvörðun þessa efnis er tekin af
ferðakostnaðarnefnd og var auglýsing
þar að lútandi birt í nýlegu Lögbirt-
ingablaði.
Almennir dagpeningar erlendis
hafa hækkað f 120,5 SDR en f New
York er upphæðin 158 SDR á dag.
Dagpeningar vegna þjálfunar,
náms og eftirlitsstarfa f New York
eru nú 98 SDR en annars staðar 75
SDR.
Innanlands eru dagpeningar til
greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar
sem hér segir:
1. Gisting og fæði í einn sólar-
hring kr. 2.100.
2. Gisting í einn sólarhring kr.
900.
3. Fæði hvern heilan dag, minnst
10 tíma ferðalag, kr. 1.200.
4. Fæði hvern hálfan dag, minnst
sex tíma ferðalag, kr. 600.
Síðasti
leikur
Islands
í heimsmeistarakeppninni er gegn
Spanverjum
á Laugardalsvelli 12. júní nk._
Nú þurfa íslendingar að standa saman í baráttunni og mæta á völlinr
Forsala aðgöngumiða er hafin
í bifreið á Lækjartorgi, í versl. Óðni á Akranesi,
Sportvík Keflavík og á Akureyri hjá Ferðaskrifstofu Akureyrar
Veitingaskálinn Ferstikla Hvalfirði fcreÍjjÍHf Þorgeir og Ellert Akranesi
Til Spánar meö
FLúGLEIDlR
•wvndaiwSíthf Heimaskagi
A0ALSTR4: .'I \ - REVKJAV' : ®
AOALSTR4 .'I * ~ REYKJAV! i
PRENTMYNOAGCR
OFFSET-FILMLin OO PLÖTU.:
Síldar- oc; fisklmjölsverkamidjar Akranesð