Morgunblaðið - 07.07.1985, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 07.07.1985, Qupperneq 27
__________MORGUNBLAÐIÐ, SUKNUDAGUR 7, JÚLÍ 1985 ...27 Einu sinni var prínsessa ... ferð. í upphafi var Erlander sjálf- ur ekki viss um hvort Svíþjóð ætti að koma sér upp slíkum vopnum eða ekki — hann kynnti sér málið frá fleiri hliöum og sannfærðist sjálfur um að hagstæðast væri að vera Laus við þau, ekki síst af hernaðarlegum ástæðum. En þetta varð ekki opinber stefna fyrr en honum hafði tekist að vinna meirihluta fylgi við hug- myndina og það tók nokkur ár. Fá- ir Svíar efast nú um að þetta hafi verið rétta leiðin. Svipaða sogu er að segja um al- menna elli- og örorkulífeyrinn (ATP), það mál á sjðtta áratugn- um er olli mestum stjórnmáladeil- um. Sósíaldemókratar komu sterkir úr þeim átökum og endur- nærðir hugmyndafræðilega séð. Það mál sem ErLander sjálfur sagði að hann hefði glutrað niður var tilraunir til að fá hin Norður- löndin til liðs við Svíþjóð í óháð varnarbandalag á árunum 1948-49. Enginn dans á rósum Þótt um stöðu Erlanders og ieiðtogahæfileika væri ekki deilt í lok ferils hans var hann umdeild- ur í fyrstu. Oft skall hurð nærri hælum i kosningum og óvíst var um stjórnarmyndanir. Ferill hans var enginn dans á rósum. Dagbækur hans sýna að oftar en einu sinni hvarflaði að honum að segja af sér embætti. Þótt hann væri landsfaðir í lok ferils síns var hann talinn tækifærissinni í byrj- un — maður, sem hugsaði um það umfram allt að halda flokki sínum við völd. Hann sætti jafnvel per- sónulegum árásum og var talinn óöruggur og hikandi stjórnandi. Mörgum þótti hann ekki koma Tage Erlander og Aina, kona hans nógu vel fyrir og skorta virðu- leika. Hræddur við sjónvarpið Haft er fyrir satt að Erlander hafi talið daga snina sem stjórn- málamanns talda þegar sjón- varpið kom til sögunnar. Hann hélt að hann mundi koma svo illa fyrir að fylgið mundi hrynja af flokknum, en svo fór að hann varð snillingur í að nota sjónvarpið eins og aðra fjölmiðla. Mann- gæzka hans, kímni og mælska komast vel til skila í sjónvarpi. Brandarar hans og smellin svör ýttu undir vinsældir hans og fólk sá að hér var á ferð maður, sem kom hreint og beint fram. Hug- sjónir sínar og flokkinn tók hann alvarlega og hann setti velferð þjóðar sinnar ofar öllu. Sjálfur barst hann ekki mikið á og eigin persónu tók hann ekki of hátíð- lega. Þess vegna var háskólamað- urinn og forsætisráðherrann al- þýðlegur og þess vegna náði hann til fólksins. Höfundur er fréturíurí Morgun- blaösins í l.undi, Sríþjóð. Myndbönd Sæbjöm Valdimarsson DALSY PRINSESSA ★ ★ Leikstjóri: Waris Hussein. Aóalhiutverk: Merete Van Kamp, Lindrny Wagner, I'aul Michael Glaser, Robert Urich, Claudia Card- inale, Kupert Everett, Sada Thomp- son, Ringo Starr, Barbara Bach, Stacey Keach. Bandartsk, gerð 1983 fyrir sjónvarp. Sýu.tími: 166 mín. Upphaflega var Princess Daisy sýnd í tveimur hlutum í sjónvarpi víða um heim, en hér kemur hún fyrst fram á sjónarsviðið á myndbandi (athugið hvað þetta er orðin algeng þróun), nokkuð stytt, eða um 34 mín. frá upphaflegri lengd. Myndin er byggð á heimsfrægri sápuóperu Judith Kranz, sem er snillingur i að hræra uppí tilfinn- ingum manna — á ódýran hátt, og hrúga saman sundurleitu fólki við hinar ólíklegustu aðstæður. Þetta gerir konan svo rennandi Laglega að bækur hennar flestar hafa lent á metsölulistunum. Og ekki vantar íburðinn í per- sónusköpunina né sögusviðið í Priaeess Ihúsy. Söguhetjan sjálf, (Merete Van Kamp), er dóttir rússnesks prins, (Stacey Keach) og bandarískrar leikkonu, (Lindsay Wagner). Fæðing hennar verður til þess að foreldrarnir skilja, ástæðan er sú að Daisy kemur ekki ein í heiminn, heldur er hún tvíburi og systir hennar fæðist vangefin. Það er meira en hið rússneska aðalsblóð fær þolað og segir hann móðurinni að önnur dóttirin hafi látist strax eftir fæð- ingu og kemur þeirri sjúku fyrir á hæli. En sannleikurinn kemur fljótlega í ljós og afleiðingin verð- ur skilnaður. Þannig hefst stormasöm æfi Daisyar, sem ekki verður rakin hér nánar. En stúlkan brýst áfram á toppinn, (likt og altítt er um slikar sögupersónur), þrátt fyrir ýmsan mótbyr. Fléttað er öðrum þræði inní frásögnina miklu og margslungnu fjölskyldudrama. Príncess Daisy er því af þeim stofni sem til skamms tima var kallaður eldhúsróman og nýtur ómældra vinsælda í sjónvarpi, létt og auðmelt skemmtiefni. Myndin smýgur rétt yfir meðallag sökum þess að hún er í flesta staði vand- virknislega gerð, vel hefur tekist að endurvekja andblæ liðinnar gullaldar yfirstéttanna. Leikurinn er yfirleitt góður, einkanlega hjá Stacey Keach og Claudiu Cardin- ale. Merete Van Kamp sleppur fyrir horn í titilhlutverkinu, sem jafnframt er hennar fyrsta stór- hlutverk. Prýðilega mölluð sætsúpa fyrir afslöppuð meltingarfæri. — KÉ&mé, Gefum lífinu lit! Viö eigum ekki endilega við, aö þú eigir aö mála bæinn rauöan, en bendum þér á aö þú getur gjörbreytt umhverfi þínu með smávegis málningu. Þú málar auðvitaö meö HÖRPUSILKI. Með HÖRPUSILKI má mála bæöi úti og inni. I HÖRPUSILKI fara saman kostir sem birtast í frábæru slit- og veörunarþoli. HÖRPUSILKI er viðurkennd afburða málning. HÖRPUSILKI er ódýr miðað viö gæöi. HÖRPUSILKI er fáanlegt í 28 staöal- litum, þar meö töldum öllum tískulitun- um, síðan er hægt aö fá blandaöa liti aö vild. Meö því aö bæta HÖRPUSILKI HERÐI út í málninguna má auka gljástig hennar úr 3% í 10% og þá jafnframt auka slitþol hennar til muna. Nú . . . Hægt er aö fá nánari upplýsingar um HÖRPUSILKI í málningarvöruversl- unum, hjá málarameisturum, Bygginga- þjónustunni, sölumönnum okkar eöa á rannsóknarstofu, í HÖRPU-handbókinni eöa hjá öllum þeim fjölda ánægöra viðskiptavina sem fyrir eru, - vonandi verður þú einn þeirra. Skúlagötu 42 125 Reykjavík Pósthólf 5056, ® (91)11547 HARPA lífinu lit! \

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.