Morgunblaðið - 07.07.1985, Síða 1
96 SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
151. tbl. 72. árg.
SUNNUDAGUR 7. JÚLÍ 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Harmleikurinn í Briissel:
Þingmenn
vilja að ráð-
herra víki
Britasel, 6. júli. AP.
BELGÍSKIR þingmenn, nem rann-
sakað hafa atburðina á Heysel-
leikvanginum, þegar 38 manns fór-
ust í skrflslátum fyrir upphaf
knattspyrnukappleiks, krefjast af-
sagnar innanríkisráðherrans,
Charles-Ferdinand Nothomb, sem
yfírmanns lögreglu landsins.
Þingmennirnir segja að stuðn-
ingsmenn knattspymufélagsins
Liverpool hafi framið glæpinn og
séu valdir að blóðbaðinu, en dug-
leysi lögreglunnar sé óbeint um að
kenna hvernig fór.
Ennfremur er ábyrgðinni að
hluta til skellt á Knattspyrnusam-
bönd Evrópu (UEFA) og Belgíu.
Lokun Beirútflugvallar:
Líbanir
ráðgast við
Sýrlendinga
Beirút, 6. júlí. AP.
LEIÐTOGAR múhameðstrúar-
manna í Líbanon koma saman til
fundar í Uamaskus, höfuðborg Sýr-
lands, nú um helgina. Þeir hyggjast
ráðgast við stjórnvöld þar um leiðir
til að binda enda á yfirráð herskárra
shíta yfir flugvellinum í Beirút og
koma á lógum og reglu í þeim hlut-
um borgarinnar sem herflokkar
stríðandi fylkinga múhameðstrúar-
manna vaða uppi.
OPEC-ríkin íhuga að
stofna ný sölusamtök
Vw, 6. júlí. AP. V
Samkvæmt heimildum í Beirút
fer Hussein Husseini, forseti líb-
anska þingsins, sem er shíti, til
Damaskus í dag. Rashid Karami,
forsætisráðherra Líbanons, sem
er sunníti, fer þangað á morgun,
sunnudag. Nabih Berri, dóms-
málaráðherra og helsti leiðtogi
shita, fór til Damaskus á föstudag
og er búist við því að hann verði
þar fram á þriðjudag. Þá er von á
Walid Jumblatt, leiðtoga drúsa, til
borgarinnar í dag.
Blöð sýrlensku stjórnarinnar
gagnrýna í dag harkalega ákvörð-
un Bandarikjastjórnar að banna
bandarískum flugvélum að lenda á
flugvellinum í Beirút. Sú ákvörðun
var tekin í framhaldi af gíslamál-
inu á dögunum.
LEIÐTOGAR OPEC, samtaka
olíuútflutningsríkja, íhuga nú að
stofna ný samtök til að samhæfa
olíusölu aðildarríkjanna.
Subruto, olíuráðherra Indó-
nesíu, sem er forseti OPEC,
skýrði fréttamönnum, sem fylgj-
ast með ráðherrafundi samtak-
anna í Vín, frá þessu í morgun.
Hann sagði, að hugmyndin væri
sú að tryggja að tekjur OPEC-
ríkjanna væru stöðugar og
hindra snöggt verðfall á olíu.
„OPEC-ríkin eru staðráðin í að
verja markaðshlutdeild sína og
olíuverðið," sagði Subroto við
fréttamenn að loknum tveggja
tíma fundi olíuráðherranna í
morgun. Hann sagði að allir
ráðherrarnir væru sammála um,
að halda sig við núverandi verð,
sem er 28 doltarar fyrir tunnuna,
og breyta ekki framleiðslukvóta
aðildarríkj anna.
Francisco Labastida Ochoa,
olíuráðherra Mexíkó, lét að því
liggja í viðtali við hina opinberu
fréttastofu landsins, að ríkis-
stjórnin kynni að lækka verð á
hráoliu einhliða, ef ekki tækist
samkomulag um olíuverð á ráð-
herrafundinum í Vín. Ochoa er
áheyrnarfulltrúi á fundinum.
■
Mexíkó er umfangsmikill út-
flytjandi olíu og fréttaskýrendur
segja, að verði hráolía þaðan
lækkuð í verði komist OPEC-
ríkin 13 ekki hjá því að fylgja á
Hreinsað til í Kremi
Maakvu, 6. júlí. AP.
HREINSAÐ var til í sovézka stjórnkerfinu í morgun og nú var ráðherra
járns- og stálvinnslunnar, Ivan P. Kazanets, látinn víkja. Við starfi hans tók
Serafim V. Kolpakov, sem verið hefur fyrsti aðstoðarráðherra Kazanets frá
1981.
Mikhail S. Gorbachev flokks-
leiðtogi gagnrýndi málmiðnaðinn
harðlega í tvígang í siðasta mán-
uði fyrir léleg afköst og slæma
framleiðni. Kvað hann Sovétmenn
mestu stálframleiðendur heims en
samt líða krónískan skort á þeim
málmi. Kemur það m.a. niður á
hergagnaframleiðslunni. Kvað
hann nauðsynlegt að hraða tækni-
væðingu stálvera og gagnrýndi að-
gerðarleysi í þeim efnum.
Kazanets hefur farið með mál-
efni járn- og stáliðnaðarins frá
1965, eða í tvo áratugi. Hann er 67
ára. Af opinberri hálfu heitir það
að hann hafi látið af starfi „af
heilsufarsástæðum".
Dzhumber I. Patiashvili hefur
verið skipaður leiðtogi Kommún-
istaflokks Georgiu i stað Eduard
A. Shevardnadze, sem gerður var
utanríkisráðherra Sovétrikjanna
fyrr í vikunni. Patiashvili hefur
verið í stjórnmálaráði Georgíu-
deildarinnar frá 1974. Hafði hann
með landbúnaðarmál að gera.
eftir.
Fawzi Shakshuki, olíuráðherra
Líbýu, sagði við fréttamenn er
hann kom á fund OPEC-ráðherr-
anna í morgun, laugardag, að
hann væri þess fullviss að sam-
komulag myndi nást. Hann kvað
Líbýumenn ekki geta fallist á
verðlækkun, en þeir gætu hins
vegar sætt sig við að dregið yrði
úr framleiðslunni sem næmi allt
að hálfri annarri milljón tunna á
dag.
Oliuframleiðsla OPEC-ríkj-
anna hefur numið 16 milljónum
tunna á dag, en minnkandi eftir-
spurn og aukin olíuframleiðsla
ríkja utan samtakanna, s.s. Bret-
lands, hefur haft það í för með
sér að undanfarna tvo mánuði
hefur framleiðslan verið 14 millj-
ónir tunna á dag.
Orka í bráðnu
bergi virkjuð
Lo« AnfEelrH, 5. júli. AP.
Á VEGUM handaríska orkuráóuneytsins veróur á næstunni boraó nióur
í kvikuþróna í því skyni að nota jaróvarmann í bráónu bergi til orku-
framleióslu. Kosta mun 20 milljónir dollara aó bora holuna, en verkió
allt, þ.m.t. bygging orkuvers, 100
milljaróa króna.
Borað verður niöur í kviku-
þróna á árinu 1988, samkvæmt
áætluninni, i Kaliforníu eða
Oregon. Holan verður um 5 kíló-
metra djúp, og hefur ekki áður
verið borað jafn djúpt i þessu
skyni. Borað var niður í kviku-
þróna undir eldfjallinu Kilauea
á Hawaii fyrir nokkrum árum,
en 8Ú hola var aðeins nokkur
hundruð metra djúp.
Köldu vatni verður dælt niður
milljónir dollara, eóa jafnvirói 4.2
í kvikuþróna, þar sem það breyt-
ist í gufu, og gufan mun knýja
hverfla, sem framleiða rafmagn.
Núverandi jarðhitaver nýta ým-
ist gufu eða heitt vatn af hlut-
fallslega litlu dýpi til orkufram-
leiðslu. Jarðvísindamenn segja
að þannig verði um hnútana búið
að engin hætta verði á að kvikan
þröngvi sér upp um holuna og
gos hefjist.