Morgunblaðið - 09.07.1985, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 1985
57
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR
Þingkosningarnar verða
yarla til að línur í stjórn-
málunum skýrist að marki
EKKI hefur Antonio Ramalho Eanes, forseti Portúgals, fyrr tilkynnt að
hann muni rjúfa þing eftir fáeina daga og boða til kosninga, en menn fara
að velta fyrir sér hvernig atkvæðin muni skila sér til (lokkanna í kosning-
unum í haust. Raunar verða ekki aðeins þingkosningar í Portúgal, sveit-
arstjórnarkosningar voru þegar ákveðnar og eins og fram hefr komið eiga
Portúgalir einnig að velja sér nýjan forseta. Hugsanlegt er að forseta-
kosningarnar verði færðar fram yfir áramótin vegna breyttra stöðu.
flokkurinn var stofnaður. Ymsir
óttuðust að Lucas Pires, núver-
andi formaður flokksins myndi
ekki ná þeim tökum á flokknum
sem Freitos do Amaral hafði,
enda tapaði CDS í fyrstu kosn-
ingunum eftir að do Amaral sagði
af sér. Nú virðist blása byrlega á
ný. Og það er stórmikill vafi á þvi
hversu sólgnir Miðdemókratar
væru í að fara í samstarf með
PSD, sem mörgum þykir orðið
heldur blendinn flokkur og ekki
útreiknanlegur.
Svo er auðvitað spurningin um
hvað Eanistaflokkurinn muni fá
mikið fylgi. Hann hefur nú loks
verið stofnaður eftir harðar og
langar fæðingarhríðir. Það verð-
ur honum sjálfsagt fjötur um fót
að Eanes getur auðvitað ekki
stýrt kosningabaráttunni og
reynt að nota sinar eigin vinsæld-
ir — þótt nokkuð séu þær dvín-
andi — flokknum til framdráttar.
Eanes hefur væntanlega treyst á
það fram á síðustu stundu, að
hann myndi vera kominn úr for-
setasætinu þegar þingkosningar-
undirbúningur hæfist og gæti því
beitt sér af krafti. Menn telja
ekki að Eanistaflokkurinn muni
breyta miklu til né frá og í fyrstu
lotu muni honum varla takast
það sem Eanes stefnir að með
þessari flokksstofnun, að ná und-
irtökunum f portúgölskum
stjórnmálum.
Svo er allt er þetta fjarska
óljóst og sennilega vilja færri
kosningar en ekki. Mario Soares
forsætisráðherra getur varla ver-
ið mjög sáttur við að þurfa nán-
ast samtímis að heyja kosninga-
baráttu til þings — og verja óvin-
sælar gerðir ríkisstjónrarinnar
— samtímis því sem hann leitar
eftir stuðningi þjóðarinnar sem
forsetaframbjóðandi fáeinum
vikum eftir kosningarnar. Þótt
Soares sé klókur og hafi sýnt að
hann er útsjónarsamur í meira
lagi, gæti svo tvöfalt hlutverk
varla orðið honum auðvelt. Og
meðan Soares þarf enn að vafstra
í stjórnmálum í stað þess að snúa
sér að undirbúningi forsetakosn-
inganna, eru tveir helztu keppi-
nautar hans Maria Lourdes de
Pintassilgo, fyrrverandi forsæt-
isráðherra og Freitos do Amaral,
sem raunar er spáð sigri í for-
setakosningunum, bæði komin á
fleygiferð í atkvæðasmöluninni.
Höfuadur er blaðamaður f erl.
fréttadeild Morguablaðsins.
Það hefur komið rækilega
fram að fæstum þykir heppi-
legt að efna til þingkosninga í
Portúgal nú, nær tveimur árum
áður en kjörtimabilinu lýkur.
Þegar stjórn Mario Soares tók við
fyrir röskum tveimur árum, ólu
menn með sér þær vonir, að henni
tækist að sitja út kjörtimabilið.
Stjórnina studdu tveir stærstu
flokkar landsins, Sósialistaflokk-
urinn, PS og Sósialdemókrata-
flokkurinn PSD. Svo mikinn
meirihluta hafði stjórnin þvi á
þinginu, að menn treystu því að
henni tækist að sitja. Portúgalar
vonuðu þó alveg sérstaklega, að
henni tækist að ráðast af einurð
gegn gríðarlegum efnahagsvanda
landsins og koma ástandinu í ögn
betra horf. En þrátt fyrir mikinn
þingmeirihluta komu fljótlega í
ljós ýmsir brestir í stjórnar-
samstarfinu. Eftir ýmsu að
dæma virðast Mario Soares og
flokksmenn hans i stjórninni
hafa viljað fara hraðar en sam-
starfsflokkur PSD þegar ákveða
þurfti efnahagsaðgerðir, sem
komu óneitanlega mjög harka-
lega við hinn almenna borgara.
Persónulegur metingur og rfgur
innan stjórnarinnar hefur einnig
gert henni örðugra fyrir.
Eftir að Anibal Cavaco Silva
tók við aðstoðarforsætisráðherra
embætti að Mota Pinto látnum
var svo ekki langt að bíða að til
tíðinda dragi. Cavaco Silva hafði
ekki farið í launkofa með þá skoð-
un sína, að stjórnarsamstarf við
PS væri vondur kostur og að
hann teldi, að endurvekja ætti
samstarfið við Miðdemókrata-
flokkinn CDS. Þessir flokkar
mynduðu kosningabandalagið Al-
ianca Democratia þegar Frans-
isco Sa Carneiro var forystumað-
ur PSD. AD vann sigur í kosning-
um tvívegis og samstarf flokk-
anna var áfallalitið unz Sa Carn-
eiro féll frá í desember 1980.
Stjórnmálaskýrendur eru ekki
trúaðir á að samvinna þessara
flokka nú myndi lánast, forsend-
ur allar hafi breytzt síðustu fimm
árin og PSD hafi færzt lengra til
vinstri en svo að Miðdemókratar
geti fellt sig við að starfa með
honum. Það fer þó ekki milli mála
að fái Cavaco Silva einhverju um
ráðið mun hann reyna að þoka
flokknum í hægriáttina. Það er
ekki þar með sagt að stefnubreyt-
ing í áttina yrði PSD til fram-
dráttar, öllu heldur gætu komið
upp raddir um hringlandagang
PSD frá fyrstu tíð og raunar hafa
þær raddir þegar látið í sér
heyra.
Af hálfu Miðdemókrata liggur
að svo stöddu ekki fyrir, hversu
hlynntir þeir væru auknu sam-
starfi við Sósialdemókrata. Mið-
demókratar hafa verið í óða önn
að treysta fylgi aitt, aðallega hafa
þeir reynt að ná til ungra kjós-
enda þennan tíma sem núverandi
ríkisstjórn hefur setið að völdum
og Miðdemókratar verið í stjórn-
Anibal Cavaco Silva
Antonio Ramalho Eanes
María Pintassilgo
arandstöðu. Það blandast varla
nokkrum hugur um að þar hafi
þeir sennilega náð nokkrum
árangri og þeir hafa einnig þótt
standa sig bærilega i stjórnar-
andstöðu. Málflutningur þeirra
hefur þótt rökfastur og hnit-
miðaður. Miðdemókratar hafa
einnig þann plús umfram hina
stjórnarflokkana, að enginn hef-
ur þurft að velkjast í vafa um
stefnu hans, sem hefur verið mik-
ið til sjálfri sér samkvæm frá því
HALLDÓRSSON ÁTT ÞÚ VIN SEM
Myndlistamaður ^ VILT GLEÐJA?
FÆST í BLÓMA — GJAFA — PLAKATA-
OG BÓKAVERSLUNUM UM LAND ALLT.
Eða í póstkröfu, hringið í síma 14728og
sjálfvirkur símsvari tekur við pöntunum
allan sólarhringinn.
...eða sendið útfyllta ÚRKLIPPUNA hér
að neðan og myndin verður send um hæl:
Sendið mér gegn póstkröfu plakatið „ÁST“
með ljóði úr SPÁMANNINUM eftir KHALIL
GIBRAN:
□____ _ stk. óinnrömmuð @ kr.: 495.-/stk.
ZI____ stk. innrömmuð @ kr.: 741.-/stk.
(smellurammi með gleri)
NAFN____________________________
HEIMILI_________________________
PÓSTFANG: PÓSTNR:___STAÐUR______
SENDIST TIL: SPÁMANNSÚTGÁFAN
PÓSTHÓLF: 631, 121 — RVÍK
Má setja
ófrímerkt
í póst.
df