Morgunblaðið - 07.07.1985, Side 56

Morgunblaðið - 07.07.1985, Side 56
KEiLUSALllRINN OPINN 9.00-00.30 EUnOCARO V— J "TTTNORT AU5 SHfiAR SUNNUDAGUR 7. JÚLÍ 1985 VERÐ í LAUSASÖLU 30 KR. Fólskuleg árás á fuU- orðinn mann RÚMLEGA sjötugur maöur varð fyrir fólskulegri árás á heimili sínu við Suðurlandsbraut í Reykjavík í fyrrinótt. Liggur hann nú í sjúkra- húsi mikið slasaður. Árásarmaðurinn, sem er um sextugt, var í haldi lögreglunnar í gær. Það var snemma í gærmorgun sem komið var að gamla mannin- um liggjandi í stiga í húsinu, sem hann býr í, en þar eru nokkur herbergi leigð út á annarri hæð í verslunarhúsi. Virðist sem ráðist hafi verið inn í herbergi hans, hurðinni sparkað upp og hann laminn hvað eftir annað í andlitið. Maðurinn var með meðvitund þeg- ar hann fannst og gat sagt til árásarmannsins, sem reyndist vera leigjandi í næsta herbergi. Sá var dauðadrukkinn og var hann settur í fangageymslu þar til af honum rynni. Arásin virðist hafa verið algjörlega tilefnislaus, því sá sem fyrir henni varð er mesti hæglætismaður. Undir hádegi á laugardag var ekki búið að kanna meiðsli gamia mannsins til hlítar en þó var ljóst að hann var brotinn í andliti auk þess að vera mikið bólginn, mar- inn og skrámaður. Kjarnfóðursjóður: Tvær milljónir til reiðhallar Framleiðsiuráð landbúnaðarins saroþvkktí á fundi sínum fyrir skömmu að veita Reiðhöllinni hf. treggja milljóna kr. styrk til bygg- ingar reiðhailar í Víðidal í Reykja- 94 hvalir komnir á land Hvalbátarnir hafa veitt 94 hvali sem af er hvalvertíð, allt langreyðar, af 161 sem leyft er að veiða í sumar. Magnús D. Ólafsson verk- stjóri hjá Hval hf. í Hvalfirði sagði í gærmorgun að engin kraftveiði hefði verið að und- anförnu. Lengst hefði í hval- inn og hann væri orðinn eitthvað dreifðari en var. Veiðar og vinnsla hefðu þó gengið vel það sem af væri vertíð. vík. Landbúnaðarráðherra þarf að staðfesta þessa samþykkt. Stjórn Reiðhallarinnar hf. sótti um 4 milljónir á þeim for- sendum að hestamenn og hrossa- bændur hefðu greitt verulegar upphæðir í kjarnfóðursjóð á und- anförnum árum við kjarnfóður- kaup. Framleiðsluráð frestaði af- greiðslu e rindisins þegar það kom fram og óskaði eftir rekstr- aráætlun reiðhallarinnar. Áætl- unin var lögð fram á fundinum nú og samþykkt að veita tveggja milljóna kr. styrk. Samkvæmt rekstraráætluninni mun rekstur hallarinnar standa í jámum fyrstu þrjú árin, en eftir það á hann að fara að skila hagnaði. Komið til mín MorRunhlaðiö/Emilia ÞAU eru mörg verkin, sem vinna þarf til að halda borginni hreinni og snyrtilegri. Þessi mynd var tekin í Fossvogskirkjugarði þar sem verið var að hreinsa styttu af Frelsaranum. Góð þorskveiði fyrir Norðurlandi: Stúlka kærði nauðgun STÍILKA innan við tvítngt kærði í gærmorgun ungan mann fyrir nauðgun. Hann var handtekinn skömmu síðar og færður í fanga- geymslu. Oljóst er um tildrög máls- ins en stúlkan og pilturinn munu hafa komið saman af dansleik í fyrrjadtl og verið gestkomandi í búsi í miðborg Reykjavíkur. Rannsókn málsins var að byrja undir hádegið í gær og átti að yfirheyra hinn grunaða síðdegis. Hegranesið fékk tvö 40 tonna höl á sólarhring MJÖG góður þorskafli hefur fengist fyrir Noröurlandi og út af Horni undanfarna daga, einkum á Strandagrunni og í Reykjafjarð- arál. Skuttogarinn Hegranes SK 2 frá Sauðárkróki var í gærmorgun á landleið með 180 tonn eftir 5 daga og fengu þeir tvö 40 tonna höl í fyrradag. Mörg skip voru á svipuöum slóðum og fengu mörg hver góðan afla. „Jú, það er óhætt að segja það, þetta hefur verið jafnt og gott síð- ustu daga. Það koma svona neistar inn á milli eins og gengur og ger- ist,“ sagði Júiíus Skúlason skip- stjóri á Hegranesinu í talstöðvar- samtali við Morgunblaðið í gær- morgun. Hann sagði að þeir hefðu verið út af Strandagrunni og Reykjafjarðarál og fiskurinn væri óvanalega góður miðað við það sem gerðist almennt á þessu svæði. — Við fréttum að þið hefðuð fengið stór höl, er það ekki rétt? „Ja, fljótt flýgur fiskisagan. Ég veit það ekki nákvæmlega, við mældum þau ekki en ég giska á að þau stærstu hafi verið um 40 tonn. Við fengum tvö slík í flottrollið í gær og dag. En það var ágætt í botntrollið líka, við fengum upp í 20—30 tonn í það í fyrradag," sagði Júlíus Skúlason. Benjamín Antonsson skipstjóri á skuttogaranum Kolbeinsey ÞH 10 frá Húsavík sagði í gærmorgun að þeir væru nýkomnir út og lítið farnir að fá ennþá en þeir voru utan við „reglugerðarhólfið" í Reykjafjarðarál. Hann sagði að 15—20 skip væru þarna, hvað- anæva af landinu. Þeir hefðu feng- ið mest í flottrollið en líka kropp í botntrollið. Nokkuð skip hefðu verið að fá 5—20 tonn í hali, og sum farið upp í 40 tonn (Hegra- nesið og Sólbergið), en 3—4 tímar færu í þetta. Hann sagði að fiskur- inn væri góður, kannski ekki sá stærsti, en jafn og góður. Sigfús A. Schopka fiskifræðing- ur hjá Hafrannsóknastofnun hafði ekki heyrt um þennan mikla afla fyrir norðan. Sagði hann að þetta væri þó örugglega ekki fisk- ur sem gengið hefði frá Græn- landi. Það væri oft góð veiði á þessum árstíma á þessum slóðum. Fiskurinn þéttist í æti og gæfi sig til. Mikið var að gera í fiski fyrir norðan í gærmorgun. 1 fiskiðju- veri Þormóðs ramma á Siglufirði byrjaði vinna klukkan 4 um nótt- ina og allir sem vettlingi gátu valdið voru í vinnu. Skjöldur kom inn með 60 tonn eftir 4 daga, en fær ekki landað á Siglufirði fyrr en á þriðjudag og Súlan var að taka ís og var með 90 tonn eftir 5 daga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.