Morgunblaðið - 09.07.1985, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLf 1986
25
Kaupmannahöfn:
200 manns drukku þjóð
hátíðarkaffi í Jónshúsi
mr.
sátej*
Aukin mannþekking
og umburðarlyndi
Þú sagöist starfa viö viðskipta-
stjörnuspeki. Hvers konar viðskipta-
stjörnuspeki?
Sleppum þeirri spurningu, ég
get ekki talað um það.
Við getum ekki rstt það mál?
Nei, þá þyrfti ég að tala um ein-
staka viðskiptavini og það er úti-
lokað.
Hafa stjörnuspekingar einhvers
konar þagnareið?
Alveg örugglega, já. Það er ekki
siður að tala um einstaka skjól-
stæðinga.
Þar sem þú ert stjörnuspekingur
ert þú að sjálfsögðu jákvæður í garð
stjörnuspeki. Hins vegar eru margir
á móti stjörnuspeki. Hvað um þá og
hvers vegna heldur þú að þeir séu á
móti stjörnuspeki?
Ja, það fer eftir því hver ástaeð-
an er fyrir því að þeim er illa við
stjörnuspeki. Ein getur verið
vegna trúarskoðana og það er í
raun ekki margt sem ég get sagt
um það nema benda á að kristna
kirkjan er nátengd stjörnuspeki
fram á sextándu öld. Mjög margar
kirkjur í Evrópu eru skreyttar
stjörnuspekitáknum. Eitt glæsi-
legasta dæmi um kirkjuarkitekt-
úr, glugginn í Notre Dame-kirkj-
unni í París, er hreinn og klár
dýrahringur. Heilagur Thomas
Aquinas skrifaði um stjörnuspeki
og var augljóslega maður sem
skildi stjörnuspeki og sá enga
synd í notkun hennar. Stjörnu-
speki hefur verið hluti af kristinni
kirkju í mjög langan tíma svo það
er í raun engin ástæða til að krist-
ið fólk ætti að vera á móti iðkun
hennar. Ef svo er get ég lítið um
það sagt. Ég vil ekki hafa áhrif á
trú fólks. Ef menn hins vegar vilja
taka vísindalega afstöðu til mál-
anna og eru á móti stjörnuspeki
vegna þess að þeim finnst hún
tengjast hjátrú vil ég bara hvetja
þá til að taka vísindalega afstöðu
og kynna sér stjörnuspeki og sjá
þannig hvort hún virkar eða virk-
ar ekki.
En er ekki eitthvað að stjörnu-
speki þó ekki nema vegna þess
hversu margir eru á móti henni, ef
allt er í lagi með stjörnuspeki hvers
vegna þessi andstaða?
Margir voru á móti kenningum
Charles Darwin, margir voru and-
vígir lífsverki Sigmund Freud og
eru enn. Fólki er illa við allt sem
ógnar trú þess. Ef lífstrú þeirra
inniheldur ekki stjörnuspeki geta
þeir upplifað hana sem ógnun.
Trúðir þú á stjörnuspeki í byrjun?
Nei.
Af hverju byrjaðir þú í stjörnu-
speki?
Ég hef unnið töluvert innan
sálfræði, aðallega við stjórnun á
hópum, hef stýrt sálfræðilegri
hópumræðu. Ég fór á fyrirlestur
sem var um táknfræði stjörnu-
spekinnar og sálfræði, þetta
tvennt saman. Ég hafði töluverð-
an áhuga á táknfræðinni sem
stjörnuspekin fékkst við en hafði
lítinn áhuga á stjörnuspeki sem
slíkri. Uppfrá þessu byrjaði ég að
kynna mér fagið, til að sjá hvað
stjörnuspekingar væru að segja og
ég heillaðist gjörsamlega og sá að
stjörnuspeki hafði upp á mikið
meira að bjóða en sálfræðin. í
reynd má líklega segja að hægt sé
að líta á hana sem mikilvægustu
og raunverulegustu sálfræði sem
finnst. Hún er örugglega sú elsta.
Stjörnuspeki er gamla sálfræðin?
Já, hún er það.
Á stjörnuspeki einhverja framtíð
fyrir sér?
Ég held að stjörnuspeki verði
einnig sálfræði framtíðarinnar,
eða að hlutir sem koma frá
stjörnuspeki verði notaðir í sál-
fræði framtíðarinnar. Ég vona að
ekkert verði nokkurn tímann fast
og staðnað, ég held að það sé eðli
mannsins og veraldarinnar að
þróast áfram.
Um stjörnuspekina sjálfa. í aug-
um margra hefur hún eitthvað með
framtíðarspá að gera og margir
halda að þeir geti farið til stjörnu-
spekings og fengið framtíðina kort-
lagða. Vinnur þú þannig?
Nei alls ekki. Ég held að
stjörnuspeki geti spáð fyrir um
vissa hluti en sú hugmynd að
stjörnuspekingurinn geti sagt
nákvæmlega fyrir um hvað gerist
næsta mánudag er fullkomin goð-
sögn sem á sér enga stoð í
raunveruleikanum og hefur ekkert
með hina raunverulegu stjörnu-
speki að gera. Stjörnuspeki getur
hins vegar séð fyrir um hvenær
fólk er líklegt til að ganga í gegn-
um ákveðna reynslu. Hún getur
einnig bent á það hvenær æskilegt
er að framkvæma ákveðna hluti
sem einstaklingurinn vill fram-
kvæma.
Nú hefur þú stundað stjörnuspeki
í langan tíma og unnið sem stjörnu-
spekingur. Hvað hefur þú hagnast á
því og hvar liggur helsta hætta
stjörnuspekinnar?
Helsta hætta stjörnuspekinnar
er einfaldlega sú að fólk þekkir
hana ekki og trúir á stjörnuspána
sem við sjáum í flestum dagblöð-
um. Stjörnuspá dagblaðanna er
bull sem hefur ekkert með raun-
verulega stjörnuspeki að gera og
viðheldur þeirri trú manna að
stjörnuspeki sé einhvers konar
einfeldnisleg spá eða kjánalegar
fullyrðingar um stóran hóp
manna. Stærsta hættan sem steðj-
ar að stjömuspeki er því þekk-
ingarleysið, fáfræði um raunveru-
legt gildi hennar. Hvað varðar
minn persónulega lærdóm af
stjörnuspeki er hann sá sem ég
nefndi hér að framan að stæði öll-
um til boða: aukinn skilningur á
því hver ég er, innra með mér, inn-
an þjóðfélagsins og með öðru fólki.
Ég held að ég hafi orðið mun um-
burðarlyndari gagnvart skapgerð-
areinkennum annars fólks. Þó að
mér líki kannski ekki við eitthvað
á ég auðveldar með að viðurkenna
ólíkan persónuleika manna og
skiljá margbreytileika mannlegr-
ar reynslu. Ég held að ég hafi öð-
last aukna yfirsýn yfir mannlífið
og útfrá því hef ég mun meiri
skilning á því sem er að gerast
innra með mér og innra með þeim
sem ég þekki heidur en ég hafði
fyrir nokkrum árum.
Að lokum?
Það að koma hingað hefur verið
mjög athyglisverð og gefandi
reynsla. Ég vonast til að koma
hingað aftur og ég kann vel við
veðrið.
Jónshúxi. Kaupmannahörn.
HVÍTIR kollar stúdentshúfanna
setja nú svip á borgarlífið hér og
nota dönsku stúdentarnir húfur sín-
ar miklu meira en vani er heima.
Röndin neðan við hvíta kollinn er
ýmist rauð eða blá, rauð hjá mennta-
skólancmum og blá á húfum nem-
enda fjölbrautar. Virðulegu íslenzku
stúdentshúfurnar stúdentanna
tveggja hér í húsi vekja athygli og
eftirgrennslan á götum úti og hafa
þegar leitt til nokkurrar landkynn-
ingar.
Á samkomu eldra fólksins á
annan hvítasunnudag nutu gestir
kaffiveitinga i boði Gísla Sigur-
björnssonar forstjóra Grundar í
Reykjavík. Sendi hann peninga-
gjöf með kveðju frá vistmönnum á
Grund til eldra fólksins íslenzka í
Kaupmannahöfn og var gjöfin til
minningar um Dr. Alfred Jörgen-
sen, stofnanda einnar stærstu og
merkustu líknarstofnunar Dana,
De Samvirkende Menighedsplejer.
En eins og áður hefur verið
minnzt á í pislum þessum eru ís-
lendingar á eftirlaunaaldri hér í
Danmörku nær 200, einkum þó á
svæði Stór-Kaupmannahafnar. Til
skemmtunar þennan dag var upp-
lestur Ingunnar Jensdóttur leik-
konu úr frásögnum Gunnars
Gunnarssonar af þeim Jóhanni
Sigurjónssyni, einsöngur Magnús-
ar Jónssonar við undirleik Maríu
Ágústsdóttur og íslandskvikmynd,
sem Arfeq Johansen gestgjafi
sýndi. — Nokkru síðar áttu ís-
lenzkar konur hér í borg notalega
kvöldstund með Auði Laxness, þar
sem hún las upp úr bók sinni og
ræddi við þær.
17. júní hátíðahöld Islendinga-
félagsins í Kaupmannahöfn fóru
fram með hefðbundnum hætti í
Austurgarði sl. sunnudag. Hófst
athöfnin með helgistund sendi-
Borgarfirði hefur verið opnað eitt ar-
ið enn. Eru um 60 herbergi til gist-
ingar og Reykholt því með þeim
stærri af Edduhótelunum hvað gisti-
rými varðar. Vinna um 10—12
manns við hótelið, flestir heima-
menn úr Reykholtsdalnum. Hótel-
stjóri er Margrét Isleifsdóttir, sem
hefur verið síðustu 11 árin hótelstóri
á Edduhótelinu á Kirkjubæjar-
Vlaustri.
Mikið er um bókanir á erlendum
hópum, sem koma á vegum Ferða-
skrifstofu ríkisins. Sagði Margrét,
að hún vildi gjarnan sjá fleiri Is-
lendinga. Það væri eins og þeir
hefðu ekki uppgötvað Reykholts-
stað en. Reykholt væri rólegur
Frá hátíðahöldum f Austurgarði 17. júní.
ráðsprestsins og söng kirkjukórs
íslenzka safnaðarins. Þá hélt for-
maður íslendingafélagsins, Berg-
þóra S. Kristjánsdóttir, hátíða-
ræðu; María Ágústsdóttir flutti
ávarp fjallkonunnar frá 1954 eftir
Davíð Stefánsson og sungin voru
íslenzk ættjarðarlög. Samkom-
unni stjórnaði Kristín Oddsdóttir
Bonde og var þetta hátíðleg stund
þrátt fyrir fremur svalt en þurrt
veður.
Um 200 manns drukku þjóðhá-
tíðarkaffið í félagsheimilinu og
skoðuðu margir þeirra safn Jóns
Sigurðssonar og margir komu
einnig í safnið hinn rétta þjóðhá-
tíðardag á 174 ára afmæli hans.
Var mjög til prýði í húsakynnum
félagsheimilisins sýning Einars
Sigurjónssonar frá Vopnafirði á
fjölmörgum útsaumuðum mynd-
um og skipaði stórt verk af ís-
staður. nÉg undrast, hversu rólegt
er hérna og kem sjálf úr dreifbýli
samt sem áður. Hér er miklu ró-
legra og meira næði.“
í Reykholti er sundlaug og al-
vöru gufubað eins og heimamenn
kalla það að sögn Margrétar, gam-
alt að vísu, en stendur fyrir sínu.
Þótt verið sé með einn til tvo
hópa frá Ferðaskrifstofuni þá
gætu Islendingar verið óhræddir
við að koma. Oftast væri smuga á
gistingu.
Edduhótelið í Reykholti gengur
inn í „Vildarkjör á Vesturlandi"
sem ferðamálasamtök á Vestur-
landi standa að. Jafnframt er gef-
inn 20% afsláttur á gistingu, ef
gist er í 3 nætur eða lengur. —pþ
lenzka skjaldarmerkinu þar heið-
urssess.
Næsta sýning hér í Jónshúsi
verður opnuð um næstu helgi. Er
það myndlistarsýning Bryndísar
Kondrup, sem átt hefur heima í
Danmörku sl. 6 ár, en nam áður
við Myndlistar- og handíðaskól-
ann í Reykjavík. Mun sýning
hennar standa fram í júlí.
2 íslenzkir kórar munu syngja
hér í borg á næstunni. Nk. sunnu-
dag er það Dómkórinn í Reykjavík
eins og áður hefur verið sagt frá.
En 10. júlí mun Árnesingakórinn í
Reykjavík syngja í Jónshúsi kl.
20.00 og mun hann syngja við ís-
lenzka fermingarguðsþjónustu í
norsku sjómannakirkjunni i
Gautaborg, sunnudaginn 7. júlí kl.
14 og einnig halda tóleika þar í
borg.
G.LAsr.
Margrét ísleifsdóttir hótelstjóri í
Reykholti
Margrét ísleifsdóttir hótelstjóri:
Vildi gjarnan sjá fleiri íslendinga
BorRarnrói, I. júlí.
EDDUHÓTELIÐ í Reykholtsskóla í