Morgunblaðið - 09.07.1985, Page 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 1985
■■ ----------- -------------
Skin
og skúrir
LISTADEILD sjónvarpsins vann
það afrek síðastliðiö laugardags-
kveld að sýna tvær leiðinlegustu
myndir ársins, annars vegar eng-
ilsaxneska söngvamynd er var
spunnin utan um svo fáranlegan
söguþráð, að seint gleymist, í kjöl-
far þessarar endaleysu sigldi þýð-
versk mynd er greindi frá ástar-
bralli aðalsmanns nokkurs. Ég
sofnaði út frá þeirri mynd enda
virtust mér blessaðir leikararnir
undir áhrifum róandi lyfja þá
sjaldan að glytti í þá í dimmunni.
Það er einkennilegt að á sama tíma
og þeir hjá sjónvarpinu bjóða upp á
slíkt góðgæti á laugardagskveldi,
þá flenna myndbandadreifendur
auglýsingar yfir síður stærstu
dagblaðanna og bjóða fram
splúnkunýja bandaríska fram-
haldsþætti og „smáraðir" (mini
series). Ég er ekkert frekar að óska
eftir slíku efni, en tel samt að meiri
fjármunum megi veita til kaupa á
vönduðum myndum hjá sjónvarp-
inu, og að þau innkaup mættu að
ósekju vera á hendi fleiri aðila en
nú er. En vonandi lagast þetta með
nýjum sjónvarp8stöðvunum.
77/ þjónustu
Ég kem til með að sakna sjón-
varpsþátttarins: Til þjónustu reiðu-
búinn en þessi myndaflokkur er
kom frá BBC rann sitt skeið síð-
astliöið sunnudagskveld. Ég man
eftir að þegar fyrsti búturinn sá
dagsins ljós þá sagði ég við konuna
að þetta efni rýndi ég nú bara af
skyldurækni. Þannig gerðist fátt
markvert fyrst í stað í þeim heimi
er hér var skapaður af leiklistar-
deild BBC. Ungur maður var leidd-
ur inn á sviðið beint úr fyrri heims-
styrjöldinni. Hann hefir orðið fyrir
sprengjulosti og er ráðlagt að
dvelja fjarri stjórborgarysnum.
Þar sem slátrun hins breska æsku-
lýðs var í algleymingi reynist erfitt
að fá unga kennara til starfa og því
fær maöurinn auðveldlega stöðu á
virðulegum einkaskóla. Framan af
var ævi unga mannsins heldur
brösótt og að mér fannst lítt
áhugaverð, en smám saman gerast
þau undur og stórmerki, að áhorf-
andinn er orðinn þátttakandi í
skólastarfinu og hámarki nær
spennan þegar ungi maðurinn sæk-
ir um skólastjórastööuna.
Alltaf viðbúinn
Vera má að sá mikli áhugi er ég
fékk fyrir fyrrgreindum fram-
haldsþætti, stafi í og með af því, að
ég hef um árabil fengist við
kennslu og kannast þannig við ým-
iss vandamál er þarna bar á góma.
Þess ber þó að geta að breska
grunnskólakerfiö er mjög ólíkt því
sem tíðkast hér og á hinum Norð-
urlöndunum, enda samtvinnað
hinu fastmótaða stéttakerfi Breta.
Þó hafði ég haft nokkur kynni af
hinum breska einkaskóla (public
school) af viðræðum við þarlendan
kunningja minn. Sá var reyndar
fæddur inní verkamannastétt
(working class) en hafði unnið til
skóiastyrks er opnaði honum leið
inní einkaskóla. Nú er maður þessi
orðinn virðulegur málafærslumað-
ur (barrister) og verður senn dóm-
ari og sör. Ég spurði þennan virðu-
lega málfærslumann eitt sinn að
því hvort ekki hefði verið erfitt að
sitja með hástéttabörnum í skóla.
Skólabúningurinn bjargaði mér og
svo saumaði mamma íþróttabún-
inginn, þau hjálpuðust öll að, meira
að segja bræður mínir hjálpuðu til!
Já þannig eru góðar bíómyndir,
þær vekja mann ætið til umhugsun-
ar um stöðu manneskjunnar í hin-
um ólíku samfélögum. Ruslið skilur
hins vegar aðeins eftir geispa.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP/SJÓNVARP
Baldur Hrafnkell Jónsson (tv.) og Böðvar Guðmundsson unnu að gerð myndarinnar um
alkalískemmdir sem sýnd verður í þættinum „Nýjasta tækni og vísindi" í sjónvarpinu í
kvöld.
Nýjasta tækni og vfcindi:
Islensk mynd um alkalískemmdir
■■■■ Þátturinn Nýj-
9H 40 asta tækni og
vísindi er á
dagskrá sjónvarpsins í
kvöld kl. 20:40.
Að þessu sinni er aðeins
ein mynd í þættinum og
er hún íslensk og fjallar
um alkalískemmdir. 1 inn-
gangsorðum myndarinnar
segir umsjónarmaðurinn
Sigurður H. Richter með-
al annars: „Eitt alvarleg-
asta áfall sem íslenskur
byggingariðnaður hefur
orðið fyrir eru alkalí-
skemmdir þær sem komið
hafa fram í talsverðum
hluta þeirra húsa, sem
byggð voru á árunum
1958—1979. Fjölmargir
fslendingar hafa fjárfest
mestan hluta eigna sinna
í steinsteypu og nú hefur
komið í Ijós að þessi
steinsteypa hefur oft á
tíðum ekki verið nógu góð.
Tjónið sem af þessu hefur
hlotist er gífurlegt, og enn
er ekki séð fyrir endann á
því. Talað er um milljarða
króna í þessu sambandi.
Talsverðar rannsóknir
hafa farið fram á alkalí-
skemmdum hér á landi og
útbreiðsla þeirra og tíðni
hefur verið könnuð.
Fundnar hafa verið leiðir
til að fyrirbyggja þær í
framtíðinni og athugað
hvað er til ráða, eftir að
alkalískemmdir hafa
komið fram.
í þessari mynd verður
fjallað um alla þessa
þætti.“
Myndvarp s/f fram-
leiddi þáttinn fyrir sjón-
varpið. Baldur Hrafnkell
Jónsson annaðist kvik-
myndatöku og stjórn.
Böðvar Guðmundsson
annaðist klippingu og
hljóð. Hákon ólafsson
forstjóri Rannsóknar-
stofnunar byggingariðn-
aðarins veitti sérfræði-
lega ráðgjöf og umsjónar-
maður er eins og áður
sagði Sigurður H. Richter.
í kvöld kl. 20:00
OA (K) er á dagskrá
- ríkisútvarpsins,
rásar 1, þáttur sem nefn-
ist „Okkar á milli". Um-
sjónarmaður er Sigrún
Halldórsdóttir. Þetta er
léttur rabbþáttur fyrir
ungt fólk.
Sigrún kvaðst eiga von
á tveimur léttum og
hressum ungum mönnum
í heimsókn í þáttinn í
kvöld. Þeir eru Kormákur
Geirharðsson og Kristján
Þórður Hrafnsson.
Kormákur, sem jafnan
er kallaður Kommi, er
liðsmaður í hljómsveit-
inni Oxsmá, sem nýlega
hefur sent frá sér plötu.
Mun hann í þættinum
greina frá starfsemi
hljómsveitarinnar og
jafnframt greina frá
fleiru sem á daga hans
hefur drifið.
Hinn gesturinn, Krist-
ján Þórður Hrafnsson,
vakti á dögunum athygli
alþjóðar fyrir röggsama
stjórn sína á umræðu-
þætti ungs fólks í sjón-
varpssal. Hann er nem-
andi í Menntaskólanum í
Reykjavík, áhugamaður
um bókmenntir og fæst
við yrkingar. Sagði Sigrún
að hún mundi ræða við
hann um þessi áhugamál
hans og sjónvarpsþáttinn
góða.
Tónlistin í þættinum
verður flutt af Oxsmá.
Leysingjar á landnámsöld
20
kvöld kl. 20.40
er á dagskrá
rásar 1 fyrra
erindi dr. Jóns Hnefils
Aðalsteinssonar um leys-
ingja á landnámsöld. Í
Landnámu er víða sagt
frá því að norrænir menn
höfðu með sér þræla hing-
að til lands. í sumum
frásögnum kemur fram að
þrælum hafi verið gefið
frelsi og nefndust þeir þá
leysingjar. í erindi sfnu
mun Jón fjalla um þessar
frásagnir og leitast við að
gera grein fyrir áreiðan-
leika þeirra með saman-
burði heimilda. Þá mun
hann einnig fjalla um
stöðu leysingjanna og
kjör og þá möguleika sem
þeir höfðu að bjarga sér
sem frjálsir menn í ný-
numdu landi.
Að sögn dr. Jóns hefur
þeta svið ekki ekki áður
verið rannsakað hérlendis
frá þessu sjónarhorni og
mun hann koa fram með
nokkrar nýjungar í þessu
erindi.
Jón Hnefill Aðalsteinsson
„Okkar á milli“
Rabbþáttur fyrir ungt fólk
ÚTVARP
v
ÞRIÐJUDAGUR
9. júll
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
Bæn.
Morgunútvarp. 7.20 Leik-
fimi. Tilkynningar.
7.55 Oaglegt mél. Endurt.
páttur Valdimars Gunnars-
sonar frá kvöldinu áöur.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
Dagskrá. 8.15 Veöurfregnir.
Morgunorð: — Jónas Þór-
isson, Hveragerði, talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Litli bróöir og Kalli á þak-
inu" eftir Astrid Lindgren.
Sigurður Benedikt Björnsson
les þýðingu Sigurðar Gunn-
arssonar (16).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. Þulur velur
og kynnir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veöur-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.). Tónleikar.
10.45 „Man ég það sem löngu
leiö"
Ragnheiöur Viggósdóttir sér
um þáttinn.
11.15 I fórum mlnum. Umsjón:
Inga Eydal. RÚVAK.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12J0 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar
13.30 Inn og úf um gluggann
Umsjón: Emil Gunnar Guð-
mundsson.
13.40 Tónleikar
14.00 „Uti I heimi", endurminn-
ingar dr. Jóns Stefánssonar.
Jón Þ. Þór les (4).
14.30 Miödegistónleikar
a. „Sinfónletta" eftir Leos
Janacek. Fllharmónlusveitin I
Vlnarborg leikur; Charles
McKerras stj.
b. „Dansar frá Galanta" eftir
Zoltan Kodály. Fllharmónlu-
sveitin Hungarica leikur;
Antal Dorati stj.
15.15 Ut og suður
Endurtekinn þáttur Friðriks
Páls Jónssonar frá sunnu-
degi.
15J0 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Upptaktur
— Guðmundur Benedikts-
son.
19.2S Guðir og hetjur I fornum
sögnum.
Sjötti þáttur.
Astralsk-svissneskur mynda-
flokkur I sex þáttum um
grlskar og rómverskar goð-
sagnir.
Þýöandi og þulur Baldur
Hólmgeirsson.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Nýjasta tækni og vlsindi
Alkallskemmdir
I þættinum er fjallað um
rannsóknir, sem fram hafa
farið á alkallskemmdum á
steinhúsum hér á landi, út-
17.00 Fréttir á ensku.
17.05 „Sumar á Flambards-
setri" eftir K.M. Peyton
Silja Aðalsteinsdóttir les
þýðingu slna (11).
17.40 Slödegisútvarp
— Sverrir Gauti Diego.
Tónleikar. Tilkynningar
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsíns.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
Daglegt mál. Sigurður G.
Tómasson flytur þáttinn.
20.00 Okkar á milli
Sigrún Halldórsdóttir rabbar
við ungt fólk.
20.40 Leysingjar á landnáms-
öld
Jón Hnefill Aöalsteinsson
ÞRIÐJUDAGUR
9. júlf
breiöslu þeirra og tlðni. Þá
eru kynntar leiðir til að fyrir-
byggja alkallskemmdir I
framtiðinni og sýnt hvað er til
ráða eftir aö þær hafa komiö
fram.
Sérfræöileg ráðgjöf: Hákon
Ölafsson, forstjóri Rann-
sóknarstofnunar byggingar-
iðnaðarins.
Klipping og hljóð: Böðvar
Guðmundsson. Umsjónar-
maöur Siguröur H. Richter.
Kvikmyndataka og stjórn:
Baldur Hrafnkell Jónsson.
flytur fyrra erindi sitt.
21.05 Organleikur I Kristskirkju
21.30 Utvarpssagan: „Leigj-
andinn" eftir Svövu Jakobs-
dóttur. Höfundur les (4).
22.00 Tónleikar
22.15 Veöurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.35 Leikrit: „Raddir sem
drepa" eftir Poul Henrik
Trampe
Sjötti og slðasti þáttur
endurtekinn. Þýðandi: Heim-
ir Pálsson. Leikstjóri: Haukur
J. Gunnarsson. Hljóðlist:
Lárus H. Grfmsson. Leikend-
ur: Jóhann Sigurösson, Þóra
Friðriksdóttir, Anna Kristln
21.15 Hver greiðir ferjutollinn?
Þriðji þáttur
Breskur framhaldsmynda-
flokkur I átta þáttum.
Aöalhlutverk: Jack Hedley
og Betty Arvaniti.
Þýöandi Jón O. Edwald.
22.05 Heilsugæsla ungbarna
(The Purple Line)
Bresk heimildamynd.
Einkum er I myndinni fjallað
um svonefndan vöggu-
dauöa, reynt aö varpa Ijósi á
orsakir hans og lýst viðleitni
heilbrigöisþjónustunnar til að
koma I veg fyrir ungbarna-
dauða.
Þýöandi Jón O. Edwald.
22.55 Fréttir I dagskrárlok.
Arngrlmsdóttir, Arnór Ben-
ónýsson, Pétur Einarsson,
Erlingur Glslason og Borgar
Garöarsson.
23.15 Operutónlist
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
ÞRIÐJUDAGUR
9. júlí
10.00—12.00 Morgunþáttur
Stjórnandi: Páll Þorsteins-
son.
14.00—15.00 Vagg og velta
Stjórnandi: Glsli Sveinn
Loftsson.
15.00—16.00 Með slnu lagi
Lög leikin af islenskum
hljómplötum.
Stjórnandi: Svavar Gests.
16.00—17.00 Þjóðlagaþáttur
Stjórnandi: Kristján Sigur-
jónsson.
17.00—18.00 Frfstund
Unglingaþáttur.
Stjórnandi: Eðvarð Ingólfs-
son.
Þriggja minútna fréttir sagð-
ar klukkan: 11:00. 1500
16:00 og 17:00.
SJÓNVARP