Morgunblaðið - 09.07.1985, Blaðsíða 4
4
MOROUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLl 1985
Keppnin um titilinn Ungfrú Alheimur:
Halla Bryndís
í nýjum
leðurbúningi
Miami. 7. júlí. Frá Þóri S. Cröndal
fréttarilara Mbl. í Miami.
OPNUNARHÁTÍÐ fór fram í Miami síóast-
lióið laugardagskvöld. Komu fegurðardísir 79
keppnislanda þá fram í þjóóbúningum og
færóu Miamiborg gjafir frá heimalandi sínu.
Feikilegt litskrúð og íburður einkenndu
flesta búningana, sérstaklega frá löndum
Asíu og Rómönsku-Ameríku. Var í mörg-
um tilfellum frekar um að ræða skraut-
búninga en þjóðbúninga, og hefur án efa
þurft mikið hugmyndaflug til að hanna
sumar flíkurnar. Þarna mátti finna bún-
inga sem líkja áttu eftir fiðrildum, fuglum
og blómum svo nokkuð sé nefnt. Feiknar-
leg vinna hafði verið lögð í hönnun sumra
kjólanna og var til dæmis sagt að tekið
hefði sex mánuði að sauma klæði stúlk-
unnar frá Kóreu.
Fegurðardrottning íslands, Halla
Bryndís Jónsdóttir, klæddist ekki hefð-
bundnum íslenskum búningi eins og tíð-
kast hefur. Skrýddist hún nýjum búningi
sem samanstóð af lituðum skinnklæðum
með íslensku hrosshári og höfuðbúnaði
prýddum bleikum fjöðrum. Karl Júlíusson
leðursmiður í Reykjavík hannaði búning-
inn, sem minna átti á klæðnað kvenna á
víkingaöld. Vakti þessi nýstárlegi klæðn-
aður athygli og var Höllu vel fagnað, enda
bar hún búning þennan með glæsibrag.
Halla færði Miamiborg að gjöf hvítan
veggskjöld frá Glit.
Verðlaun fyrir fegurstu búningana
fengu fulltrúar Kólombíu, Spánar og Isra-
el.
Keppnin heldur áfram f kvöld, en þá
koma dísirnar fram í samkvæmiskjólum
og á sundfötum. Kjóll Höllu er hannaður
af Maríunum. Á mánudaginn kemur verð-
ur lokakeppnin, en þá verða kynntar þær
10, sem komast í úrslit, og valin hin nýja
Miss Universe.
Halla Bryndís biður fyrir bestu kveðjur
til íslands.
ÞSG.
Búningur Höllu var úr lituðum skinnum og hrosshári. Hann
var bannaður af Karli Júlíussyni leðursmið.
Islandssiglingar Rainbow Navigation:
Tillaga Shultz
er gróf móðgun
við íslendinga
segir framkvæmdastjóri hjá Hafskip
„VIÐ ERUM mjög óánægðir með þau viðhorf, sem koma fram í bréfi
bandarískra stjórnvalda til utanríkisráðherra. Við teljum að tilboð um
einhverskonar peningagreiðslur, í „sárabætur“ fyrir að við höfum orðið
af flutningum fyrir varnarliðið, séu beinlínis gróf móðgun við okkur sem
bandamenn og jafninga Bandaríkjanna í Atlantshafsbandalaginu,“
sagði Jón Hákon Magnússon, framkvæmdastjóri markaðssviðs Haf-
skips hf„ í samtali við blm. Morgunblaðsins um tillögur George Shultz,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna, til lausnar deilunni um siglingar
skipafélagsins Kainbow Navigation
varnarliðið á Keflavíkurflugvelli.
Jón Hákon benti á, að nú væru
liðnir fimmtán mánuðir síðan Ra-
inbow Navigation hóf siglingar
hingað til lands. „Á þessum tíma
hefur ekkert gerst," sagði hann.
„Þetta bréf, sem Geir Hallgríms-
son hefur nú fengið frá Shultz, er
lýsandi dæmi um mál, sem komið
er í hnút, og virðist eiga að leysa á
ómerkilegan hátt. Þeir eru líka að
bjóða upp á sendinefnd hingað til
lands en við munum ljóslega eftir
stórri sendinefnd, sem kom hingað
fyrir réttu ári og átti að gera til-
lögur um lausn málsins. Frá þeirri
nefnd hefur ekkert heyrst."
Hann sagði að bandaríski utan-
ríkisráðherrann hefði nú „dregið
íslendinga á asnaeyrunum allt of
lengi. Fyrst áttum við að bíða eftir
forsetakosningunum í fyrrahaust,
síðan eftir því að Reagan myndaði
nýja stjórn og svo vorum við aftur
beðnir að bíða fram eftir vori. Af
okkar hálfu hefur Geir Hallgríms-
son utanríkisráðherra haldið vel á
þessu máli. Hann hefur hins vegar
treyst á loforð Shultz, sem ekki
virðast mikils virði.“
Jón Hákon Magnússon kvað
siglingar Rainbow Navigation
Inc. hingað til lands með vörur fyrir
hefðu valdið íslensku skipafélög-
unum og íslenskum hagsmunum
miklum skaða. „Við viljum sitja
við sama borð og bandarísk skipa-
félög, geta tekið þátt í frjálsri
verslun sem Bandaríkjamenn hafa
veitt forystu í heiminum," sagði
hann. „Þeir hafa hinsvegar gengið
á lagið og misnotað kurteisi okkar
og langlundargeð. Það þarf greini-
lega að fara tala við þá tæpi-
tungulaust því það er auðvitað
óþolandi fyrir okkur sem lýðræð-
isríki og jafningja Bandaríkja-
manna í NATO að láta bjóða
okkur einhverjar dúsur til að fá
okkur til að falla frá sjálfsögðum
rétti okkar."
Sókn samþykkti
Á FJÖLMENNUM fundi í Starfs-
mannafélaginu Sókn í gærkvöldi
voru nýgerðir kjarasamningar
samþykktir með öllum greiddum
atkvæðum gegn fimm. Samning-
arnir voru mjög líkir öðrum samn-
ingum, sem gerðir hafa verið af
undanförnu.
Ásbjörn
Sigjirjónsson
á Alafossi
látinn
ÁSBJÖRN Sigurjónsson á Álafossi
varð bráðkvaddur á heimili sínu
sunnudaginn 7. júlí síðastliðinn, á
sextugasta aldursári.
Ásbjörn var fæddur 26. mars
1926 á Álafossi i Mosfellssveit,
sonur hjónanna Sigurjóns Pét-
urssonar, verksmiðjueiganda þar
og Sigurbjargar Ásbjörnsdóttur.
Ásbjörn stundaði nám við Verzl-
unarskóla íslands og brautskráð-
ist þaðan árið 1944. Að loknu námi
starfaði hann við klæðaverksmiðj-
una Álafoss og var forstjóri verk-
smiðjunnar frá 1947 og þar til eig-
endaskipti urðu og íslenska ríkið
tók við rekstrinum 1968. Síðustu
árin starfaði hann við eigin rekst-
ur. Ásbjörn lét mjög til sín taka í
félagsmálum. Á sínum yngri árum
vann hann ötult starf fyrir ung-
mennafélagshreyfinguna. Hann
var formaður Handknattleikssam-
bands íslands á árunum 1958 til
1968. Hann sat í hreppsnefnd Mos-
fellshrepps um árabil og lét til sín
taka í starfsemi Lions-hreyfingar-
innar á íslandi. Eiginkona Ás-
björns, Ingunn Finnbogadóttir,
lifir mann sinn ásamt einkasyni
þeirra, Sigurjóni.
Líkamsárásin á Suðurlandsbraut:
Árásarmaðurinn
í 10 daga gæslu
EKKI ER enn Ijóst hver voru tildrög fólskulegrar árásar á 73 ára gamlan
mann, sem aðfaranótt laugardagsins var barinn til óbóta í herbergi sínu í
leiguhúsi við Suðurlandsbraut í Reykjavík. Nágranni mannsins, sextugur að
aldri, var á sunnudaginn úrskurðaður í gæsluvarðhald allt til 17. júlí, skv.
upplýsingum Kannsóknalögreglu ríkisins.
Hinn grunaði hefur viðurkennt
að hafa átt í einhverjum útistöð-
um við gamla manninn en yfir-
heyrslur hafa gengið treglega.
Ekki hefur verið hægt að taka
skýrslu af gamla manninum, sem
liggur mikið slasaður á sjúkra-
húsi, mikið marinn og skorinn,
kjálkabrotinn og rifinn um auga.
— Rannsókn málsins verður hald-
ið áfram.
„Bach að hætti vík-
inga — hvílík hátíð“
Pólýfónkórinn og 35 manna kammersveit fá mjög góðar viðtökur í Róm
Kiórens 8. júlí. Frá HaJli Hallasjni, blaða
manni Morgunblaðsins.
„BACH að hætti víkinga — hvflík
hátíð í San Ignazio,“ sagði Rómar-
blaðið Paesa sera og „Tónlistar-
viðburður ársins“, sagði ítlaska
stórblaðið II Tempo í dag um flutn-
ing Pólýfónkórsins ásamt 35
manna kammersveit undir stjórn
Ingólfs Guðbrandssonar á H-moll
messu Bachs í kirkju San Ignazio í
Rómaborg á föstudagskvöldið.
Pólýfónkórinn hefur hlotið mjög
góða dóma og viðtökur hafa verið
frábærar. Um 2000 manns hlýddu
á flutninginn í hinni glæsilegu San
Ignazio kirkju í Róm á föstu-
dagskvöldið. Á laugardagskvöldið
hófst aiþjóðlega tónlistarhátíðin í
Asissí með flutningi Pólýfónkórs-
ins á H-moll messunni í hinni
glæsilegu kirkju heilags Frans frá
Asissí. Viötökur um 1500 gesta í
kirkjunni voru með ágætum.
Giuseppi Juhar sem er list-
rænn framkvæmdastjóri hátíð-
arinnar og kunnur hljómsveitar-
stjóri var mjög ánægður með
flutning verksins. „Ég átti von á
góðum og vönduðum flutningi á
H-moll messu Bachs en frammi-
staða kórsins og kemmer-
sveitarinnar undir stjórn Ingólfs
Guðbrandssonar var betri en ég
þorði að vona — í hæsta gæða-
flokki“ sagði Juhar í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins eftir
opnun hátíðarinnar.
Stjórnandinn. Ingólfur Guð-
brandsson.
„Opnun hátiðar sem þessarar
er ávallt mikið vandaverk og er
lykill að því hvernig til tekst. Ég
get þvi andað léttar nú því flutn-
ingur Pólýfónkórsins á H-moll
messunni var áhrifamikill og
eftirminnilegur," sagði Juhar
ennfremur.
Gagnrýnandi Paesa sera, Sri-
uamus Gargoni skrifaði gagn-
rýni undir fyrirsögninni „Bach
að hætti víkinga — hvílík hátíð í
San Ignazio". Hann fór lofsam-
legum orðum um Pólýfónkórinn
og kammersveitina. „Hvort
tveggja eru frábærar sveitir.
Pólýfónkórinn er agaður og
hljómur hans hreinn og tignar-
legur," sagði Gargoni. Ennfrem-
ur „Einsöngvararnir stóðu sig
í vel og flutningur Hilke Helling í
Agnus Dei var frábær."
Um stjórnandann, Ingólf Guð-
brandsson sagði hann: „Athyglin
beindist að stjórnanda kórsins,
Ingólfi Guðbrandssyni. Honum
tókst að hefja flutning verksins í
hæðir og náði aðdáunarverðum
tökum á þessu erfiða verki."
Gagnrýni á flutninginn í As-
issí hefur enn ekki birst í ítölsk-
um blöðum. Fyrir tónleikana í
Róm og Asissí skrifuðu öll helstu
blöð Italíu um söngferðalag
kórsins og fóru lofsamlegum
orðum um hann, og sögðu að H-
moll messan væri tónlistarvið-
burður á háu lista- og menning-
arlegu stigi.
I gær tók borgarstjóri Flórens,
Lanto Conti á móti kórnum í
ráðhúsi Flórens. f kvöld flytur
kórinn H-moll messuna í San
Croce kirkjunni í Flórens.