Morgunblaðið - 09.07.1985, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 1985
45
Fágun fag-
mannsins
og fyndni
fimmaura-
brandara-
karlsins
Hljómplötur
Siguröur Sverrisson
Possibillies
Mát
Possi-plötur 001
Ég man alltaf hvað mér þótti
það fyndið þegar Jón Ólafsson
og Stefán Hjörleifsson, vinur
hans og kunningi, tilkynntu
landslýð, að þeir væru með
plötu í deiglunni. Ferill þeirra
Jóns og Stefáns hafði verið
samofinn í sveitum á borð við
Bringuhárin, Toppmenn og síð-
ast Töfraflautuna — ekki
kannski beint með þeim fram-
sæknustu á landinu.
Eftir að hafa hlustað ræki-
lega á þessa plötu þeirra félaga
er ég löngu hættur að hlæja.
Mát finnst mér nefnilega sam-
eina fágun fagmannsins og
fyndni fimmaurabrandara-
karlsins. Útkoman er plata,
sem ég er mjög sáttur við og
þeir félagar væntanlega einnig.
Mát er þó ákaflega sundur-
leit plata og hefur vafalítið
aldrei ætlað að vera annað.
Hafi menn séð „videóið" þeirra
Possibillies í Skonrokki má
líkja plötunni við það, þ.e. sitt
lítið af hvurju en engin heild-
armynd. Þó svo lögin hafi eng-
an samnefnara kemur það ekki
í veg fyrir að hægt sé að hafa
af þeim stórt og mikið gaman
og í sumum tilvika er hljóð-
færaleikurinn hreint geislandi.
Mér er engin launung á því
að þeir Jón og Stefán hafa ekki
bara hlustað vel á liðnum ár-
um, heldur hafa þeir geymt
ýmsa gullmola með sér, sem
þrykktir hafa verið á plast af
öðrum. Áhrifa víðs vegar að
gætir nefnilega á plötunni og
nægir að nefna Style Council,
Rocky Horror Picture Show og
Daníel Diego (hæ, hæ, hæ, —
hæ þú, hæ þú). Þá eru ónefnd
stórmenni á borð við Django
Reinhardt og Dave Brubeck.
Mér er líka til efs að þeir þræti
nokkru sinni fyrir að þeir sæki
áhrif í ýmsar áttir.
í öllum sínum heildarmynd-
arskorti (er þetta orð yfirleitt
til á íslensku?) er Mát bráð-
skemmtileg plata. Yfirbragðið
er létt og textarnir skondnir
oft á tíðum en í hljóðfæraleik,
útsetningum og upptöku er það
alváran sem ræður ríkjum.
Lögin eru enda flest mætavel
leikin af tvíeykinu og aðstoðar-
mönnum þeirra, sem margir
eru á meðal þeirra þekktustu á
sínu sviði. Enginn finnst mér
samt „brillera" jafn rækilega
og Þorsteinn Gunnarsson,
trommari. Kannski bara vegna
þess að ég er soddan „trommu-
frík“ en Þorsteinn hefur ber-
sýnilega haft gott af námi sínu
í vetur. Leikur hans áreynslu-
laus en ótrúlega skemmtilegur.
Lagið Móðurást af plötunni
Mát hefur þegar náð vinsæld-
um og kannski ekki að undra.
Hér er á ferðinni í raun einfalt
lag en í sérdeilis skemmtilegri
útsetningu á síðari hliðinni,
„extended twelve inch disco-
dancing remix að hætti húss-
ins“. Fleiri lög gætu fullt eins
fetað í fótspor Móðurástar og
get ég mér þess til að það verði
Bælt er bóndans gras, Nú syng
ég roktc og jafnvel Fyrir rímið.
Mát er nefnilega hin besta
skemmtun og fagmannlega úr
garði gerð á allan hátt. Góð
viðbót í íslenska poppsögu
seinni tíma, þar sem hljóð-
gervlar og tæknifikt er allt og
alla lifandi að drepa.
Mazda 626
BILAR MINNST
BYÐGAR MINNST
Samkvæmt könnun, sem hið virta
þýska tímarit STERN gekkst fyrir ný-
lega kom í Ijós að MAZDA 626 ryðgar
minnst allra bíla, sem seldir eru í
Þýskalandi. Ennfremur sýndi könnun,
sem gerð var af vegaþjónustu Félags
bifreiðaeigenda í Vestur-Þýskalandi
að MAZDA 626 bilar minnst allra bíla
í millistærðarflokki þar í landi.
Eins og allir vita gera Þjóðverjar afar
strangar kröfur til bíla um gæði og
góða aksturseiginleika. Það er því
engin furða að MAZDA 626 ER LANG
MEST SELDI JAPANSKI BÍLLINN í
ÞÝSKALANDI!.
Við eigum nú nokkra af þessum úr-
valsbílum til afgreiðslu strax úr síð-
ustu sendingu, á sérlega hagstæðu
verði, eða frá kr. 448.500.
I náinni framtfð:
Sbéí ^BÍ ■
Ný 8000 fm. MAZDA sölu-
Sterkari en
gerist og gengur
og þjónustumiðstöð
BÍLABORG HF.
Smiðshöfða 23, sími 812 99