Morgunblaðið - 09.07.1985, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.07.1985, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 152. tbl. 72. árg. ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 1985 Prentsmiðja Morgunblaðsins Portúgalir á þorskveiðar við Grænland Kaupmannahöfn, 8. júlí. Fri Nils Jörgen Bruun fréttaritara Morgunblaðsins. GRÆNLENSKUM sjómönnum hefur ekki tekist að fínna þorsk, ef hann er á annað borð nálægur, og hefur landstjórnin nú gengið til samninga við Portúgali og veitt þeim veiðibeimildir Portúgalir hafa heimild til að veiða 6.000 lestir af þorski við Grænland og er fyrsti portúgalski togarinn þegar kominn á þorska- slóðina. Hafa Portúgalir fallizt á að landa 70% aflans hjá græn- lenzkum vinnslustöðvum, til þess að halda megi hjólum atvinnulífs- ins gangandi í bæjum syðst á Grænlandi. Hafa fiskverkunar- stöðvar í suðurhluta landsins ver- ið lokaðar um langt skeið vegna aflaleysis. grænlenzkri lögsögu. Landsstjórnin hefúr einnig haf- ið viðræður við Japani, sem veitt verður heimild til karfa- og lúðu- veiða við Grænland. Grænlenzku sjómannasamtökin hafa sett sig upp á móti samning- unum við Portúgali og Japani þar sem grænlenzkum sjómönnum hefur ekki verið tryggt skipsrúm á japönsku og portúgölsku togurun- um. Saudar auka enn ekki framleiðslu Vínarborg, 8. júlí. AP. AHMED Zaki Yamani, olíuráðherra Saudi-Arabíu, sagði í dag að Saudar myndu bíða með að auka olíufram- leiðslu sína þrátt fyrir að leiðtoga- fundur OPEC-ríkjanna um helgina yrði árangurslaus. lækkandi olíuverði á fundi sínum. Hins vegar væri nú krepputímar í bandalaginu, og myndu þeir alla vega standa fram til næsta fundar leiðtoganna, 22. júlí nk. simamynd/AP 8 týna lífí íjárnbrautarslysi íFrakklandi Átta manns fórstu og 70 sölusðust , þar af 10 lífs- vagnar lestarinnar fóru af sporinu. Einn vagnanna hættulega, í járnbrautarslysi um 100 km vestur af hafnaði á íbúðarhúsi meðfram teinunum. Lestin var á París í morgun. Lestinni var ekið á 160 kflómetra leið frá Le Havre til Parísar með 600 farþega innan- hraða á dráttarvél, sem skilin hafði verið eftir þar sem borðs. akvegur liggur yfír brautarteinana. Fimm fremstu Saudi-Arabar hafa hótað að auka olíuframleiðslu ef önnur OPEC-ríki virtu ekki framleiðslu- kvóta bandalagsins, og ef leiðtoga- fundurinn í Vín yrði árangurslaus. Vegna umframframleiðslu ann- arra ríkja hafa Saudi-Arabar dregið sína framleiðslu saman. Tilgangurinn með Vínarfundinum um helgina var að finna nýjar leiðir til að takmarka og hafa eft- irlit með framleiðslu. Varð enginn árangur af fundinum, sem ræddi m.a. stofnun nýrra sölusamtaka, til að stöðva verðlækkun á olíu. Sérfræðingar í málefnum OPEC telja að bandalagið líði tæpast undir lok þrátt fyrir að leiðtogum þess tækist ekki að sporna við liretar af- létta við- skiptabanni London, 8. júlfi. AP. Bretar afléttu í dag banni vió inn- flutningi frá Argentínu, sem verið hefur í gildi frá upphafí Falklands- eyjastríðsins. Vonast Bretar til að þessi ákvörðun verði til að bæta sambúð ríkjanna og voru Argentínumenn hvattir til að aflétta samskonar banni við innflutningi frá Bret- landi. f tilkynningu brezku stjórnar- innar var ítrekað að Bretar væru ekki til viðræðu um yfirráð yfir Falklandseyjum, sem Breta og Argentínumenn greinir á um. Reagan um íran, Kúbu, Líbýu, Norður-Kóreu og Nicaragua: Þau mynda sambands- ríki hryðjuverkamanna Wa*hington, 8. júlí. AP. Konald Reagan Bandaríkjaforseti var myrkur í máli í ræðu á ársfundi bandaríska lögmannafélagsins í dag er hann lýsti fran, Kúbu, Lfbýu, Norður-Kóreu og Nicaragua sem bækistöðvum hryðjuverkamanna. Sagði hann löndin í „sambandsríki hryðjuverkamanna" og væri tak- mark þeirra að gera bandarísku þjóðinni og ríkisstjórn þeirra sem mestan óskunda. „Samkvæmt alþjóðareglum hef- ur sérhvert ríki, sem verður fyrir áreitni af því tagi sem þau stunda, rétt til að verjast," sagði Reagan. í ræðunni hvatti Reagan ríkis- stjórnir „siðmenntaðra ríkja" til samstarfs um upprætingu hryðju- verkastarfsemi. Reagan sagði hryðjuverkamenn eiga griðland í ríkjunum fimm. Þar hlytu þeir þjálfun sína og það- an væri fólskuverkum þeirra stjórnað. Bandaríkjamenn myndu ekki þola hryðjuverk þeirra. Rikj- unum fimm stjórnaði undarleg- asta samsafn geggjaðra glæpa- manna frá því Hitler leið undir lok. Hussein Musavi forsætisráð- herra fran ítrekaði andstöðu fr- ana við flugrán í dag og fullyrti að öll hryðjuverk ættu rætur að rekja til Washington og Tel Aviv. Nær öruggt þykir að ráninu á TWA- þotunni á dögunum og gíslatöku í því sambandi hafi verið stjórnað frá íran. Ennfremur að flugræn- ingjarnir hafi hlotið þjálfun sína þar í landi. Svæfðu flugmanninn og flugu á vit frelsisins Vínarborg, 8. júlí. AP. ÞRÍR ungir Tékkóslóvakar rændu lítilli flugvél í dag með því að svæfa flugmannin við stýrið. Tók sonur hans við stjórninni og flaug flugvélinni til Austurríkis, þar sem þremenningarnir báðu um hæli sem pólitískir fíóttamenn. Fjórmenningarnir i flugvél- inni ráðgerðu að fljúga útsýnis- flug frá borginni Pardubice, sem er 100 km austur af Prag. Við stjórnvölinn var Bozej Strutz, flugmaður í tékkneska flughern- um. Við hliðina var 19 ára sonur hans, Radek, sem nam flug af föður sínum. Skömmu eftir flugtak greip annar félaga Radeks fyrir nef og munn flugmannsins með klút, sem vættur var klóroformi. Flugmaðurinn, Bozej Strutz, lognaðist nær strax útaf og son- urinn tók stefnu á Austurríki. Flaug hann lágt til að flugvélin sæist ekki á tékkneskum rat- sjám. Bozej vaknaði aftur í þann mund sem flogið var yfir landa- mærin. Var eldsneyti þá að ganga til þurrðar. Þar sem son- urinn kunni ekki að lenda flug- vél voru hendur Bozej leystar og lenti hann flugvélinni nærri Hollabrunn í norðausturhluta Austurríkis. Þremenningarnir eru 19—22 ára. Eru þeir í flóttamannabúð- um í Austurríki, en Bozej Strutz vildi hverfa heim aftur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.