Morgunblaðið - 07.07.1985, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. JÚLÍ 1985
Hið íslenska Biblíufélag 170 áræ
Stefnan að gefa öllum
fermingarbörnum Biblíu
HIÐ ÍSLENSKA BIBLÍUFÉLAG
verdur 170 ára í næstu viku, nánar
tiltekið 10. júií.
Biblíufélagið er elsta starfandi
félag á landinu og var stofnaö 1815
að frumkvæði Ebenenzer Hend-
erson trúboða. Tilefni stofnunar-
innar rekur Ebenezer í ferðasögu
sinni: „Erindið var að koma þarl-
endum mdnnum í skilning um hve
mikilsvert það væri að mynda Bi-
blíufélag í landinu_ Skyldi það
vera hlutverk félagsins að sjá þjóð-
inni sífeildlega fyrir heilagri rit-
ningu á tungu landsins."
f tilefni afmælisins verður sér-
stök hátíðarguðsþjónusta í Ha-
llgrímskirkju á Sköiavörðuhæð
kl. 5:00 síðdégis 10 júli. Eftir
messu mun stjórn Biblíufélags-
ins halda sérstakan hátíðarfund í
safnaaðrsal kirkjunnar.
Á Skálholtshátíðinni 21. júli
verður þessara tímamóta sér-
staklega minnst. Á síðdegiss-
amkomu hátíðarinnar mun sr.
Felix Ólafsson prestur í Kaup-
mannahöfn flytja erindi um Eb-
enenzer Henderson en sr. Felix
hefur um langt árabil kynnt sér
kögu hans. Guðrún Ásmundsd-
óttir leikkona mun einnig minn-
ast Odds Gottskálkssonar og
hvers vegna hann hóf að þýða
nýja testamentið i fjósinu i
Skálholti. Hún hefur nýlega
stofnað leikhús kirkjunnar og er
ætlunin að flytja leikverk í kirkj-
um landsins.
í tengslum við Skálholtshátíð-
in verður framhaldsaðalfundur
hins íslenska Biblíufélags laug-
ardaginn 20. júlí en honum lýkur
formlega á hátíðinni sjálfri.
f lögum hins íslenska biblíufé-
lags kemur fram að hlutverk
þess er þríþætt: í fyrsta lagi að
sjá þjóðinni fyrir þýðingu á bíblí-
unni á skiljanlegritungu. Einnig
skal félagið sjá um framleiðslu
og dreifingu bókarinnar og loks
er það einnig I verkahring þess
að örva lestur og áhuga almenn-
ings á biblíunni.
Að sögn Hermanns Þorsteins-
onar framkvæmdastjóra félags-
ins stendur til að kynna biblíuna
sérstaklega fyrir æskunni á ári
hennar. „f samvinnu við Gídeon-
félagið sem verður 40 ára í águst,
verður gengist fyrir mynda- og
ritgerðarsamkeppni meðal tíu
ára barna næsta haust. Einnig er
á stefnuskrá félagsins að öll fer-
mingarbörn fái bíblíuna þegar
þau gangi til prests því það er
eins með bíblíuna og aðra hluti
að það þarf að læra að nota hana
til hún komi að gagni.“
„Siðasta prentun biblíunnar
var gefin út 1981 og frá þeim
tíma hafa hvorki fleiri né færri
en 40.000 eintök af henni og nýja
testamentinu dreifst um landið.
Þannig vitum við að íslendingar
eiga nóg af bíblíunni. Þá er
næsta skref að fá fólk til að lesa
biblíuna ofan í kjölinn, en ekki
aðeins á kjölinn eins og Jónas
Jónasson útvarpsmaður segir“.
Olof Lager-
crantz flytur
fyrirlestra
SÆNSKI bókmenntafræöingurinn
og skáldið dr. Olof Lagercrantz
kemur hingað til landsins í boði
Norræna hússins í dag og í kvöld
heldur hann fyrirlestur um August
Strindberg í Norræna húsinu.
f fréttatilkynningu frá Norræna
húsinu segir að Lagercrantz þyki
manna fróðastur um líf Strind-
bergs og list. Hann hefur gefið út
tvær bækur um Strindberg í
heimalandi sínu.
Koma Lagercrantz hingað
markar upphaf Strindbergs-hátíð-
ar segir ennfremur í fréttatil-
kynningunni, því 11. júlí frumsýni
Stúdentaleikhúsið leikritið „Ett
drömspel“ og 25. júlí verður opnuð
sýning á ljósmyndum Strindbergs
í Norræna húsinu.
Fyrirlesturinn hefst kl. 21.30.
Á mánudaginn, klukkan 17.15,
flytur Lagercrantz opinberan
fyrirlestur í boði heimsptekideildar
Háskóla íslands í stofu 101, Odda,
hugvísindahúsi háskólans. Fyrir-
lesturinn fjallar um „listina að
lesa og skrifa".