Morgunblaðið - 09.07.1985, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 09.07.1985, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 1986 5 Blíðviðrið um helgina: Besta júlíveður í þrjú ár EINS OG FLESTUM mun í fersku minni ríkti einmuna veðurblíða um næstum allt land um síðustu helgi og voru landsmenn duglegir við að sleikja sólina hvar sem til hennar náðist. Að sögn Eyjólfs Þorbjörnssonar veðurfræðings var veður bjart og stillt og meðalhiti frá 12 til 16 stig- um. „Blíðunni olli hæðarhryggur sem var yfir landinu og var veður gott en þó heldur svalara og skýjað á Austurlandi. Ég held að önnur eins veðurblíða hafi ekki verið í júlímánuði á Suður- og Vesturlandi síðastliðin þrjú ár eða jafnvel lengur, þó ég vilji ekki segja alveg til um það.“ Framundan er sunnanátt og væta um Suður- og Vesturland en gott veður á Norður- og Austurlandi að sögn Eyjólfs. „Á miðvikudaginn verður komin norðanátt sem líklega helst fram undir næstu helgi og þá léttir til á sunnanverðu landinu en öllu kaldara verður en undanfarið." Þessi gervihnattarmynd var tekin klukkan tíu mínútur í tvö í blíðviðrinu síðastliðinn sunnudag. ísland sést ofar- lega á myndinni umlukið skýjum, en á landinu sjálfu er alveg heiðskírt nema hvað skýjað er á smá hluta á Suð-Aust- urlandi. Á Norðurlöndunum er skýjað eins og sjá má og einnig í Skotlandi og Norður-Englandi en syðst í Englandi er heiðskírt. A meginlandi Evrópu og Eng- landi er heiðskírt eins og sjá má neðar- lega á myndinni. Mál lögreglu- mannsins í athugun SIGURJÓN Sigurðsson lögreglustjóri í Reykjavík færðist í gær undan því að ræða hugsanlegar afleiðingar dómsins fyrir starf lögreglumannsins, sem dæmdur var fyrir að hafa af gá- leysi valdið áverkum Skafta Jónsson- ar blaðamanns, er hann var fluttur í járnum frá Þjóðleikhúsinu á lögreglu- stöðina í Reykjavík aðfaranótt 28. nóvember 1983. „Lögreglumaðurinn er og hefur verið í starfi hér allt síðan þetta mál kom upp,“ sagði lögreglustjóri. „En hann er ráðherraskipaður og það er því dómsmálaráðuneytisins að taka ákvörðun um einhverjar breytingar á því. Jón Helgason dómsmálaráðherra sagði að ekki hefði verið tekin ákvörðun um neinar breytingar á starfi lögreglumannsins. „Við erum að kynna okkur dóminn og forsend- ur hans og fyrr en það er búið get ég ekkert um þetta mál sagt,“ sagði dómsmálaráðherra. Dregið í vor- happdrætti DREGIÐ var hjá borgarfógeta í vorhappdrætti Sjálfstæðisflokksins sl. laugardag. Upp komu eftirtalin vinnings- númer: 1. 72003, 2. 4484, 3. 55078, 4. 66231,5. 74406,6. 21411,7. 68409,8. 32567,9.68075,10.48883,11. 43237, 12. 63320, 13. 40435, 14. 17903, 15. 74398, 16. 26039, 17. 72532, 18. 56413, 19. 73876, 20. 66204, 21. 73801 og 22. 74775. Sjálfstæðisflokkurinn þakkar öllum þeim fjölmörgu sem þátt tóku í stuðningi við flokkinn með kaupum á happdrættismiðum. (Fréttatilkynning. Númer birt án ábyrgöar.) ERTU AÐ FARA I FRI? Sláðu til og fáðu þér stjömukort! Persónukort Hugsaðu stöðu þína í ró og næði! Við bjóðum þér tvær tegundir af stjörnukortum. Með báðum fylgir skriflegur texti: FramtíÖarkort: Lýsir persónuleika þínum, ma: grunntóni, tilfinningum, hugsun, ást og vin- áttu, starfsorku og framkomu. Bendir á hæfi- leika þína, ónýtta möguleika og varasama þætti. 4 * t Hvaö gerist næstu tólf mánuði? Framtíöarkortið segir frá hverjum mánuöi, bendir á jákvæöa möguleika og varasama þætti. Hjálpar þér aö vinna meö líf þitt á uppbyggilegan hátt og finna rétta tímann til athafna. Viö segjum aö stjörnuspeki sé stórkostleg og eitt þaö gagnlegasta tæki sem manninum stendur til boða, leiöi til sjálfsþekkingar, mann- þekkingar og almennt til aukins skilnings manna á meðal. Stjörnuspeki er góö fyrir ein- staklinga og t.d. hjón, foreldra og fyrir þá sem standa á tímamótum o.s.frv. Athugaðu máliö og dæmdu fyrir sjálfan þig! LÍTTU VIÐ Á LAUGAVEGI 66, EÐA HRINGDU í SÍMA 10377 OG PANTAÐU KORT! Ef bæði kortin eru gerð samtímis er 20% „Er nokkuö aö marka þetta?“ segja margir. Þeir sem hafa fengið kort segja: „Það er hreint furöulegt hvaö stjörnukortiö lýsir mér!“ „Er stjörnuspeki ekki bara tóm vitleysa og plat?“ segja sumir. Einn sagöi: „Þegar ég skoöa stjörnukort þeirra sem mér er illa viö, skil ég þá og andúöin hverfur!“ * ★ *** Bjóöum einnig sérstakan einkatíma, þar sem kort þitt er túlkaö af Gunnlaugi Guö- mundssyni stjörnuspekingi. afsláttur. Einnig 20% fjölskylduafsláttur. Laugavegi 66, •ími 10377.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.