Morgunblaðið - 07.07.1985, Page 4

Morgunblaðið - 07.07.1985, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. JÚLÍ 1985 Gjafir í Orgelsjóð Hallgrímskirkju ORGELSJÓÐI Hallgrímskirkju berast enn góðar gjafír. Nú i vor barst 100 þúsund króna gjðf frá einstaklingi, sem ekki vill að nafn hans sé látið uppi og Múrarafélag Reykjavíkur gaf 50 þúsund krónur. Hallgrims- kirkja vill koma þakklæti sfnu á framfæri við ofangreinda gefendur svo og við alla aðra sem lagt hafa lið söfnuninni „Seðill f orgelsjóð”. Ef söfnunin heldur áfram að ganga vel ættu landsmenn ekki að þurfa að biða lengi eftir hinu glæsiega pípu- orgeli, sem verður það stærsta hér á landi. Afgreiðslufrestur slíks hljóðfæris er 2—3 ár. Forráðamenn Hallgrfms- kirkju telja ekki ráðlegt að panta orgelið fyrr en safnast hefur um V4 af heildarverðinu, en áætlað er, að orgelið kosti a.m.k. 15 milljónir króna. (0r rrétutilkrnninfu) Stykkishólmur: Minnst 50 ára starfs Fransiskussystranna StTkkishólmi. 2. rölf. StTkkisliólmi, 2. jóll. SUNNUDAGINN 30. júní var þess minnst við hátíðlega guðsþjónustu f kapellu sjúkrahússins í Stykkishólmi að 50 ár eru liðin síðan regla Fransisk- ussystra hóf hér líknar og sjúkrastörf. Athöfnin hófst með því að séra Frehen biskup predikaði og síðan flutti Ellert Kristinsson oddviti Stykkishólmshrepps snjallt ávarp, minntist hins mikla starfs er unnið hefir verið af systrunum hér í bæ, rakti hversu störf þeirra hefðu tengst hverjum þegn þessa byggð- arlags. Afhenti hann þeim inn- bundna bók með nöfnum bæjarbúa, hreppsnefndar og félaga, sem færðu sy8trunum að gjöf vandaða bifreið og afhenti þeim síðan lykil bifreiö- arinnar, bað þeim allrar blessunar á komandi tímum. Á eftir var öllum boðið til veit- inga. Þar flutti Jóhannes Árnason sýslumaður ávarp frá sýslubúum og afhenti með þökkum fyrir farsæla starfsemi kr. 250 þúsund frá sýslu- nefnd. Systir Lena sem nú gegnir for- stöðu i sjúkrahúsinu flutti síðan ræðu, þar sem hún ávarpaði oddvita og sveitarstjóra, Sturlu Böðvarsson, hreppsnefnd, sýslumann og færði þeim þakkir og árnaðaróskir, einnig mælti hún til lækna og starfsfólks. Komst hún meðal annars svo að orði: í tilefni 50 ára starfs og merkra tímamóta langar mig til að flytja nokkur orð fyrir hönd okkar systra. Er við nú komum saman á slíkum tímamótum er í hjörtum okkar systranna fögnuður og þakklæti. Fyrir hálfri öld leiddi Drottinn okkur á þennan stað. Hann hefir blessað hvern dag, veitt okkur gleði og þrek. Vinátta fólksins hefir verið okkur lyftistöng I starfinu. Mikið þakkarefni er sá hlýhugur, sam- starf og velvilji bæjarbúa og ann- arra vina og samstarfsfólks, sem hefir yljað okkur gegnum árin og gert okkur kleift að reka þessa starfsemi. Ef við látum hugann reika aftur í tímann verður okkur ljóst að löng er leiðin sem gengin hefir verið. Við stöldrum við á bryggjunni, er fyrstu systurnar stigu á land 27. júní 1935. Þær mörkuðu fyrstu sporin í ókunnu landi sem nú er orðið okkar heimaland og Stykkis- hólmur okkar annað heimili. Mörg ykkar sem hér eruð munið þann dag, munið fyrstu systurnar betur en við flest sem nú erum hér. Ég nefni sérstaklega systur Am- öndu sem var fyrsta príorinnan, starfaði hér frá 1936 til 1951 og aft- ur frá 1958 til 1964. Nú er hún 78 ára og enn starfandi meðal aldr- aðra systra i Belgíu. Við buðum henni hingað en hún treysti sér ekki til að ferðast svo langt, en hún man okkur og sendi innilegar þakk- arkveðjur til allra sem aðstoðuðu og veittu hjálp og til vina og kunn- ingja. Fyrir þeim sem látnir eru bið ég sérstaklega. Þökk fyrir allt. Þetta er kveðjan frá henni. Okkur verður hugsað til systur Erneliu, hún starfaði hér í 40 ár, frá byrjun til 1975 og er mörgum minn- isstæð fyrir hve nálæg hún ætlð var í gleði og sorg, muna fæðingarhjálp, hjúkrun og kímnigáfu er henni var gefin, hversu hún við sjúkrabeð gat dimmu í dagsljós breytt með hnyttnum orðum er hún gekk um stofur. Síðustu árum eyddi hún með systur sinni i Belgíu og lést 1983. Ég vil minnast systur Elisabetar er hér starfaði frá 1936 uns hún lést hér 1963 og hvílir hér í Hólminum. Fleiri þætti nefni ég ekki. Myndir og minningar þessara 50 ára verða til sýnis hér í nokkra daga í sjúkra- húsinu. Jú, einu má ekki gleyma, en það er systir Anna sem hér hefir starf- að I 50 ár í haust. Hún hefir sagt okkur margt um liðinn tima og frætt okkur um fyrstu ár systranna hér á landi, en það er of langt mál i stuttu spjalli. En þakklæti okkar verður aldrei of oft endurtekið. Ég vil þá fyrst nefna Sturlu Böðvarss- on sveitarstjóra sem hefir verið okkur leiðbeinandi og hjálparhella i samvinnu við ísl. aðila um barna- heimilið, byggingu sjúkrahússins o.fl. Læknum þeim sem hér hafa starfað skulu fluttar hjartans þakkir og sérstakar þakkir til Öla Kr. Guðmundssonar sem hefir verið yfirlæknir sl. 5 ár, og þakkir til samstarfsmanna hans læknanna sem ávallt eru reiðubúnir til að- stoðar á sjúkrahúsinu. Við gleym- um heldur ekki starfsfólkinu, bygg- ingarmönnunum og öllum þeim sem hafa lagt hönd á plóginn i hjálp og liðveislu. Við lítum til baka með þökk og gleði og björtum augum til framtiðarinnar og samstarfs bæj- arbúa. Heiðursmerki það sem forseti veitti okkur 17. júni sl. var stór af- mælisgjöf og okkur mikill heiður. Kæru bæjarbúar. Fyrir hina rausnarlegu gjöf ykkar, þennan glæsilega bíl, skortir okkur orð til að þakka. Meðan við vorum billaus- ar urðum við áþreifanlega varar hjálpfýsi er á þurfti að halda. Megi blessun fylgja ykkur alla tíð og þessum góða stað. Þannig mælti príórinnan og allir tóku undir með þakklæti enda var stundin mettuð þakklátum hugum hvert sem litið var. En þetta var stór stund i Stykkishólmi. Árni Dönsk prinsessa á víkinga leikana á Laugarvatni ELÍSABET prinsessa , dóttir Knúts Danaprins, foóurbróður Margrétar Danadrottningar, kemur til fslands á miðvikudaginn. Hún verður viðstödd sýningu á „víkingaleiknum" um Hag- barð og Signýju, sem danskir áhuga- leikarar frá Frederikssund á Sjálandi sýna á Laugarvatni um næstu helgi. 1 víkingahópnum, eru yfir 100 manns, fólk úr öllum starfsstétt- um. í Frederikssund hafa verið haldnir „víkingaleikar" á hverju sumri allt frá árinu 1951 og hefur gestum sifellt farið fjölgandi. Víkingarnir sjálfir koma hingað til lands í fullum skrúða á fimmtu- daginn. Sendiherra Dana á fslandi, Hans Andreas Djuurhus, tekur á móti þeim í Keflavík en síðan ganga þeir rakleiðis á fund Vigdís- ar Finnbogadóttur forseta á Bessa- stöðum. Daginn eftir tekur Davíð Oddsson borgarstjóri á móti þeim og síðan ganga víkingarnir skart- klæddir með brugðna branda niður Laugaveg og enda á Arnarhóli. Síð- ar þann dag halda dönsku gestirnir að Laugarvatni með stuttri við- komu á Þingvöllum. Fararstjóri i íslandsferðinni verður borgarstjór- inn i Frederikssund. Elísabet prinsessa, sem starfar i sendiráði Dana í Washington DC, hefur lengi verið mjög áhugasöm um vikingaleikana í Friðrikssund og farið með hópnum víða um lönd. útigrill copco ^ grillðO hefur alla þá kosti sem prýöa skulu gott útigrill. Grillpotturinn ( er stór, þaö hefur 2 ristar og er hægt aö snúa hvoru tveggja lóörétt svo hægt sé aö grilla á tein á auö- veldan hátt, án þess aö fitan falli ofan I kol- in. Grill-grindin hefur áfastan, færanlegan bakka og bretti til aö skera á. Elísabet prinsessa ásamt fóður sfnum Knúti prins og Carl Bruun, borgar- stjóra í Friðrikssund. í nýju símstöðinni á Sauðárkróki Sauóárkróki. MATTHÍAS Bjarnason samgöngu- ráðherra heimsótti Sauðárkrók nýlega, hélt hér fund um samgöngumál og skoðaði þær stofnanir, sem undir hans ráðherraembætti beyra. M.a. skoðaði hann nýja stafræna símstöð, sem verið er að setja upp, og var þá meðfylgjandi mynd tekin af honum og Ársæli Magn- ússyni, umdæmisstjóra Pósts og sfma á Norðurlandi. Þangað til nýja stöðin verður tek- in í notkun, er bæjarsímkerfið tengt færanlegri stöð, sem gengur undir nafninu „Flakkarinn" og mun hún verða flutt til Húsavíkur, þegar hlutverki hennar hér er lokið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.