Morgunblaðið - 09.07.1985, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. JULl 1985
33
Gluggi á drauminn
— eftirSiglaug
Brgnleifsson
Þorsteinn frá Hamri: Ný Ijóð.
Reykjavfk. Iðunn 1985.
„Skáldskapurinn var mér lausn
frá veraldarvafstri heimsins,
vafstri sem fyllir hugann án þess
að því fylgi nokkur gildi og sem
dregur athyglina frá verðmætum
að þeim efnum, sem lítils eru verð
... Því er það meira en lofsvert
þegar menn hafa þann sálarstyrk
til að bera, að þýðingarmeira sé að
„fara varlega með orð“, ákveða
rétta setningu greinarmerkja, en
að beina athygli að hryllings-
fregnum eða bjarga eigin lífi ...
Allir menn hrifast við vissar að-
stæður, hrifning skálda virðist
dýpri og tilfinning þeirra magn-
aðri, eins og kemur fram í verkum
þeirra. En skáld hrífast einnig af
því, sem aðrir sjá ekki og það virð-
ist ekki þurfa neitt til þess að
vekja með þeim tilfinningastorma,
viss huglæg viðbrögð og sérstæða
skynjun, sem öðrum virðist fram-
andieg. Með þeim býr tilfinninga-
leg ofgnótt, djúp og auðug skynj-
un, sem getur logað upp við
minnstu ástæöu, að því er öðrum
finnst og skapað dýrmæti, og jafn-
vel undraheima." (Valéry.)
Gerð ljóða krefst einbeitingar
athyglinnar, ögunar og jafnvægis
inntaks og hrynjandi. Þar eru eng-
in óþarfa orð og fullkomin aðlögun
að tilfinningalegri uppsprettu og
tjáning hennar í hljómi sem falla
að orðum.
Ljóð Þorsteins frá Hamri ein-
kennast af þessari nauðsyn.
Ferðahugur: — „út úr eigin mynd
og sögu — með sterkri angan þíð-
vinda, moldar og þara ... — inn
rakleitt í annað hús, aðra sjálfs-
mynd og sögu — staðnæmist aldr-
ei ..." Hann kemur aftur og aft-
ur að uppsprettunum. Kvæði hans
líkjast „iðju sem er annað en
hagsmíð bragar/ en eitthvað skyld
— og mér að fornu kunn. Minn
huga ber að brúarsmíð við gilið:
faðir minn sveittur leggur stein
við stein. Strábrýr veikar eru ljóð
mín og dagar.“ Þessi samlíking
stenst í sjálfu sér. Það er einmitt
einkenni þessara ljóða, þau eru.
Mynd hestsins „Klárinn minn/ er
kominn til ára sinna/og hefur
sérstakt hæli utan túna/ í sólar-
hitum: sinugróið barð/ þar sem
hann liggur langar stundir einn/ -
og er þó fremur hlýtt til annarra
hrossa."
Þorsteinn frá Hamri
Engin óþarfa orð, myndin hag-
lega gjörð, ekkert of eða van.
Þetta eru einkenni ljóða Þor-
steins.
Steinn: „svo oft hef ég séð hug
þinn til mín/ speglast í fölum
frosthimni/ glataðra morgna —
... gamli steinn/grár kaldur og
rór ... / “ H i n upprunalega
kennd fyrir náttúrunni og orðinu
koma þarna fram. Minnir á sög-
una um Amphion, stofnanda Þebu
í Helias, sem hreyfði steinana með
„sætleika lýrunnar".
í þeim ljóðum Þorsteins þar
sem hann tengist þjóðsögunni og
náttúrunni má marka hinn upp-
haflega tón, þau minna á kenning-
ar Hedeggers um skáldskap Höld-
erlins og gríska ljóðlist, þar sem
orðið býr yfir og er hin fyrsta
sköpun, hreint og tært og lifir eig-
in lífi. Draumar: „Draumar/sem
engin leið er að losna við: svipir/ í
sinugróinni rúst — og sjálfur þú:
rústin/.“ Leitin að vorinu eilífa:
„hús ... líkami minn. En sálin/ er
skuggaburkni hjá lind sem liðast í
fjarska/."
Undrunin ríkir í þessum ljóðum,
samkennd hans og náttúrunnar
sem lifir áfram í „strábrúm veik-
um“ sem eru öllum brúm sterkari.
Andstæðurnar sem Þorsteinn
leitast við að skyggna eru aldar-
svipurinn og heimar uppsprett-
anna „að skyggna eitthvað af
aldarsvipnum sem mótar/ ásjónur
gestanna meðan þeir snæða dægr-
in/ og skola þeim niður með stríð-
söli drukknu af stút/ Þú stendur
við dyrnar þegar þeir ryðjast út/.“
Þorsteinn skyggnir öldina í Morg-
un: „Vistleg er borgin; vélmenni
hafa sópað leifum fólksins/ í lukt-
ar þrær/.“ Guð er ekki glaður,
hann óskar að geta sagt „Enn er
hjarta hér og slær.“
Skriðu-Fúsi: Afbrot Skriðu-
Fúsa var þess eðlis, að hann var
dæmdur úr mannlegu samfélagi
með því að skylda hann til þess að
skríða á fjórum fótum í viðurvist
manna. Skriðu-Fúsi var „óþokka-
menni en ekki flón“ eins og segir í
kjörseðilsvísu líklega eftir Jakob
Thorarensen, sem ort er um fram-
bjóðanda nokkurn á 20. öld. Hann
var af sömu tegund og t.d. Sveinn
Skotti, sonur Axlar-Bjarnar. í
þessu kvæði Þorsteins er svo kom-
ið, að þeim kumpánum sem stund-
uðu vafasama iðju fyrrum gefst
nú tækifæri til þess að skella sér
suður: „Ég flyt af Kerlingar-
skarði/ í borgarhallir./ Mér fer að
skiljast/ hve gott er að ganga á
fjórum./ Það gera nú allir./“ Þar
gefst honum tækifæri til þess að
iðka þær greinar, sem hann var
dæmdur fyrir og bagar hann ekki
að skríða, þar iða allir á fjórum
fótum.
En þrátt fyrir dökkar svip-
myndir úr samtíðinni þá ber að
taka öllu með æðruleysi. Skegg-
ræður: „Já það má nú segja/ að
ekki kyrrist/ í aldar ranni./“
Óskin: „Þótt stjarna í miðri kröm-
inni kunni að vera tál/ og blekking
eins og fjöllin bláu/ sem virðast
blá þó ein sé þar auðnin dauð og
föl —/ við getum ekki sináð hana
fremur en fjöllin;/ hún fyllir vígið
hljóða í okkar sál./ Þar spinnur
hún sem köngurvofa mjóan þráð
úr þrá/ óravegu út og suður/ og
framlengir í von okkar vonir þessa
heims,/ líf þessa heims og útsýn
mannsins augna/ til fjalla sem
áfram líkt og áður sýnast blá/.“
Stjarnan „fyllir vígið hljóða" í
miðri kröminni og spinnur „mjóan
þráð úr þrá ... “ til þeirra holl-
vætta sem Þorsteinn ávarpar í
Óþoli: „Hollvættir,/ ljóstið mig
sprotum yðar/ að ég megi
afbera/ heimsmynd hamskipt-
anna — una við andartaksins
vængjaða fögnuð/, lifa.“
„Attanna hef ég misst, átta sem
við mér brostu/ í björtum döl-
um/ á vordögum gleðigjörn-
um;/ nú gneista og hrökkva/ úr
skafli hverjum skrípildi ... Hvar
mun eldur/ á arni bjóða mér
vist?“
Hann nær áttunum við þann
„glugga/ sem guð á drauminn
setti/ og gný þér ber að hlust-
um/ frá ókunnugum sævi;/ þig fer
að gruna vöku/ og vor og sólskins-
bletti;/ þú vaknar kannski
seinna/ og lifir brot úr ævi/.“
Lifir brot úr ævi, undrast, lifir
andartaksins fögnuð. Eitt ein-
kenni kvæða Þorsteins frá Hamri
er hversu efnismikil þau eru í sínu
knappa formi. Sum þessara kvæða
segja langa sögu i fáeinum linum,
þau vísa til þjóðsögunnar og alls
þess sem býr á bak við hana og eru
jafnframt algjör heild.
f viðauka eru birtar haganlega
gerðar þýðingar þ.á m. Hrafninn
eftir Poe. Bókarkápa er gerð af
Guðrúnu Svövu Svavarsdóttur,
þar sem „loftið upp yfir Eiríks-
jökli er orðið misturblátt".
Höfundurinn er fræðimadur og
hefur skrífað um erlendar bækur í
Morgunblaðið.
VZterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Bresk en ótrú-
lega „bandarísk“
Hljómplötur
Siguröur Sverrisson
Shy
Shy
RCA/Skífan
Ég hélt mér ætluðu að detta
allar dauðar lýs úr höfðu (þær
voru reyndar fáar eftir) þegar ég
áttaði mig á því að Shy er bresk
sveit en ekki bandarísk eins og
ég hafði alltaf talið. Undrunin
stafaði fyrst og fremst af því að
tónlist Shy sver sig svo rækilega
í ætt við rokk „a la Styx“ að með
ólíkindum má heita að slíkt skuli
koma frá Bretaveldi!
Shy er ein þeirra fjölmörgu
sveita sem sprottið hafa upp úr
iðnaðarborginni Birmingham á
liðnum misserum. Hún er skipuð
þeim Tony Mills/söngur, Pat
McKenna/hljómborð, Steve
Harris/gitar (hann á alnafna í
Iron Maiden þessi), Alan Kelly/-
trommur og Roy Stephen Davi-
es/bassa.
Það að hljómsveit á borð við
Shy skuli bregða fyrir sig jafn
bandarfsk-ættuðu rokki og raun
ber vitni er kannski ekki að
undra því með því er framavonin
í Bandaríkjunum margfalt
meiri. Rokk eins og það sem Shy
leikur á miklu greiðari leið inn í
FM-stöðvarnar vestanhafs en
þyngra rokk og þessar stöðvar
ráða því sem þær vilja ráða um
vinsældir fjöldamargra tónlist-
armanna.
Hvað svo sem öllum þessum
vangaveltum líður er Shy ekkert
annað en „enn ein sveitin“ með
iðnaðarrokk á stefnuskránni,
hvorki betri né verri en aðrar
sem berjast á sömu vígstöðvum.
Margt er reyndar vel gert, sér í
lagi söngur og allar raddanir,
sem oft minna mjög á Styx sál-
ugu, en lagasmíðarnar eru ekki
nema í meðallagi.
Fimm daga
hálendisfero
Brottför alla miðvikudaga í sumar frá og með 10. júlí
1. DAGUR: EkiðSprengisandog gist í Nýjadal. 2. DAGUR: Ekið
áfram norður, Bárðardal, Goðafoss til Mývatns og gist þar. 3.
DAGUR: Mývatns- og Kröflusvæði skoðuð, ekið síðdegistil Ak-
ureyrar og gist þar. 4. DAGUR: Ekið til Hveravalla og gist þar.
5. DAGUR: Frá Hveravöllum til Kerlingarfjalla, Gullfoss, Geysis,
Laugavatns, Þingvalla og til Reykjavíkur.
INNIFALIÐ: Fullt fæði, leiðsögn og gisting í tjaldi. Einnig er
hægt að gista í skálum og á hótelum.
VERÐ AÐEINS 6.900.-
Allar nánari upplýsingar f síma 687912 og hjá ferðaskrifstofu j
BSÍ, Umferðarmiðstöðinni, sími 22300. i
*»
Snæland Grímsson hf.
Feröaskrifstofa. Sími 687912.
Kvöld- og helgarsími: 75300 og 83351
TUDOR
RAFGEYMAR
ísetning
innanhúss
umboósmenn um
land allt
TUDOR
umlxíóió
Laugaveg 180 - sími 84160
.. Já —þessir meö 9 lif!