Morgunblaðið - 09.07.1985, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 9. JÚLÍ 1985
Sigrún Magnúsdóttir stendur hér
framan við vinnustaðinn
af mjög góðu fólki í þessum störf-
um, lipru og hjálplegu, hjá öllum
ferðaskrifstofunum."
— Ber svona hótel sig?
„Já, sumarhótel gera það oftast.
Það má segja að þeir sem reka þau
fleyti rjómann ofan af. Hótelin
eru aðeins starfrækt þegar eftir-
spurnin er mest; um háferða-
mannatímann. Við þurfum aldrei
að kljást við vandamálin sem því
fylgja að vera með fleiri tugi her-
bergja auð.“
— Nú ferð þú út til Bandaríkj-
anna fyrir tveimur árum, í nám í
hótelstjórn. Var þetta svona
spennandi starf?
„Já, mér fannst þetta mjög
skemmtilegt starf og spennandi.
Ég fékk Fulbright-styrk. 1 því
felst m.a. að Fulbright-stofnunin
borgar far fram og til baka einu
sinni á námstímabilinu. Þeir veita
einnig ýmsa fyrirgreiðslu og því
fylgir líka sérstök virðing að vera
Fulbright í Bandaríkjunum. Ég fæ
t.d. niðurfelld skólagjöld í háskól-
anum og það munar um það.
ur sem koma með erlenda gesti til
íslands. Stundum er talað um
menntunarskort og að fólk sé ekki
starfi sínu vaxið í þessari ferða-
mannaþjónustu. En það er mikið
lloiH liiarðiir
kun ii Minutters Spadseriur
fra Skibsbroen men alligeuel
merl fri landlig Udsigt o'uer
grönne Enye til de de blau
Bjierge
Propre Fsrelser — I. Kl. Restaorant.
Intel Hotel tilbyder dem saa
mange Fordele for Pengene,
som
llolrl (n'arðnr
Indrhaner JÓNAS LÁRUSSON
Reykjauiks eneste Sommerturisthotel
Aabenl I. Juni — 15 Sepl
Sigrún Magnúsdóttir er ung
kona í ábyrgðarstöðu. Hún starfar
á sumrin sem hótelstjóri á Hótel
Garði í Reykjavík. Sumarstörf
hennar hafa reyndar alltaf verið
bundin við háskólasvæðið en varð-
andi námið hefur hún hins vegar
gert heldur víðreistara. Hún er
uppalin í Kópavoginum og var í
fyrsta árganginum sem útskrifað-
ist frá Menntaskólanum í Kópa-
vogi 1976. Hún hefur verið í
söngnámi í Vín, við nám í tónlist-
arfræðum við háskólann í Osló, í
norsku við Háskóla íslands og nú
er hún við nám í hótel- og veit-
ingarekstri og ferðamannaþjón-
ustu (hotel restaurant and travel
administration) í Bandaríkjunum,
við University of Massachusetts,
Amherst.
Ég náði tali af Sigrúnu á
skrifstofu hennar á Hótel Garði
og ræddi við hana um starf henn-
ar, nám og fleira sem á daga henn-
ar hefur drifið.
— Sigrún, hvað ertu búin að
vera lengi í þessu starfi?
„Þetta er fimmta árið mitt sem
hótelstjóri en ég vann áður í
gestamóttökunni, þetta er 12. árið
mitt í starfi við hótelið. Annars er
ég hálfpartinn uppalin hér á svæð-
inu. Vann hér á háskólalóðinni frá
því að ég var 12 ára og þar til ég
færði mig hingað inn á hótelið. Ég
vann líka einn vetur með námi hjá
Félagsstofnun stúdenta. Starfs-
vettvangurinn hefur því alltaf
verið á háskólasvæðinu og mér
hefur stundum verið strítt á því að
ég komist aldrei af lóðinni.
Ég var einmitt að hugsa um það
um daginn hvað ég væri samgróin
þessu svæði þegar ég gekk um lóð-
ina og horfði á gróðurinn. Ég man
t.d. þegar ég var að planta trjá-
hríslum í kringum Árnagarð. Nú
eru þetta orðin há tré.“
Stúdentar með hótel-
rekstur frá 1962
— Hvað er hótelið stórt og
hversu margir starfa við það?
„Hér áður var Nýi-Garður
notaður einnig undir hótelrekstur-
inn, eða tvær hæðir þar, og þá
voru hér 90 herbergi. En á síðustu
árum hafa staðið yfir viðgerðir á
Nýja-Garði og einnig eru fleiri
stúdentar sem dveljast þar yfir
sumartímann. Hótelreksturinn
hefur því eingöngu verið hér á
Gamla-Garði um nokkurra ára
skeið. Hér höfum við 44 herbergi
og 90 rúm. Níu manns starfa hér á
hótelinu, við gestamóttöku og við
þrif á herbergjum en við erum
fimmtán með starfsfólki í eldhúsi.
En matstofan í húsi Félagsstofn-
unar stúdenta er opin allt sumarið
fyrir hótelgesti og aðra sem leið
eiga um.“
— Hver rekur hótelið? Er þetta
Eddu-hótel?
„Já, ég er komin með nýja yfir-
menn núna í sumar. Áður ráku
stúdentar hótelið sjálfir, eða Fé-
lagsstofnun stúdenta, en nú er
Ferðaskrifstofa ríkisins með hót-
elið og matsöluna á leigu í eitt ár,
frá 1. september 1984 til 1. sept-
ember í ár. Þetta hótel er því
Eddu-hótel, það eina í Reykjavík.
Það er þó kallað Hótel Garður.
Stúdentar ráku hótelið frá 1962
en hótelrekstur hefur verið hér
fyrir þann tíma. Gamli-Garður
var leigður út og notaður sem n.k.
útibú frá Hótel Borg og Hótel
Skjaldbreið. En hótelrekstur nær
enn lengra aftur. Ég fann um dag-
inn auglýsingu í gömlum Fálka
frá 1938, sem gefinn var út í tilefni
af 20 ára afmæli sjálfstæðis ís-
lands. Þar er Hótel Garður aug-
lýstur á dönsku sem eina sumar-
hótelið í Reykjavik. Húsið var tek-
ið til notkunar fyrir stúdenta 1934,
hótelreksturinn hefur því byrjað
mjög fljótlega eftir það.“
— Hvernig gengur reksturinn
fyrir sig?
„Það er dálítið sérstakt verkefni
að reka sumarhótel. Við tökum við
af stúdentunum, þurfum að koma
þeim síðustu út. Undirbúa þarf
reksturinn á allan hátt, þrífa, ná í
sængurnar úr geymslu og viðra
o.s.frv. Hótelið er í raun og veru í
geymslu mestan part ársins. Hót-
elið var opnað núna 8. júní og
verður opið til 1. september.
Venjulegast er opnað svona um
miðjan júní.
Það eru 12 tíma vaktir í gesta-
móttökunni og morgun- og kvöld-
vaktir á herbergjunum. Þetta er
ekki lúxushótel en við reynum að
gera gestunum til geðs og vera
hjálpleg á allan hátt.“
Samvinna starfsfólksins
— Hvernig tilfinning er það að
vera stjórnandi? Segja öðrum
fyrir verkum, þurfa að skipuleggja
og bera ábyrgð?
„Ég var spurð að þessu með
ábyrgðina þegar ég tók við hótel-
stjórninni fyrsta sumarið og ég
svaraði því til að ég reyndi fyrst
og fremst að leiða hópinn. Lít
frekar á þetta sem samvinnu
starfsfólksins þar sem allir eru að
stefna að sama marki, í þessu til-
felli að þjóna gestunum sem best.
Ég fer alveg eins á herbergin eða í
þvottahúsið ef á þarf að halda.
Dett ekki af neinum stalli við það.
Ég hef gaman af því að umgang-
ast fólk, vinna með fólki og gera
eitthvað fyrir fólk.
Við vinnum einnig í náinni sam-
vinnu við ferðaskrifstofurnar í
Reykjavík, þ.e. þær ferðaskrifstof-
Að búa til snjó
— Hvernig er náminu háttað?
„Ég er búin að vera í tvo vetur
og lýk MS-gráðu í hótel- og veit-
ingarekstri og ferðamannaþjón-
ustu í janúar, febrúar á næsta ári.
Námið byrjaði á almennri við-
skiptafræði, bókfærslu, tölvun,
starfsmannahaldi og markaðs-
setningu. Háskólanám almennt er
byggt upp svipað og við háskólann
hér. Þriggja eininga námskeið sem
standa í eina önn. Ekki er krafist
að þú takir neitt verklegt en hins
vegar er mikið af ritgerðum og
verkefnum. Við fáum verkefni þar
sem við eigum að leysa vandamál
sem upp hafa komið í raunveru-
legum fyrirtækjum en þegar verk-
efnin eru lögð fyrir okkur þá eru
fyrirtækin undir dulnefni. Þetta
eru alls konar vandamál á öllum
sviðum. f bókhaldi, framkvæmd-
astjórn, hótelrekstri, markaðss-
etningu o.fl. Eitt verkefnið var t.d.
að markaðssetja súpur fyrir
Knorr fyrirtækið, en bandaríska
húsmóðirin notar alltaf dósasúp-
ur, Campbells.
Annað verkefni var varðandi
hótel sem átti í erfiðleikum vegna
snjóleysis í kringum vetrarol-
ympíuleikana. Spurningin var
hvort það borgaði sig fyrir hótelið
Auglýsing frá Hótel Garði í vikublaðinu Fálkanum árið 1938
lnlrrlnr /ra rl (irrtrwrWir.
InlrrUir fra Si>iir.uHrn
Fékk það verkefni
að búa til snjó
— Sigríður Stefánsdóttir ræðir við Sigrúnu
Magnúsdóttur hótelstjóra á Hótel Garði