Morgunblaðið - 09.07.1985, Blaðsíða 51
51
MORGUNBLAÐID, ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLl 1985
Geislavirknin hefur leikiö þessa afturgöngu illa í sígildri hrollvekju George
A. Romere, Night of the Living Dead.
Kvöldvökur
Ein tegund hrollvekju fjallar
um þær ógnir sem fólki getur
stafað af draugum sem á ensku
eru nefndir „zombies". Ég veit
ekki til að íslenskan eigi orð yfir
þetta fyrirbæri, en „zombíur"
eru afturgöngur sem rísa í hóp-
um úr gröfum sínum og herja á
lifendur til að nærast á blóði
þeirra og holdi. Mjög algengt er
að draugarnir lendi í þessari
hremmingu fyrir vistfræðileg
slys svokölluð — vegna mengun-
ar, geislavirkni, efnaúrgangs og
svo framvegis. Þannig segja
„zembíumyndir" dæmisögur um
það hvernig mannkynið, lifendur
sem dauðir, fær að gjalda fyrir
eigið ofurkapp við tæknivædda
auðsöfnun og röskun á lögmál-
um náttúrunnar.
Einn frægasti, afkastamesti
og flinkasti hrollvekjusmiður
samtímans, bandaríski leikstjór-
inn George A. Romere, hóf ein-
mitt feril sinn með mynd af
þessu tagi — Night of the Living
Dead. Þetta er orðin sígild hryll-
ingsmynd, gerð af fjárhagsleg-
um vanefnum í svart-hvítu og
leikin af vinum og kunningjum
Romeros í heimaborg hans,
Pittsburg. Night of the Living
Dead segir frá byggðarlagi sem
verður að blóðvelli þegar aftur-
göngur ryðjast úr kirkjugörðum
Myndbönd
Árni Þórarinsson
Fátt finnst mér betra fyrir
svefninn en að horfa á væna
hrollvekju heima i stofu. Ég læt
sálfræðingum eftir að túlka
þann smekk. Hitt er ljóst að ég
er ekki einn um þetta. Hrollvekj-
ur eru meðal vinsælasta efnisins
á myndbandamarkaðnum hér-
lendis. Kannski hafa þær tekið
við af draugasögunum á kvöld-
vökum forfeðranna. Hrollvekj-
um í kvikmyndum má skipta í
ýmsa flokka eftir því hvaðan
hryllingurinn kemur. Stundum
kemur hann innan frá — á rætur
í mannssálinni, ótta hennar,
sektarkennd, hatri, ást eða öðr-
um sterkum tilfinningum;
stundum kemur hann að utan —
frá fornaldarskrímslum, draug-
um, óvinum utanúr geimnum,
djöflinum sjálfum og útsendur-
um hans, blóðsugum eða ein-
hverjum af hæpnum sköpunar-
verkum mannanna eins og tölv-
um, róbottum, og öðrum afurð-
um vélvæðingar og vélmenning-
ar. Yfirleitt eru þær hrollvekjur
bestar sem láta nokkurn vafa
leika á uppruna hryllingsins.
Hér segir
byggð
Erlendar bækur
Jóhanna Kristjónsdóttir
Lars Thue: ASKER 1840—1980
Útg. Universitetsforlaget 1985
Stundum skolar undarlegustu
bókum inn á skrifborðið: Þar á
meðal taldi ég ASKER 1840-1980
þegar ég barði hana fyrst augum.
Stórt og myndarlegt verk, prýtt
fjölda mynda og fagurlega útgefið
og hópur manns hefur unnið und-
irbúningsstarf til að allt megi
verða sem bezt úr garði gert. Ask-
er reyndist vera hérað í Noregi og
hér er sem sagt sögð byggðasaga
þessa héraðs í hundrað og fjörutíu
ár. Áreiðanlega áhugavert Norð-
mönnum en óneitanlega dálítið
staðbundið.
Áður hafa komið út verk um
Asker (1941) og nágrannahéraðið
Bærum nokkru síðar. Þessi bók
gerir við nánari athugun báðum
þessum svæðum skil. Og þegar
farið er að kanna málið kemur upp
úr dúrnum, að hér er raunar mikið
að frétta og svo vel hefur Lars
Thue tekist að vinna úr efninu að
til fyrirmyndar er. Nákvæmni
hans virðist vera mikil og heim-
ildasöfnun hlýtur að hafa verið
mikið verk.
Asker hefur átt sér merka sögu
og þar hafa ýmsir mætir aðilar
búið um lengri eða skemmri tíma.
frá Asker-
Lars Thue
Héraðið hefur orðið yrkisefni
skálda og svo mætti lengi telja.
Þrátt fyrir marga góða kosti
bókarinnar og vandaðan frágang
sem áður er minnzt á, hlýtur verk
á borð við þetta að hafa takmark-
aðan lesendahóp utan Noregs —
eða hvað.
Lars Thue fæddist í Osló 1946 og
lauk þaðan cand. philol-prófi með
sögu sem aðalgrein. Hann hefur
unnið við fleiri bækur af þessu
tagi; meðal annars heimildarit um
merka sögu rafstöðvarinnar í
Sandefjord...
Megas heldur í tón
leikaferð
fyrir tilstilli kjarnorkugeislunar
og leggjast á líkama íbúanna sér
til heilsubótar. Romero heldur
fanta vel á spöðunum — myndin
blandar hryllinginn með drjúgri
satírískri gamansemi og and-
rúmsloftið er rafmagnað frá
upphafi til enda. Night of the
Living Dead var gerð árið 1968,
en ellefu árum síðar, 1979, fylgdi
Romere henni eftir með Zombies:
Dawn of the Dead. 1 þessari
mynd hefur Romere náð enn
betri tökum á tækninni og meira
umleikis — lit og þjálfaðan en
óþekktan leikhóp. Hér útfærir
hann þau drög að heimsósóma
sem eru í Night of the Living
Dead með því að láta „zombíurn-
ar“ stefna til umsáturs um gríð-
arstóra kjörbúð. Inni í búðinni
þurfa fjórar manneskjur að verj-
ast ásókn ófétanna sem ekki
girnast öll þau efnislegu gæði
sem fylla hillur verslunarinnar
heldur aðeins likama þeirra
sjálfra. Það er ansi margt glúrið
í þessari uppstillingu sem verður
svakalega blóðug og ógeðsleg
þegar dregur til tíðinda.
Night of the Living Dead og
Zombie: Dawn of the Dead má
finna á nokkrum myndbanda-
leigum, en þær eru, vel að
merkja, ekki við hæfi barna eða
viðkvæmra fullorðinna. Fyrir
hrollvekjusjúklinga eru þær hins
vegar ómissandi. Sem dæmi um
alveg nýja útgáfu af „zombíu-
mynd“ má taka Mutant, sem
gerð er í fyrra af bandaríska
B-mynda-leikstjóranum John
„Bud“ Cardes, en hann á að baki
nokkrar ódýrar en athyglisverð-
ar afþreyingarmyndir sem víða
sjást á leigunum hér. Mutant er
býsna orkumikill hroði um tvo
bræður sem lenda í klónum á
„zombíum“ í smábæ í Suðurríkj-
unum. Orsök zombíufaraldurs-
ins er að þessu sinni efnaúrgang-
ur frá verksmiðju einni í grennd-
inni. Mutant hefur ekki hnyttni
Romere-myndanna sem fyrr
voru nefndar en hún er spenn-
andi og krassandi á köflum með
sérlega vel virkri hljóðrás.
Stjörnugjöf:
Nights of the Living Dead ☆☆☆
Zombies: Dawn of the Dead ☆☆'A
Mutant ☆l/2
MEGAS hélt nú um helgina í hljóm-
leikaferðag um landið ásamt þeim
Ásgeiri Óskarssyni, Björgvin Gísla-
syni, llaraldi Þorsteinssyni og Jens
Hanssyni um síðustu helgi.
Á dagskrá Megasar eru að þessu
sinni bæði nýjar og gamlar tón-
smíðar, nokkur lög verða frum-
flutt í ferðinhi en annars verða
flutt þekkt lög af hljómpiötum
hans eins og segir í fréttatilkynn-
ingu.
Hljómleikar þeirra félaga verða
tveggja tíma langir í hvert sinn. I
kvöld leika þeir í Herðubreið á
Seyðisfirði, á morgun miðvikudag
í Sindrabæ í Höfn í Hornafirði og
næstkomandi fimmtudagskvöld á
Hvoli, Hvolsvelli. Allir hljómleik-
arnir hefjast kl. 21.00.
Bingó — Bingó
í Glæsibæ
í kvöld kl. 19.30
Aðalvinningur 25.000. Næsthæsti vinningur
12.000. Heildarverömæti yfir 100.000.
Stjórnin.
kvöld-É
Frítt inn til 23.30.
Spakmæli dagsins;
Betur sjá augu en auga
HCRE URVAL IBIZA 04.07.85
EiTIR HRIKALEGA HRESSILEGA BYRJUN ERUM VID ADEINS FARNAR AD
SLAKA A I SKEMMTANALIFINU 0G BEITA KR0FTUNUM I SKYNSAMLEGRI
HLUTl EDA THANNIG. VID H0FUM FARID I YMSAR SKODUNARFERDIR A
0PNUM BILUM 0G GLIMT VID SJ0SKIDI 0G SEGLBRETTI. VID ST0DUM
AILAR I FYRSTU TILRAUN A SJOSKIDUNUM EN FJARANS BRETTIN ERU
ERFIDARI. FRAMUNDAN SIDUSTU DAGANA ER M.A. TONLEIKAR MED
NINU HAGEN A KU MANUDAGINN 8.7. N.K.i SKUTUFERD 0G AUG-
LYSINGAMYNDATAKA A F0STUD. 5.7.. TOGA-PARTY 0G SV0 A SOLLA
AFMAELI A FIMMTUD 0G BYDUR TIL VEISLU
THETTA H0FUM VID SJALFAR VERID
HINGAD 06 THANGAD. S.S. ALLT I
NU FYRIR UTAN ALLT
MED BIL S.L. 3 D.3A 0G SKROPPID
THESSU FINA. BESTU KVEDJUR
TIL YKKAR 0G ALLRA VINA 0G VANDAMANNA.
THE GIRLS
'\YS
w,óöu"° nó y.od''0 9
\
I
Allir eru
stjörnur í
HOLUWððD
Stiörnur
HOLLUWOðD
staddar á Ibiza senda vinum og
vandamönnum eftirfarandi skeyti:
Nú eru stjörnurnar á heimleiö og
undirbúníngur keppninnar um titilinn
„Stjarna Hollywood ’85“ i fullum
gangi. Þaö er til mikils aö vinna meöal
annars er bíll unga fólksins í ár Dai-
hatsu Charade Turbo gullfallegur bíll
sem allsstaöar slær í gegn.