Morgunblaðið - 09.07.1985, Qupperneq 27
HÍORGUNBLAÐIÐ. MUÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 1985
27
Pravda, málgagn Soyétstjómarinnar:
Mildari tónn í
garð Banda-
ríkiastjórnar
Thailand:
Shultz hitti leiðtoga
kambódískra skæruliða
Moakvu, 8. júlí AP.
DAGBLAÐIÐ Pravda í Moskvu,
scm er málgagn Sovétstjórnarinnar,
birti á sunnudag og mánudag grein-
ar þar sem farið er óvenju mildum
orðum um Bandaríkjastjórn og jafn-
framt hvatt til þess að hin svonefnda
slökunarstefna (detente) verði hafin
til vegs á ný.
í greininni, sem birtist í dag,
fjallar Lev Tolkhunov, forseti ann-
arrar deildar sovéska þingsins, um
samskipti austurs og vesturs á
þeim áratug sem liðinn er frá því
Helsinki-sáttmálinn var undirrit-
aður. Hann segir, að ekki hafi tek-
ist að ná þeim árangri á sviði her-
mála, sem stefnt var að, og kennir
um afstöðu aðildarþjóða Atlants-
hafsbandalagsins, einkum Banda-
ríkjamanna og Vestur-Þjóðverja.
„Þrátt fyrir þetta,“ skrifar Tolk-
unov, „eru Sovétmenn eindregið
hlynntir því að slökunarstefnunni
verði hrint í framkvæmd."
Á sunnudaginn birti Pravda
Veður
víöa um heim
L»fl*t Hast
Akur.yri 17 Mttskýjað
Amttwdnn 14 21 akýjað
Apmta 18 31 skýjað
Bwcöoni 28 léttskýjað
Btfkn 10 25 rigning
BrOum 8 24 twiðskfrt
Chicago 15 31 hatðakirt
Dublin 12 18 akýjað
hmylw 25 þokumóóa
Frankfurt 8 22 skýjað
Gml 13 25 skýjað
HM.inki 12 22 akýfað
Hong Kong 24 31 akýjað
JwúMkm 18 27 akýjað
Kaupnwnnah. 12 19 akýjað
Lm Patmmm 25 Mttakýjað
Li.ubon 20 31 h.iöskírt
London 15 23 Iwiöakirt
Lot Angdn 20 31 h.iö*kirt
Luimnborg 19 •kýjaö
MbIbqb 28 léttakýjað
Mallorc. 32 akýjað
Miami 27 31 akýjað
MontrMl 15 26 hmöakirt
Moskva 14 17 akýjaö
N.W York 22 29 akýjað
Oaló 13 21 akýjað
Paria 22 akýjað
P.king 21 30 •kýjað
R.yk|avik 12 akýjað
Rió d. Jamiro 14 29 akýjað
Rómaborg 17 34 hmðskirt
Stokkhólmur 14 25 akýjað
Sydiwy 9 16 rigning
Tókýó 23 28 •kýjað
Vinarborg 15 23 hMÓakirt
Þórthðln 9 akýjað
Varar við
sýrlenzka
hernum
Tel Aviv, 8. júlí AP.
YITZHAK Rabin, varnarmála-
ráðherra Israels, sagði í gær, að
hann hefði tekið á sig mikla ábyrgð
með því að samþykkja að dregið
yrði verulega úr framlögum til
varnarmála í landinu. Jafnframt
varaði hann við því að frekari
niðurskurður á þessu sviði yrði til
þess að draga mjög úr hernaðar-
mætti Israela. Rabin varaði enn-
fremur við því, að sýrlenzki herinn
hefði eflzt mjög á undanförnum
þremur árum og sagði, að hann
væri nú „bein ógnun" við ísrael.
grein þar sem sagði, að fyrirhug-
aður fundur Mikhails S. Gorbach-
ev, leiðtoga Sovétríkjanna.og Ron-
alds Reagan, forseta Bandaríkj-
anna, í Genf í nóvember, vekti von-
ir um það um allan heim að sam-
búð stórveldanna mundi batna og
spenna á alþjóðavettvangi minnk-
aði. Höfundur hennar er Boris
Orekhov, kunnur sovéskur frétta-
skýrandi.
„Við mannkyninu blasa tveir
kostir," sagði í greininni. „Annar
er sá að halda vígbúnaðarkapp-
hlaupinu áfram og auka striðs-
hættuna. Hinn er sá, að efla öryggi
manna um allan heim og koma á
friði öllum til handa.“
Það vekur einkum athygli, að
þrátt fyrir að Bandaríkjamenn séu
gagnrýndir í báðum greinunum er
tónninn í þeirra garð mildari en
hann hefur verið um skeið, jafn-
framt því sem aukin áhersla er
lögð á möguleika þess að bæta
sambúð stórveldanna.
GENGI
GJALDMIÐLA
Pundið
hækkar
London, 8. júlí. AP.
DOLLARINN lækkaði lítillega í
verði á gjaldeyrismörkuðum í dag,
en breska sterlingspundið hækkaði
hins vegar meir en það hefur gert í
rúmt ár. Gull lækkaði í verði í ZUr-
ich, en hækkaði aftur á móti í Lond-
on.
„Einhver gaf um það fyrirmæli,
að kaupa mikið af sterlingspund-
um og draga að sama skapi úr
kaupum á dollar," var haft eftir
starfsmanni á gjaldeyrismarkaði i
Frankfurt í dag. „Þetta hefur leitt
til þess að menn hafa komist i
uppnám, og skapað þrýsting á
dpllarann niður á við,“ bætti hann
við.
Ekki er vitað hvers vegna doll-
arinn féll í verði, en athygli hefur
verið vakin á því að á fundi olíu-
málaráðherra OPEC-ríkjanna í
Vin á sunnudag var hvatt til þess
að aðildarríkin virtu reglur um
olíuverð. Hins vegar náðu þeir
ekki samkomulagi um leiðir til að
stöðva verðlækkun á olíu á heims-
markaði. Bretland er fimmti
stærsti oliuframleiðandi heims og
lágt olíuverð hefur yfirleitt leitt
til lækkunar sterlingspundsins.
Fyrir hvert pund fékkst í dag
1,3393 dollarar, en í gær fékkst
1,3275 dollarar fyrir pundið. Hefur
gengi pundsins ekki verið hærra
síðan 2. júlí í fyrra, en þá fékkst
fyrir það 1,3515 dollarar.
Þegar gjaldeyrismarkaðir lok-
uðu í Tókýó í dag fengust 246,50
yen fyrir dollar, en í gær var upp-
hæðin 247,86 yen. Við lok við-
skipta í London fengust 246,75 yen
fyrir dollar.
Gengi dollars gagnvart öðrum
helstu gjaldmiðlum var sem hér
segir: 2,9860 vestur-þýsk mörk (I
gær 3,0100); 2,5232 svissneskir
frankar (2,5255); 9,1650 franskir
frankar (9,1775); 3,3945 hollenskar
gyllinur (3,4000); 1.921,00 ítalskar
lírur (1.925,00) og 1,3587 kanada-
dollarar (1,3570).
Við lok viðskipta í Zúrich feng-
ust 309,50 dollarar fyrir únsu af
gulli, en í gær fengust fyrir hana
þar 312,00 dollarar. Við lok við-
skipta í London fékkst hins vegar
hærra verð eftir að fregnir bárust
um fall dollarans.
Bugkok, ThaiUndi, 8. júlí. AP.
GEORGE Shultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, átti í dag viöræður
við þrjá leiðtoga skæruliðasamtaka,
sem berjast gegn hernámsliði Víet-
nama í Kambódíu. Að fundinum
loknum áréttaði hann fordæmingu
Bandaríkjastjórnar á hernaði Víet-
nama í landinu.
Viðræður Shultz og skæruliða-
foringjanna fóru fram í Bangkok í
Thailandi, sem er fyrsti viðkomu-
staður utanríkisráðherrans á viku-
ferð um Suðaustur-Asíu. Tveir
mannanna, Sak Sutsakhan herfor-
ingi og dr. Abdul Gaffar, eru úr
röðum Þjóðfrelsisfylkingar
Khmera, sem er andkommúnísk.
Sá þriðji, Norodom Ranariddh, er
sonur Norodom Sihanouk fursta,
fyrrum þjóðhöfðingja Kambódíu,
sem stjórnar annarri skæruliða-
hreyfingu andkommúnista.
Á morgun, þriðjudag, er fyrir-
hugað að Shultz fljúgi að landa-
mærum Thailands og Kambódíu og
hitti þar einhverja ú: hópi þeirra
230 þúsund flóttamanna frá Kamb-
ódíu, sem flúið hafa yfir landa-
mærin vegna hernaðarátaka milli
skæruliða og Víetnama.
I dag átti Shultz einnig fund með
Prem Tinsulanonda, forsætisráð-
herra Thailands, og ítrekaði þar
stuðning Bandaríkjamanna við
Thailendinga og aðrar þjóðar, sem
aðild eiga að Suðaustur-Ásíu-
bandalaginu.
ALIT TIL
PIPULAGNA
B.B. BYGGINGAVÖRUR HE
SUÐURLANDSBRAUT 4. SÍMI 33331.